Skessuhorn - 14.10.2020, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 202012
enn er mikið líf á fasteignamarkaðn-
um á Íslandi og meðalsölutími íbúð-
arhúsnæðis er stuttur, að því er fram
kemur í mánaðarskýrslu hagdeildar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Þar er litið til fjölda íbúða sem tekn-
ar hafa verið úr birtingu hjá fast-
eignasölum, en það gefur góða vís-
bendingu um sölu fasteigna nánast
í rauntíma. Í september síðastliðn-
um var metfjöldi eigna tekinn úr
birtingu, eða 1.117 íbúðir á höfuð-
borgarsvæðinu, sem bendir til þess
að ekkert lát sé á fasteignakaupum
landsmanna um þessar mundir. Það
er 15% meira en í ágúst og um 54%
aukning frá september í fyrra.
Meðalsölutími fasteigna hefur
verið sögulega stuttur undanfarna
mánuði, einkum á dýrari eignum,
en hann er nú 46 dagar að meðaltali
á höfuðborgarsvæðinu en 68 dagar
annars staðar á landinu. Ástæðan er
meðal annars talin vera sú að óverð-
tryggðir vextir á íbúðalánum séu í
sögulegu lágmarki.
Samfara styttri sölutíma hefur
íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
einnig hækkað umtalsvert. Árs-
hækkun á höfuðborgarsvæðinu
mældist þannig 4,5% í ágúst mið-
að við pöruð viðskipti. Þó dregið
hafi úr árshækkun frá mánuðinum
á undan hefur takturinn legið upp
á við frá því í byrjun þessa árs. Árs-
hækkunin í nágrannasveitarfélög-
um höfuðborgarsvæðisins mæld-
ist 3,9% en annars staðar á lands-
byggðinni mældist 2,4% lækk-
un. Þá tölu verður þó að taka með
ákveðnum fyrirvara, þar sem kaup-
samningar eru mun færri og íbúða-
markaður mismunandi milli sveit-
arfélaga. „Árshækkun íbúðaverðs
mælist mjög áþekk ef notast er við
vísitölu söluverðs eða 4,6% á höf-
uðborgarsvæðinu, 4,4% í nágranna-
veitarfélögum þess en annars staðar
á landinu mældist 2,1% hækkun í
stað lækkunar eins og þegar miðað
er við vísitölu paraðra viðskipta,“
segir í skýrslu Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar.
Samdráttur á
byggingamarkaði
Nýjasta talning Samtaka iðnaðar-
ins bendir til þess að mikill sam-
dráttur sé í fjölda íbúða í byggingu,
einkum á fyrstu byggingarstigum.
Samkvæmt talningunni eru 4.946
íbúðir í byggingu á höfuðborgar-
svæðinu og nágrannasveitarfélög-
um en þær voru 6.005 í hausttaln-
ingunni í fyrra. Þetta samsvarar um
18% samdrætti. ef fjöldi íbúða á
fyrstu byggingastigum er skoðaður,
þ.e. að fokheldu, sést að samdrátt-
urinn nemur um 41% frá talning-
unni síðastliðið haust. Þetta bend-
ir til þess að talsvert færri fullgerðar
íbúðir muni koma inn á markaðinn
á næstu árum.
Samkvæmt spá Samtaka iðnað-
arins gætu um 1.986 íbúðir verið
fullgerðar á höfuðborgarsvæðinu
og í nágrannasveitarfélögum þess
á næsta ári og um 1.923 íbúðir árið
2022. Í báðum tilfellum er um að
ræða töluverðan samdrátt frá spá
samtakanna frá því í september í
fyrra. Samkvæmt grunnspá síðustu
íbúðaþarfagreiningar HMS, sem
gerð var í lok síðasta árs og nær til
ársins 2040, þyrfti að byggja um
1.800 íbúðir á hverju ári að meðal-
tali um allt land til að mæta íbúða-
þörf landsmanna, bæði þeirri sem
telst í dag óuppfyllt og þeirri sem
mun myndast á næstu árum. „Því
gæti myndast framboðsskortur ef
íbúðafjárfesting heldur áfram að
dragast saman og færri nýjar íbúðir
fara að koma inn á markaðinn,“ seg-
ir á vef HMS.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Framkvæmdir við nýja húsbygg-
ingu Veitna við Lækjarflóa á Akra-
nesi ganga vel. Húsbyggingin sem
um ræðir mun hýsa nýja starfs-
stöð Veitna á Vesturlandi og er
hún hluti af svokölluðum við-
spyrnuverkefnum fyrirtækisins.
„Á stjórnarfundi Veitna 8. apríl
síðastliðinn voru samþykktar að-
gerðir til að bregðast við þeim af-
leiðingum sem Covid-19 faraldur-
inn hefur haft á atvinnulíf lands-
ins. Veitur ætla að sýna samfélags-
lega ábyrgð í verki og auka fjár-
festingar í mannaflsfrekum verk-
efnum á starfssvæði sínu með það
að leiðarljósi að viðhalda atvinnu-
stigi í landinu eins og kostur er.
Samþykkt var að auka fjárfesting-
ar Veitna um samtals tvo milljarða
króna á árinu 2020 og um allt að
fjóra milljarða króna 2021 og af því
fara um 640 milljónir í verkefni á
Akranesi, þ.e. í húsbygginguna og
einnig er í bígerð að taka upp nýtt
vatnsból. Það er ánægjulegt að það
skuli hafa verið verktaki á Akranesi
sem varð hlutskarpastur í opnu út-
boði auk þess sem einingar hússins
eru keyptar af BM Vallá í bænum,“
segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir,
upplýsingafulltrúi Veitna, í samtali
við Skessuhorn.
Byggingin sem um ræðir mun
hýsa starfsfólk Veitna en sem
kunnugt er fannst mygla í gömlu
starfsstöðinni auk þess sem búið
er að breyta skipulagi svæðisins
Dalbrautar, þar sem hún stendur,
þannig að iðnaður á að víkja fyrir
íbúðabyggð.
Húsið í Lækjarflóa, verður byggt
á einni hæð og skiptist í skrifstofu-
hluta og verkstæðishluta. Í skrif-
stofuhlutanum verða skrifstofur,
vinnuherbergi og fundaaðstaða auk
kaffiaðstöðu fyrir starfsmenn og
búningsherbergja. Verkstæðishlut-
inn skiptist annars vegar í lager og
almennt verkstæði með hleðslurými
fyrir lyftara og inntaksrýmum og
hins vegar í aðstöðu fyrir fráveitu
til þrifa og viðgerða á búnaði, með
tilheyrandi búnings- og þvottaað-
stöðu. Þá er einnig tækjageymsla
sem er aðgengileg utanfrá.
„Að loknu opnu útboði var geng-
ið til samninga við lægstbjóðanda,
Sjamma ehf. frá Akranesi og koma
allir helstu undirverktakar Sjamma
einnig frá Akranesi. Framkvæmd-
ir hófust á jarðvinnu seinni hluta
ágústmánaðar og áætluð verklok
eru í lok ágúst 2021. Húsið er byggt
með burðarvirki frá Límtré Vírnet
og forsteyptum einingarlausnum frá
BM Vallá á Akranesi auk yleininga
fyrir iðnaðarhluta sem koma einnig
frá Límtré Vírnet,“ segir Ólöf.
Hún segir verkið hafa gengið vel,
jarðvegsskiptum undir byggingu og
útisvæði er lokið ásamt því að búið
er að koma upp forsteyptum sökkl-
um. Á næstu vikum hefst svo upp-
setning á einingum fyrir skrifstofu-
hluta hússins og stefnt er á að bygg-
ingin verði risin og orðin fokheld í
janúar 2021. frg
Umhverfisstofnun hefur staðið
fyrir sýnatökum í vatni í þeim til-
gangi að kortleggja útbreiðslu efna
sem talin eru ógn við vatnaum-
hverfi í evrópu. Sýni voru tekin
á höfuðuðborgarsvæðinu; í sjón-
um við Klettagarða, í Tjörninni í
Reykjavík og í Kópavogslæk. Um
er að ræða efni sem eru á sérstök-
um vaktlista evrópusambandsins
og hefur m.a. að geyma lyfjaleifar,
kynhormón og varnarefni. Að auki
var kannað hvort hér á landi fynd-
ust lyfjaleifar sem eru á sérstökum
vaktlista í Svíþjóð. „Helstu niður-
stöður mælinganna eru að í sýn-
unum var að finna þrjú efni af 16 á
vaktlista evrópusambandsins. efn-
in sem um ræðir eru Ciprofloxac-
in og Diclofenac sem eru efni sem
finnast í sýkla- og bólgueyðandi
lyfjum. Að auki fannst kynhormón-
ið estrógen í öllum sýnunum sem
voru tekin. engin varnarefni (skor-
dýra- eða plöntuvarnarefni) af list-
anum var að finna í íslensku sýnun-
um,“ segir í frétt Umhverfisstofn-
unar.
Stofnunin beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til almennings
að skila lyfjaleifum í apótek sem
tryggja viðeigandi förgun efn-
anna. Niðurstöðurnar benda til
að töluvert magn lyfja berist út
í umhverfið með frárennsli. Lyf-
in geta borist í frárennsliskerfin
með ýmsum hætti, eins og frá bú-
fjárhaldi, með útskilnaði frá fólki
eða þegar fólk losar sig við lyf í
frárennsliskerfið. Fráveitur á Ís-
landi búa ekki yfir búnaði til að
hreinsa lyfjaleifar úr fráveitu-
vatninu.
Af þeim efnum sem eru á
sænska vaktlistanum fundust níu
efni í mælanlegum styrk í vatni
á höfuðborgarsvæðinu. Um er
að ræða efni sem finnast m.a. í
geðlyfjum, hjarta- og blóðþrýst-
ingslyfjum, sýklalyfjum og lyfjum
sem tekin eru við sveppasýking-
um og kynsjúkdómum. Nokkrar
tegundir lyfjaleifa var að finna í
mælanlegum styrk bæði í Kópa-
vogslæk og í Tjörninni í Reykja-
vík. mm
Líflegur fasteignamarkaður
Ýmis skaðleg efni úr
lyfjaleyfum greinast í vatni
Sýni tekin úr sjónum utan við Klettagarða í Reykjavík. Ljósm. Umhverfisstofnun.
Tölvuteiknuð mynd af nýrri starfsstöð Veitna á Vesturlandi.
Starfsstöð Veitna í byggingu við
Lækjarflóa á Akranesi
Jarðvegsskiptum er nú lokið og búið að koma sökklum fyrir undir húsið í Lækjarflóa. Ljósm. frg.