Skessuhorn - 14.10.2020, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 2020 11
SKIPULAG
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á 203 fundi þann 10.9.2020 að auglýsa
eftirfarandi skv. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Nes í Reykholtsdal, tillaga að nýju deiliskipulag fyrir golfvöll, íbúðar- og frístundalóða.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir tillögu að deiliskipulagi fyrir golfvöll, íbúðarhúsalóð
og frístundalóðir í landi Ness, lnr. L134436, til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags.
28.08.2020. Deiliskipulag þetta samræmist gildandi aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Nes í Reykholtsdal, tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hringanes. Sveitarstjórn Borgar-
byggðar samþykkir tillögu að deiliskipulagi fyrir Hringanes í landi Ness, lnr. L134436, til
auglýsingar. Lóðirnar eru stofnaðar úr landi Ness. Deiliskipulags uppdráttur dags. 01.12.2019,
tekur til fjögurra lóða fyrir smábýli, það samræmist gildandi aðalskipulagi Borgarbyggðar
2010-2022.
Melur á Mýrum, deiliskipulag fyrir sumarhúsa- og íbúðarhúsalóðir í landi Mels, lnr. L136020.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir tillögu til auglýsingar. Deiliskipulagsuppdráttur dags.
07.08.2020. Árið 2007 var gert deiliskipulag af svæði úr landi Mels, það öðlaðist ekki gildi. Þá
hafði verið reist íbúðarhús á lóðinni Birkimel, nyrst á deiliskipulagssvæðinu og nú hefur einnig
verið byggt á Furumel og Reynimel. Auk þessara lóða eru sex frístundalóðir á suðurhluta
skipulagssvæðisins. Deiliskipulag þetta samræmist gildandi aðalskipulagi Borgarbyggðar
2010-2022.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á 204 fundi þann 8.10.2020 að auglýsa eftir-
farandi skv. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Steðji, deiliskipulag fyrir fjögur útleiguhús lnr. 134467. Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti “lýsingu” deiliskipulagstillögunnar í maí sl. Brugðist hefur verið við athugasemdum/
ábendingum í tillögu deiliskipulagsins. Uppdráttur dags. 25.09.2020. Deiliskipulagið (3.970
m2) tekur til lóða með fjórum byggingarreitum, aðkoma að lóð er um heimreið að bænum
Steðja. Deiliskipulag þetta samræmist gildandi aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Skriflegum athugasemdum skal skila í ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14. 310 Borgarnes
eða á netfang borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en 25. nóvember 2020.
Deiliskipulagstillögur eru til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 14.10-25.11.2020 og
á vefnum www.borgarbyggd.is
Virðingarfyllst,
Ragnar Frank Kristjánsson, sviðsstjóri og skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Skipulagsauglýsingar hjá Borgarbyggð
Í byrjun síðustu viku hófust fram-
kvæmdir við jarðvegsskipti und-
ir væntanlega nýbyggingu björg-
unarsveitarinnar Brákar í Borgar-
nesi. eins og kunnugt er gaf Borg-
arbyggð björgunarsveitinni 3800
fm. lóð á Fitjum 2 undir björgunar-
miðstöðina. Það var gert árið 2017
í tengslum við 150 ára verslunaraf-
mæli Borgarness. Lóðin er á falleg-
um stað næst fyrrum mjólkursam-
lagshúsi, en ofan við gatnamót Snæ-
fellsnesvegar og þjóðvegar eitt. Þar
mun björgunarsveitin reisa 760 fer-
metra hús. Áætlað er að byggingu
hússins verði lokið á næsta ári.
Tíðindamenn Skessuhorns hittu
að máli á væntanlegum bygging-
arstað þá Jakob Guðmundsson,
Þóri Indriðason og Pétur Bj. Guð-
mundsson, en þeir eiga allir sæti í
byggingarnefnd fyrir Brák. Þeir
segja tilhlökkun ríkja meðal félags-
manna um að komast í nýtt og
glæsilegt húsnæði. Fyrir á björgun-
arsveitin Péturborg, félagsaðstöðu í
hluta gamla BTB hússins við Brák-
arbraut 18-20 í Brákarey. Það hús-
næði verður sett á söluskrá fljótlega
og segjast þeir félagar vongóðir um
sölu þess enda húsið á afar hentug-
um stað fyrir ýmsa starfsemi.
Nýja björgunarmiðstöðin verður
eins og fyrr segir 760 fermetrar að
flatarmáli og byggð á einni hæð en
lofthæð verður mismunandi eins og
meðfylgjandi tölvugerða mynd sýn-
ir. Í norðurenda hússins verður að-
staða fyrir tækjabúnað og æfingar,
en í suðurenda þess verður m.a. fé-
lags- og fundaaðstaða og búnings-
herbergi. Húsið verður á steyptum
grunni og sökklum sem Steypu-
stöðin framleiðir en á þá verða reist-
ar yleiningar frá Límtré-Vírneti.
Áætlaður byggingarkostnaður er
120 milljónir kr. Jakob Guðmunds-
son, formaður byggingarnefndar,
segir að sú tala sé þó ekki geirnegld,
enda eigi eftir að koma í ljós hversu
góð viðskiptakjör björgunarsveitin
fái hjá öllum verktökum. Þeir hafi
þó teygt sig langt og gefið sveitinni
góð tilboð og afslætti, en í staðinn
sýnir björgunarsveitin sem verk-
kaupi ákveðinn sveigjanleika varð-
andi hraða byggingarframkvæmda.
„okkar áætlanir eru þær að grunn-
ur og sökklar verði tilbúnir í síðasta
lagi næsta vor. Hins vegar ef verk-
ið gengur vel nú framan af vetri er
ekki útilokað að hægt verði að reisa
húsið fyrir næsta vor. Það mun allt
skýrast á næstu vikum og helgast að
einhverju leyti af veðráttunni,“ seg-
ir Jakob.
Þeir Pétur, Jakob og Þórir segja
mikinn velvilja í garð björgunar-
sveitarinnar víðsvegar í samfélaginu
vegna þessa verkefnis. Stærsta ein-
staka gjöfin til sveitarinnar hafi ver-
ið lóðin sem Borgarbyggð gaf undir
húsið. Hafi sú gjöf auðveldað björg-
unarsveitinni að taka ákvörðun um
svo stóra framkvæmd sem raun ber
vitni. Hann óttast ekki að fram-
kvæmdin muni ganga of nærri fjár-
hag sveitarinnar. Fyrir áratug hafi
verið byrjað að safna í byggingar-
sjóð og þá væntir sveitin þess að fá
góða sölu á húsnæðinu í Brákarey.
„Við finnum fyrir miklum meðbyr
um þessar mundir. Nýliðun í sveit-
inni er því mikil og félagsstarfið er
með blóma. Í Brák er fjöldinn allur
af harðduglegu fólki sem er boðið
og búið að standa með okkur nú
sem fyrr,“ segja þeir.
Ívilnun til þriðja geirans
eins og kynnt var í síðasta Skessu-
horni hefur fjármálaráðuneytið
kynnt áform um lagasetningu um
skattaívilnanir í þágu þriðja geirans
svokallaða. Undir þriðja geirann
fellur starfsemi hvers kyns félaga-
samtaka, sjálfboðahreyfinga og
sjálfseignarstofnana sem starfa án
þess að vænta hagnaðar af starfsem-
inni. Björgunarsveitir landsins eru
dæmi um starfsemi í þriðja geiran-
um, sem og ungmenna- og íþrótta-
félög, hvers kyns góðgerðarfélög
og mannúðarsamtök. Vænta má
þess að björgunasveitin Brák geti
nýtt ívilnun sem í væntanlegri laga-
setningu felst við kaup á bygging-
arefni og vinnu vegna þeirrar stóru
framkvæmdar sem nú er hafin.
mm
Jarðvegsframkvæmdir hafnar við björgunarstöð Brákar
Björgunarstöðin Pétursey í Brákarey verður nú sett á söluskrá. Húsnæði sveitar-
innar er á neðri hæðinni, „á besta stað í bænum,“ segir Jakob Guðmundsson,
formaður byggingarnefndar.
Pétur Bj. Guðmundsson, Jakob Guðmundsson og Þórir Indriðason eiga allir sæti í
byggingarnefnd. Fyrir aftan þá eru vinnuvélar frá Borgarverki að hreinsa upp úr
væntanlegu bílastæði við húsið.
Horft til austurs yfir lóð Brákar. Þegar myndin var tekin var nokkurn veginn búið
að hreinsa upp úr þeim hluta lóðarinnar þar sem bíla- og geymslusvæði verður.
Langhlið hússins verður samsíða bílastæðinu, á þeim stað sem mennirnir tveir
standa.
Tölvugerð mynd af húsinu. Teikning: Nýhönnun; Ómar Pétursson.
Fyrsta skóflustungan að nýrri björgunarmiðstöð var tekin á afmæli Brákar, í
mars 2019. Það voru eldri félagar í Brák sem tóku fyrstu skóflustunguna að nýju
björgunarsveitarhúsi að Fitjum 2 en við moksturinn nutu þeir aðstoðar Guðna Th.
Jóhannessonar, forseta Íslands. Ljósm. Skessuhorn/ kgk