Skessuhorn - 14.10.2020, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 2020 9
Epoxy gólfefni fyrir fiskvinnsluna
Vörumóttökuna
Verkstæðið
Lagerinn
Bílageymsluna
Matvælaiðnað
Epoxy gólfefni fyrir fiskvinnsluna
Vörumóttökuna
Verkstæðið
Lagerinn
Bílageymsluna
Matvælaiðnað
EPOXY GÓLFEFNI
EPOXY GÓLFEFNI
EPOXY GÓLFEFNI
EPOXY GÓLFEFNI
EPOXY GÓLFEFNI
Bændur í Hvítadal í Saurbæ urðu
fyrir óskemmtilegri lífsreynslu í
síðustu viku. Um miðjan dag á mið-
vikudag fóru þeir að líta til með slát-
urfé í rétt sem þeir hafa sett upp í
girðingu á Máskeldu, en Hvítadals-
bændur hafa afnot af þeirri jörð. Var
skilið þannig við svæðið að opið var
inn í réttina en annars lokað þannig
að féð héldist enn innan girðingar-
innar. Þegar Hvítadalsbændur vitj-
uðu svæðisins að nýju morguninn
eftir var búið að stela þaðan tveim-
ur hliðgrindum úr járni. „Þá tók-
um við fyrst eftir þessu, í gærmorg-
un,“ segir Ragnheiður Pálsdóttir,
bóndi í Hvítadal, þegar blaðamað-
ur ræddi við hana á föstudag. Hún
segir að þjófurinn hafi tekið grind-
urnar innan girðingarinnar og lok-
að henni á eftir sér, þannig að féð
færi ekki út. „Það er svo sem ágætt,
fyrst hann þurfti endilega að vera
að þessu,“ segir hún.
Aðspurð kveðst Ragnheiður ekki
muna nákvæmlega hversu mikið
hver hliðgrind kosti, en telur að
þær kosti á bilinu 30 til 40 þúsund
krónur, stykkið. Utan fjárhagstjóns
skapar þjófnaðurinn þeim einnig
aukna vinnu, því gera þarf við rétt-
ina áður en hægt verður að safna
fénu í girðingunni saman og senda
til slátrunar. „Þannig að það skapast
óþægindi af þessu og svo er þetta
náttúrulega líka vond tilginning, að
vita til þess að fólk fari um og taki
hluti,“ segir hún.
Ragnheiður segir að þau ætli að
tilkynna þjófnaðinn til lögreglu, en
kveðst þó ekki vongóð um að mál-
ið verði leyst og þau fái tjónið bætt.
„en viðkomandi getur skilað grind-
unum ef hann skammast sín án þess
að hitta okkur. Þá verðum við bara
ánægð með það,“ segir Ragnheiður
að endingu.
kgk
Frá því að Ferðagjöfin fór í loft-
ið í vor og til dagsins í dag hafa
gjafir fyrir tæplega 560 milljón-
ir króna verið nýttar. Það jafn-
gildir því að 112 þúsund manns,
eða rúmur þriðjungur þeirra 280
þúsund Íslendinga sem fengu að-
gang að þeim, hafa nýtt þennan
fimm þúsund krónur ríkisstyrk til
kaupa á vöru eða þjónustu innan-
lands. Tækifæri geta falist í því fyr-
ir ferðaþjónustufyrirtæki að skapa
hvata fyrir almenning að nýta það
sem eftir er og ljóst að verulegir
fjármunir eru enn í pottinum.
Vinsælast er að nota Ferðagjöfina
í gistingu og veitingar á landsvísu.
Þau tíu fyrirtæki sem hafa fengið
flestar Ferðagjafir í sinn hlut hafa
tekið á móti um 170 milljónum
króna eða tæpum þriðjungi heildar-
upphæðarinnar. Fly over Iceland er
sá staður sem hefur tekið mest inn,
eða 28 milljónir króna. Í september
síðastliðnum voru Ferðagjafir fyr-
ir 70 milljónir króna nýttar. Þar af
fóru 28 milljónir króna í veitingar,
18 milljónir í gistingu og 16 millj-
ónir í afþreyingu.
Hér á Vesturlandi hafa 42 millj-
ónir verið nýttar. Stærsta einstaka
fyrirtækið í landshlutanum, Hótel
Húsafell, hefur tekið á móti ferða-
gjöfum fyrir sjö milljónir króna.
Þar á eftir kemur Krauma með sex
milljónir, Gelmir ehf. með fjór-
ar milljónir og Sæferðir með þrjár
milljónir. Þar í kjölfarið koma Sker
restaurant í Ólafsvík, Hótel B-59
í Borgarnesi og Hraunsnef sveita-
hótel í Norðurárdal. Þess má jafn-
framt geta að fyrirtæki á borð við
Icelandair hótel, Íslandshótel og
olís eru ofarlega á listanum og með
starfsemi á Vesturlandi, en eiga lög-
heimili á höfuðborgarsvæðinu og
eru því ekki sérgreind í Mælaborði
ferðaþjónustunnar.
Inni á vefnum www.ferdalag.
is sést hvaða fyrirtæki taka á móti
Ferðagjöfinni en alls er hægt að
nota hana á um 1.300 stöðum um
allt land. Vestlendingar eru hvattir
til að nýta ferðagjöfina fyrir næstu
áramót. mm
Rúmur þriðjungur hefur nýtt
sér Ferðagjöfina
Hótel Húsafell trónir á toppi listans á Vesturlandi yfir þá staði sem innleyst hafa
flestar ferðagjafir. Meðfylgjandi mynd tók Tamas, starfsmaður Hótel Húsafells, á
einni af gönguleiðunum í nágrenninu. Myndina kallar hann “Autumn fades into
winter.”
Hliðgrind úr járni. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Hliðgrindum stolið í Saurbæ