Skessuhorn


Skessuhorn - 14.10.2020, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 14.10.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 202026 Ætlar þú, eða ertu búinn, að nota ferðagjöfina? Spurning vikunnar (Spurt á netinu) Sævar Jónsson „Já ég er búinn að nýta hana.“ Hannibal Hauksson „Já ég er búinn að nota ferða- gjöfina, flaug yfir Ísland.“ Karitas Jónsdóttir „Nei, á það eftir.“ Lúðvík Þorsteinsson „Ég er búinn að nota hana í hótelgistingu.“ Örnólfur Stefán Þorleifsson „Ég er búinn að nota hana. Fór með fjölskylduna í Perluna og allt sem hún hefur upp á að bjóða.“ Pstiill - Geir Konráð Theódórsson Þann 10. október síðastliðinn var alþjóða geðheilbrigðisdagurinn, skiljanlega fór hann að mestu fram rafrænt á þessum Covid tímum, en því miður fór hann líka einhvern veginn alveg fram hjá mér. Ég var eitthvað upptekinn, en svo frétti ég af honum og hugsaði hve gott það er að það sé fólk þarna úti sem sé að vekja athygli á þessu mikilvæga málefni. efni dagsins er enn að- gengilegt á heimasíðunni 10okt. com. Ég er ögn á eftir þessum degi en ég vil samt sem áður leggja mitt af mörkum. eitt af því sem ég átti erfitt með að upplifa á meðan ég bjó í Níger í Vestur-Afríku var að sjá hvernig farið var með fólk sem átti við geð- ræn vandamál að stríða. Í landi þar sem líkamleg vandamál, svo sem sjúkdómar, hungur og misþyrm- ingar af höndum hryðjuverka- manna, voru auðsjáanleg og yfir- þyrmandi í samfélaginu - þá voru hinu ósýnilegu vandamál geðveikra ekki mikið forgangsatriði. Ég man mest eftir einum ungum manni sem greinilega átti bágt. Hann var bundinn við staur í götunni við íþróttaleikvanginn. Hann orgaði og kipptist til og frá en flestir veg- farendur gengu framhjá án þess að líta á hann. Í fyrsta skiptið sem ég átti leið framhjá kom ég of ná- lægt honum og stökk hann þá upp og greip um handlegginn minn. Mér brá og stóð alveg stjarfur en hann orgaði bara og benti á skóna mína. Áður en ég gat gert eitthvað var annar eldri maður kominn út úr kofa með prik og barði mann- inn þar til hann skreið að staurn- um sínum og byrjaði aftur að kipp- ast til. Maðurinn með prikið sagði eitthvað á Zarma tungumálinu og yppti öxlum en ég reyndi að vera vinalegur og kinka kolli á meðan ég hrökklaðist frá. Þegar ég horfði til baka var eldri maðurinn með prikið að hugga unga manninn, hann hélt um hann af alúð og gaf honum eitt- hvað að drekka. Þetta atvik sat í mér. Nógu erf- itt er það fyrir almenning í þessu vanþróaðasta landi í heimi að bara eiga í sig og á, en ég get ómögu- lega ímyndað mér hvernig það er að eiga við geðræn vandamál ofan á allt annað. Núna þegar ég er kom- inn heim verður mér hugsað um hvernig þetta var hérna á Íslandi í gamla daga. Í Gísla sögu Súr- sonar er þessi fræga lýsing: „Helgi hét sonur Ingjalds og var afglapi sem mestur mátti vera og fífl; hon- um var sú umbúð veitt að raufar- steinn var bundinn við hálsinn og beit hann gras úti sem fénaður og er kallaður Ingjaldsfífl.“ Þegar ég ræði við fólk um geðheilbrigðismál hér á landi er oft sagt að ástandið sé betra núna en það var í fortíðinni. Það er auðvitað rétt og ástandið hérna á Íslandi er sömuleiðis betra en í Níger - en það þýðir hinsvegar alls ekki að ástandið hérna heima sé á einhvern hátt ásættanlegt! Ég hef upplifað hinar ýmsu hliðar á geðheilbrigðiskerfinu okkar og því miður er þar víða pottur brotinn. Alltof oft lesum við eða heyrum um fáránlega langa biðlista, háan kostn- að og að bráðveiku fólki í lífshættu sé vísað frá bráðamóttöku geð- deildar Landspítalans. Þegar kvart- að er svo yfir þessu vill enginn taka ábyrgð og allir keppast við að benda á annað fólk eða kerfið sjálft. Mér er nokkuð sama þegar opinberir starfs- menn benda á kerfið þegar vandinn er seinkun á vegaframkvæmdum eða framúrkeyrsla í rekstri einhverrar stofnunar - ég verð pirraður en mér er samt nokkuð sama. Hinsvegar er mér alls ekki sama þegar líf og heilsa fólks er í hættu. Ungi maðurinn sem var bund- inn við staurinn í Níger fór sér að minnsta kosti ekki að voða og hafði einhvern til að fylgjast með sér. en þegar fólk í sjálfsvígshugleiðingum á Íslandi fær ekki aðstoð og er vísað frá bráðamóttöku, já þá gæti kerf- ið allt eins bundið raufarstein við hálsinn á þeim og sagt þeim að éta gras. Það má byrja á því að skoða af hverju starfsemi hins nýja og fag- lega geðheilbrigðisteymis hérna á Vesturlandi virðist hafa runnið út í sandinn. Þar á bæ virðist fólk ekki vera að vinna vinnuna sína af heil- indum. ekki er staðið við ítrekuð loforð um eftirfylgni og stuðning við brothætta einstaklinga. Hinn klassíski bendingaleikur um ábyrgð er þar í gangi og borið er við fjár- skorti og fólki vísað frá. Það er mik- ið um ósvöruð erindi og því miður fæ ég á tilfinninguna að ákveðnir aðilar vinni þessi opinberu hluta- störf sín með litlum krafti til þess eins að mjólka kerfið um peninga í eigin vasa. Hinsvegar er hin vinnan þeirra á einkastofunni alltaf í fyrsta sæti. Því miður virðist það alltaf vera svarið í geðheilbrigðismálum - pantaðu tíma á einkastofu og von- aðu að þú hafir efni á því. Ég skora á opinbera aðila að hætta þessum bendingaleik um hver beri ábyrgð og ég skora á sitjandi heilbrigðisráðherra að rífa sig upp á rasshárunum og laga þetta kerfi. Það er óásættanlegt að ef þessir vel launuðu opinberu aðilar og vinir þeirra lenda í geðrænum vanda geti þeir bara hoppað í tíma á rándýrri einkastofu, en að það bíði fjársvelt og ómögulegt opinbert kerfi fyrir okkur hin. Ég legg til að fólk á Alþingi og opinberir starfsmenn megi bara nota opinbera geðheilbrigðisþjón- ustu. Sjáum hve fljótt kerfið lagast ef þau þurfa að bíða í þrjú ár eftir ADHD greiningu, reyni að fá skýr svör frá áhugalausu geðheilbrigðis- teymi eða upplifa þá stund að verða hent frá bráðageðdeild Landspítal- ans þegar mest á reynir. Lifið heil. Geir Konráð Theódórsson Skjáskaut úr myndinni Útlaganum, sem byggir á Gísla sögu Súrssonar. Tími Ingjaldsfífla er löngu liðinn Sævar Benediktsson í Stykkishólmi hefur brýnt Hólmara til að láta fé af hendi rakna til körfuknattleiks- deildar Snæfells, í ljósi fjárhags- erfiðleika félagsins. Sem kunn- ugt er hefur félagið ákveðið að leggja meistaraflokk karla nið- ur tímabundið og draga karlaliðið úr keppni í Íslandsmótinu þennan veturinn. „Við höfum átt í miklum erfiðleikum með að manna liðið og erfiðleikar í rekstri hjálpa ekki,“ sagði í tilkynningu frá kkd. Snæfells sem greint var frá í Skessuhorni í lok september. Sævar gerir þessa stöðu körfu- knattleiksdeildarinnar að umræðu- efni á Facebook-síðu sinni og vek- ur athygli á því að félagið þurfi á stuðningi að halda. Hann hvet- ur því Hólmara til að standa þétt við bakið á körfuknattleiksfélag- inu, sem hann segir vera stolt bæj- arbúa. „ekki viljum við að félagar og stjórn verði að láta í minni pok- ann og leggja niður alla starfsemi út af fjárhagsáhyggjum,“ skrifar Sævar og bætir því við að það geti ekki verið auðvelt að halda starfinu gangandi. „Vonandi er ekki kom- inn sá tími að verið sé að skoða að leggja bara allt körfuboltadæmið niður en ef félagið hefur ekki pen- inga til að reka sig hvað þá? Það að reka félagið í þessu árferði sem í dag er, að mega ekki einu sinni vera með áhorfendur á leikjum og fá af því tekjur, hlýtur að vera okkur öll- um áhyggjuefni. Það verður til þess að félagið verður af mestöllum sín- um rekstrartekjum,“ skrifar hann og hvetur Hólmara til að styðja við bakið á körfuknattleiksdeildinni. „Setjum öll, þá meina ég öll, eitt- hvað smá í púkkið og auðveldum stjórnarmönnum (sjálfboðaliðum) Snæfells að halda dæminu gang- andi,“ segir Sævar Benediktsson í Stykkishólmi. kgk Stuðningsmenn Snæfells á pöllunum í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá. Hvetur Hólmara til að styðja við Snæfell

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.