Skessuhorn - 14.10.2020, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 202022
Við Rifsós á Snæfellsnesi var grafa
að störfum í liðinni viku. Þar var að
verki Vigfús hjá B.Vigfússyni ehf.
að ræsa út efsta ósinn. Þetta verk
þarf reglulega að vinna vegna sands
sem berst í farveginn. Nú var kom-
ið svo mikið af sandi að nánast ekk-
ert rennsli var úr ósnum. Þegar ver-
ið var að ræsa út farveginn kom í
ljós hluti af bátsskrokk sem grafist
hefur í sandinn við ræsið. er senni-
lega um að ræða brot af skrokk Ber-
víkurinnar, sem fórst út af Rifi, eða
Dritvíkinni sem brann á Breiðafirði
og sökk á þessum slóðum. Hluti af
þessum skipsflökum er í fjörunni
milli Rifs og Ólafsvíkur.
þa
Verkefnið Jól í skókassa á vegum
KFUM og KFUK á Íslandi felst í
því að gleðja börn í Úkraínu sem
búa við bágar aðstæður með jóla-
gjöfum. Gjafirnar eru settar í skó-
kassa og til að öll börnin fái svipað-
ar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem
mælt er með að fari í hvern kassa.
Gjafirnar eru sendar til Úkraínu en
þar er atvinnuleysi mikið og marg-
ir sem búa við slæmar aðstæður og
kröpp kjör. Að því er fram kemur
á heimasíðu KFUM og KFUK er
íslensku skókössunum meðal ann-
ars dreift á munaðarleysingjaheim-
ili, barnaspítala og til barna ein-
stæðra mæðra sem búa við sára fá-
tækt. Gjöfunum hefur fjölgað ár
frá ári og um síðustu jól voru hátt
í fimm þúsund gjafir sendar frá Ís-
landi í skókössum.
Allir sem vilja geta tekið þátt í
verkefninu og hafa undirtektirnar
verið frábærar frá því fyrst var far-
ið af stað með verkefnið hér á landi
árið 2004. Tekið verður á móti skó-
kössum í húsi KFUM og KFUK
við Holtaveg 28 í Reykjavík mánu-
daga til fimmtudaga milli klukkan
9:00 og 17:00 en frá 9:00 til 16:00
á föstudögum. Tekið verður á móti
kössunum til 14. nóvember næst-
komandi. Fyrir þá sem búa á lands-
byggðinni er hægt að nálgast upp-
lýsingar um móttökustaði á heima-
síðu KFUM og KFUK undir „Mót-
tökustaðir“. Þá er þar einnig að
finna allar upplýsingar um hvernig
skuli ganga frá kössunum og hvað
skuli setja í þá. Mælt er með vett-
lingum, sokkum, húfum, treflum,
nærfötum, peysum, bolum, tann-
bursta, tannkremi og fleiru.
Eftirtaldir eru móttöku-
staðir KFUM og K
á Vesturlandi:
Akranes:
Tekið verður á móti skókössun-
um í Safnaðarheimili Akranes-
kirkju 2.-6. nóvember milli klukkan
10:00 og15:00. Tengiliðir eru Irena
Rut Jónsdóttir, sími 868-1383 og
Axel Gústafsson. Hann hefur síma
896-1979.
Grundarfjörður:
Tekið verður á móti skókössum í
Safnaðarheimili Grundarfjarðar-
kirkju fimmtudaginn 5. nóvem-
ber frá kl. 16:00 til 18:00. Tengi-
liðir er Anna Husgaard Andreasen í
síma 663-0159 og Salbjörg Sigríð-
ur Nóadóttir í síma: 896-6650.
Stykkishólmur:
Tekið verður á móti skókössum í
Stykkishólmskirkju mánudaginn
fimmtudaginn 29. október milli
kl. 16:00 og18:00. Tengiliðir eru
María Þórsdóttir, sími 845-1270
og Kristín Rós Jóhannsdóttir, sími
893-1558.
arg/ kgk/ Ljósm. úr safni/ KFUM
og KFUK.
Rifssaumur í Ólafsvík er í eigu Katr-
ínar Gísladóttur og hefur hún rekið
fyrirtækið í ríflega tólf ár. Í verslun
sinni selur Katrín garn ásamt flestu
sem fylgir prjónaskap. Hún hefur
einnig merkt handklæði, sængur-
föt og ýmislegt fleira ásamt því að
bjóða til sölu ýmsa smávöru sem og
handverk sem unnið er af heima-
fólki.
Verslunin var stofnuð árið 2008
þegar Katrín fór að selja garn í hús-
næði sínu í Rifi. Fyrir þann tíma
var hún eingöngu að merkja. Smám
saman vatt þetta svo upp á sig og
fyrir hálfu þriðja ári flutti hún versl-
unina til Ólafsvíkur. Fréttaritari
kíkti á Katrínu þar sem heyrst hafði
að hún ætlaði að loka versluninni.
„Já, þessa ákvörðun tók ég á dög-
unum og hún var alls ekki auðveld,
en ég hef verið að hugsa þetta í dá-
lítinn tíma.“ Ástæðuna fyrir lokun-
inni segir Katrín vera breytta við-
skiptahætti. „Það hefur alltaf geng-
ið vel og verið mjög gaman, ég hef
verið að hitta margt fólk og notið
þess að vera hér og sinna viðskipta-
vinum mínum. en nú er kominn
tími til að loka og mun ég gera það
um áramótin.“ Vissulega verður
sjónarsviptir af Rifssaumi enda hef-
ur Katrín þjónað handavinnufólki
dyggilega þessi ár. Nú er því spurn-
ing hvort einhver vilji taki við kefl-
inu og hafa samband við Katrínu og
falast eftir rekstrinum?
þa
Verðmæti vöruútflutnings frá Ís-
landi nam alls tæplega 62 milljörð-
um króna í september síðastliðnum
samanborið við rúmlega 50 millj-
arða í sama mánuði í fyrra. Það er
rúmlega 22% aukning í krónum
talið á milli ára. Fjallað er um út-
flutning í nýjasta fréttabréfi SFS.
Þar segir að gengi krónunnar spili
stóra rullu í þessari aukningu, enda
var það rúmlega 13% veikara nú í
september en á sama tíma í fyrra.
engu að síður er mikil aukning, eða
tæp 6% í erlendri mynt. Þetta má
sjá í bráðabirgðatölum sem Hag-
stofa Íslands birti í vikunni.
Þróunina í september má eink-
um rekja til tæplega 11% aukningar
í verðmætum útfluttra sjávarafurða
á milli ára, mælt í erlendri mynt,
og ríflega tvöföldunar á útflutn-
ingsverðmæti landbúnaðarafurða.
Útflutningsverðmæti landbúnað-
arafurða hefur í raun aldrei mælst
meira í einum mánuði í krónum tal-
ið, en í erlendri mynt er um næst-
stærsta mánuð að ræða. Útflutn-
ingsverðmæti þeirra var 4,5 millj-
arðar króna í september samanbor-
ið við 1,9 milljarða í september í
fyrra. Það jafngildir aukningu upp
á rúm 105% í erlendri mynt. Þetta
eru fyrstu bráðabirgðatölur fyrir
útflutning í september og einung-
is hægt að sjá útflutningsverðmæti
yfirflokka, eins og landbúnaðaraf-
urða í heild. Sem kunnugt er falla
fiskeldisafurðir þar undir og hefur
vægi þeirra í ár verið rúm 85% af
útflutningsverðmætum landbúnað-
arafurða. mm
Vægi laxeldis af útflutningsverðmæti landbúnaðarafurða hefur verið um 85% á
þessu ári. Ljósm. úr safni.
Útflutningur á landbúnaðar-
vörum tvöfaldaðist í september
Jól í skókassa til barna í Úkraínu
Hér er verið að færa ánægðum dreng jólgajöf.
Ánægð börn með gjafir.
Katrín Gísladóttir í Rifssaumi.
Stefnir að lokun
Rifssaums
Hreinsað út
úr Rifsósi