Skessuhorn - 14.10.2020, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 2020 23
Vísnahorn
Það hafa verið mörg fal-
leg sólsetur að undan-
förnu. Að vísu örlítið frá-
brugðin sólsetrum vors-
ins en ægifögur engu
að síður. Hygg að það
hafi þó verið að vori eða snemmsumars sem
Magnús Sumarliði Jósefsson orti:
Glitský himins horfi á
hugur verður fanginn.
Nú er fögur sjón að sjá
sólarniðurganginn.
Það var sagt að einar Benediktsson hefði
selt norðurljósin. Ætli engum hafi dottið í
hug að selja kvöldroðann? Björn Axfjörð er
sagður hafa byrjað vísu um sölumann á Akur-
eyri:
Sá er lipur sölumaður
samviskan ei þjáir hann.
Sig. Halldórsson botnaði:
Viðmótsléttur, lygahraður
laginn að blekkja náungann.
Á æskuárum mínum var Helgi Hjörvar með
vinsælustu útvarpsmönnum og útvarpsmenn
þá trúlega í líkri stöðu og þeir sem nú eru
kallaðir áhrifavaldar meðal þjóðarinnar. Um
Helga var ort:
Dýrðarkarlinn Helgi Hjörvar
hér í lífsins táradal
konur vorar ætíð örvar
eins og líka vera skal.
Jóhann Bárðarson kvað svo um vísur Páls
Ólafssonar:
Dýrar veigar mærðarmáls
munu teygast lengi
vængjafleygar vísur Páls
verðfast eiga gengi.
Ingimundur Magnússon orti í orðastað
manns sem þótti fremur lítið gefinn til sálar-
innar eins og sagt var og hans andlegi akur í
nokkurri órækt:
Löngum hef ég litið í
lærdómsríka pésa.
Get þó ekki gert að því
gengur illa að lesa.
Furðu margir af stjórnmálamönnum um
miðja síðustu öld máttu teljast þokkalega hag-
mæltir en flíkuðu því að sjálfsögðu mismik-
ið. eitt sinn var Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra á ferð um Suðurland í bifreið ásamt
fleiri þekktum mönnum, þar á meðal Agli
Thorarensen í Sigtúnum sem oft var kallaður
harðstjórinn. Þeir voru við skál. Seinfarið var
svo kvölda tók og skyggja áður en þeir næðu
leiðarenda. Þá dofnaði yfir hinu fríða föru-
neyti og varð þögn í bílnum. Þá kvað Her-
mann:
Harðstjórinn er heldur fár
hann er orðinn fullur.
Ég er eftir, aleinn klár
innan um þessar bullur.
Þá lifnuðu félagar Hermanns heldur en ekki
við og sögðu að hann færi með lygimál hann
væri sjálfur fyllstur. Þá sagði Hermann:
Þetta´ eru ýkjur, því er ver
þetta´ er næstum lygi.
Þetta kom af sjálfu sér
svona á fylliríi.
Stjórnmálamenn hafa þrátt fyrir allt og allt
orðið nokkuð misjafnlega þaulsætnir í valda-
stólum. Sumir verða fljótir að yfirgefa stólana
og sviðsljósið en aðrir sitja lengi á valdastólum
en völd geta auðvitað verið með ýmsu móti.
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson lét af embætti
2015 sagði Magnús Geir Guðmundsson:
Þótt ár sé ei liðið í aldanna skaut
eftir því skulum nú taka
að Ólafur Ragnar er óðum á braut
og aldrei hann kemur til baka.
Það er nefnilega margt sem aldrei kemur til
baka samanber þessa krossgáturáðningarvísu
Ragnars Gröndal:
Orð af vörum óvart skreið
einhvern til að saka,
nú er ekki nokkur leið
að ná því inn til baka.
Kristín Sigfúsdóttir mun aðeins hafa verið
tólf ára þegar hún orti þessa til bróður síns:
Hvar þú gengur Guðs á storð
gæt þess, enginn kraftur
liðinn tíma og töluð orð
tekið getur aftur.
Það er nú þetta með liðinn tíma. „Það hefur
sínar afleiðingar þetta ljúfa líf,“ sagði góður
vinur minn stundum þegar við vorum ungir
og vígalegir (að eigin áliti) og reyndar hafa
sumir rekið sig á þessi sannindi. Allavega gott
fyrir unga menn að hafa í huga þessa gömlu
vísu:
Þegar segir stúlkan stopp
stöðvast sóknin hlýtur,
það er galli á góðum kropp,
ef greiðasemi þrýtur.
Haustið er nú farið að minna á sig og ekki
úr vegi að rifja upp haustvísu Indriða á Fjalli:
Yfir fölva föld og höf
feigðarbyljir hvína.
Haust og vetur, helja og gröf
heimta inn skatta sína.
og önnur eftir Jóhannes Sigfússon á Gunn-
arsstöðum:
Haustsins eyði ógnarvald
en þó seiði blandið
er að breiðast eins og tjald
yfir heiðalandið.
Spurning hvort ekki haustar að í hagkerf-
inu jafnframt. Guðmundur Sigurðsson sem
mér er tamast að kynna sem revíuhöfund lýsti
málum þannig fyrir margt löngu:
Á viðskiptanna vegaleysu
víða leynist klifið bratt,
Mammon bakar mörgum hneisu
manni, sem í byrjun reisu
gróðaveginn gengur hratt.
Samvizkuna sumir flekka:
í sýndargengi kapp er þreytt:
blankir menn á börum drekka.
Borga síðan allt með tékka
akkúrat á ekki neitt.
Í fjármálanna ys og erjum
ýmsa grípur hik og fát,
á réttvísinnar skreipu skerjum
skakkafall er búið hverjum
sem fer þar ei með fullri gát.
Það mun hinsvegar hafa verið Björn Þor-
steinsson sem orti:
Viðskiptanna á mæðu morgni,
mitt í lána þönkunum,
gott er að eiga hauk í horni
og helst í öllum bönkunum.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Gott er að eiga hauk í horni - og helst í öllum bönkunum
Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa
nýtt góða veðrið að undanförnu
til að skipta um þær stikur sem eru
óhreinar eða glitið farið af og rétta
við skakkar stikur. Um 13 þúsund
vegstikur eru á svæði Vegagerðar-
innar á Snæfellsnesi, sem fylgjast
þarf með enda mikilvægt að þær
sjáist vel þegar skammdegið færist
yfir. Þetta eru þó ekki einu verkin
sem unnið er að þessa dagana því
einnig er verið að holufylla vegi og
huga að ýmsu áður en vetur geng-
ur í garð. Það var fjör á strákun-
um þegar ljósmyndari hitti þá enda
nóg að gera. Á myndinni er Hauk-
ur Berg Guðmundsson starfsmaður
Vegagerðarinnar. þa
„Við heyrðum það meðal annars
frá viðskiptavinum okkar að það
væri þörf á hádegisverðarstað þar
sem afgreiðslan gengi hratt fyrir
sig. Í hádeginu vilja viðskiptavin-
ir ekki bíða lengi eftir því að fá af-
greiðslu og var það ein af ástæðum
þess að þessi hugmynd fæddist,“
segir Gunnar H. Ólafsson, mat-
reiðslumaður á Matstofu Gamla
Kaupfélagsins á Akranesi, þegar
hann var spurður um ástæðu þess
að veitingastaðnum var breytt.
Matstofunni hefur verið mjög vel
tekið, að sögn Gunnars, og voru
um hundrað manns í hádeginu hjá
þeim á virkum dögum þegar starf-
semin var opnuð í sumar, en eftir
að Covid -19 kom til sögunar hafa
þetta verið um 70-80 manns á dag.
„Við vorum búnir að velta því fyrir
okkur um nokkurn tíma að breyta
rekstrinum hjá okkur og forgangs-
raða hlutunum auk þess að vera
með veisluþjónustuna okkar áfram
bæði á Akranesi og í Hlégarði í
Mosfellsbæ,“ segir Gunnar.
Þótt ekki sé lengur opið á kvöld-
in á Gamla kaupfélaginu þá er ým-
islegt á döfinni. „Við ætlum að
bjóða upp á að hafa opið á veit-
ingastaðnum á kvöldin í tengslum
við ýmsa viðburði hjá okkur. Þar
skal fyrst nefna svokallað „Haltu
kjafti kvöld“ þar sem hamborgar-
inn margrómaði verður á matseðl-
inum. Vð vorum með grillpakk-
ana í sumar sem gekk mjög vel og
gæti orðið framhald á. Bingókvöld-
in verða áfram þar sem ég og Gísli
rakari Guðmundsson sjáum um
skemmtunina auk ýmissa annarra
viðburða sem verða auglýstir þegar
að því kemur.
en þetta eru auðvitað fordæma-
lausir tímar í miðjum kórónuveiru-
faraldri sem heftir okkur auðvitað
eins og aðra. Ástandið gerði það að
verkum að við urðum að skipta upp
matstofunni þar sem aðeins er rými
fyrir 18 manns í veitingasalnum af
öryggisástæðum. Því færðum við
„Take away“ heimsendinguna yfir
í annan sal,“ segir hann.
Matstofa Gamla kaupfélagsins er
með fjölbreyttan matseðil í hádeg-
inu, en opið er frá klukkan 11:30
– 14:00 alla virka daga. Þar er pur-
usteik fastur liður auk kjúklinga-,
fisk- og veganrétta vikunnar.
se
Veðrið í síðustu viku var með ágæt-
um og tökur á sjónvarpsþáttunum
Vitjunum í Grundarfirði gengu
vel. Síðasta miðvikudag var til að
mynda tekið upp við rætur Kirkju-
fells í yndislegu haustveðri. Áætlað
er að tökur standi yfir fram í byrj-
un nóvember en góður gangur er í
verkefninu þessa dagana.
tfk
Holufylla og yfirfara vegstikur
Viðraði vel fyrir tökur
Matreiðslumennirnir Gunnar H Ólafsson og Birki Snær Guðlaugsson eru í hópi
þeirra sem standa að Matstofu Gamla kaupfélagsins. Hér eru þeir að halda vöru-
kynningu í versluninni Módeli á síðasta ári. Ljósm. úr safni/ mm
„Matstofunni okkar hefur verið
mjög vel tekið“