Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 25
S aman áttu hjónin risa-stóran búgarð í Put-nam-sýslu í Georgíu- ríki í Bandaríkjunum og fínt heimili í úthverfi borgarinnar Atlanta. Í september árið 2016 voru hjónin að gera sér glaðan dag, fóru í golf og vín- smökkun. Þegar dagurinn var að kvöldi kominn bauðst góð vinkona Diane, Dani Jo, til að keyra þau heim. Dani Jo hafði ekki neytt áfengis þann daginn, ólíkt hjónunum. Á leiðinni heim ákvað Dani að taka krókaleið, líklegast vegna mikillar umferðar á hraðbrautinni. Tex, sem hafði á leiðinni sofnað í aftursæt- inu, vaknaði þegar Dani ók í gegnum hverfi sem honum finnst ansi skuggalegt. Tex, sem þá virtist vera áhyggju- fullur, bað eiginkonuna sína um að rétta sér byssuna sína sem var geymd í plastpoka á milli sætanna. Sofnaði með byssuna Tex tók við byssunni og hélt á henni. Hann hlýtur að hafa verið þreyttur eftir daginn því hann sofnaði fljótlega aftur með byssuna í kjölt- unni. Hann vaknaði síðan við byssuskot, skot sem hljóp úr byssunni hans á meðan hann svaf – eða það er allavega það sem hann vill meina að hafi gerst. Skotið fór nefnilega beint í gegnum framsætið og í bakið á eiginkonu hans. Málið er töluvert flóknara en það virtist vera í fyrstu. Þegar rannsókn á málinu var fyrst opnuð var gengið út frá því að um slys væri að ræða, hræðilegt slys. Tex mætti í yf- irheyrslur hjá lögreglunni og sagðist vera miður sín og að hann hefði gert allt sem hann gæti til að bjarga eiginkonu sinni. Hann sagði til að mynda að hann hefði hvatt Dani Jo til að gefa í svo þau kæmust fyrr á sjúkrahús með Diane. Tex sagði Dani að keyra á Emory-sjúkrahúsið. Diane lést 63 ára að aldri, skömmu eftir að þau mættu með hana á bráðamóttöku sjúkrahúss- ins. Undarleg ákvörðun Nokkrum dögum eftir andlát Diane fór lögreglan að velta því fyrir sér hversu óvart skotinu hefði verið hleypt af. Það vakti til dæmis athygli lögreglunnar að Emory- sjúkrahúsið var tiltölulega langt í burtu frá staðnum sem skotinu var hleypt af. Þrjú önnur sjúkrahús voru mun nær þeim heldur en Emory-sjúkrahúsið. Það var því afar undarlegt að Tex skyldi ákveða að fara þangað með Diane. Fleira vakti athygli lögregl- unnar sem rannsakaði málið. Tex hafði sagt að skotið hefði hlaupið af byssunni eftir að Dani keyrði yfir hraðahindr- un. Dani sagði hins vegar að bíllinn hefði verið stopp á rauðu ljósi þegar Diane fékk skotið í bakið. Seldi dýru fötin og skartgripina hennar Nokkrum vikum eftir að Diane lét lífið komu upp- lýsingar í ljós um eignir Tex McIven, eða öllu heldur skortinn á þeim. Tex skuldaði eiginkonu sinni peninga og það var alls ekkert klink sem hann skuldaði. Tex hafði fengið 350 þús- und Bandaríkjadali lánaða hjá Diane. Einhverjum gæti þótt skrýtið að hjón væru að lána hvort öðru peninga en McIven-hjónin höfðu ákveð- ið að sameina ekki fjármálin sín við giftinguna. Tex fékk lánið í lok árs 2011 og átti að borga það með vöxtum í lok ársins 2014. Þegar Tex náði ekki að borga lánið til baka lengdi Diane frestinn um þrjú ár. Þá tók það ekki langan tíma fyrir Tex að selja dýru fötin og skartgripina sem Diane átti. Hann seldi yfir 2.000 hluti sem voru í hennar eigu, einungis tveimur mánuðum eftir að hún lést. Eftir þetta var Tex ákærð- ur fyrir að myrða Diane, ekki af slysni heldur af ásetningi. Saksóknararnir í málinu vildu meina að dauði Diane hefði verið skipulagður af eiginmanni hennar. SAKAMÁL „Hann sagði að ég þyrfti að passa mig“ Saksóknararnir í málinu sýndu kviðdóminum allt þetta við réttarhöldin og meira til. Þeir sýndu til að mynda fram á að Diane ætl- aði að gefa guðsyni sínum, hinum sjö ára gamla Austin Schwall, búgarðinn sem þau hjónin áttu. Því var Tex ekki sammála. Næsta trompið á hendi saksóknaranna var fyrsta vitnið, Dani Jo Carter, bíl- stjóri hjónanna þessa örlaga- ríku nótt. „Ég heyrði hvell og vissi ekki hvaðan hann kom, ég hélt að það hefði orðið sprenging einhvers staðar,“ sagði Dani. „Ég gerði mér ekki strax grein fyrir að um byssuskot væri að ræða.“ Dani segist hafa haldið fyrst að þetta væri einhvers konar brandari. Þegar hún sá að svo var ekki hugsaði hún að næstu mínútur væru gríðarlega mikilvægar, hún yrði að drífa sig á spítalann til að bjarga lífi vinkonu sinnar. Hún brunaði af stað á spít- alann en heyrði líf vinkonu sinnar fjara út. Tex hafði áður sagt að hann hefði hvatt Dani til að keyra hraðar en annað kom í ljós í dómsaln- um. Tex sagði henni að keyra hægar. „Hann sagði að ég þyrfti að passa mig. Að það gæti verið fólk þarna úti með barna- vagna,“ sagði Dani. Þá sagði hún einnig að Tex hefði hvatt hana til að ljúga að yfirvöld- um um aðild sína að málinu. Hræðilegt slys eða kaldrifjað morð? Það tók langan tíma en kvið- dómurinn komst loks að nið- urstöðu um hvort um hræði- legt slys hefði verið að ræða eða kaldrifjað morð. Tex var ekki dæmdur sekur um morð að yfirlögðu ráði, hann var hins vegar dæmdur sekur um kaldrifjað morð af annarri gráðu, það er að hann hefði vísvitandi drepið eiginkonu sína. Tex McIver var dæmdur í lífstíðarfangelsi en hann þarf að sitja inni í að minnsta kosti 30 ár. Þar sem hann var á átt- ræðisaldri þegar dómurinn féll er afar líklegt að hann eyði því sem eftir er af æv- inni á bak við lás og slá. Þar sem hann var dæmdur sekur um morð fær hann ekki krónu af þeim 7 milljónum Bandaríkjadala sem Diane átti þegar hún lést. n Hann sagði að ég þyrfti að passa mig. Að það gæti verið fólk þarna úti með barna- vagna. SKELFILEGUR ENDIR Á GÓÐUM DEGI Hjónin Tex og Diane McIver voru vel stæð, Tex var lögfræðingur og varastjórnar- formaður á lögfræðistofu sinni en Diane var sterk og öflug viðskiptakona, þekkt fyrir gjafmildi. Allt virtist leika í lyndi þar til góður dagur var að kvöldi kominn. McIver-hjónin lifðu lúxuslífi en það endaði ekki vel. SKJÁSKOT/CBS NEWS MYND/LINDA OG RANCE WINKLER GJAFMILD V i ð s k ip t a - konan Diane McIver var þekkt fyrir e i n s t a k a gjafmildi. FÓKUS 25DV 15. JANÚAR 2021 Máni Snær Þorláksson manisnaer@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.