Morgunblaðið - 20.06.2020, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
WHO varaði við því í gær að kór-
ónuveirufaraldurinn væri kominn á
„nýtt og hættulegt skeið“, þar sem
faraldurinn væri í miklum uppgangi
á sama tíma og þorri almennings
væri orðinn leiður á þeim sóttvarna-
ráðum sem gripið hefði verið til.
Tedros Adhanom Ghebreyesus,
framkvæmdastjóri WHO, varaði á
blaðamannafundi sínum í gær við
þessari þróun. „Margir eru skiljan-
lega orðnir leiðir á því að sitja
heima, en veiran er enn að breiðast
hratt út,“ sagði hann.
Viðvörun stofnunarinnar kom
sama dag og vísindamenn greindu
frá því að þeir hefðu fundið um-
merki kórónuveirunnar í skólpsýn-
um frá borgunum Mílanó og Tórínó
á Ítalíu síðan í desembermánuði,
mun fyrr en talið var að fyrstu til-
felli veirunnar hefðu komið upp í
landinu. Er uppgötvunin talin geta
varpað betra ljósi á útbreiðslu veir-
unnar í upphafi faraldursins.
Samkvæmt talningu Johns Hop-
kins-háskólans í gær höfðu rúmlega
8,5 milljónir manna smitast af kór-
ónuveirunni frá upphafi faraldurs-
ins, og rúmlega 454.000 dauðsföll
hafa verið staðfest af völdum henn-
ar. Veiran er enn í miklum upp-
gangi í Norður- og Suður-Ameríku,
sem og í Asíu, en virðist vera í rén-
un í Evrópu, þar sem ríki álfunnar
hafa byrjað að létta á útgöngubönn-
um og öðrum sóttvarnaaðgerðum
sem ráðist hefur verið í vegna veir-
unnar.
Enn langt í bóluefni
Dr. Anthony Fauci, yfirmaður
sóttvarnateymis Bandaríkjastjórn-
ar, sagði í gær að hann væri bjart-
sýnn á að bóluefni gegn veirunni
yrði tilbúið fljótlega, þar sem fyrstu
niðurstöður úr prófunum lofuðu
góðu.
Flestir sérfræðingar virðast þó á
því að enn séu nokkrir mánuðir hið
minnsta áður en bóluefni kemst á
markað, en fjöldi rannsókna á mis-
munandi leiðum til að bólusetja
gegn veirunni er nú í gangi. Bresk
stjórnvöld tilkynntu í fyrradag að
þau hygðust hefja framleiðslu á
bóluefni, sem nú er verið að þróa við
Oxford-háskóla, jafnvel þótt prófun-
um á því yrði ekki lokið fyrr en í
haust, í þeirri von að þá yrði hægt
að bólusetja breskt heilbrigðis-
starfsfólk sem og alla yfir fimmtugu
gegn veirunni á tiltölulega skömm-
um tíma.
Náðu ekki samkomulagi
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna funduðu í gær og reyndu að ná
samkomulagi um tillögur fram-
kvæmdastjórnar sambandsins um
neyðarsjóð upp á um 750 milljarða
evra, en án árangurs. Mark Rutte,
forsætisráðherra Hollands, sagði
hins vegar að hann teldi ólíklegt að
lausn myndi finnast á málinu fyrir
leiðtogafund sambandsins, sem á að
vera um miðjan júlí.
„Hættulegt skeið“ fram undan
WHO varar við að kórónuveiran er enn í uppgangi Veiran virðist hafa borist
fyrr til Ítalíu en áður var talið Bretar hefja framleiðslu á bóluefninu frá Oxford
Heimild: talning WHO/AFP
Ný tilfelli Ný dauðsföll
Ný kórónuveirusmit í vikunni Á heimsvísu
Staðan 19. júní
8.442.330+ tilfelli
451.980+ dauðsföll
142.630+ tilfelli
Bandaríkin
Mexíkó
9.130+
Egyptaland
8.810+
Tyrkland
15.100+
Íran
39.120+
Pakistan
26.040+
Sádi-Arabía
21.960+
Suður-Afríka
800+
3.990+ dauðsföll
25.810+
11.830+
3.130+
370+
Indland
69.410+
3.730+
380+
Brasilía
152.540+
5.590+
970+
Síle
64.250+
510+
Argentína
8.170+
Kólombía
Perú
26.110+
1.140+
Bretland
940+
Rússland
49.660+
Bangladess
20.760+
610+
Írak
350+
630+
290+
Indónesía
290+
Ítalía
Valin lönd dagana 12.-18. júní
AFP
Stund milli stríða Heilbrigðisstarfsfólk í borginni Machakos í Kenía sótti
námskeið í zumba-dansi í gær til að létta lund sína í miðjum faraldrinum.
Justin Trudeau,
forsætisráðherra
Kanada, lýsti í
gær yfir von-
brigðum sínum,
en Kínverjar
höfðu fyrr um
morguninn
ákveðið að ákæra
tvo Kanadamenn,
Michael Kovrig
og Michael Spavor, fyrir njósnir, en
þeir voru handteknir í Kína skömmu
eftir að Kanadamenn handtóku
Meng Wanzhou, stjórnanda í Hua-
wei, en til stendur að framselja hana
til Bandaríkjanna.
Sagði Trudeau að „Michaelarnir
tveir“ ættu að fá að snúa heim til
Kanada, þar sem ljóst væri að eina
ástæðan fyrir ákærunum á hendur
þeim væru aðgerðir sjálfstæðra
dómstóla í Kanada í máli Meng.
„Michaelarnir“ tveir
ákærðir fyrir njósnir
Justin Trudeau
KANADA
Krafa Hvíta hússins um að lögbann
yrði sett á endurminningar Johns
Bolton, fyrrverandi þjóðarörygg-
isráðgjafa Donalds Trump Banda-
ríkjaforseta, fór fyrir alríkisdóm-
ara í Washington í gærkvöldi. Ekki
var ljóst hvenær niðurstaða dóm-
arans myndi liggja fyrir, en bókin á
að koma út á þriðjudaginn.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Trumps, sagði í gær að bók Boltons
væri uppfull af lygum um sig, og
kallaði Pompeo Bolton „föðurlands-
svikara“ fyrir að gefa bókina út.
Þá hafa demókratar á Banda-
ríkjaþingi einnig gagnrýnt Bolton
fyrir að hafa neitað að bera vitni
fyrir þinginu fyrr á árinu.
Endurminningar Bók Boltons (t.h.)
þykir koma sér illa fyrir Trump.
Sótt að Bolton
úr báðum áttum
AFP
BANDARÍKIN
Utanríkisráðherrar Bretlands,
Frakklands og Þýskalands lýstu því
yfir í gær að þeir teldu nauðsynlegt
að vopnasölubann Sameinuðu þjóð-
anna gegn Írönum héldist áfram í
gildi, en gert var ráð fyrir að því
yrði aflétt í október á þessu ári.
Sagði í yfirlýsingu ráðherranna, að
þeir teldu afnám vopnasölubanns-
ins geta teflt öryggi Mið-Austur-
landa í hættu.
Yfirlýsing ráðherranna kom í
kjölfar þess að alþjóðakjarnorku-
málastofnunin IAEA samþykkti
ályktun, þar sem írönsk stjórnvöld
voru harðlega gagnrýnd fyrir að
hafa ekki leyft eftirlitsmönnum að
kanna tvo staði, þar sem grunur
leikur á að Íranar hafi reynt að
þróa kjarnorkuvopn í leyni. Skor-
aði stofnunin á Írana að sýna fullan
samstarfsvilja við stofnunina án
nokkurra frekari tafa. 25 ríki
greiddu atkvæði með ályktuninni,
en Rússar og Kínverjar voru á móti.
Evrópuríkin þrjú eru aðilar að
kjarnorkusamkomulaginu frá árinu
2015 ásamt Rússum og Kínverjum,
en Bandaríkjastjórn dró sig úr sam-
komulaginu árið 2018.
AFP
Fjarfundur settur Rafael Grossi, framkvæmdastjóri IAEA setur fjarfund
stofnunarinnar fyrr í vikunni, en stofnunin ályktaði gegn Írönum í gær.
Vilja áfram refsiað-
gerðir gegn Írönum
www.flugger.is
Hjá Flügger færðu
allt í málningarverkið