Skessuhorn - 14.10.2020, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 20206
Aftanákeyrsla
BORGARBYGGÐ: Árekst-
ur varð á Borgarbraut í Borg-
arnesi síðdegis á þriðjudag-
inn í síðustu viku. einni bif-
reið var þar ekið aftan á aðra
við gatnamótin við Dílahæð.
engin slys urðu á fólki en
önnur bifreiðin skemmdist
töluvert og var óökuhæf eft-
ir óhappið. Voru skráningar-
númer tekin af henni og hún
síðan fjarlægð með kranabíl
af vettvangi.
-kgk
Lausaganga
hættuleg
VESTURLAND: Óvenju
mikið hefur borið á lausa-
göngu búfjár í umdæmi Lög-
reglunnar á Vesturlandi und-
anfarið. Hefur lögreglu bor-
ist fjöldi tilkynninga um slíkt
síðustu vikurnar. Sérstaklega
segir lögregla lausagöngu
stórgripa vera alvarlegt mál,
þó öll lausaganga búfjár geti
skapað hættu á vegum, sér-
staklega núna þegar orðið er
dimmt á kvöldin. Í síðustu
viku hafði ökumaður einn
samband við lögreglu og
greindi frá því að hann hefði
nánast ekið inn í hrossastóð
á ferð sinni um Snæfellsnes.
einnig var tvisvar haft sam-
band við lögreglu í vikunni
og greint frá lausum hestum
á Vesturlandsvegi. Að sögn
verður haft samband við
hrossabændur á næstunni og
þeir beðnir að gæta að því að
hestarnir sleppi ekki úr girð-
ingum og út á þjóðvegina.
-kgk
Villtist á hjólinu
SNÆFELLSBÆR: Hjól-
reiðamaður villtist af leið þar
sem hann ætlaði að hjóla frá
Ólafsvík og suður yfir Jökul-
hálsleið á laugardagskvöld,
um tíu kílómetra leið. Maki
viðkomandi hafði samband
við Neyðarlínu um hálf átta
og greindi frá áhyggjum
sínum. Hann hafði þá far-
ið suður fyrir og ætlaði að
taka á móti hjólreiðamann-
inum hinum megin, en varð
áhyggjufullur þegar hjól-
reiðamaðurinn skilaði sér
ekki. Björgunarsveitarmenn
voru kallaðir út og fundu
hjólreiðamanninn skammt
norðan við Náttmálahnjúk
og komu honum til byggða.
Hjólreiðamaðurinn var vel
búinn og varð ekki meint af.
-kgk
Bílvelta
í Haukadal
DALABYGGÐ: Bíll valt
á Haukadalsvegi í Dölum
um kaffileytið á sunnudag-
inn, skammt innan við ei-
ríksstaði. Að sögn lögreglu
missti ökumaðurinn einbeit-
ingu með þeim afleiðingum
að hann ók bílnum út af þar
sem hann valt. Bíllinn var
á lítilli ferð þegar óhappið
varð, en engum varð meint
af. Tveir voru í bílnum. Af-
þökkuðu þeir aðstoð sjúkra-
bíls og ætluðu sjálfir að láta
fjarlægja bílinn.
-kgk
Vilja
friðlýsa leirur
Borgarvogs
BORGARBYGGÐ: Sveitar-
stjórn Borgarbyggðar hefur
samþykkt þá tillögu umhverf-
is- og landbúnaðarnefndar að
hafin verði undirbúningur að
friðlýsingu leiranna í Borgar-
vogi vegna mikilvægi svæðis-
ins fyrir fuglalíf. Borgarvog-
ur er allur, ásamt fjörum, á B-
hluta náttúruminjaskrár en þar
eru leirur og fitjar með miklu
fuglalífi. Geta sveitarfélög
átt forgöngu um friðlýsingu
svæða og hefur sveitarstjórn
Borgarbyggðar falið stjórn-
sýslu- og þjónustusviði að afla
gagna og undirbúa vinnu við
friðlýsingu svæðisins. -kgk
Lífeyrisgreiðslur
verði skattlagðar
strax
ALÞINGI: Flokkur fólksins
hefur endurflutt þingsálykt-
unartillögu um staðgreiðslu
við innborgun í lífeyrissjóði,
en málið komst ekki á dag-
skrá síðasta þings. „Lagt er til
að í stað þess að staðgreiðsla
tekjuskatts fari fram við út-
greiðslu lífeyrissparnaðar þá
fari hún fram þegar iðgjald og
mótframlag er greitt inn í líf-
eyrissjóð. einnig er lagt til að
þeim fjármunum sem breytt
fyrirkomulag skilar verði var-
ið í þágu aukinnar velferðar,“
segir í tilkynningu frá Flokki
fólksins. „Þessi aðgerð myndi
auka tekjur ríkissjóðs um tugi
milljarða án þess að skerða
með nokkru ráðstöfunartekjur
almennings. Þannig mætti
gera ríkissjóði kleift að ráðast
í frekari aðgerðir í þágu fátæks
fólks sem verður hvað verst
fyrir efnahagslegum áhrifum
Covid-19,“ segir í greinargerð
með tillögunni. -mm
Undanfarin ár hafa Veitur, dóttur-
félag orkuveitu Reykjavíkur, stað-
ið í stórræðum á Vesturlandi. Ver-
ið er að endurnýja hitaveituæðina
á milli Deildartungu í Reykholts-
dal og dælustöðvanna fyrir þétt-
býliskjarnana Hvanneyri, Borgar-
nes og Akranes. Alls er lagnaleið-
in um 74 kílómetrar. Nú er lokið
við endurnýjun á 46,5 km og gert
ráð fyrir að framkvæmdirnar standi
yfir fram á árið 2026. Í sumar hefur
lögnin meðfram Akrafjallsvegi ver-
ið endurnýjuð. Athygli hefur vak-
ið hversu vel hefur verið staðið að
frágangi lands á gamla lagnasvæð-
inu eftir framkvæmdirnar. eldri
lögnin var lögð ofanjarðar og lá því
eftir grónum garði. Nýja lögnin er
hins vegar öll lögð neðanjarðar og
hverfur því sjónum.
Gissur Þór Ágústsson hjá Veit-
um, sem ber hið þjála starfsheiti
„sérfræðingur í rekstri hitaveitu,
vatnsveitu og fráveitu,“ segir mark-
mið Veitna ávallt að ganga þannig
frá eftir framkvæmdir að svæðið
sé ekki síðra en fyrir framkvæmd-
ir. Hann segir jafnframt að margir
hafi komið að máli við hann und-
anfarið og hrósað Veitum fyrir frá-
ganginn.
Nýlega var lokið við áfangana á
milli dælustöðvarinnar við Akra-
nes og Kjalardals, 7,8 km og á
milli Kjalardals og Urriðaár, 2,7
km. Verktaki í báðum áföngum var
Þróttur ehf. vélaleiga á Akranesi.
Undirverktakar voru Vélsmiðja
Ólafs R. Guðjónssonar sem sá um
alla suðuvinnu við lögnina og Bald-
ur Árni Björnsson, bóndi í Múla-
koti í Lundarreykjadal, sem sá um
girðingarvinnu.
Gamla lögnin er úr asbesti en
mjög strangar reglur gilda um
förgun efnisins. Allt asbestið hef-
ur verið flutt á viðurkenndan urð-
unarstað í Fíflholtum sem er í eigu
Sorpurðunar Vesturlands hf. sem
aftur er í eigu sveitarfélaganna á
Vesturlandi.
Samhliða framkvæmdum Veitna
hefur Vegagerðin endurnýjað og
aflagt vegskurði sem liggja nærri
vegum. eldri skurðir voru oft hálf-
fullir af vatni og því umferðarör-
yggismál að endurnýja þá. Veitur
hafa einnig grafið nýja skurði að
sunnanverðu við lögnina í Akraflóa
á ýmsum stöðum en það er gert til
að viðhalda virkni í gömlum kíl-
ræsum sem eru í flóunum.
Við verkið hefur þurft að fjar-
lægja talsvert magn af girðingum
og hliðum og hafa þær allar verið
endurnýjaðar. Nú, þegar ekið er
um Akrafjallsveg, má því glöggt sjá
breytta ásýnd til hins betra. frg
Nýjar girðingar og ný hlið.
Góður frágangur eftir
framkvæmdir við hitaveituæð
Gissur Þór Ágústsson við endurnýjaða lögn ofan við Hvítanes.