Skessuhorn - 14.10.2020, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 202016
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, bisk-
up Íslands, ritaði nýverið bréf til
presta, djákna, organista, formanna
sóknarnefnda og útfararstjóra. Þar
mælist hún til þess að opið helgi-
hald falli niður í kirkjum landsins
í októbermánuði, vegna Covid-19
faraldursins. Þess í stað verði hug-
að að því að boða fagnaðarerindið
í streymi. Biskup óskaði þess jafn-
framt að kóræfingar falli niður í
mánuðinum og hvetur organista
og kórstjóra til að halda uppi æf-
ingum í gegnum fjarfundabúnað.
Sömuleiðis hvatti biskup til þess að
boðaðir fundir, ráðstefnur og þing
verði haldin rafrænt, sé það mögu-
legt, eða frestað ef hægt er.
Barna- og æskulýðsstarfi kirkj-
unnar verður haldið áfram fyr-
ir börn sem fædd eru árið 2005
eða síðar auk fermingarfræðslu,
að teknu tilliti til allra sóttvarnar-
reglna. eldri borgara starf kirkj-
unnar fellur niður í októbermánuði
og hvetur biskup presta og djákna
til að huga að þeim aldurshópi með
símtölum og sálgæslu.
Tuttugu manna samkomutak-
markanir eru sem kunnugt er í gildi
í landinu, en meðal undantekninga
frá þeim fjöldatakmörkunum eru
útfarir, sem miðast við 50 manns.
Mælist biskup til þess að þeir sem
eru með undirliggjandi sjúkdóma
vísi frá sér og minnir á að tuttugu
manna takmarkanir gildi um aðrar
kirkjulegar athafnir, svo sem skírnir
og hjónavígslur.
kgk
Alls greindust 83 ný kórónuveiru-
smit hér innanlands á mánudag-
inn, en fjöldi nýrra smita hafði ver-
ið öllu lægri dagana á undan. er
fjöldi nýrra sína sem greindust á
mánudag sambærilegur við dagleg-
an fjölda greindra smita dagana fyr-
ir helgi. Í gær voru samtals 1.071 í
einangrun með Covid-19 og 3.436
í sóttkví. 22 lágu inni á sjúkrahúsi
vegna sjúkdómsins, þar af voru þrír
á gjörgæslu.
Frá mánudegi til föstudags í síð-
ustu viku, 5.-9. október, greind-
ust 465 ný smit innanlands, eða að
meðaltali 93 sýni á dag yfir þetta
fimm daga tímabil. Um helgina
greindust samtals 109 smit en vel
að merkja voru mun færri sýni tek-
in um helgina en í vikunni á undan.
Dagana 5.-9. október voru sýna-
tökur aldrei færri en 2.500 á dag
og þær voru fleiri en 4.000 talsins
bæði á fimmtudag og föstudag. Til
samanburðar voru rúmlega 2.100
sýni tekin á laugardag. rétt rúmlega
1.500 á sunnudag en síðan fjölgaði
þeim í tæplega 3.700 á mánudag-
inn, 12. október síðastliðinn.
Í rénun á Vesturlandi
Faraldurinn virðist vera í rén-
un á Vesturlandi. Hægt en örugg-
lega hefur fækkað í hópi þeirra sem
þurfa að sæta sóttkví eða einangr-
un. Í gær, þriðjudaginn 13. október,
voru 18 manns í einangrun með
Covid-19 í landshlutanum, skv. töl-
um Lögreglunnar á Vesturlandi, en
33 í sóttkví. Til samanburðar var 21
í einangrun á föstudaginn og 64 í
sóttkví.
Í gær voru flestir í einangrun
á starfssvæði heilsugæslunnar á
Akranesi, eða tíu manns, en fjórir
í Grundarfirði, þrír í Stykkishólmi
og einn í Borgarnesi. Í sóttkví voru
29 á Akranesi, tveir í Grundarfirði,
einn í Stykkishólmi og einn í Borg-
arnesi. enginn var í sóttkví eða ein-
angrun í Búðardal eða í Ólafsvík.
Hertar aðgerðir
eins og greint hefur verið frá tóku
hertar sóttvarnaraðgerðir gildi
á höfuðborgarsvæðinu síðastlið-
inn miðvikudag. Kveða þær með-
al annars á um grímuskyldu við-
skiptavina verslana og tveggja
manna nálægðarmörk í öllum
skólum, að undanskildum börn-
um fæddum 2005 og síðar. Þjón-
usta sem krefst nándar er óheim-
il, sund- og baðstöðum var lokað
og íþróttir og líkamskrækt innan-
dyra er óheimil. Takmarkanir eru
þó rýmri fyrir börn fædd 2005 og
síðar. Æskulýðs- og tómstunda-
starfi þess hóps er haldið áfram og
sá aldurshópur fer í skólasund.
Auk reglnanna gaf sóttvarna-
læknir út tilmæli þess efnis að
íþróttakeppni yrði frestað um tvær
vikur, líka hjá félögum utan höfuð-
borgarsvæðisins. Hefur keppni í
Íslandsmótunum í knattspyrnu og
körfuknattleik þannig verið slegið
á frest í bili, svo dæmi séu tekin.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagði á upplýsingafundi á
mánudag að gagnrýni og umræða
um sóttvarnaraðgerðir væri nauð-
synleg og góð. Hins vegar þyrftu
gagnrýnendur að líta til þess sem
kynni að gerast ef veirunni yrði
sleppt lausri. Nú þegar hefðu milli
1% og 2% þjóðarinnar smitast.
ef útbreiðslan næði til 10% þjóð-
arinnar gerðu það um 36 þúsund
manns og slíkt gæti hæglega gerst
á fjögurra til sex vikna tímabili.
Við slíkar aðstæður þyrftu á bilinu
1.200 til 2.300 manns að leggjast
inn á sjúkrahús, miðað við reynsl-
una hér innanlands til þessa. 110
til 600 gætu þá þurft pláss á gjör-
gæslu, þar af 90 til 350 sem þyrftu
á öndunarvél að halda og allt að
200 manns gætu látist af völdum
sjúkdómsins. „Það er ljóst að til-
tölulega lítið útbreiddur farald-
ur, 10%, myndi valda slíku álagi
á heilbrigðiskerfið að það myndi
bitna á öðrum sjúklingum og valda
umtalsverðum samfélagslegum
skaða,“ sagði Þórólfur. Þetta þyrfti
að taka til greina í allri umræðu
um sóttvarnaraðgerðir. „ef mikið
yrði slakað á í samfélagslegum að-
gerðum myndum við sjá útbreidd-
ari faraldur og töluvert útbreidd-
ari en þessi 10%,“ sagði hann og
bætti því við að menn gætu aðeins
ímyndað sér ef reyna ætti að ná
svokölluð hjarðónæmi meðal þjóð-
arinnar, en til þess er talið að lág-
mark 60% þurfi að smitast. „Menn
geta bara ímyndað sér ef við sjáum
60% smitast á stuttum tíma hvers
lags afleiðingar það myndi hafa í
för með sér. ekki bara fyrir heil-
brigðiskerfið, spítalakerfið, heldur
samfélagið allt,“ sagði Þórólfur og
brýndi fólk til að sýna áfram sam-
hug og samstöðu í baráttunni við
veiruna. Það væri besta sóttvörnin.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Matvælastofnun barst nýlega til-
kynning frá Dýraspítalanum í
Víðidal um að sníkjudýrið encep-
halitozoon cuniculi hafi greinst í
tveimur kanínum með mótefna-
mælingum í blóði. er það fyrsta
staðfesta smit af þessari tegund
í kanínum hér á landi. Matvæla-
stofnun vill vekja athygli dýraeig-
enda og dýralækna á þessu, svo að-
ilar verði vakandi fyrir sjúkdóms-
einkennum og leiti mögulega eft-
ir greiningu á sjúkdómnum ef það
á við. Þar sem þekkt er að þetta
sníkjudýr finnst nú þegar víða um
land í villtum dýrum, verður ekki
gripið neinna aðgerða af hálfu yfir-
valda til að reyna að takmarka frek-
ari dreifingu þess.
Hér á landi greindist e. cuniculi
í refum á níunda áratug síðustu ald-
ar, og einnig í minkum og músum.
Hefur sjúkdómurinn sem einfrum-
ungurinn veldur verið kallaður
„refavanki“ á íslensku, en erlend-
is gengur hann undir nafninu no-
sematosis eða encephalitozoonos-
is. engin skimun hefur farið fram
í kanínum hér á landi, svo umfang
smits af þessu tagi í þeim er óþekkt.
Samkvæmt reglugerð um tilkynn-
ingar- og skráningarskylda sjúk-
dóma er skylt að tilkynna grun eða
staðfestingu á encephalitozoon
cuniculi til Matvælastofnunar.
Smitleiðir
e. cuniculi er einfrumungur, svo-
kallað frumdýr (e. Protozoa). Hann
finnst í frumum hýsils og dreifist
með því að mynda gró sem geta
borist út með þvagi eða saur. Geta
gróin verið smithæf í umhverfi í
langan tíma. Þegar gróin berast í
nýjan hýsil t.d. með vatni eða fóðri,
þá opnast gróin með smitefninu
sem finnur sér leið inn í frumur
hýsilsins og byrjar að fjölga sér upp
á nýtt. Um 1-2 mánuðir líða oftast
áður en nýr hýsill skilur út smithæf
gró. Smit getur einnig borist frá
móður til afkvæma á meðgöngu.
Einkenni
Flest spendýr sem smitast sýna eng-
in einkenni, en lítill hluti dýra sem
smitast þróa einkenni og þá helst
frá taugakerfi, augum og/eða nýr-
um. einkenni frá taugakerfi getur
verið skekkja á höfuðstöðu, óstöð-
ugleiki, hringganga og óeðlileg-
ar augnhreyfingar. Augneinkenni
geta verið að það sjáist hvítur massi
í auga, aukinn þrýstingur og/eða
sýking (uveitt). einkenni eru oftast
aðeins í öðru auganu og dýrið ann-
ars einkennalaust. e. cuniculi ein-
frumungurinn sækir einnig í nýru
og getur valdið bráðri eða lang-
vinnri nýrnabilun.
Greining
Sjúkdómseinkenni geta vakið grun
um smitsjúkdóminn, en oftast þarf
annað hvort krufningu og vefj-
askoðun, greiningu á DNA sníkju-
dýrsins (PCR) í vef eða líkamsvess-
um eða mótefnamælingu í blóði til
að staðfesta smit. Mótefni geta oft-
ast mælst 3-4 vikum eftir smit og
mælast yfirleitt 4 vikum áður en
vefjabreytingar eru sýnilegar í nýr-
um (eða öðrum vef) og útskilnaður
á gróum hefst.
Meðhöndlun og fyrir-
byggjandi aðgerðir
Lítið hefur verið birt af vísinda-
greinum um árangursríka með-
höndlun á refavanka. Meðhöndlun
gengur út á almenna stuðningsmeð-
höndlun ef dýr sýna sjúkdómsein-
kenni og þá til að milda einkenni.
Nokkrar rannsóknir hafa sýnt að
meðhöndlun með sníkjudýralyfj-
um getur bæði fyrirbyggt og með-
höndlað sýkingu að einhverju leyti.
Þó er alls óvíst að taugaeinkenni,
eða önnur sjúkdómseinkenni gangi
til baka, þrátt fyrir meðhöndlun
þar sem sjúkdómseinkenni byggj-
ast ekki bara á tilvist sníkjudýrsins,
heldur líka á ónæmisviðbrögðum
hýsilsins. Fyrirbyggjandi meðferð
með sníkjudýralyfjum og hreinlæti
við fóðrun getur hinsvegar minnk-
að líkur á smiti.
-fréttatilkynning frá Matvæla-
stofnun
Smitsjúkdómurinn „refavanki“
greinist í kanínum
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Ljósm. úr safni.
Helgihald falli niður
í október
Mörg hundruð smit á rúmri viku