Skessuhorn - 14.10.2020, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 14. oKTÓBeR 202024
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Menningar- og miðaldastofnun-
in Snorrastofa minnist þess nú að
25 ár eru liðin frá því að undirrit-
uð var stofnskrá stofnunarinnar á
dánardægri Snorra Sturlusonar 23.
september árið 1995. Um leið er
þess minnst að 20 ár eru liðin síðan
stofnunin fékk sitt eigið húsnæði.
Snorrastofa hefur ásamt fjölda
aðila valdið straumhvörfum við
uppbyggingu Reykholts. Starfsem-
in stendur með blóma, þar sem vel
hefur verið unnið að bæði innri
málum stofnunarinnar og þró-
un umhverfisins, sem hefur tekið
stakkaskiptum. Þá hefur samstarfið
við kirkjuna á staðnum verið með
ágætum.
Upphaf Snorrastofu má rekja til
haustsins 1931 þegar kynnt var við
vígslu skólans hugmynd að stofn-
un Snorrasafns. Allt frá þessum
fyrsta vísi hefur safninu borist fjöldi
bókagjafa og ber þá hæst bókasafn
Tryggva Þórhallssonar forsætisráð-
herra, sem ráðstafað var í Reykholt
árið 1936, og bókasafn dr. Jakobs
Benediktssonar, er kom í Snorra-
stofu árið 1999. Fram til stofnun-
ar Snorrastofu 1995 hýsti Héraðs-
skólinn þessar bókagjafir.
Þess ber einnig að geta, að hug-
mynd um íbúð fyrir gestkomandi
fræðimenn í Reykholti hafði einn-
ig vaknað áður en Snorrastofa kom
til skjalanna. Það voru Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra og
sr. einar Guðnason í Reykholti,
sem kynntu þá hugmynd um svipað
leyti og barist var fyrir endurheimt
handritanna frá Danmörku.
Söfnuður Reykholtssóknar tók
ákvörðun um byggingu nýrrar
kirkju árið 1984 og fljótlega fæddist
sú hugmynd að við kirkjuna færi vel
á að reisa Snorra Sturlusyni minn-
isvarða, sem fæli í sér ræktun, rann-
sóknir og miðlun á arfi þeim, sem
hann skildi eftir sig.
Snorrastofa hefur bæði varð-
veislu- og miðlunarhlutverk og
hefur starfsemi hennar borið af því
keim allar götur síðan. Boðið er upp
á íbúð og aðra gistingu fyrir gest-
komandi fræðimenn, auk bókhlöðu
fyrir almenning og sérfræðinga á
sviði miðaldafræða. Þá sinnir stofn-
unin fyrirlestra- og námskeiðahaldi
og bókaútgáfu, að ógleymdri þjón-
ustu við gesti og gangandi með til-
heyrandi sýningum og fræðslu um
Snorra Sturluson og Reykholt.
Boðið er upp á vandaða grunn-
sýningu í sýningarsal Snorra-
stofu, „Sögu Snorra“, sem fjallar
um ævi, verk og híbýli hins merka
höfðingja, sagnfræðings og skálds.
Snorrastofa hefur einnig verið að
þróa hljóðleiðsögn í samvinnu við
fyrirtækið Locatify, en smáforritið
„Snorri“, leiðsögn utandyra sem
Snorrastofa tók í notkun á miðju ári
2018, hefur reynst vel. Þá er einn-
ig verið að setja upp hljóðleiðsögn
fyrir sýninguna um Snorra.
Árið 2019 var staðið fyrir 42 fjöl-
breyttum viðburðum opnum al-
menningi, en ásamt fyrirlestra-
haldi var staðið fyrir málþingi um
rannsóknarverkefni, sem ber heit-
ið Reykholtsverkefnið, glæsilegri
Barnamenningarhátíð, Norrænu
bókmenntavikunni, námskeiðum
og Prjóna-bóka-kaffi. Tónleikar og
fleira í Reykholtskirkju er ekki tal-
ið með. Hinir rómuðu og sívinsælu
fyrirlestrar, „Fyrirlestrar í héraði“,
voru með hefðbundnu sniði að
meðaltali einu sinni í mánuði yfir
veturinn, en boðið hefur verið upp
á þessa fyrirlestraröð í samfellt 23
ár. Í svokölluðu Prjóna-bóka-kaffi,
sem íbúar svæðisins eru duglegir að
sækja, gefst fólki kostur á að njóta
skapandi samveru í andrúmslofti
bókhlöðu stofnunarinnar. Gestir
voru um 1500 á þessum viðburðum
öllum.
Snorrastofa hefur stundað og
tekið þátt í fjölda rannsókna tengd-
um staðnum og miðaldafræðum
almennt. Sú hugmynd, að gera
Snorrastofu að evrópsku menning-
arsetri, hefur verið grunnstef starf-
seminnar, og allt frá árinu 1998 hef-
ur stofnunin stuðlað að iðkun mið-
aldafræða í samvinnu við innlendar
sem erlendar stofnanir. Afrakstur-
inn hefur birst í 20 útgefnum bók-
um Snorrastofu og samstarfsaðila
stofnunarinnar ásamt fjölda greina
í fræðiritum.
Fræðastarfinu hefur því verið
sinnt með þátttöku fólks úr öllum
heimshornum og hafa alþjóðlegu
samskiptin vakið eftirtekt. Sex- til
sjöhundruð innlendir og erlendir
fræðimenn hafa komið í Reykholt
á rúmum 20 árum, ýmist til að taka
þátt í rannsóknarverkefnum, sitja
ráðstefnur eða dveljast á staðnum
við fræðaiðkun, þýðingar og aðrar
skriftir.
Lykilþáttur í starfsemi Snorra-
stofu eru rannsóknir á ritmenn-
ingu íslenskra miðalda og þá ekki
hvað síst á eðli hinna fornu ritstofa.
Spurt er hverjar aðstæðurnar hafi
verið við sagnaritun og aðra texta-
gerð, hvað hafi verið í forgangi,
hvað vakti mestan áhuga viðtak-
enda textanna og hverjar hafi verið
hinar efnahags- og félagslegu for-
sendur ritmenningarinnar. og þá
eru rannsóknir á húsakosti, forn-
minjum og umhverfisþáttum ekki
síður mikilvægar.
Það er mat margra, að nauðsyn-
legt sé að varðveita, rannsaka og
miðla enn betur en gert hefur verið
menningarsögu og minjum þeirra
staða og ritstofa á Íslandi þar sem
ritmenning blómstraði á miðöld-
um. og með því að setja ritstofur
íslenskra miðalda í brennipunkt
skapast nýtt sjónarhorn á fræði-
og fornleifarannsóknir, sem lýt-
ur að samanburði á niðurstöðum
frá hverjum stað fyrir sig. Jörðin
geymir vissulega svör við mörgum
spurningum, en þess er að vænta
að með samanburði á bókmennta-,
menningarsögu- og fornleifarann-
sóknum staðanna megi einnig fá
skýrari heildarmynd af því tengsl-
aneti og menningarlandslagi sem
þróaðist á því tímabili sem ritstof-
urnar voru starfandi.
Fornleifarannsóknir eru góður
upphafspunktur slíkra rannsókna.
Með þeim hófust rannsóknir í
Reykholti og skiluðu ómetanlegum
upplýsingum um byggingu staðar
og kirkju og athafnasemi ábúenda,
ekki síst á tímum Snorra.
Rannsóknir á ritstofum og ís-
lenskri ritmenningu til forna eru
fjárfrekar. Snorrastofa kom í árs-
byrjun 2019 fram með hugmynd
um stofnun sérstaks sjóðs, sem með
tíð og tíma ætti að
geta orðið að liði
í þessu sambandi.
Það ár voru 75 ár liðin frá stofn-
un lýðveldis á Íslandi og af því til-
efni hvatti Snorrastofa ríkisstjórn
Íslands til að gera þennan sjóð
að veruleika. Forsætisráðuneyti,
fjármála- og efnahagsráðuneyti,
mennta- og menningarmálaráðu-
neyti, Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum ásamt Snorra-
stofu ákváðu síðan að taka hönd-
um saman við þróun átaksverk-
efnis til fimm ára um þverfaglegar
rannsóknir á ritmenningu íslenskra
miðalda, skammstafað RÍM. Mark-
miðið er m.a. efling rannsókna á
heimildum um ritunarstaði mið-
aldahandrita á Íslandi og þá sér-
staklega á þeim lærdómsmiðstöðv-
um og klaustrum þar sem ritmenn-
ing blómstraði. Verkefnið skipt-
ist í tvo verkþætti: Annars vegar
að rannsaka menningarminjar og
umhverfi tengt þessum stöðum og
hins vegar handrita- og bókmenn-
ingu þeirra.
Snorrastofa annast umsýslu með
þessu verkefni, sem miklar von-
ir eru bundnar við. Verður fróð-
legt að fylgjast með framvindu þess
þegar fram líða stundir.
Reykholti, 23. september 2020
Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður
Snorrastofu.
Snorrastofa í Reykholti 25 ára
Reykholt. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.