Morgunblaðið - 20.06.2020, Page 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Ef hægt að tala um að eitt-
hvað jákvætt hafi komið út úr
bannsettri kórónuveirunni sem
hefur gert okkur lífið leitt und-
anfarna mánuði þá hefur hún
leitt til þess að fleiri ungir knatt-
spyrnumenn hafa fengið tæki-
færi en áður í upphafi Íslands-
mótsins.
Erfiðari fjárhagur félaganna,
sem og meiri óvissa á leik-
mannamarkaðnum í Evrópu,
hafa orðið til þess að erlendir
leikmenn eru meira en helmingi
færri í deildinni en á sama tíma
vorið 2019.
Til viðbótar má nú hvert lið
gera fimm breytingar í hverjum
leik, í stað þriggja áður, vegna
hins langa hlés sem gert var á
æfingum og keppni, og það
stuðlar á sama hátt að því að
þeir sem eru númer fimmtán og
sextán í röðinni í hverju liði fái
möguleika á að koma við sögu í
leikjunum.
Þegar fyrsta umferðin um
síðustu helgi er skoðuð kemur í
ljós að tuttugu ungir leikmenn
fæddir 2001 og síðar, gjald-
gengir í 2. flokk, komu við sögu í
leikjunum sex í úrvalsdeild karla.
Á sama tíma í fyrra voru að-
eins níu ungir leikmenn á sama
aldri, fæddir 2000 og síðar, með
í leikjum fyrstu umferðar. Vík-
ingar áttu þrjá af þeim og Grind-
víkingar tvo en Stjarnan, KR, KA,
Valur, Fylkir og ÍBV voru með
engan leikmann undir tvítugu í
sínu liði í byrjun Íslandsmótsins
2019.
Nú bregður svo við að Fjölnir
tefldi fram fimm ungum strákum
í sínum fyrsta leik, Skagamenn
fjórum, Stjarnan, KA og Fylkir
tveimur hvert félag. Aðeins Valur
og Breiðablik notuðu engan leik-
mann á 2. flokksaldri í fyrstu
umferðinni um síðustu helgi.
Þetta er áhugaverð þróun og
mætti alveg vera komin til að
vera.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
GRÓTTA
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Stemningin er mjög góð og menn
eru klárir í þetta,“ sagði Halldór
Kristján Baldursson, fyrirliði
Gróttu, í samtali við Morgunblaðið.
Grótta leikur sinn fyrsta heimaleik í
efstu deild í sögu félagsins er liðið
fær meistaraefnin í Val í heimsókn
á Vivaldi-völlinn
klukkan 15:45 í 2.
umferð Pepsi
Max-deildarinnar
í fótbolta í dag.
„Fyrir okkur eru
þetta allt stórir
leikir en það er
ekkert grín að fá
Blikana úti og
Val heima í
fyrstu tveimur
leikjunum. Valsmenn koma vænt-
anlega æstir til leiks eftir tap í
fyrsta leik og þeir ætla sér að ná í
stig en við ætlum okkur að koma í
veg fyrir það,“ bætti Halldór við.
Sviðskrekkur í fyrsta leik
Grótta mátti þola 0:3-tap á úti-
velli gegn Breiðabliki í 1. umferð-
inni.
Halldór viðurkennir að leikmenn
liðsins hafi verið með sviðskrekk,
enda níu af ellefu leikmönnum í
byrjunarliðinu að spila sinn fyrsta
leik í efstu deild. Axel Sigurðarson
og Óliver Dagur Thorlacius höfðu
áður leikið í deildinni, samtals sjö
leiki með KR, þar af aðeins einn í
byrjunarliði. Þá kom Ástbjörn
Þórðarson inn á í seinni hálfleik og
lék sinn tólfta leik í efstu deild, en
hinir ellefu komu sömuleiðis hjá
KR.
„Frammistaðan á móti Breiða-
bliki var ekki nægilega góð, en það
er hægt að byggja ofan á það
hvernig við kláruðum leikinn. Mér
fannst vera smá sviðsskrekkur og
við eigum meira inni,“ sagði Hall-
dór.
Miðvörðurinn fékk verðugt verk-
efni í sínum fyrsta leik í deild þeirra
bestu þar sem hann fékk að kljást
við framherjann Thomas Mikkel-
sen. Daninn er einn besti framherji
deildarinnar og kom hann boltanum
fjórum sinnum í netið á Kópavogs-
velli. Aðeins eitt markanna var lög-
legt hins vegar þar sem Mikkelsen
var í rangstöðu í þrígang er hann
skoraði. „Mér fannst ganga ágæt-
lega að berjast við Mikkelsen. Hann
er mjög klókur og öðruvísi en þeir
leikmenn sem maður er vanur að
spila við í 1. deildinni t.d. Hann var
alltaf að hlaupa bakvið og er snið-
ugur leikmaður og mjög góður. Það
var góð reynsla að mæta Mikkelsen
því Valur er með Patrick Pedersen
sem er ekki lakari leikmaður. Mað-
ur verður að aðlagast fljótt í þessari
deild, sérstaklega gegn bestu fram-
herjunum.“
Frábært að mæta vinunum
Halldór er uppalinn hjá Breiða-
bliki en skipti yfir í Val í öðrum
flokki. Frá Val lá leiðin til Ægis í
Þorlákshöfn. Eftir tvö ár hjá Ægi í
2. deild varð hann leikmaður Gróttu
árið 2016. Halldór viðurkennir að
það hafi verið sérstaklega sætt að
leika fyrsta leikinn í efstu deild á
Kópavogsvelli gegn leikmönnum
sem hann æfði og spilaði með lengi.
„Ég er alinn upp hjá Breiðabliki og
fór síðan í eitt ár í Val í 2. flokki.
Það var frábært augnablik fyrir
mig að spila á móti jafnöldrum og
vinum mínum í Breiðabliki sem ég
ólst upp með. Það var virkilega
gaman að fá loksins að spila á
Kópavogsvelli. Það var mikil upp-
lifun fyrir mig og eitthvað sem mig
hafði dreymt um, þótt draumurinn
hafi fyrst og sinn verið að spila þar
með Breiðabliki.“
Alltaf farið upp eða niður
Tími Halldórs hjá Gróttu hefur
verið skrautlegur í meira lagi. Á
þeim fjórum árum sem hann hefur
verið hjá félaginu hefur hann annað
hvort farið upp eða niður um deild á
hverju einasta tímabili. Árið 2016
fór Grótta upp í 1. deild, en féll nið-
ur í 2. deild 2017. Þá tók Óskar
Hrafn Þorvaldsson við liðinu og
kom því upp um tvær deildir á
tveimur árum, áður en hann hætti
og tók við Breiðabliki eftir síðustu
leiktíð. „Þetta er búið að vera mikill
rússíbani. Ég spilaði reyndar ekki
mikið sumarið 2017 þegar við féll-
um úr 1. deild. Við höfum alltaf far-
ið upp eða niður og núna er mark-
miðið að sjálfsögðu að festa sig í
sessi í deild sem ekki er hægt að
fara upp úr.“
Lék Halldór aðeins þrjá deild-
arleiki tímabilið 2017 er liðið féll úr
1. deild undir stjórn Þórhalls Dan
Jóhannssonar. Síðan þá hefur mikið
vatn runnið til sjávar hjá leikmann-
inum og félaginu. „Ég var ekki inn í
myndinni hjá þeim þjálfurum sem
voru þá,“ sagði Halldór og hann við-
urkennir að hann sá ekki fyrir sér
að vera að spila í efstu deild þremur
árum síðar.
Óskar gerði mikið fyrir mig
„Nei, alls ekki. Ég ætlaði að
hætta í fótbolta. Óskar Hrafn f́ékk
mig til að skipta um skoðun. Hann
færði mig niður í miðvörðinn og
gerði mikið fyrir mig og breytti
ferlinum mínum gjörsamlega.“
Téður Óskar tók einmitt við
Breiðabliki eftir síðasta sumar og
stýrði liðinu í fyrsta skipti gegn
Gróttu síðasta sunnudag. Ágúst
Gylfason fór í hina áttina og stýrði
Gróttu í fyrsta skipti gegn sínu
gamla liði. „Það var fínt að mæta
hans liði í fyrsta leik. Óskar þekkir
okkur alla mjög vel og náði að loka
alveg á það sem við erum góðir í og
gerði það vel. Á sama tíma vorum
við ekki nægilega góðir. Við leik-
mennirnir gerðum ekki mikið úr
þessu og þetta var aðallega í frétt-
um að þetta hafi verið einhver bar-
dagi á milli þeirra. Þetta er bara
fótbolti fyrir okkur,“ sagði Óskar.
Ágætt að allir halda að við
getum ekki neitt
Flestir eru sammála um að
Grótta eigi erfitt sumar í vændum.
Liðið er mjög óreynt í efstu deild
og kom öllum á óvart með að standa
uppi sem sigurvegari í 1. deild síð-
asta sumar. Halldór er samt sem
áður brattur fyrir það sem eftir lifir
sumarsins. „Við getum gert mjög
mikið í þessari deild og erum tölu-
vert betri en frammistaðan í fyrsta
leik sýndi. Það er kannski ágætt að
allir halda að við getum ekki neitt.
Við stefnum á að halda okkur í
þessari deild og ég hef fulla trú á
því að við getum það,“ sagði Hall-
dór við Morgunblaðið.
Þrír leikir eru á dagskrá í deild-
inni í dag. KA og Víkingur Reykja-
vík ríða á vaðið á Akureyri klukkan
13:30, áður en leikur Gróttu og Vals
fer fram 15:45. Klukkan 18 eigast
KR og HK við í Vesturbænum. Þá
lýkur annarri umferðinni með
þremur leikjum á sunnudag; Fjölnir
og Stjarnan mætast í Grafarvogi
klukkan 16:45 og klukkan 19:15
mætast Fylkir og Breiðablik í Árbæ
og FH og ÍA í Hafnarfirðinum.
Óskar Hrafn fékk mig
til að skipta um skoðun
Fyrirliði Gróttu ætlaði að hætta í fótbolta Fyrsti heimaleikurinn gegn Val
Morgunblaðið/Eggert
Seltjarnarnes Stuðningsfólk Gróttu fjölmennti á fyrsta leikinn í Kópavogi og í dag er komið að því að liðið spili í
fyrsta sinn á heimavelli sínum í efstu deild. Valsmenn koma í heimsókn og viðureign liðanna hefst klukkan 15.45.
Halldór Kristján
Baldursson
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari
kvenna í handknattleik, hefur valið
21 leikmann til æfinga með B-
landsliði kvenna, en þetta kom
fram í fréttatilkynningu sem HSÍ
sendi frá sér í gær. Æfingarnar
munu fara fram dagana 24.-27. júní
en í liðinu er blanda af eldri leik-
mönnum sem hafa verið nálægt eða
í kringum A-landsliðið undanfarin
ár. Þá eru einnig leikmenn í hópn-
um sem hafa staðið sig vel með
yngri landsliðum Íslands. Hópinn í
heild sinni má sjá á mbl.is/sport/
handbolti.
21 leikmaður í
æfingahópnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skot Hafnfirðingurinn Berta Rut
Harðardóttir er í æfingahópnum.
Liverpool getur á morgun komist
enn einu skrefinu nær enska meist-
aratitlinum í knattspyrnu þegar
liðið sækir granna sína, Gylfa Þór
Sigurðsson og félaga í Everton,
heim á Goodison Park en nágran-
naslagurinn hefst klukkan 18 að ís-
lenskum tíma. Vinni Liverpool
leikinn þarf liðið aðeins einn sigur
enn til að verða enskur meistari og
gæti þá klárað dæmið á eigin
heimavelli gegn Crystal Palace á
miðvikudagskvöldið. Þetta er
fyrsti leikur beggja liða í þrjá og
hálfan mánuð.
Grannaslagurinn
á Goodison Park
AFP
Liverpool Sadio Mané og félagar
eru langefstir í deildinni.
Ef spár fyrirliða, þjálfara og for-
ráðamanna liðann í 1. deildum karla
og kvenna, eða Lengjudeildunum
eins og þær heita í ár, ganga eftir
verður mikil gleði í Keflavík í lok
tímabilsins.
Báðum liðum Keflavíkur er spáð
velgengni, kvennaliðinu er spáð sigri
í 1. deild og karlaliðinu öðru sæti á
eftir Eyjamönnum.
Haukar færu upp í úrvalsdeild
með kvennaliði Keflavíkur ef spáin
gengur eftir. Hjá körlum er Leikni á
Fáskrúðsfirði og Magna á Grenivík
spáð falli í 2. deild en hjá konum eru
Fjölnir og Völsungur í fallsætunum
tveimur.
Niðurstaðan í Lengjudeild karla
varð þessi: 1 ÍBV (410), 2 Keflavík
(360), 3 Grindavík (329), 4 Leiknir R.
(304), 5 Fram (272), 6 Þór (247), 7
Víkingur Ó. (201), 8 Vestri (137), 9
Afturelding (134), 10 Þróttur R.
(109), 11 Leiknir F. (105), 12 Magni
(72).
Niðurstaðan í Lengjudeild
kvenna: 1 Keflavík (253), 2 Haukar
(220), 3 ÍA (196), 4 Tindastóll (189), 5
Augnablik (144), 6 Víkingur R. (131),
7 Afturelding (105), 8 Grótta (101), 9
Fjölnir (58), 10 Völsungur (35).
Fara bæði
lið Kefla-
víkur upp
um deild?