Skessuhorn - 14.10.2020, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 20208
Verkfærum
stolið
HVALFJSV: Tilkynnt var
um innbrot í verkfæragám
við Hvalfjarðargöng síðast-
liðinn föstudag. Búið var
að brjóta upp lás gámsins
og þaðan höfðu verið tekin
ýmis verkfæri, hleðslugræjur
og fleira, að sögn lögreglu.
Málið er til rannsóknar. -kgk
Í spyrnu á
Faxanum
AKRANES: Haft var sam-
band við Neyðarlínu á mið-
nætti á föstudag og kvartað
undan aksturslagi ökumanna
á Faxabraut á Akranesi. Til-
kynnandi sagði hávaða frá
spólandi bifreiðum og botn-
inngjöf óma um hverfið og
valda íbúum ónæði. Sagði
hann hávaðann hafa ver-
ið viðvarandi. engar nánari
upplýsingar fylgdu tilkynn-
ingunni og ekki var hægt að
hafa uppi á ökumönnunum.
-kgk
Aðskotahlutir
á vegum
VESTURLAND: Vestur-
landsvegi var lokað í stutta
stund skammt norðan Hval-
fjarðarganga síðastliðinn
miðvikudag. Flutninga-
bíll hafði þá misst hluta af
farmi af bílnum og á veg-
inn og vantaði aðstoð. Lög-
regla kom á vettvang og lok-
aði veginum á meðan farm-
urinn var hífður aftur upp
á bílinn. Þá var tilkynnt um
dekkjatæjur á Vesturlands-
vegi skammt frá Glanna og
Paradísarlaut. Tilkynnandi
sagði að þar væri vörubíls-
dekk í henglum, eins og það
er orðað í dagbók lögreglu.
Vegagerðin var upplýst um
málið. Lögregla segir allt-
af slæmt þegar aðskotahlut-
ir eru á vegum, sérstaklega
nú þegar farið er að dimma
á kvöldin. -kgk
Staðbundir fjöl-
miðar fá styrk
LANDIÐ: Mennta- og
menningarmálaráðherra
ákvað 1. september sl. að
veita staðbundnum fjöl-
miðlum utan höfuðborgar-
svæðisins styrk úr byggða-
áætlun. Samkvæmt tilkynn-
ingu er gert ráð fyrir að
veita árlega 5 milljónum kr.
til að efla staðbundna fjöl-
miðla, samtals 25 milljón-
um kr. á fimm árum. „Stað-
bundnir fjölmiðlar tryggja
aðgengi almennings að upp-
lýsingum um samfélagsmál í
sínu nærumhverfi og styðja
þannig við lýðræðisþátttöku
og menningarstarf með mik-
ilvægum hætti,“ segir Lilja
Alfreðsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra.
Auglýst var eftir styrkjum
í júlí og bárust alls 11 um-
sóknir og hlýtur því hver
fjölmiðill 455 þúsund krón-
ur í styrk. Þeir eru: Ásprent
Stíll, Björt útgáfa, eyjasýn,
N4, Prentmet oddi, Skessu-
horn, Steinprent, Tunnan
prentþjónusta, Úr vör, Út-
gáfufélag Austurlands og
Víkurfréttir. -mm
Móta stefnu um
gervigreind
LANDIÐ: Stefnumörkun um
gervigreind, sem miðar að því
að hámarka samfélagslegan
og efnahagslegan bata og lág-
marka kostnað og áhættu, er nú
til vinnslu innan forsætisráðu-
neytisins. Katrín Jakobsdótt-
ir, forsætisráðherra, hefur skip-
að nefnd sem er ætlað að skila
tillögum að skýrri framtíðar-
sýn um hvernig íslenskt samfé-
lag geti unnið með gervigreind
öllum til hagsbóta. Nefndinni
er ætlað að svara spurningum á
borð við: „Hver eru réttindi Ís-
lendinga gagnvart nýrri tækni?,
Hvert á hlutverk tækni gervi-
greindar að vera í íslensku sam-
félagi? Hvaða gildi á íslenskt
samfélag að hafa að leiðarljósi
við innleiðingu nýrrar tækni?
og á hvaða vettvangi mun Ís-
land ræða og leysa álitamál sem
koma upp er varða innleið-
ingu eða notkun nýrrar tækni?“
Verkefnið er hluti af aðgerðar-
áætlun fyrir Ísland í fjórðu iðn-
byltingunni en nefndina skipa
einstaklingar með fjölbreytt-
an bakgrunn og sérfræðiþekk-
ingu er snýr meðal annars að
siðfræði, tækni, vinnumarkaði
og samfélagslegum breytingum
vegna nýrrar tækni. Með stefn-
unni á að leggja grunn að því að
einstaklingar og fyrirtæki geti
nýtt og þróað tækni í samfélags-
legri sátt. mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
3.-9. október
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 5 bátar.
Heildarlöndun: 16.743
Mestur afli: Ísak AK-67: 11.471
kg í sex róðrum.
Arnarstapi: 2 bátar.
Heildarlöndun: 4.902 kg.
Mestur afli: Hrólfur AK-29:
3.833 kg í fjórum róðrum.
Grundarfjörður: 7 bátar.
Heildarlöndun: 238.932 kg.
Mestur afli: Farsæll SH-30:
82.016 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 14 bátar.
Heildarlöndun: 181.357 kg.
Mestur afli: egill SH-195:
34.245 kg í fjórum róðrum.
Rif: 6 bátar.
Heildarlöndun: 84.053
Mestur afli: Lilja SH-16:
33.517 kg í sjö löndunum.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 4.384 kg.
Mestur afli: Fjóla SH-7: 3.350
kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Farsæll SH-30 - GRU:
82.016 kg. 5. október.
2. Hringur SH-153 - GRU:
68.053 kg. 7. október.
3. Sigurborg SH-12 - GRU:
62.962 kg. 5. október.
4. Hamar SH-224 - RIF:
18.848 kg. 5. október.
5. Hamar SH-224 - RIF:
12.837 kg. 8. október.
-kgk
Gámaflutningabíll fulllestaður af
þaramjöli á leið til Reykjavíkur
fór út af Vestfjarðavegi við bæinn
Saura í Dölum um klukkan 11 síð-
astliðinn fimmtudagsmorgun. Að
sögn bílstjórans blindaðist hann af
sólinni. ekki urðu slys á á fólki og
bifreiðin er lítið skemmd, að sögn
Lögreglunnar á Vesturlandi.
frg
Stjórn Nemendafélags Landbún-
aðarháskóla Íslands fordæmir orð
Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, sem
hann hafði upp á þingi þriðjudag-
inn 6. október síðastliðinn. Þykir
stjórninni að þar hafi ráðherra talað
niður til bændastéttarinnar í heild,
með því að segja að það væri lífs-
stíll að vera sauðfjárbóndi fremur
en spurning um afkomu. Töluverð
viðbrögð voru auk þess úr röðum
bænda og annarra sem líkaði ekki
ummæli ráðherra.
„Það er skrýtið að okkur sé sagt
að við séum að mennta okkur til
að lifa ákveðnum lífsstíl en ekki til
þess að hafa lifibrauð af því sem
við menntum okkur til. Landbún-
aður er ein af grunnstoðum þjóðar-
innar og bændur eiga ekki að þurfa
að vinna utan bús. Það er alveg eins
og ef alþingismenn þyrftu að vinna
með þingmannsstarfinu til að hafa í
sig og á. Það þætti skrýtið,“ segir í
yfirlýsingu stjórnar nemendafélags
LbhÍ. „Við, sem stefnum að því að
verða bændur framtíðarinnar, vilj-
um geta haldið uppi fæðuöryggi
þjóðarinnar og lifað á mannsæm-
andi kjörum við það,“ segir í yfir-
lýsingu nemenda LbhÍ.
kgk
Brögð hafa verið að því að átt hafi
verið við reiðhjól á Akranesi þann-
ig að hætta skapist þegar hjólað er
af stað. Frá þessu er greint á heima-
síðu Grundaskóla, en foreldrum
nemenda skólans hefur einnig ver-
ið send tilkynning þess efnis. „Því
miður hefur það komið upp hér
hjá okkur í Grundaskóla og við
aðrar stofnanir og heimili á Akra-
nesi að einhverjir einstaklingar eru
að fikta í hjólabúnaði reiðhjóla og
losa dekkin eða annan öryggisbún-
að þannig að hætta skapast þegar
hjólað er af stað,“ segir í tilkynn-
ingu um málið á vef Grundaskóla.
Þar segir enn fremur að svona lag-
að komi því miður reglulega upp
um allt land. Um sé að ræða stór-
hættulegt athæfi sem skólastjór-
nendur líti alvarlegum augum. „Við
viljum einnig benda öllum á að fara
vel yfir hjólabúnað barna sinna og
ítreka við þau að athuga hjólabúnað
áður en lagt er af stað,“ segir á vef
skólans. kgk
Alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðinni Northern Wave,
sem haldin hefur verið ár-
lega á Snæfellsnesi í rúm-
an áratug, hefur verið frest-
að vegna Covid-19. Ákvörð-
unin er tekin með heilsu og
öryggi gesta, starfsfólks og
samfélagsins í huga, að því
er fram kemur í tilkynningu
frá aðstandendum hátíðar-
innar. Hún mun því ekki
fara fram dagana 23. til 25.
október næstkomandi, eins
og fyrirhugað var. Hátíðinni
hefur þó ekki verið aflýst og
munu aðstandendur Nort-
hern Wave greina frá nýrri
dagsetningu eins fljótt og
mögulegt er.
Vinnustofunni Stelpur
skjóta, sem fara átti fram í
tengslum kvikmyndahátíði-
na, hefur sömuleiðis verið
frestað. Mun hún fara fram
á netinu og verður fundinn
nýr tími.
kgk/ Ljósm. aðsend.
Flutningabíll út af við Búðardal
Bíllinn utan vegar skammt
frá bænum Saurum í
Dölum. Ljósm. hj
Landbúnaðarnemar fordæma
orð ráðherra
Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri. Ljósm. úr safni.
Hjólað á Akranesi. Myndin tengist
fréttinni ekki með beinum hætti.
Ljósm. úr safni/ kgk.
Losað um dekk reiðhjóla
Norhern Wave frestað