Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 10
Það teygðist á umræðum á Alþingi í fyrradag og í
fyrrinótt um þegar samgönguáætlanir til fimm ára
og til ársins 2034 voru teknar til síðari umræðu.
Stóð umræðan yfir frá klukkan 15 á fimmtudag
og lauk ekki fyrr en tólf tímum síða upp úr klukkan
þrjú í fyrrinótt.
Þingmenn Miðflokksins tóku mikinn þátt í um-
ræðunum og voru einir samfleytt í pontu frá því um
kvöldið og í sex klukkustundir fram eftir nóttu eða
þar til Steingrímur J. Sigfússon þingforseti sleit
þingfundi kl. 03:16.
„Forseti hvetur því háttvirta þingmenn til að hug-
leiða hvort þeir geti nú ekki þjappað sínum sjón-
armiðum þannig saman að þegar þessari umræðu
heldur fram á næsta fundi, þá taki það ekki langan
tíma,“ sagði Steingrímur áður en hann sleit fundi.
Þingmenn Miðflokksins hafa lýst sig andsnúna
samgönguáætluninni sem er gerð til fimm ára.
Kváðust þeir flestir hverjir mótfallnir þeirri upp-
byggingu sem fram á að fara á almennings-
samgöngum en Ólafur Ísleifsson, þingmaður Mið-
flokksins, sagði það hafa verið fyrir „níu árum og
níu milljörðum síðan“ að ráðist var í slíka uppbygg-
ingu sem hefði litlu skilað.
Tólf tímar fóru í að ræða um samgöngumál
MIÐFLOKKSÞINGMENN SAMFLEYTT Í PONTU Í 6 KLST. VIÐ UMRÆÐUR UM SAMGÖNGUÁÆTLUN
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Lagfæringar á Biskupsbeygju syðst
á Holtavörðuheiði, gerð hringtorga
við Landvegamót, á Eyrarbakka-
vegi og á Flúðum og breikkun sex
einbreiðra brúa, svo sem yfir Skjálf-
andafljót við Fosshól og Núpsvötn.
Þetta eru meðal verkefna sem
meirihluti umhverfis- og samgöngu-
nefndar Alþingis leggur til að verði
flýtt og hafist handa um þegar í ár
undir merkjum fjárfestingarátaks-
ins 2020 sem ríkisstjórnin kynnti í
vor. Alls eru til skiptanna 18 millj-
arðar króna og þar af eru vega-
málum eyrnamerktir 6,5 milljarðar
til framkvæmda í ár.
Önnur verkefni sem lagt er til,
samkvæmt þingsályktunartillögu,
að komist til framkvæmda eru m.a.
breikkun brúa yfir Botnsá í Tálkna-
firði, Bjarnadalsá í Önundarfirði og
Gilsá í Skriðdal. Sömuleiðis er gerð
tillaga um að bæta Þverárfellsveg til
Skagastrandar við Laxá í Refasveit.
Einnig á að verja auknum fjár-
munum í ýmis vöktunarverkefni til
að bæta viðbrögð við óveðri og ann-
arri náttúruvá. Sömuleiðis verður
einum milljarði króna varið til tengi-
vega í dreifbýlinu, vega milli bæja
og hverfa í sveitum víða um landið.
Svigrúm gefst
Vilhjálmur Árnason þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á sæti í um-
hverfis- og samgöngunefnd og er
framsögumaður meirihlutans um
samgönguáætlun. „Gildandi sam-
gönguáætlun er í endurskoðun um
þessar mundir og væntanlega gefst
svigrúm til að flýta ýmsum fram-
kvæmdum í krafti átaksverkefna
sem ríkisstjórnin efnir til. Undir
þeim formerkjum er í dag verið að
endurbæta helstu stofnvegi út frá
höfuðborgarsvæðinu og halda verð-
ur áfram á þeirri braut,“ segir Vil-
hjálmur.
Rætt hefur verið um frekara fjár-
festingarátak á árunum 2021-2023
fyrir allt að 60 milljarða króna. Vil-
hjálmur segir það hugsanlega verða
kynnt í haust í tengslum við ríkis-
fjármálaáætlun. Þá komi til greina
ýmis verkefni í vegagerð sem hafi
verið undirbúin og hægt sé að
hrinda í framkvæmd næsta fyr-
irvaralítið. Í þessu sambandi – og
litið til lengri tíma – megi nefna
breikkun Reykjanesbrautar við
Fitjar í Njarðvík og endurbætur á
hringveginum innanbæjar á Ak-
ureyri við Glerá. Gerð nýs vegar yf-
ir Veiðileysuháls á Ströndum, end-
urbætur á Vatnsnesvegi í
Húnaþingi vestra og byggingu nýrr-
ar brúar yfir Jökulsá á Fjöllum, svo
eitthvað sé tiltekið.
Skattlagning bíla
verði sjálfbær
Margt er undir í heildarendur-
skoðun á framtíðarfjármögnun
vegakerfisins sem nú er unnið að.
Verkefnisstjórn um skattlagningu á
notkun ökutækja var skipuð af fjár-
málaráðherra síðasta haust og falið
að koma fram með tillögur að fram-
tíðarstefnu um sjálfbæra skattlagn-
ingu bíla og tæknilega útfærslu
slíkrar skattlagningar. Að mati
nefndarinnar er ljóst að nýtt fyr-
irkomulag við framtíðarfjármögnun
verður vart tekið upp fyrr en árið
2022 eða 2023 og þá að því gefnu að
tillögur um breytt fyrirkomulag
liggi fyrir að minnsta kosti ári fyrr.
Þá er stefnt að notendagjöldum í
jarðgöngum samkvæmt endurskoð-
aðri samgönguáætlun en frekari út-
færsla gjalda mun koma fram við
heildarendurskoðun á framtíð-
arfjármögnun vegakerfisins.
Í áformum um fjárfestingarátak
til uppbyggingar innviða á allra
næstu árum er margt undir. Vil-
hjálmur segir mikilvægt að verk-
efnum sem ýtt verður úr vör í ár
verði fylgt eftir. Leiðarvísir þar
verði skýrsla hóps sem greindi þörf
á úrbótum í innviðum í kjölfar fár-
viðrisins í desember á síðasta ári,
sem sýndi þörf á framkvæmdum í
vegamálum, við flugvelli, flug-
stöðvar og flughlöð, hafnir, sjó-
varnir, fjarskipti og svo mætti
áfram telja.
Mörgum verkefnum verði flýtt
Samgönguáætlun rædd á Alþingi Fjárfestingarátak og vegagerð Innviðir í uppbyggingu
Úrbætur á Veiðileysuhálsi og Vatnsnesi færast framar sem og smíði nýrrar brúar á Fjöllum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vegir Breikkun brúar yfir Núpsvötn hefur verið sett í forgang, enda þykir hún vera slysagildra, sbr. þegar þrír lét-
ust þar seint á árinu 2018 þegar jeppi fór út af. Endurbætur á fleiri einbreiðum brúm þykja nauðsynlegar og þarfar.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín-
um í gær tillögu forsætisráðherra
um áframhaldandi samstarf ríkisins
og Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar um kaup á þremur nýjum
björgunarskipum. Tillagan gerir ráð
fyrir 150 milljóna króna árlegri fjár-
veitingu úr ríkissjóði í þrjú ár, eða
alls 450 milljónir króna, með fyr-
irvara um breytingar og samþykki
Alþingis. Samhliða verði gert sam-
komulag við Slysavarnafélagið
Landsbjörg um fjármögnun og við-
hald björgunarskipanna til lengri
tíma.
Tillögurnar byggja á vinnu starfs-
hóps sem skipaður var í kjölfar þess
að Alþingi samþykkti á 149. löggjaf-
arþingi að vísa tillögu um eflingu
björgunarskipaflota Landsbjargar
til ríkisstjórnar.
Núverandi floti orðinn gamall
Í greinargerð með tillögunum
kemur m.a. fram að björgunarskip
Landsbjargar séu nú 13 talsins,
staðsett víðs vegar um landið. Eru
þau komin til ára sinna en meðalald-
urinn er 34 ár. Elsta skipið hafði ver-
ið tekið úr notkun en var virkjað
tímabundið í kjölfar snjóflóðanna á
Flateyri. Skipið var nýlega selt en
það var orðið 43 ára gamalt.
Jafnframt kemur fram í grein-
argerðinni að ríkið hafi gert samn-
inga við Landsbjörg á grunni skil-
greindra verkefna. Samkvæmt
fjárlögum fyrir þetta ár fær Lands-
björg 233 milljónir á grundvelli fjög-
urra samninga. Meginsamningurinn
snýr að almannavörnum á hættu- og
neyðartímum, skipulagningu og
samhæfingu varðandi leit og björg-
un, fræðslu björgunarsveita og
rekstur björgunarskipa.
450 milljónir króna
í ný björgunarskip
Ríkið áfram í sam-
starfi við Landsbjörg
Þrjú skip keypt
Morgunblaðið/Alfons
Björgun Á næstu þremur árum
verða þrjú ný skip keypt.