Skessuhorn - 14.10.2020, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 202026
Ætlar þú, eða ertu búinn, að
nota ferðagjöfina?
Spurning
vikunnar
(Spurt á netinu)
Sævar Jónsson
„Já ég er búinn að nýta hana.“
Hannibal Hauksson
„Já ég er búinn að nota ferða-
gjöfina, flaug yfir Ísland.“
Karitas Jónsdóttir
„Nei, á það eftir.“
Lúðvík Þorsteinsson
„Ég er búinn að nota hana
í hótelgistingu.“
Örnólfur Stefán Þorleifsson
„Ég er búinn að nota hana.
Fór með fjölskylduna í Perluna
og allt sem hún hefur upp á að
bjóða.“
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Þann 10. október síðastliðinn var
alþjóða geðheilbrigðisdagurinn,
skiljanlega fór hann að mestu fram
rafrænt á þessum Covid tímum, en
því miður fór hann líka einhvern
veginn alveg fram hjá mér. Ég var
eitthvað upptekinn, en svo frétti ég
af honum og hugsaði hve gott það
er að það sé fólk þarna úti sem sé
að vekja athygli á þessu mikilvæga
málefni. efni dagsins er enn að-
gengilegt á heimasíðunni 10okt.
com. Ég er ögn á eftir þessum degi
en ég vil samt sem áður leggja mitt
af mörkum.
eitt af því sem ég átti erfitt með
að upplifa á meðan ég bjó í Níger
í Vestur-Afríku var að sjá hvernig
farið var með fólk sem átti við geð-
ræn vandamál að stríða. Í landi þar
sem líkamleg vandamál, svo sem
sjúkdómar, hungur og misþyrm-
ingar af höndum hryðjuverka-
manna, voru auðsjáanleg og yfir-
þyrmandi í samfélaginu - þá voru
hinu ósýnilegu vandamál geðveikra
ekki mikið forgangsatriði. Ég man
mest eftir einum ungum manni
sem greinilega átti bágt. Hann var
bundinn við staur í götunni við
íþróttaleikvanginn. Hann orgaði
og kipptist til og frá en flestir veg-
farendur gengu framhjá án þess
að líta á hann. Í fyrsta skiptið sem
ég átti leið framhjá kom ég of ná-
lægt honum og stökk hann þá upp
og greip um handlegginn minn.
Mér brá og stóð alveg stjarfur en
hann orgaði bara og benti á skóna
mína. Áður en ég gat gert eitthvað
var annar eldri maður kominn út
úr kofa með prik og barði mann-
inn þar til hann skreið að staurn-
um sínum og byrjaði aftur að kipp-
ast til. Maðurinn með prikið sagði
eitthvað á Zarma tungumálinu og
yppti öxlum en ég reyndi að vera
vinalegur og kinka kolli á meðan ég
hrökklaðist frá. Þegar ég horfði til
baka var eldri maðurinn með prikið
að hugga unga manninn, hann hélt
um hann af alúð og gaf honum eitt-
hvað að drekka.
Þetta atvik sat í mér. Nógu erf-
itt er það fyrir almenning í þessu
vanþróaðasta landi í heimi að bara
eiga í sig og á, en ég get ómögu-
lega ímyndað mér hvernig það er
að eiga við geðræn vandamál ofan á
allt annað. Núna þegar ég er kom-
inn heim verður mér hugsað um
hvernig þetta var hérna á Íslandi
í gamla daga. Í Gísla sögu Súr-
sonar er þessi fræga lýsing: „Helgi
hét sonur Ingjalds og var afglapi
sem mestur mátti vera og fífl; hon-
um var sú umbúð veitt að raufar-
steinn var bundinn við hálsinn og
beit hann gras úti sem fénaður og
er kallaður Ingjaldsfífl.“ Þegar ég
ræði við fólk um geðheilbrigðismál
hér á landi er oft sagt að ástandið sé
betra núna en það var í fortíðinni.
Það er auðvitað rétt og ástandið
hérna á Íslandi er sömuleiðis betra
en í Níger - en það þýðir hinsvegar
alls ekki að ástandið hérna heima sé
á einhvern hátt ásættanlegt!
Ég hef upplifað hinar ýmsu hliðar
á geðheilbrigðiskerfinu okkar og því
miður er þar víða pottur brotinn.
Alltof oft lesum við eða heyrum um
fáránlega langa biðlista, háan kostn-
að og að bráðveiku fólki í lífshættu
sé vísað frá bráðamóttöku geð-
deildar Landspítalans. Þegar kvart-
að er svo yfir þessu vill enginn taka
ábyrgð og allir keppast við að benda
á annað fólk eða kerfið sjálft. Mér er
nokkuð sama þegar opinberir starfs-
menn benda á kerfið þegar vandinn
er seinkun á vegaframkvæmdum eða
framúrkeyrsla í rekstri einhverrar
stofnunar - ég verð pirraður en mér
er samt nokkuð sama.
Hinsvegar er mér alls ekki sama
þegar líf og heilsa fólks er í hættu.
Ungi maðurinn sem var bund-
inn við staurinn í Níger fór sér að
minnsta kosti ekki að voða og hafði
einhvern til að fylgjast með sér. en
þegar fólk í sjálfsvígshugleiðingum
á Íslandi fær ekki aðstoð og er vísað
frá bráðamóttöku, já þá gæti kerf-
ið allt eins bundið raufarstein við
hálsinn á þeim og sagt þeim að éta
gras.
Það má byrja á því að skoða af
hverju starfsemi hins nýja og fag-
lega geðheilbrigðisteymis hérna á
Vesturlandi virðist hafa runnið út í
sandinn. Þar á bæ virðist fólk ekki
vera að vinna vinnuna sína af heil-
indum. ekki er staðið við ítrekuð
loforð um eftirfylgni og stuðning
við brothætta einstaklinga. Hinn
klassíski bendingaleikur um ábyrgð
er þar í gangi og borið er við fjár-
skorti og fólki vísað frá. Það er mik-
ið um ósvöruð erindi og því miður
fæ ég á tilfinninguna að ákveðnir
aðilar vinni þessi opinberu hluta-
störf sín með litlum krafti til þess
eins að mjólka kerfið um peninga í
eigin vasa. Hinsvegar er hin vinnan
þeirra á einkastofunni alltaf í fyrsta
sæti. Því miður virðist það alltaf
vera svarið í geðheilbrigðismálum -
pantaðu tíma á einkastofu og von-
aðu að þú hafir efni á því.
Ég skora á opinbera aðila að
hætta þessum bendingaleik um hver
beri ábyrgð og ég skora á sitjandi
heilbrigðisráðherra að rífa sig upp
á rasshárunum og laga þetta kerfi.
Það er óásættanlegt að ef þessir vel
launuðu opinberu aðilar og vinir
þeirra lenda í geðrænum vanda geti
þeir bara hoppað í tíma á rándýrri
einkastofu, en að það bíði fjársvelt
og ómögulegt opinbert kerfi fyrir
okkur hin.
Ég legg til að fólk á Alþingi og
opinberir starfsmenn megi bara
nota opinbera geðheilbrigðisþjón-
ustu. Sjáum hve fljótt kerfið lagast
ef þau þurfa að bíða í þrjú ár eftir
ADHD greiningu, reyni að fá skýr
svör frá áhugalausu geðheilbrigðis-
teymi eða upplifa þá stund að verða
hent frá bráðageðdeild Landspítal-
ans þegar mest á reynir.
Lifið heil.
Geir Konráð Theódórsson
Skjáskaut úr myndinni Útlaganum, sem byggir á Gísla sögu Súrssonar.
Tími Ingjaldsfífla er löngu liðinn
Sævar Benediktsson í Stykkishólmi
hefur brýnt Hólmara til að láta fé
af hendi rakna til körfuknattleiks-
deildar Snæfells, í ljósi fjárhags-
erfiðleika félagsins. Sem kunn-
ugt er hefur félagið ákveðið að
leggja meistaraflokk karla nið-
ur tímabundið og draga karlaliðið
úr keppni í Íslandsmótinu þennan
veturinn. „Við höfum átt í miklum
erfiðleikum með að manna liðið
og erfiðleikar í rekstri hjálpa ekki,“
sagði í tilkynningu frá kkd. Snæfells
sem greint var frá í Skessuhorni í
lok september.
Sævar gerir þessa stöðu körfu-
knattleiksdeildarinnar að umræðu-
efni á Facebook-síðu sinni og vek-
ur athygli á því að félagið þurfi á
stuðningi að halda. Hann hvet-
ur því Hólmara til að standa þétt
við bakið á körfuknattleiksfélag-
inu, sem hann segir vera stolt bæj-
arbúa. „ekki viljum við að félagar
og stjórn verði að láta í minni pok-
ann og leggja niður alla starfsemi
út af fjárhagsáhyggjum,“ skrifar
Sævar og bætir því við að það geti
ekki verið auðvelt að halda starfinu
gangandi. „Vonandi er ekki kom-
inn sá tími að verið sé að skoða að
leggja bara allt körfuboltadæmið
niður en ef félagið hefur ekki pen-
inga til að reka sig hvað þá? Það að
reka félagið í þessu árferði sem í
dag er, að mega ekki einu sinni vera
með áhorfendur á leikjum og fá af
því tekjur, hlýtur að vera okkur öll-
um áhyggjuefni. Það verður til þess
að félagið verður af mestöllum sín-
um rekstrartekjum,“ skrifar hann
og hvetur Hólmara til að styðja við
bakið á körfuknattleiksdeildinni.
„Setjum öll, þá meina ég öll, eitt-
hvað smá í púkkið og auðveldum
stjórnarmönnum (sjálfboðaliðum)
Snæfells að halda dæminu gang-
andi,“ segir Sævar Benediktsson í
Stykkishólmi. kgk
Stuðningsmenn Snæfells á pöllunum í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá.
Hvetur Hólmara til að styðja við Snæfell