Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 27
KYNNING 27DV 15. JANÚAR 2021
R itrýndar vísindarannsóknir sýna að konur með mikið af lignans í blóðinu hafa að
meðaltali um 8,5 kílóum minni fitu-
massa en þær konur sem skortir eða
hafa lítið lignans. Einnig sýnir fjöldi
rannsókna fram á að lignans gefur
frábæran árangur við verkjum og
vanlíðan vegna hormónaójafnvægis,
fyrirtíðaspennu kvenna á öllum aldri,
við svefnvandamálum, skapsveiflum
og svitaköstum. Lignans stuðlar
að hormónajafnvægi á heilbrigðan
hátt. Þá er einnig talið að lignans
geti seinkað breytingaskeiðinu hjá
mörgum konum. Margar konur tala
um stórbætta tilfinningalíðan og betri
líkamlega líðan, sérstaklega kringum
blæðingar og að losna við tíðaverki og
aðra verki tengda þeim.
Lignans er einungis að finna innan
í trefjahýði hörfræja og gagnast
líkamanum ekki þegar það kemur úr
heilum fræjum eða hörfræjaolíu. CC
Flax er því eitthvað sem við ættum
flest, og þá sérstaklega konur, að
íhuga að taka inn að staðaldri.
Hörfræin sem notuð eru í CC Flax
frá Lifestream eru lífrænt ræktuð og
innihalda meira magn af lignans en
hefðbundin hörfræ. Fjöldi rannsókna
sýnir fram á mikla virkni innihalds-
efna CC Flax við að draga úr auka-
kílóum en dæmi eru um að konur
hafi náð af sér mörgum kílóum, upp
í 20 kíló, bara með því að strá einni
teskeið af CC Flax út á til dæmis AB
mjólk, grautinn eða í vatn á morgn-
ana. Þá dregur neysla CC Flax úr
fitusöfnun og með reglulegri inntöku
má fækka kílóum fljótt og fyrir-
höfnin við að halda sér í kjörþyngd
verður minni.
Trönuberjafræ og bjúgur
CC Flax frá Lifestream inniheldur
einnig lífræn mulin trönuberjafræ,
en fjöldi rannsókna sýnir fram á
virkni þeirra við að draga úr og fyrir-
byggja vökvasöfnun. Mulin fræin eru
mun öflugri en hreinn safi úr berj-
unum en sýnt hefur verið fram á að
trönuber styðji heilbrigðara tannhold
og verji slímhúð, blöðru og þvagkerfi
gegn sýkingum. Árangur finnst fljótt
og bjúgur rennur af líkamanum.
Heilbrigð leið til að
léttast og efla heilsuna
Einstök blanda lífrænna næringarefna í CC Flax frá Lifestream
stuðlar að heilbrigðri hormónastarfsemi, minnkun á bjúg, bættri
líðan og betri heilsu almennt. Þá hjálpa lignans og trönuberja-
fræin við að losna við aukakílóin og halda þeim í skefjum.
Þörungakalk og steinefni
Að auki inniheldur CC Flax þör-
ungakalk sem er lífrænt vottað
og vegan, auk kalksins inniheldur
kalkþörungurinn steinefni eins og
magnesíum, joð og járn. Skortur á
kalki getur verið lúmskur og getur
lýst sér í einbeitingarskorti, depurð,
kvíða, svefnvandamálum, sina-
drætti í vöðum og húðþurrki. Kalk
er eins og flestir vita afar mikil-
vægt fyrir tennur, tannhold, bein,
húðina, hár og neglur og taugaboð
vöðva. Dagskammtur af CC Flax
veitir 33% af dagsþörf á kalki. Þess
má geta að regluleg inntaka á kalki
dregur úr fitusöfnun þar sem kalk
getur bundið allt að 6 kíló af fitu í
meltingarveginum á ári samkvæmt
rannsóknum og stuðlar þannig að
kjörþyngd, jafnvægi og vellíðan.
Alfa og ómega-3
Að lokum inniheldur CC Flax
ÓMEGA-3 ALA fitusýrur sem koma
úr plöntum. Ómega-3 styður, eins og
þekkt er, við heilbrigði hjartans og
er mikilvægt fyrir starfs- og lær-
dómshæfni heilans. Ómega-3 eflir
ónæmiskerfið og lækkar kólesteról-
fitu í blóði. Það hægir á hrörnun
líkamans og húð verður frísklegri og
mýkri.
CC Flax frá
Lifestream hefur
sýnt sig og
sannað sem afar
áhrifamikið lífrænt
næringarefni
sem hjálpar fólki
að losa sig við
aukakíló, halda
þeim frá, auka
upptöku steinefna,
bægja burt bjúg
og margt fleira. Þú
verður einfaldlega
léttari með CC
Flex.
MYND/GETTY
CC Flax frá Lifestream inniheldur öfluga
blöndu af fyrsta flokks lífrænt ræktuðum
innihaldsefnum; lignans, muldum trönu-
berjafræjum, ómega-3 og þörungakalki.
Fæst í flestum apótekum, Heilsuhúsinu,
Fjarðarkaupum, Melabúðinni, Grænni heilsu
og netsölu www.celsus.is
CC Flax frá Lifestream:
• Er frábært gegn bjúg.
• Er gott til að grennast og viðhalda
kjörþyngd.
• Styrkir blöðru- og þvagkerfi.
• Styrkir rétta starfsemi ristilsins.
• Styrkir og eflir hormónajafnvægi
fyrir konur á öllum aldri.
CC Flax frá Lifestream er 100% líf-
rænt og inniheldur ekkert glúten eða
aukaefni. Það inniheldur enn fremur
engin erfðabreytt efni og hentar
grænmetisætum. Ráðlagt er að neyta
einnar kúfaðrar teskeiðar á dag af
CC Flax. Þá er hægt að setja eina
kúfaða teskeið út á t.d. AB mjólk,
grautinn eða í vatn/safa fyrripart
dags, en bragðið er mjög gott. n