Skessuhorn - 14.10.2020, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 42. tbl. 23. árg. 14. október 2020 - kr. 950 í lausasölu
Tilboð gildir út október 2020
Family special
4.495 kr.
Vökudagar á Akranesi
29. október - 8. nóvember
Upplýsingar um dagskrána
á www.skagalif.is
Okkur er umhugað um viðskiptavini og starfsfólk og
höfum því lokað á beinan aðgang að útibúum okkar.
Hægt er að bóka heimsókn í útibú á arionbanki.is ef
erindið er brýnt. Þjónustuverið í síma 444 7000 er
opið kl. 9–16 virka daga.
Notum Arion appið og netbankann.
Fjarþjónusta í ljósi aðstæðna
– sinnum bankaviðskiptum heima í stofu
Vinkonurnar Jóhanna Nína Karlsdóttir og Heiðrún Hermannsdóttir á Akranesi eru í hópi þeirra ungu kvenna sem hafa fengið sér dúkkubörn til að sinna og hlúa að.
Reglulega fara þær út að ganga með dúkkubörnin, viðra sig og þau um leið. Jóhanna á dúkkudótturina Aðalheiði Rós, sem hún kallar Heiðu. Heiðrún á hins vegar
dúkkuson sem heitir Helgi Rafn. Meðfylgjandi mynd var tekin í blíðviðrinu fyrir síðustu helgi þegar þær Nína og Heiðrún voru á ferðinni við skriftofu Skessuhorns.
Ljósm. mm.
Dómnefnd hefur nú valið og kynnt
vinningstillögu í samkeppni um út-
sýnisstað á Súgandisey við Stykkis-
hólm. Vinningstillagan var unnin af
Glámu-Kím og Landslagi í samstarfi
við Ólöfu Nordal og Gunnar Karls-
son. Tillagan er óhefðbundinn útsýn-
isstaður sem ber heitið Fjöregg. Fjör-
eggið er útsýnisskúlptúr, útsýnispall-
ur, upplifunar- og áningarstaður allt
í senn. Fjöreggið verður sýnilegt frá
bænum og því forvitnilegt aðdráttar-
afl fyrir gesti og gangandi.
„Fyrst og fremst er Fjöregg hugsað
sem kennileiti fyrir Stykkishólm og
sem glettinn, gamansamur og óvænt-
ur áningarstaður til að njóta Súgand-
iseyjar og útsýnisins yfir Breiðafjörð
og eyjarnar,“ segir í greinagerð um
verkið. Keppnin var haldin í samstarfi
við Félag íslenskra landslagsarkitekta
(FÍLA) og óskuðu 22 hönnunarteymi
eftir því að taka þátt í samkeppninni
og voru fjögur teymi dregin út til að
taka þátt í keppninni.
Í greinagerð vinningstillögunnar
kemur fram að við hönnun hafi ver-
ið leitast við að finna jafnvægi á milli
þess náttúrulega og manngerða, þar
sem varfærni, virðing og auðmýkt
gagnvart staðnum voru leiðarstef í
hugmyndavinnu og lausn verkefnis-
ins. „Markmiðið var að hrófla við
sem minnstu og bæta við sem fæstu.
Þannig er notað efni sem fyrir er í
eynni, bæði huglægt og efnislega.
Unnið með formgerð svæðisins, liti
og tákn og vísanir í gamlar sagnir
og trú.“
Samkeppnin tókst vel að mati
dómnefndar og skilaði mjög metn-
aðarfullum og faglegum tillög-
um. Dómnefnd lagði áherslu á að
velja tillögu sem uppfyllti flest þau
skilyrði sem lagt var upp með, en
auk þess var reynt að leggja mat
á kostnaðarrammann sem gefinn
var upp í forsögn. Dómnefnd var
sammála um að tillagan sem valin
var í verðlaunasætið og skar sig úr
með nýstárlegri nálgun, hefði auk
þess ýmsar áhugaverðar skírskot-
anir í menningu og náttúru svæð-
isins. Dómnefndina skipuðu Jak-
ob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri
Stykkishólmsbæjar, og Ásmund-
ur Þrastarson, verkfræðingur, fyrir
hönd Stykkishólmsbæjar og Dagný
Bjarnadóttir, landslagsarkitekt
fulltrúi FÍLA. Ritari dómnefndar
var Sigurbjartur Loftsson, trúnað-
armaður dómnefndar var Ólafur
Melsted, frá FÍLA.
Sjá fleiri myndir sem tengjast
Fjöregginu á bls. 25 mm
Fjöregg hlutskarpast um hönnun
útsýnisstaðar á Súgandisey
skagabon@gmail.com
771-6866
@skagabon