Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 26
26 FÓKUS
ÁTTA ATRIÐI
SEM ÉG LÆRÐI AF
KATRÍNU TÖNJU
CrossFit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir gaf
nýlega út bókina Dóttir – Leið mín til tveggja
heimsmeistaratitla í CrossFit. Það geta allir lært
eitthvað af Katrínu Tönju, hvort sem þú ert afreks-
íþróttamaður, íþróttaiðkandi eða æfir ekki neitt.
15. JANÚAR 2021 DV
Katrín Tanja hefur lagt mikið á sig til að komast á þann stað sem hún er á í dag. MYND/STEFÁN KARLSSON
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Bókin Dóttir – Leið mín til tveggja heimsmeist-aratitla í CrossFit eftir
Katrínu Tönju Davíðsdóttur er
frábær fyrir CrossFit-iðkend-
ur sem og annað íþróttafólk.
Allt sem ég lærði er hugar-
farslegt, enda sýnir Katrín
Tanja að líkamleg geta kemur
þér aðeins hálfa leið, hugar-
farið kemur þér yfir loka-
línuna.
Ráð Katrínar Tönju eiga þó
ekki aðeins við íþróttafólk eða
íþróttaiðkendur. Allir geta
tekið þessi ráð og innleitt þau
í daglegt líf.
1. Ráð eru ómetanleg
Í fjórtánda kafla rifjar Katr-
ín Tanja upp heimsleikana í
CrossFit árið 2016. Það voru
margar erfiðar greinar það
árið, eins og raunar hvert ár,
en stundum kemur fyrir að
það eru nýjar æfingar sem
hafa aldrei verið í keppni áður.
Í einni greininni átti Katrín
Tanja að velta gríðarstórum
sívalningi sem lá á hliðinni
og var hálffullur af sandi.
Óspurður gaf æfingafélagi
hennar og CrossFit-stjarnan
Mat Fraser henni ráð sem
nýttist henni afar vel í keppn-
inni.
Seinna á heimsleikunum
gerði Katrín Tanja mistök í
keppninni og var mjög von-
svikin og reið. En eftir að
hafa fengið góð ráð frá bæði
þjálfaranum sínum og öðrum
keppanda, Cole Sager, þá leit
hún atburði dagsins allt öðr-
um augum og var upptendruð
í lok dags, reiðubúin að gefa
allt í lokadaginn. Hún endaði
með að vinna heimsleikana
það árið, annað árið í röð.
Þetta sýnir að það er í lagi
að þiggja og biðja um ráð.
Maður er nefnilega ekki sjálf-
ur alltaf með svörin og það er
engin skömm að því að viður-
kenna það. Ráð geta verið
ómetanleg.
2. Af hverju?
Þú verður að finna út af
hverju þú ert að gera það
sem þú gerir. Þú verður að
vita af hverju þú ert að æfa
á hverjum degi, þú verður
að vita af hverju þú liggur
lafmóð á gólfinu eftir hverja
æfingu. Ef þú ert ekki með
neina ástæðu er erfitt að gefa
sig alla í þetta.
Sama gildir með allt annað
sem þig langar að afreka,
bæði lítið og stórt. Um leið og
þú finnur ástæðuna, og í senn
drifkraftinn, þá gengur þér
miklu betur.
3. Viðhorf eru ekki
endanleg
Í bókinni talar Katrín Tanja
um þroska sinn sem íþrótta-
konu. Hún rifjar upp erfið
augnablik þar sem hún, að
eigin sögn, tók frekjukast á
æfingu því eitthvað fór úr-
skeiðis eða hún stóð sig ekki
eins og hún vildi.
Það tók hana tíma, æfingu
og sjálfsvinnu að breyta við-
horfi sínu og seinna mætti
hún svipuðum aðstæðum með
allt öðrum viðbrögðum. Þó
að maður geti ekki stjórnað
aðstæðum þá getur maður
stjórnað viðbrögðum sínum og
það skiptir miklu máli hvernig
maður ákveður að bregðast
við erfiðleikum og mótlæti.
Katrín Tanja sýnir að það
er hægt að læra, þroskast og
breyta viðhorfi. Ekkert er
endanlegt.
4. Haltu áfram
Katrín Tanja hefur tileinkað
sér hugsunarháttinn að halda
áfram í stað þess að stoppa
ekki. Þegar hún er að fara í
gegnum mjög erfiða æfingu
eða er að keppa og líkaminn
er að öskra, þá segir hún við
sjálfa sig: „Haltu áfram“ í
stað „ekki stoppa“. Að stoppa
er ekki í myndinni.
5. Jafnvel meisturum
getur liðið illa
Katrín Tanja opnar sig um
erfiðleika á mjög einlægan
hátt. Hún segir hreinskilnis-
lega frá þroskasögu sinni sem
íþróttamanns, hvernig henni
tókst að breyta viðhorfi sínu
og hegðun í átakanlegum að-
stæðum. Hún segir frá þung-
lyndi sem hún glímdi við ári
eftir að hún varð heimsmeist-
ari. Hún segir frá tímanum
þar sem hún tapaði löngun-
inni til að æfa, ástríðunni
sem hafði keyrt hana áfram
öll þessi ár. Hún segir frá
viljanum sem fór í að byrja að
vinna í sjálfri sér og komast
loks aftur á rétta braut, sem
leiddi til þess að hún komst
á verðlaunapall ári seinna á
heimsleikunum.
Katrín Tanja sýnir okkur að
öllum getur liðið illa, meira
að segja heimsmeisturum og
hraustustu konu í heimi.
6. Þakklæti
Það sem hjálpaði Katrínu
Tönju var að efla vitund sína
um þakklæti. Hún fékk bók-
ina The Five-Minute Journal.
Á hverjum degi skrifaði hún
í bókina þrjú atriði sem hún
var þakklát fyrir. Til viðbót-
ar skráði hún þrjú atriði sem
hún vildi tileinka sér, það sem
hún hafði lært þann daginn og
nokkur atriði sem hefðu getað
farið betur.
Að æfa þakklæti hjálpaði
Katrínu Tönju gríðarlega og
sýnir það að við gætum öll
sýnt meiri þakklæti. Það er
gott að hugsa hvað í lífi okkar
við höfum til að vera þakklát
fyrir, frekar en hvað okkur
skortir.
7. Vinátta fer í gegnum
súrt og sætt
Ein besta vinkona Katrínar
Tönju er Annie Mist Þóris-
dóttir, sem kom Íslandi á
kortið í CrossFit. Þegar
Katrín Tanja var að kynnast
CrossFit kynntist hún Annie
Mist, þær æfðu mikið saman
og urðu fljótt góðar vinkonur.
Eftir að Katrín Tanja tók erf-
iða ákvörðun árið 2012 um
að fylgja ekki Annie á nýja
CrossFit-stöð slitnaði upp úr
vináttu þeirra. Þær töluðust
ekki við um stund og viður-
kennir Katrín að hún sjái eftir
að hafa ekki farið með Annie.
Í dag eru þær bestu vinkonur,
æfingafélagar og keppinautar.
Saga Katrínar Tönju og
Annie Mist sýnir að í vináttu,
rétt eins og öðrum sambönd-
um, er hægt að ganga í gegn-
um bæði súrt og sætt. Góð og
falleg vinátta á skilið annað
tækifæri.
8. Fjölskyldan skiptir máli
Katrín Tanja er mjög náin
fjölskyldu sinni, sérstak-
lega ömmu sinni og afa. Hún
opnar sig um sáran missi
sem hafði mikil áhrif á hana.
Amma hennar lést eftir stutta
baráttu við hvítblæði. Amma
hennar var bæði besta vin-
kona hennar og hennar stærsti
aðdáandi. Sorgin var Katrínu
Tönju mikið áfall og tók það
hana langan tíma að geta rætt
um hana.
Í dag er amma hennar allt-
af með henni, áður fann hún
sterkt fyrir nærveru hennar á
áhorfendapöllunum, hvort sem
hún var þar eða ekki. Nú finn-
ur hún fyrir nærveru hennar á
keppnisvellinum. Þegar Katr-
ín Tanja vann seinni heims-
leikana var hún með hálsmen
sem minnti hana á ömmu sína.
Minningin um ömmu hennar
kom henni í gegnum erfiðustu
kaflana og var sigurinn til-
einkaður ömmu hennar.
„Ég hafði nýja og sterkari
ástæðu til að berjast: Ömmu.
Hún hafði fylgt mér í gegnum
þetta. Hún hafði hjálpað mér
að berjast til hins ýtrasta.
Sigurinn var miklu þýðingar-
meiri vegna hennar.“
Sorgir og sigrar Katrínar
Tönju sýna hvað fjölskylda
skiptir miklu máli og hvað
ástin er sterk. n