Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 25
S aman áttu hjónin risa-stóran búgarð í Put-nam-sýslu í Georgíu-
ríki í Bandaríkjunum og fínt
heimili í úthverfi borgarinnar
Atlanta. Í september árið
2016 voru hjónin að gera sér
glaðan dag, fóru í golf og vín-
smökkun. Þegar dagurinn var
að kvöldi kominn bauðst góð
vinkona Diane, Dani Jo, til
að keyra þau heim. Dani Jo
hafði ekki neytt áfengis þann
daginn, ólíkt hjónunum.
Á leiðinni heim ákvað Dani
að taka krókaleið, líklegast
vegna mikillar umferðar á
hraðbrautinni. Tex, sem hafði
á leiðinni sofnað í aftursæt-
inu, vaknaði þegar Dani ók
í gegnum hverfi sem honum
finnst ansi skuggalegt. Tex,
sem þá virtist vera áhyggju-
fullur, bað eiginkonuna sína
um að rétta sér byssuna sína
sem var geymd í plastpoka á
milli sætanna.
Sofnaði með byssuna
Tex tók við byssunni og hélt
á henni. Hann hlýtur að hafa
verið þreyttur eftir daginn
því hann sofnaði fljótlega
aftur með byssuna í kjölt-
unni. Hann vaknaði síðan við
byssuskot, skot sem hljóp úr
byssunni hans á meðan hann
svaf – eða það er allavega það
sem hann vill meina að hafi
gerst. Skotið fór nefnilega
beint í gegnum framsætið og
í bakið á eiginkonu hans.
Málið er töluvert flóknara
en það virtist vera í fyrstu.
Þegar rannsókn á málinu var
fyrst opnuð var gengið út frá
því að um slys væri að ræða,
hræðilegt slys. Tex mætti í yf-
irheyrslur hjá lögreglunni og
sagðist vera miður sín og að
hann hefði gert allt sem hann
gæti til að bjarga eiginkonu
sinni. Hann sagði til að mynda
að hann hefði hvatt Dani Jo til
að gefa í svo þau kæmust fyrr
á sjúkrahús með Diane.
Tex sagði Dani að keyra á
Emory-sjúkrahúsið. Diane
lést 63 ára að aldri, skömmu
eftir að þau mættu með hana
á bráðamóttöku sjúkrahúss-
ins.
Undarleg ákvörðun
Nokkrum dögum eftir andlát
Diane fór lögreglan að velta
því fyrir sér hversu óvart
skotinu hefði verið hleypt af.
Það vakti til dæmis athygli
lögreglunnar að Emory-
sjúkrahúsið var tiltölulega
langt í burtu frá staðnum
sem skotinu var hleypt af.
Þrjú önnur sjúkrahús voru
mun nær þeim heldur en
Emory-sjúkrahúsið. Það var
því afar undarlegt að Tex
skyldi ákveða að fara þangað
með Diane.
Fleira vakti athygli lögregl-
unnar sem rannsakaði málið.
Tex hafði sagt að skotið hefði
hlaupið af byssunni eftir að
Dani keyrði yfir hraðahindr-
un. Dani sagði hins vegar að
bíllinn hefði verið stopp á
rauðu ljósi þegar Diane fékk
skotið í bakið.
Seldi dýru fötin og
skartgripina hennar
Nokkrum vikum eftir að
Diane lét lífið komu upp-
lýsingar í ljós um eignir
Tex McIven, eða öllu heldur
skortinn á þeim. Tex skuldaði
eiginkonu sinni peninga og
það var alls ekkert klink sem
hann skuldaði.
Tex hafði fengið 350 þús-
und Bandaríkjadali lánaða
hjá Diane. Einhverjum gæti
þótt skrýtið að hjón væru að
lána hvort öðru peninga en
McIven-hjónin höfðu ákveð-
ið að sameina ekki fjármálin
sín við giftinguna. Tex fékk
lánið í lok árs 2011 og átti að
borga það með vöxtum í lok
ársins 2014. Þegar Tex náði
ekki að borga lánið til baka
lengdi Diane frestinn um
þrjú ár.
Þá tók það ekki langan tíma
fyrir Tex að selja dýru fötin
og skartgripina sem Diane
átti. Hann seldi yfir 2.000
hluti sem voru í hennar eigu,
einungis tveimur mánuðum
eftir að hún lést.
Eftir þetta var Tex ákærð-
ur fyrir að myrða Diane, ekki
af slysni heldur af ásetningi.
Saksóknararnir í málinu
vildu meina að dauði Diane
hefði verið skipulagður af
eiginmanni hennar.
SAKAMÁL „Hann sagði að ég þyrfti að passa mig“
Saksóknararnir í málinu
sýndu kviðdóminum allt
þetta við réttarhöldin og
meira til. Þeir sýndu til að
mynda fram á að Diane ætl-
aði að gefa guðsyni sínum,
hinum sjö ára gamla Austin
Schwall, búgarðinn sem þau
hjónin áttu. Því var Tex ekki
sammála.
Næsta trompið á hendi
saksóknaranna var fyrsta
vitnið, Dani Jo Carter, bíl-
stjóri hjónanna þessa örlaga-
ríku nótt. „Ég heyrði hvell og
vissi ekki hvaðan hann kom,
ég hélt að það hefði orðið
sprenging einhvers staðar,“
sagði Dani. „Ég gerði mér
ekki strax grein fyrir að um
byssuskot væri að ræða.“
Dani segist hafa haldið
fyrst að þetta væri einhvers
konar brandari. Þegar hún
sá að svo var ekki hugsaði
hún að næstu mínútur væru
gríðarlega mikilvægar, hún
yrði að drífa sig á spítalann
til að bjarga lífi vinkonu
sinnar.
Hún brunaði af stað á spít-
alann en heyrði líf vinkonu
sinnar fjara út. Tex hafði
áður sagt að hann hefði hvatt
Dani til að keyra hraðar en
annað kom í ljós í dómsaln-
um. Tex sagði henni að keyra
hægar.
„Hann sagði að ég þyrfti að
passa mig. Að það gæti verið
fólk þarna úti með barna-
vagna,“ sagði Dani. Þá sagði
hún einnig að Tex hefði hvatt
hana til að ljúga að yfirvöld-
um um aðild sína að málinu.
Hræðilegt slys eða
kaldrifjað morð?
Það tók langan tíma en kvið-
dómurinn komst loks að nið-
urstöðu um hvort um hræði-
legt slys hefði verið að ræða
eða kaldrifjað morð. Tex var
ekki dæmdur sekur um morð
að yfirlögðu ráði, hann var
hins vegar dæmdur sekur um
kaldrifjað morð af annarri
gráðu, það er að hann hefði
vísvitandi drepið eiginkonu
sína.
Tex McIver var dæmdur í
lífstíðarfangelsi en hann þarf
að sitja inni í að minnsta kosti
30 ár. Þar sem hann var á átt-
ræðisaldri þegar dómurinn
féll er afar líklegt að hann
eyði því sem eftir er af æv-
inni á bak við lás og slá. Þar
sem hann var dæmdur sekur
um morð fær hann ekki
krónu af þeim 7 milljónum
Bandaríkjadala sem Diane
átti þegar hún lést. n
Hann sagði að ég
þyrfti að passa
mig. Að það gæti
verið fólk þarna
úti með barna-
vagna.
SKELFILEGUR ENDIR Á GÓÐUM DEGI
Hjónin Tex og Diane McIver voru vel stæð, Tex var lögfræðingur og varastjórnar-
formaður á lögfræðistofu sinni en Diane var sterk og öflug viðskiptakona, þekkt
fyrir gjafmildi. Allt virtist leika í lyndi þar til góður dagur var að kvöldi kominn.
McIver-hjónin lifðu lúxuslífi en það endaði ekki vel. SKJÁSKOT/CBS NEWS
MYND/LINDA OG RANCE WINKLER
GJAFMILD
V i ð s k ip t a -
konan Diane
McIver var
þekkt fyrir
e i n s t a k a
gjafmildi.
FÓKUS 25DV 15. JANÚAR 2021
Máni Snær
Þorláksson
manisnaer@dv.is