Skessuhorn - 14.10.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 202010
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti samhljóða á fundi sínum á
fimmtudag 150 milljóna króna lán
frá Lánasjóði sveitarfélaga, til allt
að 15 ára. er lántakan í samræmi
við áður samþykktan viðauka við
fjárhagsáætlun Borgarbyggðar og
er ætlað að fjármagna framkvæmdir
við stækkun Grunnskólans í Borg-
arnesi, að því er fram kemur í sam-
þykkt sveitarstjórnar.
Guðveig eyglóardóttir lagði
fram bókun á fundinum þar sem
hún sagði að fyrir lægi 150 millj-
óna króna lán til að bregðast við
rekstrarhalla næstu vikna. „Fulltrúi
Framsóknarflokksins leggst ekki
gegn lántökunni en telur grund-
vallaratriði að upplýsingar og áætl-
anir liggi fyrir frá meirihluta með
hvaða hætti eigi að bregðast við
rekstrarhalla til lengri tíma. Lán-
taka er skammgóður vermir til að
bregðast við rekstrarhalla,“ segir í
bókuninni.
Lilja Björg Ágústsdóttir lagði
fram bókun fyrir hönd meirihluta
sveitarstjórnar, þar sem ítrekað er
að lántakan sé hluti af viðauka sem
þegar hafi verið samþykktur í sveit-
arstjórn. ekki sé verið að taka lán
til að rétta af hallarekstur. „Um-
rædd lántaka er til að fjármagna
framkvæmdir sem áætlað var að
fjármagna með tekjum en vegna
tekjufalls í kjölfar Covid-19 efna-
hagsáhrifa er nauðsynlegt að taka
lán til að klára [að] fjármagna fram-
kvæmdirnar,“ segir í bókun meiri-
hlutans. kgk/ Ljósm. úr safni.
Gróflega er áætlað að tekjur
Grundarfjarðarbæjar á árinu verði
að minnsta kosti rúmum 50 millj-
ónum króna lægri en reiknað var
með í fjárhagsáætlun. Mestu munar
þar um lækkun á áætluðum tekjum
úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, eða
rúmar 30 milljónir króna. Bæjarráð
ítrekaði fyrri bókanir sínar og bæj-
arstjórnar og lýsti yfir vonbrigð-
um með lækkun tekna úr Jöfnunar-
sjóði. „enda standa þær tekjur und-
ir mikilvægri lögskyldri grunnþjón-
ustu sveitarfélagsins,“ segir í bókun
bæjarráðs.
Áður hafði bæjarstjórn samþykkt
50 milljóna króna viðauka, einkum
fjárfestingu, meðal annars sem við-
brögð við áhrifum Covid-19 farald-
ursins. „Áætlað tekjutap og viðbót-
arfjárfesting, umfram upphaflega
áætlun, gera því samtals yfir 100
millj. kr. lakari niðurstöðu sam-
stæðunnar (rekstur og fjárfesting-
ar) en upphafleg áætlun gerði ráð
fyrir,“ segir í fundargerð frá síðasta
fundi bæjarráðs.
eftir yfirferð á fjárhagsstöðu og
fjárhagsáætlun ársins 2020 lagði
ráðið til endurskoðun á rekstrar-
hlutanum. Með breytingum verði
dregið úr rekstrargjöldum bæjar-
félagsins, til að mæta rekstrarhalla
sem blasir við. eftir þá yfirferð er
áætluð rekstrarniðurstaða A og B
hluta bæjarsjóðs um 15 milljón-
um lakari en upphaflega var gert
ráð fyrir. Sú niðurstaða er þó mikl-
um fyrirvörum háð, einkum vegna
óvissu um þróun útsvarstekna það
sem eftir er ársins.
Bæjarstjórn fjallaði um þessa af-
greiðslu bæjarráðs á fundi sínum á
fimmtudag. Tillögur um viðauka
verða lagðar fram á nóvemberfundi
bæjarstjórnar, en samkvæmt yfirliti
bæjarráðs er svigrúm til að lækka
fjárfestingaáætlun ársins. Bæjarráð
og bæjarstjóri munu fylgjast áfram
með stöðunni, að því er fram kemur
í fundargerð bæjarstjórnar. Þá sam-
þykkti bæjarstjórn þá tillögu bæjar-
ráðs að héðan í frá verði öll aukning
í stöðugildum bæjarfélagsins lögð
fyrir bæjarráð til afgreiðslu, jafnvel
þó fyrir þeim séu heimildir í fjár-
hagsáætlun ársins.
kgk
eins og áður hefur verið greint
frá kom upp hópsmit Covid-19 í
Stykkishólmi seint í september-
mánuði þegar sjö íbúar greindust
með kórónuveiruna. Fjöldi íbúa
fór í sýnatöku dagana á eftir og í
kjölfar þeirra greindust örfáir til
viðbótar. Undir mánaðamótin síð-
ustu voru 13 manns í einangrun í
Hólminum og 20 í sóttkví. Grip-
ið var til sérstakra ráðstafana inn-
anbæjar til að reyna að bregðast við
ástandinu og frá mánaðamótum
hefur ört fækkað í sóttkví og þeir
sem smituðust hafa einn af öðrum
lokið einangrun undanfarna viku.
Þegar þessi orð eru rituð, síðdeg-
is á mánudaginn 12. október, voru
þrír í einangrun í Stykkishólmi og
tveir í sóttkví. Sjö luku einangrun
dagana fyrir og um síðustu helgi.
„Það virðist vera komið jafnvægi á
þetta og þróunin hefur verið mjög
jákvæð,“ segir Jakob Björgvin Jak-
obsson bæjarstjóri í samtali við
Skessuhorn á föstudag. Hann tekur
þó skýrt fram að Hólmarar fari enn
að öllu með gát, því á sama tíma og
veiran hefur verið í rénun í Hólm-
inum hefur hún sótt í sig veðrið á
landsvísu. „en það er ánægjulegt
hvernig til tókst hjá okkur og þess-
ar aðgerðir sem við fórum í virðast
hafa skilað sér,“ segir Jakob.
Í kjölfar hópsmitsins var í sam-
ráði við sóttvarnaryfirvöld grip-
ið til sérstakra varúðarráðstafana í
Stykkishólmi, sem gengu lengra en
þær sóttvarnarreglur sem almennt
voru í gildi á landinu á þeim tíma.
„Annars vegar sneru þær að skipu-
lagi á starfsemi stofnana bæjarins,
svo sem hólfaskiptingu og aðgangs-
takmörkunum þar, og hins vegar
að því að hvetja fólk til að huga vel
að sóttvörnum og hópamyndun,“
segir Jakob. „Mikil samstaða var í
Stykkishólmi og íbúar tóku á þessu
sem ein heild,“ segir hann.
Samheldið átak
Aðspurður kveðst hann telja auð-
veldara að ráðast í átak sem þetta
í smærri samfélögum en þeim
stærri. „Samstaða litlu samfélag-
anna er oft sterkari heldur en í
þeim stærri. Samheldnin og nánd-
in gerir það að verkum að samstað-
an er meiri og allir vinna saman að
sama markmiði. Í stærri samfélög-
um verður nándin aldrei eins mikil
og það myndast ekki sami samhug-
ur,“ segir bæjarstjórinn og bætir
því við að íbúar í Stykkishólmi eigi
sérstakt hrós og þakkir skildar fyr-
ir það hvernig tekið var á málun-
um. „Íbúarnir og ekki síst starfs-
fólk Stykkishólmsbæjar tók mjög
ábyrga afstöðu í þessum málum.
Sem dæmi get ég nefnt starfsfólk
dvalarheimilisins, sem hefti mikið
eigið frelsi heima við og tók ótrú-
lega ábyrga afstöðu utan vinnu-
tíma, gætti þess að fara ekki neitt
og umgangast enga utan eigin
heimilis og vinnustaðarins,“ segir
Jakob. „Það hefur hreinlega ver-
ið frábært að fylgjast með því hvað
fólk hefur verið samheldið í þessu
átaki, að sjá alla leggjast á eitt og
sýna ábyrgð, bæði íbúa og starfs-
fólk bæjarins,“ segir Jakob bæjar-
stjóri að endingu.
kgk
Jafnvægi komið á eftir hópsmit í Stykkishólmi
„Íbúar tóku á þessu sem ein heild“
Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ arg.
Frá Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá.
Borgarbyggð fær
150 milljónir lánaðar
Frá Grundarfirði. Ljósm. úr safni/ tfk.
Búist við minnst 50
milljóna tekjutapi