Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 36
Matseðill
Röggu Nagla
Morgunmatur
Hafragrauturinn minn góði með
heitum kanileplum, löðrandi
hnetusmjöri og horuðu súkku-
laðisósunni minni sem er orðin
heimsfræg. Prótíngjafinn er yfir-
leitt egg, annað hvort harðsoðin
eða sem ommiletta.
Hádegismatur
Yfirleit t afgangar frá kvöldinu
áður sem ég borða á stofunni
minni milli skjólstæðinga.
Millimál
Ég er algjör sökker fyrir Nicks
sykurlausu stykkjunum. Hnetu-
gaurinn og karamellustykkið eru
algjörlega mín uppáhalds. Svo
eru Tom Oliver stykkin úr Vegan-
búðinni guðsgjöf til mannkyns,
sérstaklega hituð í örbylgjuofni
í 20 sekúndur og ég maula þetta
yfirleitt fyrir framan tölvuna milli
skjólstæðinga. Enda er lykla-
borðið hjá mér örugglega með
fleiri sýkla en peningaseðill.
Kvöldmatur
Ég fylgi sömu prinsippum í
prótíni, kolvetnum og fitu og vel
það sem ég er í stuði fyrir þann
daginn. Kjúklingur, kalkúnn, lax,
nautakjöt, svínakjöt, innmatur
eins og svínahjörtu eða kálfa-
lifur.
Kolvetnagjafarnir sem ég elska
eru: Kartöflur, sætar kartöflur,
hýðisgrjón, kínóa, kúskús.
F i tugjafarnir eru vanalega
humm us, avókadó, fetaostur, eða
fræ út á salat. Haugur af salati
og alls konar grænmeti. Uppá-
halds er sinnepshjúpað blómkál
eða grillað brokkólí.
Þristamús – sykurlaus og hollustuvædd
2 þroskuð avókadó
100 ml ósætt möndlumjólk (til
dæmis Isola)
2 stk. Good Good Keto Krunch með
lakkrísbragði
2 msk. hrákakó frá Now
100 ml Good Good sykurlaust síróp
Skerið lakkrísstykkið í 3-4 bita og
hitið í örbylgjuofni í um það bil 30
sekúndur.
Skúbbið avókadói í skál ásamt öllu
stöffinu og hrærið saman með töfra-
sprota eða í blandara/matvinnsluvél.
Kælið í 4-5 klst. og toppið með meira
af niðurskornu lakkrísstykki.
Algjört dúndur með sprauturjóma,
minn uppáhalds er Aito hafrarjómi
með nokkrum stevíudropum skellt í
rjómasprautu.
36 MATUR 15. JANÚAR 2021 DV
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Ég borða mat sem ég elska
og mat sem elskar mig
Ragga Nagli er þekkt fyrir að tala um heilsu á mannamáli. Hún byrjar daginn á æfingu
klukkan sex og starfar sem sálfræðingur. Hvað ætli hún borði á venjulegum degi?
R agnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, er klínískur
heilsusálfræðingur, pistla-
höfundur, einkaþjálfari og
þáttarstjórnandi hlaðvarpsins
Heilsuvarp. Hún æfir Cross-
Fit, þungar lyftingar, hlaup,
spretti og sund. Ragnhildur
er virk á samfélagsmiðlum
og skrifar gjarnan um heilsu
á mannamáli. Ragnhildur er
búsett í Kaupmannahöfn en
fyrir tíma COVID var hún
dugleg að koma til Íslands og
halda fyrirlestra um heilsu.
Venjulegur dagur hjá Ragn-
hildi byrjar um klukkan 5.30-
6.00 og þá tekur hún æfingu.
„Ræktin er lokuð núna hér í
Danmörku vegna COVID svo
æfingar eru teknar í geymsl-
unni en ég keypti svo mikinn
tækjabúnað í lokuninni í vor
að ég gæti næstum opnað eig-
in líkamsræktarstöð,“ segir
hún.
„Eftir æfingu kemur
hamingjuaugnablikið mitt í
grautnum mínum og ég gef
mér alltaf góðan tíma til að
njóta og koma líkamanum úr
streitunni frá æfingunni yfir
í rólegt ástand. Svo dúndra ég
farða í smettið og hendi mér í
fagmannlegar spjarir og hjóla
eða geng í vinnuna.“
Ragnhildur er sálfræðingur
með eigin stofu í Kaupmanna-
höfn og það hefur aldrei verið
eins mikið að gera hjá henni
og í COVID. „Ég er gjörsam-
lega yfirbókuð af skjólstæð-
ingum, bæði á stofunni og á
netinu,“ segir hún.
Mataræði sem hentar henni
Ragnhildur fer ekki eftir ein-
hverju ákveðnu mataræði.
„Ég fylgi mínu mataræði sem
hentar mér og mínum líkama
og minni æfingarútínu. Ég
borða mat sem ég elska og
mat sem elskar mig. Ég passa
að gefa mér alltaf tíma við
meginmáltíðirnar og borða
hægt og rólega, er í mikilli ró
og næði,“ segir hún.
„Ég reyni að hafa máltíð-
irnar vel samsettar af prót-
íni, kolvetnum og fitu til að fá
örugglega öll næringarefni og
hef mataræðið fjölbreytt og
skemmtilegt. Ég er rosa lítið
fyrir boð og bönn. Eini matur-
inn sem ég borða ekki er það
sem mér finnst horbjóður á
bragðið, eins og kóríander
sem er arfi Satans. Ég er allt
of mikil kjötæta og finnst
ekki vera máltíð nema dauð
skepna prýði diskinn en mig
langar samt mikið að draga úr
þeirri neyslu en hef ekki stigið
skrefið ennþá. En vegan lífs-
stíllinn og hugmyndafræðin
heillar mig mjög mikið. Ég er
eiginlega „wannabe“ vegan.“
Hvar er gott að byrja?
Aðspurð hvort hún hafi ein-
hver ráð fyrir þau sem hafa
sett sér markmið um heil-
brigðara líferni árið 2021
segir Ragnhildur að sé gott
að byrja mjög smátt. „Byrja
á eins litlum og yfirstígan-
legum venjum og þau geta. Því
þú verður að upplifa sigra og
styrkja sjálfstraustið í verk-
efninu til að fá hvatann til
að halda áfram. Það er mun
meira valdeflandi að styrkja
venjuna í sessi með því að fara
í tíu mínútur í ræktina tvisvar
í viku og bæta við tímann og
dagana heldur en að setja sér
óraunhæf markmið um að fara
í sextíu mínútur fimm sinnum
í viku ef þú hefur hreyft þig
núll sinnum í marga mánuði,“
segir hún.
Góður kokkur og
dúndur grillari
Ragnhildur er mikið í eldhús-
inu og lýsir sér sem „matar-
perra par excellence“. Þeim
hjónunum þykir gaman að
bjóða fólki í mat og kveðst
Ragnhildur vera ótrúlega góð-
ur kokkur og dúndur grillari.
„En maðurinn minn er mörg-
um klössum fyrir ofan mig
enda er pabbi hans kokkur
svo hann er með þetta í erfða-
menginu. Hann hefur kennt
mér nánast allt í eldamennsk-
unni og ég er smám saman að
taka fram úr honum finnst
mér. Ég er allavega rosa flink
að gera grænmeti að algjöru
gourmet-meðlæti. Ég nenni
ekki soðnu blómkáli eins og ég
var látin borða í gamla daga.
Það er hægt að leika sér svo
endalaust í þeirri deild,“ segir
hún. n
Ragnhildur nýtur þess að dúlla sér í eldhúsinu og borða góðan mat. MYND/HELGI ÓMARSSON
MYND/AÐSEN
D