Skessuhorn - 14.10.2020, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 2020 21
Pennagrein
Um miðja síðustu öld var tekin póli-
tísk ákvörðun um hvar reisa skyldi
Sementsverksmiðju ríkisins. Á þeim
tímapunkti sem sú ákvörðun var
tekin var engin stóriðja í landinu.
Það gefur því augaleið að ýmsir
bæir og þorp landsins litu hýru auga
til þess að fá slíka verksmiðju í bæj-
arfélagið sitt. Sementsverksmiðj-
an myndi skapa gríðarlegt atvinnu-
öryggi. Lengi vel stóð til að reisa
verksmiðjuna á Vestfjörðum, nán-
ar tiltekið við Önundarfjörð. Í bar-
áttunni um sementsverksmiðjuna
áttu Skagamenn þó hauk í horni,
atvinnumálaráðherrann sem sá um
málið, Bjarna Ásgeirsson, þing-
mann Mýramanna. Hann og Pét-
ur ottesen, þingmaður Borgfirð-
inga, sameinuðu krafta sína í mál-
inu eins og samferðamenn þeirra
minntust síðar með skrifum í blöð
eins og; „fyrir samstarf og baráttu
þingmanna Borgarfjarðarhéraðs,
þeirra Péturs ottesen og Bjarna
Ásgeirssonar að Sementsverksmiðja
ríkisins var staðsett á Akranesi“ og
„Bjarni heitinn Ásgeirsson ákvað
um svipað leyti og bygging áburð-
arverksmiðjunnar var ráðin, að sem-
entsverksmiðju skyldi fenginn stað-
ur á Akranesi. Var það fyrir hvatn-
ingu Péturs ottesen og með atbeina
samráðherra Bjarna.“
Þegar Bjarni Ásgeirsson skipaði
þriggja manna nefnd í upphafi árs
1949 til að ljúka við rannsóknir á
því hvar reisa skyldi sementsverk-
smiðju var sú nefnd að sjálfsögðu
fagmannlega skipuð. oddaatkvæð-
ið var að sjálfsögðu í höndum son-
ar ráðherrans, Jóhannesar Bjarna-
sonar. Málið var unnið á ógnar-
hraða og í ágúst þetta sama ár var
skipuð önnur nefnd til að gera til-
lögur að staðsetningu fyrirhugaðrar
sementsverksmiðju og voru í henni
fjórir menn, einn þeirra var Sig-
urður Símonarson, múrarameistari
á Akranesi. en setja má spurning-
armerki við það hvers vegna hann
hafi verið í þessari óháðu fagnefnd
ráðherra. Sigurður var einnig sett-
ur strax í stjórn Sementsverksmiðju
ríkisins. Í bréfi sem Pétur ottesen
sendi Bjarna Benediktssyni á þess-
um tíma bað hann Bjarna að greiða
leið Sigurðar í stjórn sementsverk-
smiðjunnar meðal annars á þeim
forsendum að hann væri „mjög
traustur Sjálfstæðismaður.“ Þessi
óháða fjögurra manna tillögunefnd
í ágúst 1949 komst að þeirri niður-
stöðu að Akranes væri vænlegasti
kosturinn til þess að reisa sements-
verksmiðju. Nefndin tók sér raun-
ar aðeins þrjá daga í að komast að
þeirri niðurstöðu þrátt fyrir að
rannsóknum væri mjög ábótavant.
Akranes var staðurinn og spilaði
þar sennilega inn í samþykktir bæj-
arstjórnar Akraness nokkru áður.
en bæjarstjóri Akraness, Guðlaug-
ur einarsson, sendi atvinnumála-
ráðuneytinu bréf 1. júní árið 1949
þar sem sagði meðal annars: „Bæj-
arsjóður Akraness mun gefa Sem-
entsverksmiðjunni, ef hún verð-
ur staðsett á Akranesi, kost á lóð í
grennd við höfnina, eftir nánara
samkomulagi við verksmiðjunefnd-
ina, og mun bæjarsjóður taka á sig
kostnað af lóðarkaupunum, ef um
slíkt verður að ræða.“
Traðkað á íbúum
Bæjaryfirvöld á Akranesi voru búin
að lofa upp í ermina á sér áður en ljóst
var hvar verksmiðjan yrði byggð.
Bæjarstjóri Akraness sendi bréf til
skipulagsstjóra Skipulagsnefnd-
ar ríkisins 12. nóvember 1949 þess
efnis að fyrirhugað væri að byggja
sementsverksmiðjuna á Ívarshúsa-
lóð og næstum lóðum við hana. Svo
virðist sem það væri eini raunhæfi
möguleikinn. Ég held að flestir, nú
sem fyrr, séu á því að bygging stór-
iðju í miðbæ bæjarfélags er afleit
hugmynd. Í áliti Skipulagsnefnd-
ar ríkisins koma svipuð sjónarmið
fram í bréfi til bæjarstjóra Akra-
ness snemma árs 1950 en þar sagði:
„Skipulagsuppdráttur hefir þó ekki
gert ráð fyrir slíkum stóriðnaði svo
nærri byggðinni og nefndin tel-
ur ekki að til greina hefði kom-
ið að reisa nein þeirra íbúðarhúsa,
sem komin eru neðan Suðurgötu og
við Mánabraut, ef upphaflega hefði
verið gert ráð fyrir slíkum mann-
virkjum iðnaðar, sem hér um ræðir.
Telur nefndin síst veita af öllu land-
svæðinu að Suðurgötu. Í því sam-
bandi vill nefndin benda á það, að
þeir lóðareigendur, sem nú eiga hús
á þessum slóðum, hafa byggt þau
á þeim forsendum að þarna væri
ákveðinn íbúðarréttur og er ekki
ólíklegt, að þeir teldu sér stafa slík
óþægindi af nálægð verksmiðjunn-
ar, sem kynnu að valda bótaskyldu
frá bæjarsjóði.“ Það var því ljóst allt
frá upphafi að staðsetningin væri
beinlínis ekki ákjósanleg sem og að
hún yrði umdeild meðal íbúa.
Ákvörðunin að byggja verksmiðj-
una á Ívarshúslóðinni var ekki bor-
in undir landeigendur. Guðbjarni
Sigmundsson frá Ívarshúsum átti
stærstan hluta lóðarinnar og barð-
ist hann gegn bæjaryfirvöldum sem
ætluðu að greiða lítið sem ekkert
fyrir lóðirnar til að gefa ríkinu þær.
en honum var stillt upp við vegg
eins og kemur fram í fundargerð
bæjarstjórnar Akraness frá fundi
25. apríl árið 1950. „Skuldbindur
bæjarstjórnin sig til að greiða all-
an kostnað við eignarnám þessara
lóðarhluta og mannvirkja á þeim.“
Daníel Ágústínusson tók við sem
bæjarstjóri Akraness árið 1954 og
var eitt af hans fyrstu stóru verkefn-
um að ganga til samninga við Guð-
bjarna eins og hann lýsti í minn-
ingargrein sinni um Guðbjarna.
Gekk Guðbjarni ósáttur frá borði
frá þeim samningum enda mátu
bæjaryfirvöld lóð hans eins lágt og
þau gátu. Í einni svipan var búið
að hirða af Guðbjarna óðalið sem
hann hafði alist upp á og búið nær
alla tíð, öll hlunnindi voru hrifs-
uð af honum. Pólitíkin réði för og
hagsmunir Guðbjarna virtust engu
skipta. Guðbjarni undi ekki þessari
niðurstöðu. Hann las lög og sótti
málið sjálfur í Hæstarétti Íslands
þar sem hann vann það og fékk þar
einhverjar sárabætur, en jörðin var
farin. Árið 1975 átti ríkið svo eftir
að eignast einbýlishús hans, Ívars-
hús, sem þá var orðið óíbúðarhæft
af sprunguskemmdum eftir bygg-
ingu sementstankanna.
Önnur þekktari persóna í sögu
Akraness, Haraldur Böðvarsson
var einnig ekki hrifinn af þessum
áformum og ritaði grein í Morg-
unblaðið 9. september árið 1954
sem bar yfirskriftina „Sementsverk-
smiðjuna má ekki staðsetja í miðju
vaxandi bæjar.“ Þar sem hann sagði
að sementsverksmiðja ætti að vera á
„afviknum stað, langt frá mannabú-
stöðum og matvælaframleiðslu.“
Stakk hann upp á því að verksmiðj-
an yrði frekar í Hvalfirði.
Óafturkræf
umhverfisspjöll
en hvers vegna að rifja þetta upp?
Jú, nú hefur Sementsreiturinn svo-
kallaði verið mikið til umræðu und-
anfarin ár og fyrirhuguð uppbygg-
ing á honum. Það er því vert að rifja
upp með hvaða hætti hann varð til.
Hann varð til af pólitískum klækja-
brögðum frá A-Ö, þar sem m.a. var
traðkað á íbúum bæjarins. Virð-
ing var ekki í hávegum höfð þeg-
ar Sementsreiturinn varð til. Stór-
iðju var þröngvað inn í þéttbýli, og
reis í bakgörðum fólks, eða jafnvel á
jörðum þeirra gegn vilja þeirra. ef
skynsemi hefði verið höfð að leið-
arljósi hefði Sementsverksmiðja
ríkisins aldrei verið reist á þessum
stað. en hér skal tekið fram að að-
eins er um gagnrýni á staðarval-
ið að ræða. ekki er ég að gera lít-
ið úr þeim áhrifum sem hún hafði
á atvinnulíf bæjarins, þau eru ótví-
ræð. en þegar við lítum til baka
voru þessir áratugir þess virði? Því
með þessari pólitísku ákvörðun að
reisa Sementsverksmiðju ríkisins á
Akranesi urðu hræðileg umhverf-
isspjöll á einni helstu náttúruperlu
Akraness. Langisandur var eyði-
lagður með landfyllingu og munum
við Skagamenn sennilega aldrei aft-
ur sjá hann í neinu samræmi við það
hvernig náttúran útbjó hann, það
er liðin tíð. Lóðin sem sements-
verksmiðjan reis á var engan veg-
inn gerð fyrir stóriðjuuppbyggingu
eins og kom fram í mati Skipulags-
nefndar ríkisins. Þetta voru óaftur-
kræf umhverfisspjöll sem eru okkur
Skagamönnum til ævarandi skamm-
ar. Virðingarleysið var algjört. Und-
ir lok níunda áratugarins tjáði Árni
Ibsen, rithöfundur, sig um þetta
mál í þætti sínum Gestaspjalli sem
fluttur var í Ríkisútvarpinu. Hann
var ómyrkur í máli eins og sjá má á
erindi hans. „eina baðströndin sem
risið hefur undir nafni á Íslandi var á
Akranesi, ég segi var, vegna þess að
sú baðströnd var eyðilögð áður en
það komst almennt í tísku að sleikja
sólskinið og fara í sjóböð. Þessi bað-
strönd var strandlengjan á sunnan-
verðum Skaganum og náði frá Ív-
arshúsaklettum skammt frá höfn-
inni og alla leið inn að Höfða þar
sem nú er elliheimilið. Ströndin hét
Langisandur og heitir það víst enn,
þó búið sé að stytta hana og svo var
hún breið og það flöt að maður tók
ekki eftir því að einhver halli var á
henni niður að flæðarmálinu fyrr en
sjórinn fór að hækka á flóðinu. Sand-
urinn var svartur, kolsvartur og svo
sléttur að þar var stundum keppt í
alvöru fótbolta... en það kunnu fáir
að meta þessa náðargjöf, sem Lang-
isandur var, aðrir en börn og hús-
mæður og því fór sem fór. einhverj-
um snillingum datt í hug að skella
eins og einni sementsverksmiðju á
sandinn, nóg var plássið, en þess-
ari ummyndun landslagsins verður
líklega seint jafnað við þá ummynd-
un sem Jóka tröllkerling stóð fyr-
ir þegar hún flutti Akrafjallið forð-
um daga, á sinn stað. Verksmiðjan
reis við Ívarshúsakletta og teygði sig
eftir sandinum hér um bil þriðjung
vegalengdarinnar í átt til Höfða.
Um það bil á miðri baðstrandar-
paradísinni var byggð heljarstór þró
sem er sjálfsagt hálft í kílómetri að
lengd, og hátt í tvö hundruð metra
að breidd.“
en þrátt fyrir þessa hræðilegu
eyðileggingu varð þó eitthvað eftir á
Langasandi og eru stjórnmálamenn
iðnir við að minna á hvílík náttúru-
perla ströndin sé. Þegar Bláfáninn
var dreginn að húni í fimmta skipt-
ið árið 2017 sagði Sævar Freyr Þrá-
insson bæjarstjóri eftirfarandi sem
vitnað var til í Skessuhorni 5. júlí
árið 2017, „Langisandur er nátt-
úruperla sem þekkist vart í þéttbýli.
Bláfáninn hvetur okkur áfram í að
halda sandinum hreinum og bjóða
upp á góða aðstöðu svo fólk nýti
sér þessa náttúruperlu okkar Skaga-
manna.“ Ég er hjartanlega sammála
orðum Sævars fyrir þremur árum
síðan. en því miður virðist Sæv-
ar hafa skipt um skoðun, því hann
birtist glaður í bragði í fréttatíma
Ríkissjónvarpsins nú fyrir helgi þar
sem hann sagði frá
f r a m k v æ m d u m
við hækkun Fax-
abrautar og efl-
ingu sjávargarðs
sem er liður í upp-
byggingu Sementsreitsins. Bæjaryf-
irvöld ætla því að bæta um betur við
skemmdarverkin sem framin voru
um miðja síðustu öld og enn verður
gengið á Langasand. Það sem tap-
ast nú af Langasandi er vissulega
ekkert í líkingu við það sem gert
var þegar sementsverksmiðjan var
reist. en við slíka framkvæmd þarf
að hafa í huga hvert samhengið er.
Hér er ekki aðeins um lítið rask á
sandinum að ræða heldur viðbót við
þau spjöll sem unnin hafa verið. en
maður veltir fyrir sér, er sú gríðar-
lega landfylling sem átti sér stað
um miðja síðustu öld, með tilheyr-
andi spjöllum, ekki nægileg fyrir
Skagamenn? Þurfum við í alvöru að
ganga lengra? er engin önnur lausn
en að reisa allar þessar íbúðir þarna.
Auðvitað er eðlilegt að reistar séu
íbúðir þarna að einhverju marki, en
þarf allt þetta magn að vera á þessu
svæði, sem krefur okkur að fara í
þessar stórframkvæmdir?
Það er deginum ljósara að bæjar-
fulltrúar á Akranesi veigra sér ekki
við að fylla upp í helstu náttúru-
perlur Skagamanna. Réttast væri að
bæjaryfirvöld segðu hér staðar num-
ið frekar en að halda áfram að skrifa
þennan sorgarkafla í sögu Akraness.
Þeir geta fyllt í Langasand á þeim
forsendum eins og segir í fram-
kvæmdaleyfinu; „engin friðlýst
svæði eða svæði á náttúruminjaskrá
eru í grennd við framkvæmdasvæð-
ið og á því eru ekki náttúrufyrir-
brigði sem njóta sérstakrar vernd-
ar skv. 37. gr. laga nr. 44/1997 um
náttúruvernd.“ er ekki kominn tími
til þess að Langasandi verði sýnd
tilhlýðileg virðing? Að það sé ekki
geðþótti bæjarfulltrúa hverju sinni
að sneiða af Langasandi? Hver seg-
ir að það verði ekki tekið meira af
honum? Segjum að rísi byggð við
Sólmundarhöfða, af hverju ættu
bæjaryfirvöld ekki að fylla upp í
Langasand þá? Hættuleg fordæmi
eru til staðar.
Stjórnmála- og embættismönnum
á Akranesi virðist ekki vera treyst-
andi fyrir Langasandi, því spyr ég;
væri ekki nær að friða Langasand?
Björn Þór Björnsson.
Höf. er Skagamaður.
Væri ekki nær að friða Langasand?
Hér má líta lítinn hluta Langasands sem hvarf undir landfyllingu við byggingu Sementsverksmiðju ríkisins. Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness