Morgunblaðið - 20.06.2020, Page 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Lengjudeild karla
Þór – Grindavík ........................................ 2:1
Keflavík – Afturelding ............................. 5:1
Þróttur R. – Leiknir R. ............................ 1:3
3. deild karla
KV – Reynir S........................................... 3:4
Lengjudeild kvenna
Víkingur R. – ÍA ....................................... 1:1
Grótta – Fjölnir ........................................ 1:0
Haukar – Augnablik................................. 1:1
England
Norwich – Southampton.......................... 0:3
Tottenham – Manchester United ........... 1:1
Staðan:
Liverpool 29 27 1 1 66:21 82
Manch.City 29 19 3 7 71:31 60
Leicester 29 16 5 8 58:28 53
Chelsea 29 14 6 9 51:39 48
Manch.Utd 30 12 10 8 45:31 46
Sheffield Utd 29 11 11 7 30:25 44
Wolves 29 10 13 6 41:34 43
Tottenham 30 11 9 10 48:41 42
Arsenal 29 9 13 7 40:39 40
Burnley 29 11 6 12 34:40 39
Crystal Palace 29 10 9 10 26:32 39
Everton 29 10 7 12 37:46 37
Southampton 30 11 4 15 38:52 37
Newcastle 29 9 8 12 25:41 35
Brighton 29 6 11 12 32:40 29
West Ham 29 7 6 16 35:50 27
Watford 29 6 9 14 27:44 27
Bournemouth 29 7 6 16 29:47 27
Aston Villa 29 7 5 17 34:56 26
Norwich 30 5 6 19 25:55 21
Ítalía
B-deild:
Spezia – Empoli ....................................... 1:0
Sveinn Aron Guðjohnsen var varamaður
hjá Spezia og kom ekki við sögu.
Spánn
Granada – Villarreal................................. 0:1
Mallorca – Leganés.................................. 1:1
Sevilla – Barcelona................................... 0:0
Staða efstu liða:
Barcelona 30 20 5 5 69:31 65
Real Madrid 29 18 8 3 55:20 62
Sevilla 30 14 10 6 42:30 52
Atlético Madrid 29 12 13 4 37:22 49
Getafe 29 13 8 8 38:27 47
Real Sociedad 29 14 5 10 46:36 47
Villarreal 30 14 5 11 47:38 47
Valencia 29 11 10 8 39:43 43
Katla María Þórðardóttir, varnar-
maður Fylkis í úrvalsdeild kvenna í
knattspyrnu, er að glíma við
meiðsli í nára en þetta staðfesti
Kjartan Stefánsson, þjálfari liðsins,
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Katla fór meidd af velli í fyrri
hálfleik í 3:1-sigri Fylkis gegn KR í
2. umferð deildarinnar í vikunni og
er óvíst hvort hún geti leikið með
liðinu 23. júní þegar Árbæingar fá
nýliða Þróttar í heimsókn í 3. um-
ferð deildarinnar.
Glímir við
meiðsli í nára
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Greifavöllur: KA – Víkingur R ......... L13:30
Vivaldi-völlur: Grótta – Valur........... L15.45
Meistaravellir: KR – HK ....................... L18
Extra-völlur: Fjölnir – Stjarnan....... S16.45
Kaplakriki: FH – ÍA .......................... S19.15
Würth-völlur: Fylkir – Breiðablik.... S19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Framvöllur: Fram – Leiknir F.............. L13
Hásteinsvöllur: ÍBV – Magni ................ L14
Ólafsvíkurv.: Víkingur Ó. – Vestri ........ L14
2. deild karla:
Ásvellir: Haukar – Fjarðabyggð........... L13
Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir – Þróttur V. L13
Rafholtsvöllur: Njarðvík – Völsungur.. L14
Nesfiskvöllur: Víðir – Kórdrengir ........ L14
Hertz-völlur: ÍR – KF ............................ L16
3. deild karla:
Kópavogsv.: Augnablik – Einherji........ L14
Sindravellir: Sindri – KFG .................... L14
Sauðárkr.: Tindastóll – Höttur/Huginn L16
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Þórsvöllur: Þór/KA – ÍBV ................ L15.30
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Vodafonev.: Völsungur – Keflavík......... S12
2. deild kvenna:
Fjarðabyggðarhöll: FHL – Fram .... S13.30
Kórinn: HK – Hamar.............................. S14
Hertz-völlur: ÍR – Sindri........................ S14
Boginn: Hamrarnir – Grindavík............ S16
GOLF
Íslandsmótinu í holukeppni lýkur á Akur-
eyri um helgina. Í dag er lokaumferð riðla-
keppni leikin fyrir hádegi og átta manna
úrslit hefjast kl. 14. Undanúrslit eru fyrir
hádegi á morgun og úrslitaleikir hefjast í
hádeginu.
UM HELGINA!
ÍA og Haukar misstigu sig bæði í
fyrstu leikjum sínum í 1. deild
kvenna í knattspyrnu, Lengjudeild-
inni, í gærkvöldi en deildin hófst
formlega á fimmtudaginn síðasta
þegar Tindastóll lagði Aftureldingu
að velli með tveimur mörkum gegn
engu að Varmá í Mosfellsbæ.
ÍA heimsótti Víkinga sem tefla
fram kvennaliði á Íslandsmótinu í
sumar í fyrsta sinn síðan 1985.
Nadía Atladóttir kom Víkingum yfir
á 22. mínútu og virtist allt stefna í
sigur Víkinga í fyrsta heimaleiknum
í 35 ár þegar María Björk Ómars-
dóttir jafnaði metin fyrir ÍA í upp-
bótartíma.
Í Hafnarfirði tóku Haukar, sem
spáð er sæti í efstu deild í spá þjálf-
ara, fyrirliða og forráðamanna liða í
deildinni, á móti Augnabliki. Vienna
Behnke kom Haukum yfir á 26. mín-
útu en Birta Birgisdóttir jafnaði
metin fyrir Augnablik á 41. mínútu
og þar við sat.
Þá reyndist Helga Rakel Fjalars-
dóttir hetja Gróttu en hún tryggði
Seltirningum sigur gegn Fjölni á Vi-
valdi-vellinum á Seltjarnarnesi.
Leiknum lauk með 1:0-sigri en
Helga Rakel skoraði sigurmark ný-
liðanna á 77. mínútu.
1. umferðinni lýkur á morgun með
leik Völsungs og Keflavíkur.
Lítið skorað í
fyrstu leikjunum
Nýliðar Gróttu fara vel af stað
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vörn Nadía Atladóttir, Víkingi, reynir að verjast Evu Maríu Jónsdóttur, ÍA.
stöðu með 2 stig eftir fyrstu tvo
leiki sína. Saga Traustadóttir, sem
á titil að verja á Akureyri, er einnig
í efsta sæti síns riðils með 2 stig eft-
ir fyrstu tvær umferðirnar.
Í dag fer svo fram þriðja umferð
mótsins og þá skýrist hvaða kylf-
ingar fara áfram í átta liða úrslit
keppninnar sem verða einnig spiluð
síðar í dag. Á morgun ráðast svo
úrslitin en undanúrslitin hefjast
klukkan 8 karlamegin og 8:16
kvennamegin. Úrslitarimmurnar
fara svo fram eftir hádegi á morg-
un í bæði karla- og kvennaflokki.
Kristófer Karl Karlsson, átján ára
gamall kylfingur úr Golfklúbbi
Mosfellsbæjar, gerði sér lítið fyrir
og vann sigur gegn atvinnukylf-
ingnum Haraldi Franklín Magnús í
riðlakeppni Íslandsmótsins í holu-
keppni sem hófst á Jaðarsvelli á
Akureyri í gær. Haraldur er í
slæmri stöðu en hann þarf nú að
treysta á úrslit í öðrum leikjum til
þess að eiga von um að komast upp
úr riðli 3 og í átta liða úrslit keppn-
innar.
Alls er leikið í átta, fjögurra
manna riðlum, en aðeins mun efsti
maður hvers riðils komast áfram í
átta liða úrslitin. Þá er Rúnar Arn-
órsson, ríkjandi Íslandsmeistari í
holukeppni, í vænlegri stöðu en
hann vann báða leiki sína í gær. Ís-
landsmeistarinn Guðmundur Ágúst
Kristjánsson einnig í þægilegri
stöðu í efsta sæti síns riðils með 2
stig, sem og atvinnukylfingurinn
Axel Bóasson.
Í kvennaflokki er einnig hart
barist en þar eru atvinnukylfing-
arnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Val-
dís Þóra Jónsdóttir allar í þægilegri
Meistararnir í vænlegri stöðu
Ljósmynd/GSÍ
Bikar Saga Traustadóttir og Rúnar
Arnórsson eiga titla að verja.
Paul Pogba, miðjumaður enska
knattspyrnufélagsins Manchester
United, spilaði sinn fyrsta leik fyrir
félagið síðan í desember á síðasta ári
þegar hann kom inn á sem varamað-
ur á 63. mínútu gegn Tottenham í
ensku úrvalsdeildinni á Tottenham
Hotspur-vellinum í London í gær.
Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en
Pogba kom inn á sem varamaður fyr-
ir Fred í stöðunni 1:0, Tottenham í
vil. Pogba lét strax til sín taka og
þegar tíu mínútur voru til leiksloka
fór hann ansi illa með Eric Dier,
varnarmann Tottenham, á hægri
kantinum. Pogba keyrði í átt að
marki og Dier togaði hann klaufa-
lega niður í vítateignum. Vítaspyrna
var dæmd og úr henni skoraði
Portúgalinn Bruno Fernandes af
miklu öryggi.
Stigið gerir lítið fyrir bæði lið sem
eru í harðri baráttu um sæti í Meist-
aradeildinni á næstu leiktíð en Tott-
enham er í áttunda sæti deildarinnar
með 42 stig, sex stigum minna en
Chelsea sem er í fjórða sæti deild-
arinnar, á meðan United er í fimmta
sætinu með 46 stig. Chelsea á leik til
góða á bæði lið.
AFP
Glíma Erik Lamela og Paul Pogba takast á í London í gærkvöldi.
Umdeildur Pogba
gerði gæfumuninn
Jafntefli niðurstaðan í London
Keflavík gaf tóninn strax í fyrstu
umferð 1. deildar karla í knatt-
spyrnu, Lengjudeildarinnar, þegar
liðið vann stórsigur gegn Aftureld-
ingu á Nettó-vellinum í Keflavík í
gær.
Leiknum lauk með 5:1-stórsigri
Keflvíkinga en staðan að loknum
fyrri hálfleik var 3:0, Keflavík í vil.
Adam Árni Róbertsson skoraði
tvö mörk fyrir Keflavík og þá skor-
uðu þeir Nacho Heras, Josep Arthur
Gibbs og Helgi Þór Jónsson sitt
markið hver. Alejandro Zambrano
skoraði eina mark Aftureldingar á
65. mínútu í stöðunni 4:0.
Þá reyndist Spánverjinn Álvaro
Montejo hetja Þórsara þegar liðið
fékk Grindavík í heimsókn á Þórs-
völl á Akureyri en Montejo skoraði
sigurmark Akureyringa á 89. mín-
útu. Fannar Daði Malmquist Gísla-
son kom Þórsurum yfir á 7. mínútu
en Aron Jóhannsson jafnaði metin
fyrir Grindavík átta mínútum síðar.
Leiknismenn sóttu svo þrjú stig í
Laugardalinn þegar liðið heimsótti
Þrótt en Vuk Oskar Dimitrijevic,
Daníel Finns Matthíasson og Máni
Austmann Hilmarsson skoruðu
mörk Leiknis. Esau Rojo skoraði
mark Þróttara á 82. mínútu.
Fyrstu umferðinni lýkur í dag
með þremur leikjum.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Móttaka Álvaro Montejo reynir að snúa með Nemanja Latinovic í bakinu.
Yfirlýsing í fyrsta
leik í Keflavík
Dramatískur sigur Þórs á Akureyri