Skessuhorn - 14.10.2020, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 202020
Borgnesingurinn Nanna einars-
dóttir er rafmagnsverkfræðingur
að mennt, en er einnig prjónakona.
Á meðan samkomubannið var í
vor forritaði Nanna vefinn lykkj-
ustund.is. Um er að ræða reiknivél
sem Nanna forritaði til að aðstoða
prjónafólk með algenga útreikn-
inga tengda prjónaskapnum. Nafn
síðunnar kemur frá máltækinu
„Drjúg er lykkjustundin“ en það er
einmitt tilgangurinn með síðunni -
að drýgja lykkjustund hins almenna
prjónara með því að minnka tím-
ann sem fer í útreikninga og und-
irbúning og auka tímann við prjón-
ið sjálft.
En hver er
Nanna Einarsdóttir?
Nanna er fædd í Reykjavík en upp-
alin í Borgarnesi. Hún er dótt-
ir hjónanna Guðrúnar Jónsdótt-
ur, sem stýrir Safnahúsinu í Borg-
arnesi, og einars Guðbjarts Gott-
skálks Pálssonar sem starfar hjá
Límtré Vírneti. Systkini Nönnu
eru Gréta Sigríður ritstjóri Ice-
land Review, elín elísabet teiknari
og Páll sem nemur jarðeðlisfræði
við HÍ. Sextán ára flutti Nanna til
Reykjavíkur þar sem hún hóf nám
í Kvennaskólanum. eftir það lá
leiðin í rafmagnsverkfræði við Há-
skóla Íslands hvar hún útskrifað-
ist 2010. Að því loknu, árið 2013,
lauk hún mastersgráðu í rafmagns-
verkfræði frá DTU í Danmörku.
Nanna starfaði að loknu námi í þrjú
ár hjá Marorku, vann m.a. við að
lágmarka eldsneytiskostnað skipa.
Þá flutti hún sig til NoX medical
sem er fyrirtæki á sviði svefnmæli-
tækni. Þar vann hún við sjálfvirkar
greiningar á lífmerkjum.
„Ég starfa í dag sem forritari
hjá Ankeri, sem er fimm manna
sprotafyrirtæki og var stofnað árið
2016. Ankeri þróar viðskiptahug-
búnað sem miðar að aukinni hag-
kvæmni og bættu umhverfisspori í
rekstri fraktskipaútgerða sem eiga
eða þurfa að leigja skip með mis-
munandi eiginlega eftir verkefnum
hverju sinni. Helsta markaðssvæði
fyrirtækisins er evrópa en í raun er
allur heimurinn undir,“ segir hún.
Stereótýpísk
kynjahlutverk
Nanna flutti í janúar með sambýlis-
manni sínum, Jóhannesi Ingibjarts-
syni rafvirkja hjá Samey og dótt-
ur þeirra Helenu Jóhannesdóttur
,í Laugardalinn í Reykjavík. Fjöl-
skyldan kann vel við sig þar. „Það
er svolítið eins og að vera í sveit-
inni að búa í Laugardalnum. Þar
finnst okkur frábært að búa og svo
er einnig kostur að eiga foreldra í
Borgarnesi því þá eigum við oftar
erindi út fyrir borgarmörkin.“
eins og fyrr segir fór vefsíðan
lykkjustund.is í loftið í samkomu-
banninu í vor. „Lykkjustund er
hugarfóstur mitt. Ég hef unnið í
hugbúnaðarþróun síðastliðin sjö ár
og svo hef ég verið að prjóna jafn-
lengi. Lykkjustund sameinar þess-
ar tvær ástríður svo það var lán í
óláni að samkomubannið gaf mér
loks tíma til að vinna í verkefninu
en hugmyndina hafði ég gengið
með lengi.“ Nanna kveðst hafa lært
prjónaskap í grunnskóla en áhug-
inn hafi ekki kviknað fyrr en löngu
síðar, eða árið 2012. „Mér leidd-
ist prjónaskapurinn í grunnskóla,“
viðurkennir hún. „Verkefnið hef-
ur sýnt mér að ég er lánssöm að
vera í sniðmenginu konur og for-
ritarar. Stereótýpísk kynjahlutverk
hafa gert það að verkum að þar eru
fáir, svo hugmyndir eins og Lykkj-
ustund fá að liggja þar tiltölulega
óáreittar. Leiða má líkum að því
að það séu fleiri ókönnuð tæki-
færi fólgin í þessu sjónarhorni, og
er þetta eitthvað sem konur í tækni
ættu að líta á sem styrkleika.“
Þröskuldur að
finna uppskrift
Nanna segir að bæði eftir banka-
hrunið og svo núna í samkomub-
anni hafi orðið vart bylgju auk-
ins áhuga fyrir prjónaskap. Fólk
sem hætt var að prjóna hafi tekið
upp prjónana að nýju auk þess sem
margir hafi byrjað frá grunni að
prjóna. Úrval og aðgengi að hráefni
og áhöldum hefur sömuleiðis auk-
ist. Nýjar hannyrðaverslanir hafa
sprottið upp, fleiri handlita garn
og hanna uppskriftir, og prjónað-
ur fatnaður selst sem aldrei fyrr.
„Þegar maður er búinn að prjóna í
svolítinn tíma fara að verða til hug-
myndir að eigin hönnun. Manni
langar til að prófa nýtt garn eða
mynstur og það sem stoppar mörg
af er að þá er vitaskuld engin upp-
skrift til að fylgja lengur. Í þessum
tilfellum getur talsverður tími far-
ið í að leita að svipaðri uppskrift til
að byggja á eða hreinlega að reikna
hana út frá grunni. Lykkjustund
býður upp á lausn við þessu, af því
þar má nálgast grunnuppskriftir að
algengustu prjónaflíkunum, aðlag-
aðar að því garni sem prjónarinn
velur. einnig má þar finna prjón-
festureikni fyrir almennari útreikn-
inga.“
Þrjár gerðir af upp-
skriftum
„Inni á síðunni eru þrjár uppskrift-
ir sem koma í öllum stærðum og
aðlagast allar prjónfestu garns, svo
prjónarinn getur valið hvaða garn
sem er í verkefnið. ein uppskrift-
in er að sokkum, önnur að vettling-
um og sú þriðja er húfuuppskrift,
sem er í prófunarfasa þegar þetta
er sagt. Uppskrift að peysu er einn-
ig á döfinni. Flíkurnar eru einfald-
ar og henta því jafnt sem byrjenda-
verkefni, eða sem sniðmát fyrir eig-
in hönnun.“ Notandinn fær síðan
ítarlegar leiðbeiningar um hvernig
skuli bera sig að við prjónaskapinn.
Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast
fylgjast með Lykkjustund og fleiri
prjónatengdu efni geta skoðað In-
stagram síðuna lykkjustund. ert þú
með eitthvað á prjónunum? frg
Laugardaginn 3. október sá Sigur-
björn Magnússon bóndi á Minni –
Borg í eyja- og Miklaholtshreppi,
nokkrar kindur í landi eyðijarðarinn-
ar Hörgsholts. Fór hann ásamt börn-
um sínum og náðu þau kindunum á
hús. Þar á meðal var ær nr. 15-597 frá
Hjarðarfelli í sömu sveit. Þessar fjár-
heimtur væru ekki í frásögur færandi
nema fyrir þær sakir að þessari til-
teknu kind var sleppt á fjall sumarið
2017, þá með tveimur hrútlömbum.
Lömbin fundust sitt í hvoru lagi þeg-
ar komið var fram á vetur, en hvorki
sást tangur né tetur af ánni og var hún
því talin af. „Það kom okkur því mjög
á óvart að hún skyldi koma fram núna.
Á myndinni sem tekin er frá hlið má
glöggt sjá gömlu reyfin þrjú, því allt-
af hefur orðið meira eftir af þeim með
hverju árinu. Hafi ærin eignast lömb
á þessum útigangsárum hafa þau mis-
farist, því ekki hefur neinna ómerk-
inga orðið vart,“ segir Sigurbjörg
ottesen bóndi á Hjarðarfelli. Þess
má geta að ærin var rúin og síðan
send í sláturhús. Það þótt öruggara
svo hún stryki ekki til fjalla að nýju.
Ullin af henni var vigtuð og reynd-
ist vera 9 kíló, þá blaut, en léttist um
600-700 grömm við að þorna. Fall-
þungi var 38,1 kg. mm/ Ljósm. so.
Þarna má sjá reyfin þrjú.
Heimtist af fjalli eftir þrjú útigangsár
Heimt af fjalli eftir þrjú ár.
Forritaði vefsíðu sem hjálpar prjónafólki
með algenga útreikninga
Prjónavarningur eftir Nönnu.
Fjölskyldan; Nanna, Jóhannes og Helena í Laugardalnum.