Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 8
SVINDLSÍÐA RÆNIR
ÍSLENSKA FORELDRA
Sniðug barnamálning er auglýst grimmt á sam-
félagsmiðlum. Íslendingar hafa pantað málning-
una en rúmum tveimur mánuðum síðar bólar enn
ekkert á sendingunni. Formaður Neytendasam-
takanna segir slík svik algengari en fólk grunar.
S vindlarar hafa frá örófi alda grætt á trúgirni og grandaleysi fólks. Með
tilkomu tækninnar hafa um-
svif og klókindi svindlara
aukist og fer svindlið nú að
miklu leyti fram á netinu
þegar götur og símar dugðu
áður fyrr.
Nýjasta dæmið um svindl-
ara hér á landi er í formi
Face book-síðu. Um er að
ræða Facebook-síðuna Kido-
Paints Island en síðan hefur
verið auglýst grimmt á sam-
félagsmiðlinum. KidoPaints
selur, eins og nafnið gefur til
kynna, málningu sem höfðar
til barna og virðist við fyrstu
sýn vera mjög sniðug.
„Krakkar eru
brjálaðir í þetta“
Í litríku og skemmtilegu
myndbandi eru eins konar
vat n sm á l n i nga r p e n n a r
kynntir til sögunnar. „Krakk-
ar eru brjálaðir í þetta,“ segir
í upphafi myndbandsins sem
sýnir hvernig pennarnir
virka. Pennarnir eru fylltir
með vatni og málningu og svo
geta börnin málað með þeim.
„Málaðu án óreiðu,“ segir
í myndbandinu sem hefur
heillað marga.
Það virðist þó vera sem
vatnslitirnir sjálfir hafi ekki
heillað marga hér á landi
ef marka má athugasemdir
undir myndbandinu. Fólk sem
hefur pantað litina í gegnum
síðuna hefur nefnilega ekki
fengið þá afhenta, jafnvel þó
litirnir hafi verið pantaðir
fyrir tveimur mánuðum. Ein
kona vekur athygli á því í at-
hugasemd undir myndband-
inu að það sé einhvers konar
svindl á ferðinni. „Myndi alls
ekki panta frá þessu fyrir-
tæki,“ segir konan í athuga-
semdinni en nokkrir aðilar
virðast hafa pantað litina fyr-
ir jól og hugsað þá sem gjafir.
9.000 krónur fyrir ekkert
DV hafði samband við kon-
una sem pantaði litina fyrir
tveimur mánuðum. Konan
segir í samtali við blaðamann
að hún hafi greitt rúmar
9.000 krónur fyrir litina en
hún keypti þrjú box. Hún fékk
tölvupóst frá fyrirtækinu sem
staðfesti pöntunina og sagði
að vörurnar væru á leiðinni.
Þá fylgdi með hlekkur til að
skoða stöðuna á pöntuninni.
Þegar konan reyndi að opna
hlekkinn komu þó engar upp-
lýsingar um stöðuna, heldur
einungis villuskilaboð. „Síðan
sem þú ert að leita að er ekki
til,“ stóð á skjánum þegar hún
opnaði hlekkinn.
„Ef það er hægt að sanna
það að þetta sé eitthvert plat
væri gott að fá að vita hvort
maður eigi rétt á endur-
greiðslu. Það eru örugglega
margir sem láta plata sig
enda sannfærandi auglýs-
ing,“ segir konan en fleiri ís-
lenskir viðskiptavinir virðast
hafa sömu sögu að segja ef
marka má ummæli við aug-
SKJÁSKOT/FACEBOOK
SKJÁSKOT/KIDOPAINTS-IS.COM
SKJÁSKOT/KIDOPAINTS-IS.COM
Máni Snær
Þorláksson
manisnaer@dv.is
lýsingu frá fyrirtækinu á
Face book.
Ótrúlega algengt
„Við höfum ekki fengið þetta
til okkar, ég kannast ekki við
þetta,“ segir Breki Karlsson,
formaður Neytendasamtak-
anna. Breki segir að Neyt-
endasamtökin fái öðru hverju
ábendingar um svindl á Face-
book-síðum.
Þegar svona mál eru til-
kynnt til samtakanna eru
neytendur hvattir til að hafa
samband við lögregluna. „Við
náttúrulega bara hvetjum fólk
til að kæra svona til lögreglu,
þetta er lögreglumál. Við
hvetjum líka fólk til þess að
fara varlega, við vitum af alls
konar svona svindli sem er í
gangi þó svo það komi ekki oft
á okkar borð,“ segir Breki.
„Það eru ofboðslega trú-
verðug svindl þarna úti. Við
hvetjum fólk til að skoða síður
sem kanna trúverðugleika
hjá öðrum síðum. Endilega að
kynna sér það og sér í lagi ef
maður sér ýmis merki, eins og
nýjar vefsíður sem hafa ekki
fengið mörg meðmæli. Fólk
þarf að fara varlega og vera
alveg visst um að svona síður
séu sannar og réttar áður
en það verslar. Því miður er
þetta ótrúlega algengt.“
KidoPaints ekki
traustvekjandi
Eins og Breki bendir á er
hægt að kanna það hvort
vefsíðum sé treystandi áður
en verslað er við þær. Til að
mynda er hægt að nota vef-
síður á borð við Scamadviser.
com og Trustpilot.com til
að kanna hvort vefsíðum sé
treystandi. Vert er að benda
á að ef KidoPaints er skoðað
á Scamadviser.com má sjá að
síðan er ekki áreiðanleg. Síðan
fær einungis 36% í einkunn
auk þess sem hún er sögð vera
grunsamleg.
Ef skoðaðar eru síður sem
Íslendingar nota mikið þegar
þeir versla á netinu má sjá
mun hærri einkunnir en Kido-
Paints fær. Til dæmis fær
breska fataverslunin asos.com
100% í einkunn á Scamadvi-
ser. Þá fá íslenskar netversl-
anir á borð við Heimkaup og
Aha einnig 100% í einkunn á
síðunni. n
Það eru
örugglega
margir sem
láta plata sig
enda sann-
færandi aug-
lýsing.
SNIÐUG
M á l n i n g i n
virðist ákaf-
lega sniðug
og losa for-
e l d r a v i ð
sóðaskapinn
sem fylgir oft
mál n i ngar-
gleði ungra
barna.
VIRÐIST ÍSLENSK
Síðan virðist vera íslensk við
fyrstu sýn – en aðeins erlendar
umsagnir birtast.
STAFSETNINGARVILLUR
Stafsetningarvillur á vefsíðum
geta verið vísbending um að síðan
sé svindlsíða.
8 FRÉTTIR 15. JANÚAR 2021 DV