Morgunblaðið - 27.06.2020, Side 1

Morgunblaðið - 27.06.2020, Side 1
Það ólgaði ímér blóðið Listin ergræðandi Hálf öld er síðan Brynjólfur Oddsson réð sig á sjó, þá fjórtán ára gamall. Hann varð ungur skipstjóri og leiddi starfið hann víða um höf þar sem hann rataði í ýmis ævintýri. Brynjólfur er vanur margra mánaða túrum og segist ekki geta hugsað sér að vinna níu til fimm. 14 28. JÚNÍ 2020SUNNUDAGUR Fer óhefðbundnar leiðir Kristjana Stefáns-dóttir leggurland undir fótmeð SvavariKnúti. Þaulofa góðumkvöld- vökum. 2 Munuganga út FyrrverandistjórnarmaðurSÁÁ segirað starfseminleggist afbreytiststjórnar-hættir ekki. 10 Alda Júlía Magnús-dóttir vonar aðíslensk hönnuntaki flugið. 18 L A U G A R D A G U R 2 7. J Ú N Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  150. tölublað  108. árgangur  MIKILVÆGT HREYFIAFL Í ÞJÓÐLÍFINU KYRRALÍFS- MYNDIR ÚR KÓFINU LJÓÐ LINDU 42SUS 90 ÁRA 18 Fetaðu nýjar slóðir með Touareg Tilboðsverð frá 10.990.000,- hekla.is/volkswagensalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Maður á sjötugsaldri sem var hand- tekinn við rússneska sendiráðið á fimmtudag var í gær úrskurðaður í sjö daga gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að brunanum á Bræðraborg- arstíg. Maðurinn er búsettur í húsinu sem brann og barst tilkynning um ófrið vegna hans við rússneska sendi- ráðið á sama tíma og lögreglunni barst tilkynning um brunann. Á blaðamannafundi í gær sagði Ás- geir Þór Ásgeirsson, yfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu, að ekki væri vitað hvers vegna maðurinn var staddur við rúss- neska sendiráðið. Þrír létust í brunanum en tveir þeirra fundust látnir á þriðju hæð hússins á sjöunda tímanum á fimmtu- dagskvöld. Tilkynning um brunann barst slökkviliði klukkan stundar- fjórðung yfir þrjú um daginn. Ekki hefur tekist að bera kennsl á hin látnu með óyggjandi hætti, að sögn Ásgeirs. Einn lá á gjörgæslu vegna brunans þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi og annar á almennri deild en sá hafði áður legið á gjörgæslu. Reyndu að hlaupa inn Lögreglan neitaði að veita frekari upplýsingar um líðan þeirra. Þá hafði einn verið útskrifaður af sjúkrahúsi sem áður lá á gjörgæslu. Lögreglan hefur rökstuddan grun um að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum. „Við teljum okkur geta fullyrt að eldurinn hafi kviknað að mannavöld- um,“ sagði Ásgeir. Lögreglan var kölluð að húsinu nóttina áður en eldurinn kviknaði. Ás- geir sagði ekki hægt að staðfesta hvort það útkall hafi verið vegna mannsins sem nú er í gæsluvarðhaldi. Tveir voru handteknir á vettvangi brunans en þeim var sleppt að lokinni skýrslutöku. Þeir voru handteknir fyrir að reyna að hlaupa inn í brenn- andi húsið til að sækja eigur sínar. 73 einstaklingar eru með skráð lög- heimili í húsinu. Slökkviliðsstjóri seg- ir að það eitt ætti að hringja viðvör- unarbjöllum í Þjóðskrá. Í varðhald vegna brunans  Þrír látnir og einn á gjörgæslu  Maðurinn handtekinn við sendiráð um svipað leyti og bruninn var tilkynntur  Talið að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum MMun að öllum líkindum … »6  Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra sagði í gær að atburðir síð- ustu daga sýndu fram á mikilvægi þess að fólk héldi áfram vöku sinni í sóttvörnum gegn kórónuveirunni, en boðað var til blaðamannafundar í gær til þess að ræða stöðuna eftir að ný smit komu upp í vikunni. Sagði Katrín að fyrstu tvær vik- urnar af skimunum við landamærin hefðu verið lærdómsríkar. »4 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Faraldur Katrín á fundinum í gær. Mikilvægt að slaka ekki á gegn veirunni „Þetta verkefni stendur yfir í tvö og hálft ár og felst í uppsteypu og síðan tekur innivinnan við,“ segir Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf., NLSH. Útboðsgögn vegna uppsteypu á nýjum meðferðarkjarna Landspít- alans verða afhent á mánudag. Fimm fyrirtæki skiluðu inn gögnum til forvalsnefndar vegna verkefn- isins. Fyrirtækin þurfa nú að leggja fram tilboð en forvalið gildir fram í miðjan ágúst. Um er að ræða eina stærstu opinberu framkvæmd síðari ára á Íslandi, en rætt var um að meðferðarkjarninn myndi einn og sér kosta um 60 milljarða króna. Gert er ráð fyrir að samningsaðili verði kynntur um miðjan september og að steypuvinna hefjist um miðjan október. »10 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landspítali Uppsteypa hefst senn. Risafram- kvæmd á leið í útboð Vel fór á með forsetaframbjóðendunum tveimur, þeim Guðna Th. Jóhannessyni, forseta lýðveld- isins, og athafnamanninum Guðmundi Franklín Jónssyni í setustofu Ríkisútvarpsins í gærkvöldi áður en þeir héldu til kappræðna í beinni sjón- varpsútsendingu. Munu Íslendingar kjósa á milli þeirra tveggja í dag, en þetta er í 9. sinn sem forsetakosningar eru haldnar í sögu lýðveldisins. »2 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kosið til forseta í níunda sinn í sögu lýðveldisins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.