Morgunblaðið - 20.06.2020, Page 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
50 ára Eiríkur ólst upp
á Djúpavík á Ströndum
en býr á Skagaströnd.
Hann er skipstjóri á
Dagrúnu hjá Útgerðar-
félaginu Djúpavík og
situr í stjórn Björg-
unarsveitarinnar
Strönd.
Maki: Jóhanna Sigurjónsdóttir, f. 1971,
bókari, launafulltrúi og gjaldkeri hjá
Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Synir: Sigurjón Elí, f. 1995, Friðmar Kári,
f. 1998, og Ívan Orri, f. 2003.
Foreldrar: Lýður Hallbertsson, f. 1936,
útgerðarmaður og eigandi Djúpavíkur, og
Guðbjörg Eiríksdóttir, f. 1943, húsmóðir
og bókari hjá Djúpavík. Þau eru búsett á
Skagaströnd.
Eiríkur Gunnar
Lýðsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er ekki víst að þú ráðir við að
aðstoða vin þinn í dag. Sú breytni er und-
irstaða sátta og samkomulags. Leggðu á
ráðin um ferðalög eða aukna menntun.
20. apríl - 20. maí
Naut Viljir þú hafa áhrif og koma sjálfum
þér á framfæri skaltu gera það með því að
vera þú sjálfur. Vertu viðbúinn því að eitt-
hvað óvænt komi í ljós.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Undirbúningur er þýðingarmikill
því hann flýtir fyrir árangri og styttir leiðina
að settu marki. Fáðu vin þinn með í
ævintýrið þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur fengið upplýsingarnar
sem þú þarfnast með því að spyrja. Seinna í
dag leggjast allar þessar góðu fyrirætlanir á
eitt og verða að einhverju raunverulegu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Loksins öðlast þú viðurkenningu fyrir
framlag þitt og mátt gjarnan skemmta þér
af því tilefni. Sinntu því skyldum þínum af
kostgæfni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt svo auðvelt með að fara þínu
fram, að þú þarft að gæta þess að ganga
ekki of nærri öðrum. Fólk sem kallar fram
það besta í þér á skilið meira af tíma þínum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ekki hægt að velta hlutunum
endalaust fyrir sér. Gakktu til verks af opn-
um huga. Lundin léttist og þú öðlast nýtt
sjónarhorn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Útlitið er gott hvað varðar við-
skiptahugmyndir og áætlanir fyrir framtíð-
ina. Gættu þess að þú fáir þá hvíld sem þú
þarft á að halda.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sérkennileg atburðarás kann
að leiða til þess að þú hljótir loks umbun
erfiðis þíns.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur mikla möguleika á að
lenda í spennandi ástarævintýri þessa dag-
ana. Gagnrýni er ekki góð ef hún á ekki rétt
á sér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að halda aftur af þér í
samtölum við aðra; þeir þurfa líka að kom-
ast að með sín sjónarmið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Veltu ekki of lengi fyrir þér hvernig
þú átt að framkvæma hlutina því þú gætir
orðið of seinn. Reyndu að ná heildarsýn til
þess að þú getir vegið og metið aðstæður.
unda hundrað nafna gesta víðsvegar
af landinu sem komu gagngert til að
skoða þessa nýju fjósgerð.
Þorvarður lést 2007 eftir veikindi
og þá stóð ég frammi fyrir tveimur
valkostum, kaupa hans hlut af erf-
ingjum eða hætta rekstri, seinni
kosturinn varð fyrir valinu.“ Frá
árinu 2002 hefur Guðmundur verið
annar tveggja úttektarmanna sam-
kvæmt ábúðarlögum, en þeirra hlut-
verk er að meta eignir fráfarandi
ábúenda, aðallega á ríkis og kirkju-
jörðum, ásamt því að annast land-
skipti. „Ég hef á þessu tímabili
heimsótt liðlega 200 jarðir víðs veg-
ar um landið. Þá hef ég setið sem
meðdómari í Héraðsdómi Suður-
lands í landskiptamáli.“
Upp úr 1980 fór Guðmundur að
hafa afskipti af félagsmálum bænda.
Hann var formaður Búnaðarfélags
Sandvíkurhrepps í sinni sveit í 30 ár.
Hann var einn af stofnendum Fé-
lags kúabænda á Suðurlandi sem
var fyrsta búgreinafélagið í hefð-
G
uðmundur Lárusson er
fæddur 20. júní 1950 á
Stekkum í Sandvíkur-
hreppi sem nú er hluti
af Sveitarfélaginu Ár-
borg. „Ég ólst upp í húsinu sem ég
fæddist í til 22 ára aldurs en flutti
þá ásamt eiginkonu minni í nýbyggt
hús á jörðinni og hef því ekki búið
víða á lífsleiðinni.“
Guðmundur gekk í Barnaskóla
Selfoss og síðar í Gagnfræðaskóla
Selfoss og lauk þaðan landsprófi. „Í
Sandvíkurhreppi var ekki skóli,
kirkja né félagsheimili, heldur var
þessi þjónusta öll sótt að Selfossi en
miðbærinn er í 5 km fjarlægð frá
Stekkum. Ég hlaut því ekki dæmi-
gert sveitauppeldi sem kann að
hafa mótað skoðanir mínar meira
að einhvers konar þéttbýlisskoð-
unum. Á Sandvíkurtorfunni voru
mörg heimili og barnmargar fjöl-
skyldur og sérstaklega yfir sum-
artímann voru oft tugir krakka á
líkum aldri saman í leikjum á
kvöldin.
Ég var aðeins 13 ára þegar faðir
minn lést af slysförum, þessi at-
burður gjörbreytti hag fjölskyld-
unnar, en tekin var ákvörðun um að
halda áfram búskap sem tókst með
samstilltu átaki stórfjölskyldunnar
og góðra nágranna. Upp úr 1970
var stofnað félagsbú sem að stóðu
móðir mín, Þorvarður bróðir minn
og ég, en eftir að móðir mín komst á
aldur hætti hún aðild að búrekstr-
inum.“
Öll útihús á Stekkum voru byggð
upp á árunum 1972-1977 og lögð að-
aláhersla á mjólkurframleiðslu,
sauðfjárkvóta var skipt yfir í mjólk,
enda talin lítil von um hagnað af
sauðfé. Eftir kynnisferðir til Dan-
merkur var ráðist í stórfelldar
breytingar á rekstri búsins árin
1997-98. „Var þessi breyting ein sú
fyrsta hérlendis þar sem hefð-
bundnir básar voru aflagðir en þess
í stað byggt á lausagöngu gripa
með sérstökum át-, legusvæðum og
mjaltaaðstöðu. Samhliða var keypt-
ur aukinn kvóti og var búið á þess-
um tíma meðal stærstu innleggj-
enda hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Í
gestabók búsins er að finna á sjö-
bundnum búgreinum og fyrsti for-
maður þess félags, formaður Lands-
sambands kúabænda, Hestamanna-
félagsins Sleipnis, Ræktunar-
sambands Flóa og Skeiða og Kjöt-
framleiðanda ehf. Hann sat aðal-
fundi Stéttarsambands bænda og á
Búnaðarþingi, var í Framleiðsluráði
landbúnaðarins, auk þess sem hann
sat í fjölda nefnda á vegum bænda,
m.a. Verðlagsnefnd búvara og
samninganefndum um búvörusamn-
inga. „Ég tók 3. sæti á lista Alþýðu-
bandalags vegna kosninga til Al-
þingis 1995, það sæti var ekki talið
líklegt til þingsetu, samt lenti ég í
því að sitja þar nokkrar vikur sem
varamaður Margrétar Frímanns-
dóttur. Sú seta féll mér ekki vel og
þegar flokkurinn var lagður niður
lauk afskiptum mínum af pólitík að
mestu.
Við búskaparlok hófum við hjónin
byggingu frístundahúss á landi
Nautabús þar sem Margrét kona
mín ólst upp. Þar hefur fjölskyldan
Guðmundur Lárusson, fyrrverandi bóndi – 70 ára
Fjölskyldan Guðmundur og Margrét ásamt sonum, tengdadætrum, barnabörnum og viðhengjum í Skagafirði í gær
þar sem Guðmundur fagnar stórafmælinu. Á myndina vantar Elías Óttar Lárusson sem var sá eini sem komst ekki.
Hefur búið á Stekkum alla tíð
Hjónin Guðmundur og Margrét.
40 ára Halla ólst upp
í Njarðvík en býr í
Kópavogi. Hún er lög-
fræðingur að mennt
frá Bifröst og er lög-
maður hjá Húsnæðis-
og mannvirkjastofnun.
Maki: Brynjar Örn
Sigmundsson, f. 1974, innkaupastjóri hjá
Pennanum.
Dætur: Guðrún Elfa, f. 2001, Bryndís
Eva, f. 2010, og Emelía Rún, f. 2012.
Foreldrar: Elínborg Ellertsdóttir, f. 1957,
sérfræðingur hjá Samgöngustofu, og Les
Evans, f. 1955, fv. hermaður, bús. í
Toronto. Stjúpfaðir er Bjarne P. Svend-
sen, f. 1956, starfsmaður hjá Isavia.
Elínborg og Bjarne eru búsett í Reykja-
nesbæ.
Halla Björg
Evans
Til hamingju með daginn
Reykjavík Hrafnhildur
Lára Arnþórsdóttir
fæddist 25. júní 2019 í
Reykjavík. Hún vó 3.685
g og var 51 cm að lengd.
Foreldrar hennar eru Arn-
þór Reynisson og Rakel
Grettisdóttir.
Nýr borgari
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Fánaprentun