Skessuhorn - 14.10.2020, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 2020 13
Fríform ehf.
Askalind 3,
2�1 Kópavogur.
562–15��
Friform.is.
Mán. – Fim. 1�–1�
Föstudaga 1�–17
Laugardaga 11�15
2
�
�
�
—
2
�
2
�
Eldhúsinnréttingar
Skrifað var undir nýjan kjarasamn-
ing Félags grunnskólakennara og
Sambands íslenskra sveitarfélaga
á ellefta tímanum á miðvikudags-
kvöld. Undirritun fór fram í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara. Nýr
kjarasamningur grunnskólakenn-
ara er í samræmi við lífskjarasamn-
ingana, að því er fram kemur í til-
kynningu á vef Kennarasambands
Íslands. Gildir samningurinn til
ársloka 2021.
Næstu daga verður samningurinn
kynntur fyrir félagsmönnum Félags
grunnskólakennara og að því búnu
verður kosið um hann. Niðurstöðu
kosningarinnar er að vænta fyrir
23. október næstkomandi. kgk
Vegna umræðu um öryggi á vegum
að undanförnu vill Bergþóra Þor-
kelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinn-
ar, koma því á framfæri að starfs-
menn eru harmi slegnir yfir bana-
slysi sem varð á Kjalarnesi í júní-
lok - og því að slíkar aðstæður hafi
getað skapast við venjubundið við-
hald á vegum. „Vegagerðin vinnur
nú að umfangsmikilli endurskoðun
á öllum ferlum sem lúta að yfirlögn-
um á vegakerfinu. Markmið þeirrar
vinnu er að tryggja að slys sem þetta
geti ekki komið fyrir aftur,“ segir í
tilkynningu.
Yfirlýsing frá forstjóra Vegagerð-
arinnar er þannig í heild sinni:
„Vegna umræðu um öryggi á
vegum að undanförnu viljum við
hjá Vegagerðinni koma eftirfarandi
á framfæri. Í júní síðastliðnum átti
sér stað hræðilegt slys á Kjalarnesi.
Á umræddum vegarkafla var nýlok-
ið viðhaldi á malbiksyfirborði og
beindust sjónir strax að frávikum
í framkvæmd þessa verks. Rann-
sóknir á viðnámi á yfirborði sýndu
í framhaldinu að miklu munaði að
uppfylltar væru kröfur í útboðslýs-
ingu til verksins. Í rannsóknum sem
gerðar voru í kjölfarið og enn eru í
gangi kemur berlega í ljós að um-
rætt malbik stóðst ekki útboðskörf-
ur Vegagerðarinnar. Augljóst sam-
hengi er milli þeirra galla og þeirra
aðstæðna sem sköpuðust á slysstað.
Við starfsmenn Vegagerðarinnar
erum harmi slegin yfir slysinu og því
að slíkar aðstæður hafi getað skapast
við venjubundið viðhald á vegum. Í
framhaldi af þessu hafa allir hlutar
umrædds verks verið fjarlægðir utan
einn sem sannarlega stóðst kröfur til
viðnáms. Verkið sem um ræðir var
framkvæmt af verktaka með mikla
reynslu. Sú reynsla kom því miður
ekki í veg fyrir þær afleiðingar sem
við öll þekkjum. Vegagerðin vinnur
nú að umfangsmikilli endurskoðun
á öllum ferlum sem lúta að yfirlögn-
um á vegakerfinu. Markmið þeirr-
ar vinnu er að tryggja að slys sem
þetta geti ekki komið fyrir aftur,“
segir Bergþóra Þorkelsdóttir.
mm
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands hefur ákveðið að halda vöxt-
um bankans óbreyttum. Stýrivext-
ir bankans, vextir á sjö daga bundn-
um innlánum, verða því áfram eitt
prósent eins og verið hefur frá því
í lok maí. Vaxtaákvörðun bankans
var tilkynnt síðastliðinn miðviku-
dag, 7. október.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
þjóðhagsreiknis reyndist hagvöxt-
ur á fyrri hluta ársins heldur þrótt-
meiri en búist var við í ágúst. Aft-
ur á móti bendir til þess að hægt
hafi á vexti eftirspurnar í lok sum-
ars. Vegna aukinnar útbreiðslu Co-
vid-19 að undanförnu hafa efna-
hagshorfur versnað frá því sem bú-
ist var við í ágúst. Óvissan er mik-
il og mun þróun efnahagsmála að
töluverðu leyti ráðast af framvindu
farsóttarinnar, að því er fram kemur
í yfirlýsingu Peningastefnunefndar.
Verðbólga jókst milli fjórðunga
á þriðja ársfjórðungi og mældist
3,2%, sem er heldur meiri verð-
bólga en spáð var í ágúst. Áhrifa
gengislækkunar krónu á verð inn-
fluttrar vöru gætir enn. Mikill slaki í
þjóðarbúskapnum mun að óbreyttu
leiða til þess að verðbólgan hjaðni
þegar áhrif gengisveikingar fjara
út. Verðbólguvæntingar til meðal-
langs og langs tíma hafa hins vegar
lítið breyst. Þannig virðist kjölfesta
þeirra í verðbólgumarkmiði Seðla-
bankans halda. „Traustari kjölfesta
verðbólguvæntinga hefur gert pen-
ingastefnunefnd kleift að bregð-
ast við versnandi efnahagshorfum
með afgerandi hætti. Lægri vext-
ir og aðrar aðgerðir bankans sem
gripið var til á vormánuðum hafa
stutt við innlenda eftirspurn. Áhrif
þeirra eiga þó eftir að koma fram að
fullu og munu þær áfram styðja við
þjóðarbúskapinn og stuðla að því
að efnahagsbatinn verði hraðari en
ella,“ segir í yfirlýsingu nefndarinn-
ar. Þar segir enn fremur að nefnd-
in muni áfram fylgjast grannt með
framvindu efnahagsmála, nota þau
tæki til sem hún hefur yfir að ráða
til aðstyðja við þjóðarbúskapinn og
tryggja að lausara taumhald pen-
ingastefnunnar skili sér með eðli-
legum hætti til heimila og fyrir-
tækja í landinu. kgk
evrópusambandið hefur gert
samning við lyfjafyrirtækið Jans-
sen Pharmaceutica NV, dóttur-
fyrirtæki Johnson & Johnson, um
kaup á bóluefni gegn CoVID-19.
Samningurinn felur í sér að strax og
prófunum er lokið og niðurstöður
sýna að bóluefnið er öruggt og með
fullnægjandi virkni er aðildarríkj-
um sambandsins tryggður réttur til
kaupa á bóluefni fyrir 200 milljónir
manna. eins og áður hefur komið
fram munu Ísland og önnur aðild-
arríki evrópska efnahagssvæðisins
njóta sama aðgangs að bóluefnum
sem evrópusambandið semur um
og önnur ríki sambandsins.
Samningurinn við Janssen er
þriðji samningurinn sem evrópu-
sambandið gerir við lyfjafyrir-
tæki um kaup á bóluefni við Co-
VID-19. Áður var búið að semja við
fyrirtækið AstraZeneca og Sanofi-
GSK. evrópusambandið á einnig í
viðræðum við þrjú önnur fyrirtæki
um bóluefnakaup; CureVac, BioN-
Tech-Pfizer og Moderna.
Samningurinn við Janssen fel-
ur einnig í sér heimild til kaupa á
bóluefnum fyrir allt að 200 millj-
ónir manna til viðbótar. Horft er
til þess að aðildarríkin geti lagt lág-
tekjuríkjum til bóluefni, auk heim-
ildar til að framselja bóluefni til
annarra evrópuríkja. Í tilkynn-
ingu framkvæmdastjórnar evrópu-
sambandsins sem birt var í síðustu
viku er haft eftir framkvæmdastjóra
stofnunar evrópusambandsins um
heilbrigðis- og matvælaöryggi að
samningurinn sé mikilvægt skref í
átt að því að finna öfluga vörn gegn
veirunni og að fleiri samninga sé að
vænta. mm
Óbreyttir stýrivextir
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Ljósm. Seðlabanki Íslands.
Þriðji samningur ESB
um kaup á bóluefni
Vegarkaflinn á Kjalarnesi sem lagður var nýju slitlagi í lok júní.
Ætla að tryggja að slys sem
þetta geti ekki komið fyrir aftur
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður FG, Aðalsteinn Leifsson ríkis-
sáttasemjari og Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarnasviðs SÍS, við undirritun
samningsins. Ljósm. Kennarasamband Íslands.
Grunnskólakennarar sömdu