Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Blaðsíða 36
Matseðill Röggu Nagla Morgunmatur Hafragrauturinn minn góði með heitum kanileplum, löðrandi hnetusmjöri og horuðu súkku- laðisósunni minni sem er orðin heimsfræg. Prótíngjafinn er yfir- leitt egg, annað hvort harðsoðin eða sem ommiletta. Hádegismatur Yfirleit t afgangar frá kvöldinu áður sem ég borða á stofunni minni milli skjólstæðinga. Millimál Ég er algjör sökker fyrir Nicks sykurlausu stykkjunum. Hnetu- gaurinn og karamellustykkið eru algjörlega mín uppáhalds. Svo eru Tom Oliver stykkin úr Vegan- búðinni guðsgjöf til mannkyns, sérstaklega hituð í örbylgjuofni í 20 sekúndur og ég maula þetta yfirleitt fyrir framan tölvuna milli skjólstæðinga. Enda er lykla- borðið hjá mér örugglega með fleiri sýkla en peningaseðill. Kvöldmatur Ég fylgi sömu prinsippum í prótíni, kolvetnum og fitu og vel það sem ég er í stuði fyrir þann daginn. Kjúklingur, kalkúnn, lax, nautakjöt, svínakjöt, innmatur eins og svínahjörtu eða kálfa- lifur. Kolvetnagjafarnir sem ég elska eru: Kartöflur, sætar kartöflur, hýðisgrjón, kínóa, kúskús. F i tugjafarnir eru vanalega humm us, avókadó, fetaostur, eða fræ út á salat. Haugur af salati og alls konar grænmeti. Uppá- halds er sinnepshjúpað blómkál eða grillað brokkólí. Þristamús – sykurlaus og hollustuvædd 2 þroskuð avókadó 100 ml ósætt möndlumjólk (til dæmis Isola) 2 stk. Good Good Keto Krunch með lakkrísbragði 2 msk. hrákakó frá Now 100 ml Good Good sykurlaust síróp Skerið lakkrísstykkið í 3-4 bita og hitið í örbylgjuofni í um það bil 30 sekúndur. Skúbbið avókadói í skál ásamt öllu stöffinu og hrærið saman með töfra- sprota eða í blandara/matvinnsluvél. Kælið í 4-5 klst. og toppið með meira af niðurskornu lakkrísstykki. Algjört dúndur með sprauturjóma, minn uppáhalds er Aito hafrarjómi með nokkrum stevíudropum skellt í rjómasprautu. 36 MATUR 15. JANÚAR 2021 DV Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Ég borða mat sem ég elska og mat sem elskar mig Ragga Nagli er þekkt fyrir að tala um heilsu á mannamáli. Hún byrjar daginn á æfingu klukkan sex og starfar sem sálfræðingur. Hvað ætli hún borði á venjulegum degi? R agnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, er klínískur heilsusálfræðingur, pistla- höfundur, einkaþjálfari og þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Heilsuvarp. Hún æfir Cross- Fit, þungar lyftingar, hlaup, spretti og sund. Ragnhildur er virk á samfélagsmiðlum og skrifar gjarnan um heilsu á mannamáli. Ragnhildur er búsett í Kaupmannahöfn en fyrir tíma COVID var hún dugleg að koma til Íslands og halda fyrirlestra um heilsu. Venjulegur dagur hjá Ragn- hildi byrjar um klukkan 5.30- 6.00 og þá tekur hún æfingu. „Ræktin er lokuð núna hér í Danmörku vegna COVID svo æfingar eru teknar í geymsl- unni en ég keypti svo mikinn tækjabúnað í lokuninni í vor að ég gæti næstum opnað eig- in líkamsræktarstöð,“ segir hún. „Eftir æfingu kemur hamingjuaugnablikið mitt í grautnum mínum og ég gef mér alltaf góðan tíma til að njóta og koma líkamanum úr streitunni frá æfingunni yfir í rólegt ástand. Svo dúndra ég farða í smettið og hendi mér í fagmannlegar spjarir og hjóla eða geng í vinnuna.“ Ragnhildur er sálfræðingur með eigin stofu í Kaupmanna- höfn og það hefur aldrei verið eins mikið að gera hjá henni og í COVID. „Ég er gjörsam- lega yfirbókuð af skjólstæð- ingum, bæði á stofunni og á netinu,“ segir hún. Mataræði sem hentar henni Ragnhildur fer ekki eftir ein- hverju ákveðnu mataræði. „Ég fylgi mínu mataræði sem hentar mér og mínum líkama og minni æfingarútínu. Ég borða mat sem ég elska og mat sem elskar mig. Ég passa að gefa mér alltaf tíma við meginmáltíðirnar og borða hægt og rólega, er í mikilli ró og næði,“ segir hún. „Ég reyni að hafa máltíð- irnar vel samsettar af prót- íni, kolvetnum og fitu til að fá örugglega öll næringarefni og hef mataræðið fjölbreytt og skemmtilegt. Ég er rosa lítið fyrir boð og bönn. Eini matur- inn sem ég borða ekki er það sem mér finnst horbjóður á bragðið, eins og kóríander sem er arfi Satans. Ég er allt of mikil kjötæta og finnst ekki vera máltíð nema dauð skepna prýði diskinn en mig langar samt mikið að draga úr þeirri neyslu en hef ekki stigið skrefið ennþá. En vegan lífs- stíllinn og hugmyndafræðin heillar mig mjög mikið. Ég er eiginlega „wannabe“ vegan.“ Hvar er gott að byrja? Aðspurð hvort hún hafi ein- hver ráð fyrir þau sem hafa sett sér markmið um heil- brigðara líferni árið 2021 segir Ragnhildur að sé gott að byrja mjög smátt. „Byrja á eins litlum og yfirstígan- legum venjum og þau geta. Því þú verður að upplifa sigra og styrkja sjálfstraustið í verk- efninu til að fá hvatann til að halda áfram. Það er mun meira valdeflandi að styrkja venjuna í sessi með því að fara í tíu mínútur í ræktina tvisvar í viku og bæta við tímann og dagana heldur en að setja sér óraunhæf markmið um að fara í sextíu mínútur fimm sinnum í viku ef þú hefur hreyft þig núll sinnum í marga mánuði,“ segir hún. Góður kokkur og dúndur grillari Ragnhildur er mikið í eldhús- inu og lýsir sér sem „matar- perra par excellence“. Þeim hjónunum þykir gaman að bjóða fólki í mat og kveðst Ragnhildur vera ótrúlega góð- ur kokkur og dúndur grillari. „En maðurinn minn er mörg- um klössum fyrir ofan mig enda er pabbi hans kokkur svo hann er með þetta í erfða- menginu. Hann hefur kennt mér nánast allt í eldamennsk- unni og ég er smám saman að taka fram úr honum finnst mér. Ég er allavega rosa flink að gera grænmeti að algjöru gourmet-meðlæti. Ég nenni ekki soðnu blómkáli eins og ég var látin borða í gamla daga. Það er hægt að leika sér svo endalaust í þeirri deild,“ segir hún. n Ragnhildur nýtur þess að dúlla sér í eldhúsinu og borða góðan mat. MYND/HELGI ÓMARSSON MYND/AÐSEN D

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.