Morgunblaðið - 20.06.2020, Side 8

Morgunblaðið - 20.06.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020 Þorsteinn V. Einarsson, vara-þingmaður VG, skrifaði pistil á Facebook í gær þar sem hann sagði meðal annars: „Í dag fékk ég styrk til að sinna aktívisma á þessum samfélagsmiðli, standa fyrir stærri herferð ásamt fræðslukvöldum um karlmennskur og gefa út ítarlegar hljóðvarpsútgáfur af karlmennsku- þáttunum sem ég er að vinna að með Stundinni.“    Síðar í pistlinumsagði varaþing- maðurinn: „Næstu mánuði mun ég halda áfram að af- byggja íhaldssamar karlmennsku- hugmyndir, varpa ljósi á tengsl þeirra við rasisma, ofbeldi, for- dóma og mismunun og benda á gagnlegri og jákvæðar karl- mennskur.“    Það hefur tekið mörg ár að ræðastyrki til fjölmiðla og niður- staða í því liggur ekki enn fyrir. Meðal annars í því samhengi vekur athygli að varaþingmaður VG skuli nú hafa fengið einn hæsta styrkinn úr Jafnréttissjóði til að skrifa pistla og vinna annað efni fyrir Stundina.    Sennilega þykir einhverjumskrýtið að það skuli vilja svo til að Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, hafi úthlutað varaþingmann- inum og Stundinni þessum gæðum.    Einhverjum gæti dottið í hug aðþetta kynni jafnvel að vera óviðeigandi af ýmsum ástæðum, en sennilega verða ekki margir til að hafa orð á því, enda vitað að slíkt myndi kalla flóðbylgju fúkyrða frá „aktívistum“, jafnvel ríkisstyrkt- um, yfir viðkomandi. Aktívisti VG fær framlag af skattfé STAKSTEINAR Katrín Jakobsdóttir Þorsteinn V. Einarsson Loftrýmisgæsla ítalska flughersins fyrir Atlantshafsbandalagið (NATO) er hafin hér á landi. Flugsveitin kom hingað til lands 9. júní síðastliðinn með sex orrustuþotur af gerðinni F-35 og er gert ráð fyrir að hún verði hér við eftirlit í alls sex vikur. Liðsmönnum flughersins var gert að sæta 14 daga sóttkví, læknisskoð- un og skimun á herstöð áður en hing- að var komið. Þá fóru þeir aftur í 14 daga sóttkví á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli til að tryggja að hópurinn sé laus við kórónuveiru. Framkvæmd verkefnisins er með sama hætti og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisáætlun NATO fyrir Ísland. Alls taka um 135 liðsmenn flughersins þátt auk starfsmanna frá stjórnstöð NATO í Þýskalandi. Ítalskar þotur vakta nú lofthelgina  Liðsmenn sveitarinnar fóru tvisvar í sóttkví og í læknisskoðun Ljósmynd/Ítalski flugherinn Styrkur Tvær ítalskar F-35 sjást hér á öryggissvæði NATO í Keflavík. Spurn eftir störfum í sumar sem sköpuð voru fyrir námsmenn til að bregðast við því ástandi sem skap- aðist á vinnumarkaði vegna heims- faraldurs kórónuveirunnar hefur verið töluvert minni en vísbendingar voru um að yrði. „Nú þegar myndin er að skýrast er það mikið gleðiefni að tekist hefur að skapa það mörg störf að þau ganga ekki út. Við fór- um af stað með 3.400 ný sumarstörf fyrir námsmenn í fyrstu lotu og vor- um tilbúin að bæta enn frekar í ef aðstæður kölluðu á það. Við sjáum hins vegar að eftirspurn námsmanna í þessi störf er minni en gert var ráð fyrir, og því er ekki þörf á að skapa fleiri tímabundin störf í sumar,“ seg- ir Ásmundur Einar Daðason félags- málaráðherra. Isabel Alejanda Díaz, forseti Stúdentaráðs Háskóla Ís- lands, telur þó að umframsumar- störfin skýrist ekki af því að atvinnu- leysi stúdenta sé minna en áætlað var. „Við teljum að ástæðan fyrir því að ekki hefur tekist að manna þessi störf sé í rauninni sú að þessi störf voru gerð fyrir ákveðna hópa. Það eru kröfur sem ekki allir geta upp- fyllt, það tikka ekki allir í þessi box. Það er ekki þannig að okkar mati að það vanti fólk í störfin heldur vantar frekar störf sem miða að fleirum,“ segir Isabel. „Við vitum að það eru enn aðilar að leita sér að störfum og þessi störf sem um ræðir miða að frekar takmörkuðum hópum. Það er ekki þar með sagt að það þurfi að skapa fleiri störf en það þarf kannski aðlaga þessi störf sem þegar hafa verið búin til að fleira fólki.“ Alls höfðu sveitarfélög heimild til að ráða í 1.700 störf í sumar, en ekki hefur tekist að ljúka ráðningu nema í tæp- lega 1.450. Hjá stofnunum ríkisins voru 1.510 námsmenn sem sóttu um þau 1.500 störf sem voru í boði. Munu ekki skapa fleiri sumarstörf  Ná ekki að manna öll störf sem sköpuð voru fyrir námsmenn Morgunblaðið/Ómar Háskóli Íslands Stjórnvöld buðu upp á 3.400 störf fyrir námsmenn. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum o e s i e m .is Ný áætlun Uppbyggingarsjóðs EES um endurnýjanlega orku, umhverfis- og loftslagsmál í Póllandi Kynningar- og samstarfsfundur á vefnum 25. júní kl. 8:30–11:00 milli fyrirtækja frá Póllandi, Íslandi og Noregi Fjallað verður um: • Bætta orkunýtni í skólabyggingum • Bætta orkunýtni í framleiðslu raforku og hita (cogeneration) • Uppbyggingu og endurnýjun hitaveitukerfa sveitarfélaga með endurnýjanlegri orku • Aukna nýtingu á jarðhita • Aukna skilvirkni orkuvinnslu í litlum vatnsaflsvirkjunum Mikil tækifæri geta verið fyrir fyrirtæki frá Íslandi í þessu samstarfi Fyrirtæki þurfa að skrá sig, sjá nánar á os.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.