Skessuhorn - 24.06.2020, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 202024
Sumarið 2019 var Skagakon-
an Vera Knútsdóttir að byrja að
sauma barnaföt þegar hún fann að
það vantaði úrval af lífrænt vottuð-
um efnum hér á landi. Hún ákvað
því að taka málin í eigin hendur og
byrja að flytja inn efni. Hún opn-
aði svo vefverslun undir nafninu
Litla músin og selur þar bæði efni
og heimasaumuð barnaföt. „Það er
eitthvað til af lífrænt vottuðum efn-
um á Íslandi en úrvalið fannst mér
frekar lítið. Ég ákvað því að bæta úr
því og flyt inn efni í hæsta gæða-
flokki en ég hef verið að flytja inn
efni frá Finnlandi og er núna að
bíða eftir sendingu af efnum með
Múmín myndum frá norsku fyrir-
tæki,“ segir Vera.
Sjálfbær framleiðsla
Hugsjón Veru með vefversluninni
er að vera fyrst og fremst með líf-
ræn efni eins og bómul og bamb-
us en einnig önnur efni sem þá eru
unnin úr endurunnum efnum. „Ég
vil bara vera með efni sem eru sjálf-
bær og ég vil að hægt sé að ganga að
því vísu að gæðin séu mikil og efn-
in öll umhverfisvæn. Ég gæti þess
líka að öll keðjan í framleiðslunni
sé jákvæð og að sá sem til dæmis
tínir bómulinn fái sanngjörn laun.
Mér þykir mikilvægt að um sé að
ræða sanngjarna framleiðslu, mikil
gæði og umhverfisvæn efni,“ seg-
ir Vera. Vefverslunin var upphaf-
lega bara gæluverkefni sem hef-
ur undið uppá sig en í samkomub-
anninu jókst salan töluvert. „Ég
hef alltaf ætlað með að hafa þetta
bara sem vefverslun og ég var því
komin á netið áður en samkomub-
annið kom á meðan aðrar verslanir
voru það kannski ekki. Það hefur
því verið töluvert að gera hjá mér,“
segir hún ánægð.
Saumar eftir pöntunum
Auk þess að selja efnin saumar Vera
barnaföt og selur. Hægt er að sjá
hvernig barnaföt hún er með í vef-
versluninni og panta. „Ég get líka
tekið að mér sérpantanir ef fólk er
með eitthvað ákveðið í huga sem
það vill. Það hefur til dæmis verið
vinsælt að fá mig til að sauma eitt-
hvað ákveðið fyrir sængurgjafir, þá
er engin annar sem á alveg eins, sem
er mjög skemmtilegt,“ segir Vera.
Aðspurð segist hún vera með ágætt
úrval af allskonar efnum. „Þetta er
kannski mest fyrir barnaföt en ég
er að vinna í að taka inn efni sem
henta öðrum aldurshópum,“ segir
hún. Ef fólk vill fá að finna hvern-
ig efnin eru áður en þau eru pönt-
uð er hægt að fara í Gallerý Snotru
við Kirkjubraut á Akranesi og fá að
skoða prufur. Vefverslunin er www.
litlamusin.is en einnig er hægt að
finna hana á Facebook.
arg/ Ljósm. aðsendar
Sýnishorn af þeim efnum sem hægt er að kaupa hjá Litlu músinni.
Flytur inn og selur lífrænt vottuð efni
og heimasaumuð barnaföt
Vera Knútsdóttir.
Sía Jowan, yngri dóttir Veru, situr fyrir í fötum sem Vera hefur saumað.
Aliya Guðrún, eldri dóttir Veru, er
einnig góð fyrirsæta fyrir mömmu
sína.