Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 37
Djúsí vegan chilli
Gott er að bjóða upp á sem með-
læti tortillasnakk, sýrðan rjóma og
rifinn ost en það er hægt að á allt
slíkt í vegan útgáfu.
2 msk. ólífuolía
1 stk. rauðlaukur, fínt saxaður
2 stk. meðalstórar gulrætur, sax-
aðar
2 stk. sellerístönglar, saxaðir
½ tsk. salt
4 stk. hvítlauksrif, pressuð
2 msk. chillikrydd
2 tsk. kúminkrydd
1½ tsk. paprikukrydd
1 tsk. þurrkað oregano
2 dósir niðursoðnir tómatar í bitum
1 dós pintobaunir
2 dósir svartar baunir
1 dós gular baunir, eða frosnar
1 stk. grænmetisteningur
1 stk. lárviðarlauf
Byrjið á að steikja rauðlaukinn, gul-
rætur, sellerí og saltið upp úr olíu
á pönnu.
Bætið hvítlauknum og öllum krydd-
unum saman við og hrærið vel
saman í um 1 mínútu.
Leysið grænmetisteninginn upp í 1
dl af vatni. Skolið og sigtið vatn frá
baununum.
Setjið tómatana, sigtuðu baunirnar,
uppleystan grænmetisteninginn og
lárviðarlaufið í pott.
Leyfið að hitna aðeins og hrærið vel
saman.
Blandið hráefnunum sem eru á
pönnunni út í pottinn og leyfið að
sjóða í um 35 mínútur við meðal
hita, gott að hræra í af og til.
Fjarlægið lárviðarlaufið.
Takið um 1/3 af chilliblöndunni og
setjið í matvinnsluvél og bætið aftur
saman við.
Berið fram og njótið vel.
Una í eldhúsinu
Hollustunammi
Bragðgóðir hnetuklattar sem gott
er að geyma í frysti og geta alltaf
boðið upp á með kaffinu eða bara
laumast í þegar sykurlöngunin er
að fara með mann.
1 msk. kókosolía
2 msk. fínt hnetusmjör
50 g brasilíuhnetur
50 g valhnetur
50 g pistasíuhnetur
50 g makademíanhnetur
50 g pekanhnetur
2 msk. hafrar, grófir
100 g 70% appelsínusúkkulaði
Smá kókosflögur
Hitið saman í potti kókosolíu og
hnetusmjör.
Setjið hneturnar í poka eða ílát og
brjótið aðeins niður (best að hafa
þær frekar grófar samt).
Setjið hneturnar í pottinn og bland-
ið saman við hnetusmjörið.
Setjið súkkulaðið saman við
blönduna og hrærið vel í þar til
súkkulaðið er vel bráðið saman
við hneturnar.
Leyfið blöndunni aðeins að standa,
eða í um 20 mínútur, hún þykknar
aðeins við það.
Setjið á bökunarpappír 1½ te-
skeið og myndið klatta, setjið smá
kókos flögur yfir og svo inn í frysti í
nokkrar klukkustundir.
Verði ykkur að góðu.
Una Guðmunds er eins og flestir
að hreinsa til í mataræðinu eftir
að hafa gert vel við sig um há-
tíðirnar. Hún mælir með þessu
ilmandi góða vegan chilli sem
gefur kjötætum allar ástæður
til að taka þátt í Veganúar – í
eftirrétt eru svo súkkulaði- og
hnetuklattar sem slá í gegn.
MYNDIR/AÐSENDAR
MATUR 37DV 15. JANÚAR 2021