Skessuhorn - 24.06.2020, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 2020 31
Í þessari viku er spilað í 32ja liða
úrslitum Mjólkur-bikarkeppni
karla í knattspyrnu. Tvö Vestur-
landslið eru í pottinum. ÍA mætir
Kórdrengjunum á Framvellinum í
Reykjavík í dag, miðvikudaginn 24.
júní klukkan 19:15. Víkingur Ólafs-
vík tekur svo á móti nöfnum sín-
um úr Reykjavík á Ólafsvíkurvelli
klukkan 19:15 á morgun, fimmtu-
dag. Sextán liða úrslit bikarmótsins
hefjast svo þriðjudaginn 30. júní.
mm
CrossFit Ægir á Akranesi hefur tek-
ið þá ákvörðun að hætta að borga
fyrir nafnið CrossFit og verða frá
og með deginum í dag undir nafn-
inu ÆGIR – þeir fiska sem róa.
Þetta segir í tilkynningu frá stöð-
inni.
Taka forsvarsmenn Ægis upp eft-
ir öðrum innan CrossFit hreyfing-
arinnar á heimsvísu að sýna sam-
stöðu gegn kynþáttaníð. Heimsk-
lassa íþróttafólk á borð við Katrínu
Tönju, hraustustu konu heims 2015
og 2016, og Annie Mist, hraustustu
konu heims 2011 og 2012, hafa for-
dæmt ummæli Glassman og til að
mynda hefur Katrín Tanja tilkynnt
að hún muni ekki halda áfram að
keppa á meðan rasismi dvelur inn-
an hreyfingarinnar.
Mikil ólga hefur verið í CrossFit
heiminum í kjölfar þess að eigandi
CrossFit, Greg Glassman, lét rasísk
orð falla á Twitter reikningi sínum í
garð George Floyd og „Black Lives
Matter“ byltingarinnar. Glassm-
an hefur sagt sig frá störfum en er
engu að síður ennþá eigandi Cross-
Fit.
glh Ljósm/ úr safni.
Metþátttaka var í Landsbanka-
hlaupinu í Snæfellsbæ á 17. júní.
Um 90 börn á ýmsum aldri tóku
þátt. Breyting var á hlaupaleið-
um frá því í fyrra og þrjár mislang-
ar hlaupaleiðir sem lágu um götur
Ólafsvíkur. Voru bæjarbúar hvattir
til að fara út á götu og hvetja hlaup-
ara þegar þeir fóru framhjá. Að lok-
inni smá upphitun voru þátttakend-
ur ræstir í hollum og eins og áður
segir var metþátttaka og að hlaupi
loknu fengu allir óvæntan glaðning.
Var þetta góð byrjun á hátíðarhöld-
um í tilefni þjóðhátíðardagsins.
þa
Íslandsmótinu í holukeppni 2020
í golfi lauk á sunnudaginn á Jað-
arsvelli á Akureyri. Ólafía Þór-
unn Kristinsdóttir úr GR og Axel
Bóasson úr GK fögnuðu sigri eft-
ir spennandi keppni í úrslitaleikj-
unum. Þetta er í þriðja sinn sem
Ólafía Þórunn sigrar á þessu móti
og í annað sinn sem Axel vinnur Ís-
landsmótið í holukeppni.
Hákon Örn Magnússon GR og
Axel Bóasson GK léku til úrslita í
karlaflokki. Í kvennaflokki mætt-
ust Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
GR og Eva Karen Björnsdóttir GR
í úrslitum. Axel sigraði 1/0 gegn
Hákoni eftir hörkuleik. Guðmund-
ur Ágúst landaði þriðja sætinu með
4/3 sigri gegn Ólafi. Ólafía Þórunn
sigraði 4/3 í úrslitaleiknum gegn
Evu Karen. Ragnhildur sigraði
Guðrúnu Brá 5/4.
-fréttatilk
Skallagrímskonum hefur borist öfl-
ugur liðsstyrkur fyrir næsta keppn-
istímabil í Domino‘s deild kvenna
í körfuknattleik, því framherjinn
Sanja Orozovic hefur gengið til liðs
við lið Borgnesinga.
Sanja lék með KR á síðasta tíma-
bili þar sem hún skoraði 16,6 stig
og tók 8,8 fráköst að meðaltali í
leik. Þar áður lék hún með Breiða-
bliki í Domino‘s deildinni, þar sem
hún skilaði að meðaltali 20,6 stig-
um í leik. Áður en Sanja kom til
Íslands lék hún með félagsliðum
í Serbíu, Slóveníu og Ungverja-
landi. Sanja er 30 að aldri og hef-
ur bæði ungverskt og serbískt ríkis-
fang. „Ég mun gera allt mitt til að
standa undir því trausti sem mér er
sýnt, vinna leiki og ná markmiðum
næsta vetrar. Ég hlakka til að koma
í Skallagrím,“ segir Sanja.
Guðrún Ósk Ámundadóttir,
þjálfari Skallagríms, kveðst afar
ánægð að fá hana til liðs við Skalla-
grím. „Ég hef lagt áherslu á að
vinna skipulega að því að undirbúa
næsta tímabil og það að fá Sanju til
okkar er liður í þeim undirbúningi.
Hún á eftir að hjálpa okkur mikið
enda mjög öflugur leikmaður sem
þekkir deildina vel eftir að hafa
spilað hér á landi síðustu tvö ár. Ég
er mjög ánægð og hlakka til að fá
hana í Borgarnes,“ segir Guðrún.
kgk
Kári mætti Selfossi í fyrsta leik sum-
arsins í 2. deild karla í knattspyrnu
17. júní síðastliðinn. Þjóðhátíðar-
stemning var í Akraneshöll, þar sem
leikurinn fór fram og áhorfendur
nálægt 400 talsins. Leikurinn var
líflegur því alls sjö mörk litu dagsins
ljós, en því miður fyrir heimamenn
skoruðu gestirnir fjögur þeirra og
sigruðu að lokum 3-4.
Það var rvoje Tokic sem kom Sel-
fyssingum yfir á 14. mínútu leiksins
en Andri Júlíusson jafnaði úr víta-
spyrnu á 26. mínútu. Kenan Turu-
dija kom gestunum í 1-2 á 35. mín-
útu og þannig var staðan í hálfleik.
Eggert Kári Karlsson jafnaði fyrir
Kára á 52. mínútu en tíu mínútum
síðar skoraði Tokic sitt annað mark
og kom Selfyssingum yfir í þriðja
sinn í leiknum. Hann var síðan aftur
á ferðinni með marki úr vítaspyrnu
á 66. mínútu leiksins. Eggert Kári
minnkaði muninn þegar komið var
fram yfir venjulegan leiktíma en
það var of seint í rassinn gripið fyr-
ir Káramenn sem máttu sætta sig
við tap, 3-4, í fyrsta leik sumarsins.
næsti leikur Kára er gegn Þrótti V.
laugardaginn 27. júní næstkomandi.
Hann verður leikinn í Vogunum.
kgk/ Ljósm. Knattspyrnufélag
Kára.
Skagamenn heimsóttu FH-inga í
Kaplakrikann á sunnudagskvöldið
í annarri umferð Pepsí Max deild-
arinnar í fótbolta. Hart var bar-
ist strax á upphafsmínútum leiks
og jafnræði með liðunum en hægt
og rólega fóru heimamenn að
síga framúr og gerðu öftustu línu
Skagamanna erfitt fyrir. Engin
mörk komu þó í fyrri hálfleik þrátt
fyrir fín marktækifæri.
Í síðari hálfleik kom mark strax á
51. mínútu. Heimamaðurinn Guð-
mann Þórisson átti góða sendingu
á liðsfélaga sinn Jónatan Inga Jóns-
son sem kom á blússandi siglingu
inn af kantinum og renndi bolt-
anum framhjá Árna Snæ Ólafs-
syni í marki Skagamanna. 1-0 fyrir
heimamenn. Það leið ekki á löngu
þar til annað mark bættist við. Á
57. mínútu komst Steven Lennon
inn fyrir vörn Skagamanna og lagði
boltann í markið og kom þann-
ig heimamönnum í vænlega 2-0
stöðu.
ÍA vaknaði aðeins til lífsins þeg-
ar líða tók á leikinn og uppskar
vítaspyrnu á 84. mínútu. Tryggvi
Hrafn Haraldsson fór á punktinn,
skilaði knettinum örugglega í net-
ið og minnkaði muninn í 2-1. Ekki
reyndist nægur tími fyrir Skaga-
menn að jafna metin og FH-sigur
því staðreynd.
Hafnfirðingar eru með fullt hús
stiga eftir tvær umferðir og eru í
þriðja sæti deildarinnar á meðan ÍA
situr í 6. sæti. næsti leikur Skaga-
manna er gegn Íslandsmeisturun-
um í KR næstkomandi sunnudag.
Sá leikur fer fram á Akranesvelli og
hefst kl. 19:15.
glh
CrossFit Ægir tekur CrossFit
úr nafninu sínu
Fjölmenni í Landsbanka-
hlaupinu í Snæfellsbæ
Tap í Kaplakrikanum
Tap í fjörugum fyrsta leik
Íslandsmeistarar
í holukeppni
Bikarleikir framundan
Sanja Orozoviz rífur niður frákast í leik KR og Snæfells síðasta vetur. Ljósm. sá.
Sanja Orozovic
í Skallagrím