Skessuhorn - 14.10.2020, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 2020 17
Guðmundur Sigurðsson hjá Keilu-
félagi Akraness var önnum kafinn
í dag við að koma nýjum keiluvél-
um fyrir í sal félagsins við Vestur-
götu í gær. Að sögn Guðmundar
eru vélarnar frá framleiðandanum
AMF og eru samskonar og vélarn-
ar sem eru í egilshöll. Þær eru þó
heldur færri á Akranesi eða þrjár á
móti 22 í egilshöll en þar sem að-
eins tveir keilusalir eru á landinu
bendir Guðmundur á að keilusal-
urinn á Akranesi sé annar stærsti
salurinn á landinu. Stærð salarins
jafngildi 4-5 holu golfvelli svo not-
uð séu hans orð. Guðmundur seg-
ir Keilufélagið lengi hafa leitast við
að komast í stærra húsnæði en ekki
hafi orðið af því enn.
Nýju keiluvélarnar koma frá Am-
eríku í gegnum Svíþjóð. Guðmund-
ur segir að um algera byltingu verði
að ræða, munurinn sé svipaður og
á 1968 módelinu af blöðruskóda og
nýjum Skóda. Guðmundur lét þó í
ljós áhyggjur af því að hann myndi
sennilega hlaupa í spik því hann
þarf ekki lengur sífellt að hlaupa á
bak við vélarnar til að gera við.
Á döfinni er að halda hópa- og
fyrirtækjamót á Akranesi. Síðast
þegar slíkt mót var haldið voru
keppnishóparnir 36. Ljóst er að
slíkt mót verður ekki haldið á næst-
unni en þegar Covid verður yfir-
staðið mun Keilufélagið ekki bíða
boðanna heldur blása til leiks.
frg
Í lok ágúst voru fyrstu íbúðir við
Dalbraut 4 á Akranesi afhendar
nýjum eigendum. Húsið er fimm
hæða íbúða- og þjónustuhús fyrir
eldri borgara og í kjallara eru bíla-
stæði fyrir hverja íbúð. Sala á íbúð-
um hefur gengið mjög vel, 22 íbúð-
ir eru seldar og aðeins tvær óseld-
ar. Nú þegar hafa nýir íbúar flutt
inn í 20 íbúðanna. Þá var langþráð-
ur salur, sem ætlaður er fyrir þjón-
ustumiðstöð og félagsstarf Félags
eldri borgara á jarðhæð hússins, af-
hentur Akraneskaupstað fyrr í sum-
ar. Unnið er að framkvæmdum við
innréttingar og eru verklok þeirra
framkvæmda áætluð í september
2021.
Jón Ágúst Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Byggingarfélagins
Bestla ehf. sem byggir húsið segir
að verið sé að leggja lokahönd á frá-
gang við húsið og ljúki því verki á
næstu dögum. Í beinu framhaldi af
því verði lokið við hönnun á Þjóð-
braut 3, lokið verði við að grafa fyrir
undirstöðum fyrir jól og uppsteypa
hússins hefjist í janúar á næsta ári.
Gert er ráð fyrir að íbúðir að Þjóð-
braut 3 verði tilbúnar til afhending-
ar sumarið 2022. Fyrirhugað er að
framkvæmdir við Þjóðbraut 5 hefj-
ist í framhaldinu en Jón Ágúst segir
of snemmt að segja til um nákvæma
tímasetningu.
Bestla var eina fyrirtækið sem
bauð í byggingarrétt á öllum fjór-
um lóðunum á svokölluðum Dal-
brautarreit og sótti í fyrstu einung-
is um að byggja á lóðinni Dalbraut
4. Fyrirtækið fékk hins vegar allan
byggingarreitinn og hugðist reisa
alls fjögur fjölbýlishús á svæðinu.
Þar á meðal Dalbraut 6 þar sem
ÞÞÞ húsið stendur í dag. Var fyr-
irhugað að ÞÞÞ húsið myndi nýt-
ast meðan á byggingaframkvæmd-
um stendur en yrði síðan rifið og
nýtt hús byggt á þeirri lóð. Fyr-
ir nokkru gerðist það hins vegar
að Byggingarfélagið Bestla skilaði
inn lóðinni að Dalbraut 6. Í fram-
haldi af því samdi Akraneskaup-
staður við Leigufélag aldraðra hses.
um að taka við verkefninu um Dal-
braut 6. Í samtali við Skessuhorn
sagði Sævar Freyr Þráinsson bæj-
arstjóri að samstarfið við Leigu-
félag aldraðra henti Akraneskaup-
stað vel og auðveldi bænum t.d. að
uppfylla markmið í húsnæðisáætl-
un Akraneskaupstaðar um leigu-
húsnæði til aldraðra. Verkefnið fól
í sér að Akraneskaupstaður og ríkið
leggðu fram stofnframlag til fram-
kvæmdanna og svo lánar Húsnæð-
is- og mannvirkjastofnun fyrir mis-
muninum.
Þá nefnir Sævar Freyr að þessi
breyting feli það í sér að nýtt hús
við Dalbraut 6 rís mun fyrr en gert
var ráð fyrir í upphafi. Jafnframt
leiðir það til þess að ÞÞÞ húsið
verður rifið mun fyrr en ætlað var.
Verkefnið er jafnframt hluti af að-
gerðaáætlun Akraneskaupstaðar en
einhugur var um hana í bæjarstjórn
en minnihluti bæjarstjórnar hefur
reyndar verið með nokkurn fyrir-
vara á þar sem ekki liggi fyrir full-
nægjandi greining á þörf fyrir slíkt
úrræði sem og hvort þetta sé besta
staðsetningin. Staðsetningin að
mati meirihluta bæjarstjórnar hent-
ar afar vel fyrir eldri borgara þar
sem þjónustumiðstöð fyrir félags-
starf eldri borgara er við hliðna.
Að sögn Sævars Freys leitar
Leigufélag aldraðra nú samstarfs-
aðila á Akranesi um framkvæmdina
auk þess sem gera þarf breytingar
á fyrirliggjandi teikningum hússins
svo og deiliskipulagi. Sævar Freyr
lét í ljós ánægju með hvað Bygg-
ingafélagið Bestla skipti mikið við
fyrirtæki á Akranesi, en stór hluti
iðnaðarmanna eru heimamenn.
Slíkt væri afar mikilvægt, ekki síst
á þessum tímum þegar kreppir að í
atvinnumálum. Það hefði í för með
sér aukna veltu innan bæjarfélagsins
og ýmis jákvæð áhrif. Sagðist Sævar
Freyr vonast til að svo yrði einnig
með þetta verkefni á Dalbraut 6.
frg
Uppbygging að hefjast af krafti á Dalbrautarreit
Nú er flutt inn í 20 af 24 íbúðum við Dalbraut 6, en tvær eru enn óseldar. Ljósm. mm.
Guðmundur Sigurðsson og Ólafur Þórðarson frá Bifreiðastöð ÞÞÞ við nýja vél.
Ljósm. Hilmar Sigvaldason
Nýjar keiluvélar í keilu-
salinn við Vesturgötu