Morgunblaðið - 20.06.2020, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir
miðbæ Egilsstaða
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010, er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi á
Fljótsdalshéraði.
Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs þann 18. júní 2020
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi
fyrir Miðbæ Egilsstaða.
Deiliskipulagið var til kynningar fyrir ári síðan og komu fram
ábendingar við deiliskipulagstillögu. Eftir að kynningu lauk
hefur verið unnið með hagsmunaaðilum að úrlausnum við
ábendingum.
Við endurskoðun á miðbæjarskipulaginu er unnið áfram með
grunnhugmynd sem byggir á gildandi deiliskipulagi frá 2006.
Leitast er við að færa skipulagið í átt að vistvæns skipulags
og skapa vandaða miðbæjarbyggð. Meiri áhersla er lögð
á umferðaröryggi, lækkun hámarkshraða bíla og aukin
áhersla á fjölbreytta ferðamáta fyrir gangandi og hjólandi
vegfarenda. Byggðin hefur verið þétt til muna, hlutfall íbúða
aukið. Með því að þétta byggðina er verið að stuðla að betri
landnýtingu, skapa fjölbreytt og líflegt bæjarumhverfi. Við
það aukast rekstrarhagsmunir verslunar og þjónustu innan
svæðisins og skapast aðstæður fyrir mannlíf í miðbænum
samhliða.
Tillagan er sett fram á deiliskipulags- og skýringaruppdrætti
ásamt skipulags- og byggingarskilmálum.
Tillagan, með skilmálum, er aðgengileg á vef
Fljótsdalshéraðs. Frestur til að skila inn skriflegum
athugasemdum rennur út þann 4. ágúst nk. Athugasemdir
skal senda í tölvupósti til gunnlaugur@egilsstadir.is og
dandy@egilsstadir.is
Breyting á deiliskipulagi við Tunguás,
Fljótsdalshéraði.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum þann
3. júní sl., tillögu breytingu á deiliskipulagi við Tunguás,
Fljótsdalshéraði.
Deiliskipulag var áður kynnt í nóvember 2019 og komu
fram ábendingar við deiliskipulagstillögu. Eftir að kynningu
lauk hefur verið unnið að úrbótum á deiliskipulagi út frá
athugasemdum.
Meginmarkmið með deiliskipulaginu er að setja ramma utan
um frekari uppbyggingu á svæðinu og er unnið á grundvelli
skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsreglugerðar
nr. 90/2013. Um er að ræða deiliskipulag fyrir svæði
sem skilgreint er sem frístundabyggð og verslunar- og
þjónustusvæði í gildandi Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs
2008-2028.
Deiliskipulagið er unnið á grunni landskipta sem unnin
var af Steinsholti ehf. árið 2013. Í gildi er deiliskipulag fyrir
svæðið frá 2005 og verður það fellt út gildi við gildistöku nýs
deiliskipulags.
Deiliskipulagið fellur ekki undir lög nr. 105/2006 um
umhverfismat áætlana þar sem deiliskipulagið felur ekki í
sér framkvæmdir sem taldar eru upp í 1. viðauka laga um
mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Gerð verður grein fyrir
áhrifum deiliskipulagsins á umhverfið í samræmi við gr. 5.4 í
skipulagsreglugerð nr. 90/2013.
Tillagan er sett fram á deiliskipulags- og skýringaruppdrætti
ásamt skipulags- og byggingarskilmálum.
Tillagan, með skilmálum, er aðgengileg á vef
Fljótsdalshéraðs.
Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum rennur út
þann 4. ágúst nk. Athugasemdir skal senda í tölvupósti til
gunnlaugur@egilsstadir.is og dandy@egilsstadir.is
Breyting á deiliskipulagi við Eyvindará II
Fljótsdalshéraði.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs auglýsir hér með tillögu
að breytingu á deiliskipulagi fyrir Eyvindará II skv. 43.
gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, sem samþykkt var í
bæjarstjórn þann 20. maí 2020.
Deiliskipulag hefur verið í vinnslu um langan tíma og tafist
vegna ýmissa ástæðna og er fyrri málsmeðferð fallin úr
gildi.
Skipulagssvæðið afmarkast eins og fram kemur á
uppdrætti.
Breytingin felur m.a. í sér að uppfærð er staðsetning
gistihúss, lítilla gistihúsa og rotþróar. Uppfærð er vísun
í aðalskipulagsuppdrátt. Skipulagssvæðið er stækkað
til norðurs og bílastæðum breytt. Byggingarreitum
er bætt við fyrir eitt lítið gistihús, gistiálmu til austurs,
tengingu við eldri þjónustuhús og framtíðarstækkun
gistiálmu til vesturs. Bílastæðum við aðalbyggingu breytt,
fyrirkomulagi þeirra og stæðum fjölgað og bætt við
rútubílastæðum.
Tillagan er sett fram á deiliskipulags- og
skýringaruppdrætti ásamt skipulags- og
byggingarskilmálum.
Tillagan, með skilmálum, er aðgengileg á vef
Fljótsdalshéraðs.
Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum rennur
út þann 4. ágúst nk. Athugasemdir skal senda í tölvupósti
til gunnlaugur@egilsstadir.is og dandy@egilsstadir.is
Breytingar á deiliskipulagi við Fljótsdalshérað
f.h. bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Útboð nr. 20321
Sporðöldustífla - Hrauneyjastífla
Yfirfallsvegir – gröftur og fylling
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í
endurbætur á yfirfallsvegum
Sporðöldu- og Hrauneyjastífla, samkvæmt
útboðsgögnum nr. 20321.
Neðan lokuvirkis Hrauneyjalóns skal dýpka
og breikka yfirfallsveg þess á um 300 m
löngum kafla og byggja úr uppgreftrinum
varnargarð samsíða farveginum á
suðurbakka hans. Þessi verkhluti verður
unninn sumarið og haustið 2020.
Í farvegi neðan yfirfalls Sporðöldulóns skal
byggja þrjá fyrirstöðugarða sem
mótvægisaðgerð við rofi sem átt hefur sér
stað í farveginum. Gert er ráð fyrir að þessi
verkhluti verði unninn í 2 áföngum,
á árunum 2020 og 2021.
Gert er ráð fyrir að verk geti hafist í lok júlí
2020 og eru verklok 17.09.2021
Helstu magntölur eru áætlaðar:
Námuvinnsla-ofanafhreinsun 20.000 m3
Námuvinnsla-grjótvinnsla 20.000 m3
Gröftur, flokkun og flutningur 31.000 m3
Fyllingar 35.200 m3
Vettvangsskoðun verður 30. júní 2020.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef
Landsvirkjunar þriðjudaginn 23. júní 2020.
https://in-tendhost.co.uk/landsvir-
kjun/aspx/Home
Tilboðum skal skila í gegnum útboðsvef
Landsvirkjunar á slóðinni:
https://in-tendhost.co.uk/landsvir-
kjun/aspx/Home fyrir klukkan 14:00
þriðjudaginn 7. júlí 2020, niðurstöður tilboða,
nöfn bjóðenda og heildarfjárhæðir með vsk
verða birtar eftir kl. 14:00 sama dag á
útboðsvefnum.
Tilkynningar
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í verkið:
Vorsabær – júní 2020
Verklok eru 15.10.2020
Verkið felur í sér frágang á nýrri götu, Vorsabær
þ.e. að leggja út styrktarlag, jafna og þjappa
þar sem vantar í, sem er einkum til endanna.
Leggja út jöfnunarlag (burðarlag) jafna og þjappa
og malbika svo alla götuna og botnlangann,
Steypa kantsteina og skila allri götunni og lóðum
byggingarhæfum. Auk þess skal undirbyggja
og malbika gangstíg norðan götunnar og einnig
undirbyggja og leggja grasþökur á milli götu og
gangstígs. Verkið felur einnig í sér að setja upp
ljósastaura og fullgera götulýsingu.
Helstu magntölur eru:
Helstu magntölur eru:
Fylling óflokkað efni (undir gras) 430 m3
Styrktarlag (+ jöfnun og þjöppun) 1920 m3
Burðarlag (+ jöfnun og þjöppun) 270 m3
Malbik götur Y11 4340 m2
Malbik göngustígar Y8 750 m2
Vélsteyptur kantsteinn 1030 m
Þökulagnir 540 m2
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og
með mánudeginum 22.06.2020.
Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu
hafa samband við Rúnar hjá Eflu Suðurlandi í
síma 412 6900, eða með tölvupósti á netfangið
runar.fridgeirsson@efla.is og gefa upp nafn,
heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið
útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Hveragerðisbæjar
Breiðumörk 20, 810 Hveragerði fyrir kl. 14:00
miðvikudaginn 8. Júlí. 2020,
þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Byggingarfulltrúi Hveragerðisbæjar
ÚTBOÐ
Ríkiskaup
Allar útboðsauglýsingar eru birtar á
utbodsvefur.is
Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra
útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar
um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og
reglugerðir um opinber innkaup.
Vantar þig
smið?
FINNA.is