Skessuhorn - 14.10.2020, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 20202
Óvenju mikið hefur verið um lausan
búpening á vegum undanfarið, eins og
fram kemur í frétt hér í blaðinu. Laust
búfé getur skapað hættu á þjóðvegum,
einkum nú þegar farið er að rökkva.
Ástæða er til að minna bændur og
búalið á að gæta þess að búpeningur
sleppi ekki út á þjóðvegina.
Útlit fyrir suðaustanátt á morgun, 8-13
m/s. Skýjað og smá væta á suðvest-
urhorninu, en léttir til og hægir þeg-
ar líður á daginn. Annars hægur vind-
ur og bjart í veðrið. Hiti 4 til 9 stig. Hæg
breytileg átt á föstudag, bjartviðri. Hiti
breytist lítið. Áfram hæg breytileg átt
á laugardag og bjart að mestu sunnan
til, en skýjað og smá úrkoma fyrir norð-
an. Seint um kvöld fer að rigna um allt
land og kólnar í veðri. Austlæg átt og
rigning á sunnudag, einkum á Austur-
landi. Hiti 1 til 6 stig. Á mánudag og
þriðjudag er útlit fyrir norðaustlæga
átt og lítilsháttar vætu fyrir norðan og
austan. Bjartviðir á Suður- og Vestur-
landi. Kólnar í veðri.
„Hvað finnst þér um árið 2020 það sem
af er?“ var spurningin sem lesendur
gátu svarað á vef Skessuhorns í vikunni.
„Ömurlegt“ sagði helmingur þeirra
sem tók afstöðu, eða slétt 50%. Næst-
flestir, 32%, sögðu „ömurlegt“ og 18%
sögðu „ömurlegt“. Samantekið þykir
því 100% þeirra sem tóku afstöðu árið
hafa verið ömurlegt það sem af er.
Í næstu viku er spurt: Ætlar þú að
stelast í golf í vikunni?
Eigendur G.Run hf. í Grundarfirði héldu
upp á það síðastliðinn föstudag að 100
ár voru liðin frá fæðingu Guðmundar
Runólfssonar útgerðarmanns. Við það
tilefni afhentu eigendur fyrirtækisins
veglega styrki til verkefna í nærsam-
félaginu.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Lést í slysi á
Heydalsvegi
Maðurinn sem lést í umferðar-
slysi á Heydalsvegi sunnudag-
inn 4. október síðastliðinn hét
Halldór erlendsson. Hann var
til heimilis á Álftanesi. Hall-
dór lætur eftir sig eiginkonu og
tvö uppkomin börn. Lögreglan
á Vesturlandi greinir frá þessu í
tilkynningu. -kgk
Fimm vilja stýra
Auðarskóla
DALABYGGÐ: Fimm um-
sóknir bárust um starf skóla-
stjóra Auðarskóla, en starfið
var auglýst laust til umsóknar
í september síðastliðnum. Þeir
sem sóttu um eru: Ari J. Sig-
urðsson, elsa Í. Arnórsdóttir,
Haraldur Haraldsson, Herdís
e. Gunnarsdóttir og Sigríður
Aðalsteinsdóttir. Úrvinnsla um-
sókna er hafin, að því er fram
kemur í fundargerð frá síðasta
fundi byggðarráðs Dalabyggð-
ar. -kgk
Snjallmenni tek-
ið í notkun hjá
Þjóðskrá Íslands
LANDIÐ: Þjóðskrá Íslands
hefur tekið í notkun snjallmenni
í netspjalli á vef stofnunarinnar
www.skra.is. Snjallmennið get-
ur svarað ýmsum spurningum
um starfsemi Þjóðskrár Íslands
og bent viðskiptavinum á gagn-
legar slóðir. Þessi nýjung er við-
bót við þjónustuver Þjóðskrár
og er ætlað að flýta og bæta
þjónustu við viðskiptavini með
aukinni sjálfvirkni. Hægt er að
fá samband við ráðgjafa í þjón-
ustuveri milli klukkan 9 og 15
alla virka daga ef snjallmenn-
ið getur ekki svarað spurning-
um viðskiptavina. Utan opn-
unartíma tekur snjallmennið
við fyrirspurnum og svarar eft-
ir fremstu getu en annars tekur
það við skilaboðum sem bíða af-
greiðslu næsta virka dag. -mm
Miðflokksmenn
lýsa vantrausti
NV-KJÖRD: „Stjórn Kjör-
dæmafélags Miðflokksins í
Norðvesturkjördæmi lýsir yfir
vantrausti á Kristján Þór Júlí-
usson landbúnaðarráðherra,“
segir í yfirlýsingu félagsins sem
send hefur verið til fjölmiðla.
„Hann hefur ítrekað sýnt að
hann veldur ekki því embætti,
þar á meðal með því að gera lít-
ið úr sauðfjárbændum og telur
hann þá vera að stunda lífstíl
með atvinnu sinni líkt og tóm-
stundaiðkun fólks. Landbúnað-
aráðherra sem virðir ekki land-
búnaðinn hefur ekkert erindi
til þess að vera landbúnaðar-
ráðherra. Það vekur furðu að
þingmenn Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi, sem hef-
ur að geyma mikil landbúnaðar-
héröð, leyfi þessu að viðgangast
óáreitt, þeir eru kannski sam-
mála þessum orðum ráðherra
síns um bændastéttina. Fylgja
þeir ráðherranum í blindni?“
-mm
Veðurhorfur
Föstudaginn 9. október voru eitt
hundrað ár liðin frá fæðingu Guð-
mundar Runólfssonar útgerðar-
manns í Grundarfirði. Af því tilefni
buðu eigendur G.Run hf. til lág-
stemmdrar athafnar fyrir utan fisk-
vinnslu fyritækisins. Þar veittu þeir
veglega styrki til kirkjunnar, dval-
arheimilisins, björgunarsveitarinn-
ar og félagasamtaka á svæðinu auk
þess að Grundarfjarðarbær fékk
styrk til uppbyggingar í Þríhyrn-
ingnum svokallaða. Í ljósi aðstæðna
í samfélaginu var farið að öllu með
gát og sóttvarnir hafðar í hávegum.
Á miðopnu blaðsins í dag má
finna aldarminningu Guðmundar
Runólfssonar, skráða af Sigurði Má
Jónssyni blaðamanni.
tfk
Síðasta vika var góð hjá þeim bát-
um sem róa frá höfnum Snæfells-
bæjar og veðurblíða með einsdæm-
um góð til sjósóknar. Mjög góð
veiði gefur verið hjá smærri bátum
sem róa með handfæri og hafa þeir
komið með yfir tvö tonn að landi
sem er mjög gott á þessum árs-
tíma.
Nokkrir dragnótarbátar hafa
verið að veiðum á Vestfjarðamiðum
og gengið mjög vel hjá þeim þar.
Nokkrir bátar hafa verið við veiðar
á heimaslóð og er reytingur þar en
þó hefur egill SH komið með 12
tonn að landi eftir daginn.
Línubátar hafa fengið ágætis afla
og til dæmis kom Sverrir SH með
8 tonn að landi og uppistaða aflans
hjá honum var þorskur, en ýsa hef-
ur verið uppstaðan hjá öðrum línu-
bátum.
Tilraunaveiðar með humargildr-
ur á Ingu P SH hafa gengið ágæt-
lega og mesti afli hefur verið 50
kíló af mjög góðum humri.
af
Hundrað ár frá fæðingu Guðmundar Runólfssonar
Sigríður Guðbjörg Arnardóttir formaður Ungmennafélags Grundarfjarðar veitir
styrknum viðtöku úr hendi Runólfs Guðmundssonar
Björg Ágústsdóttir bæjarstýra Grundarfjarðarbæjar og Runólfur Guðmundsson
heilsast að sóttvarnastíl.
Styrkþegar stilla sér upp ásamt Runólfi Guðmundssyni fyrir utan fiskvinnslu
G.Run hf.
F.v. Móses Geirmundsson, Runólfur Guðmundsson, Kristján Guðmundsson, Páll
Guðfinnur Guðmundsson, Ingi Þór Guðmundsson, Guðmundur Smári Guðmunds-
son, Svanur Guðmundsson, María Magðalena Guðmundsdóttir og Unnsteinn
Guðmundsson.
Góð aflabrögð að undanförnu
Hjörtur Sigurðsson og Ómar Marisson að landa út Kviku SH.
Jóhannes Jóhannesson, eða Dúddi eins og hann er jafnan kallaður, hefur aflað ágætlega að undanförnu og er hann hér á
báti sínum Ingibjörgu SH.
Klemens Sigurðsson skipstóri á Ingu P
ánægður með afla dagsins, eða 50 kíló
af humri.