Morgunblaðið - 27.06.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
Heimurinn
er að breytast
Taktu þátt í að móta stefnu Sjálfstæðisflokksins
Nánari upplýsingar á xd.is
Málefnanefndir Sjálfstæðisflokksins bjóða flokksmönnum
til opinna funda í Valhöll til að ræða og leggja drög að stefnu
flokksins í aðdraganda landsfundar sem fram fer í Reykjavík
í nóvember nk.
Fundirnir verða haldnir þriðjudaginn 30. júní í Valhöll, en hægt
verður að taka þátt á Zoom-forritinu.
Sjálfstæðismenn eru eindregið hvattir
til að taka þátt í málefnastarfi flokksins.
Kl. 12:00 – 13:00
Utanríkismálanefnd
Umhverfis- og samgöngunefnd
Atvinnuveganefnd
Fjárlaganefnd
Kl. 17:00-18:00
Efnahags- og viðskiptanefnd
Allsherjar- og menntamálanefnd
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Velferðarnefnd
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Útboðsgögn vegna uppsteypu á nýj-
um meðferðarkjarna Landspítalans
verða afhent á mánudag. Um er að
ræða eina stærstu opinberu fram-
kvæmd síðari ára á Íslandi. Gert er
ráð fyrir að samningsaðili verði
kynntur um miðjan september og að
steypuvinna hefjist um miðjan októ-
ber.
Meðferðarkjarninn verður þannig
um 69 þúsund fermetrar en jafn-
framt verða reist
stórhýsi sunnan
við bygginguna,
sem einnig munu
þjóna spítalanum.
Rætt var um að
meðferðarkjarn-
inn myndi einn og
sér kosta um 60
milljarða króna
miðað við upp-
færslu á vísitölu.
Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins úr bygging-
argeiranum má ætla að uppsteypan
ein og sér kosti vel á annan tug millj-
arða.
Fimm fyrirtæki skiluðu inn gögn-
um til forvalsnefndar vegna verkefn-
isins í desember. Niðurstaða hennar
var að allir umsækjendurnir stæðust
kröfur forvalsins.
Þau eru Eykt, Íslenskir aðalverk-
takar, Ístak, ÞG verktakar og félögin
Rizzani De Eccher S.P.A. – Rizzani
De Eccher Ísland ehf. – og Þing-
vangur ehf., sem bjóða saman í verk-
ið.
Fyrirtækin þurfa nú að leggja
fram tilboð en forvalið gildir fram í
miðjan ágúst.
„Þetta verkefni stendur yfir í tvö
og hálft ár og felst í uppsteypu og
síðan tekur innivinnan við, þannig að
gert er ráð fyrir að vinnu við með-
ferðarkjarnann ljúki á árinu 2025, ef
vel gengur,“ segir Gunnar Svavars-
son, framkvæmdastjóri Nýs Land-
spítala ohf., NLSH.
Hann segir aðspurður áætlað að
150-200 muni vinna við að steypa upp
meðferðarkjarnann þegar mest verð-
ur. Endanlegur kostnaður vegna
þessa áfanga muni skýrast eftir út-
boðið.
„Kostnaðaráætlun verkkaupa
verður birt við opnun útboðs, en til-
boð bjóðenda eiga eftir að koma í
ljós. Það er ljóst að þau munu hafa
mikið að segja um áframhaldið og
hvort kostnaðaráætlanir séu rétt-
mætar,“ segir Gunnar. Spurður
hvort veiking krónunnar hafi haft
áhrif á kostnað við þennan áfanga
segir Gunnar að nú muni það koma í
ljós hversu miklar breytingar hafa
orðið á verði.
„Þá t.d. hjá framleiðendum á sem-
enti og stáli sem bera uppi lungann
af efniskostnaðinum, auk framleiðslu
steypunnar. Byggingarvísitalan hef-
ur vissulega verið á hreyfingu síð-
ustu mánuði, en verkið verður bundið
við vísitöluna alla 30 verkmánuðina,“
segir Gunnar.
Stór hola hefur verið grafinn fyrir
meðferðarkjarnann, sunnan við
gamla Landspítalann.
Að sögn Gunnars má ætla að í
upphafi árs 2022 verði húsið farið að
taka á sig mynd en efri hlutinn á því
byggi m.a. á útveggjaeiningum en
ekki eingöngu hefðbundinni upp-
steypu.
Jafnframt uppsteypu á meðferð-
arkjarnanum stendur til að reisa
rannsóknahús vestan við Læknagarð
og bílastæða-, tækni- og skrifstofu-
hús þar við hliðina, gegnt BSÍ. Sam-
hliða er áformað að stækka Lækna-
garð en ein álman mun snúa að
Hringbraut. Þessu til viðbótar verður
gerður bílakjallari við Sóleyjartorg.
Áformað er að ljúka þessum fram-
kvæmdum 2025-26.
Fimm berjast um risaverkefni
Útboð á uppsteypu 69 þúsund fermetra meðferðarkjarna Landspítala Ein stærsta framkvæmdin
B
arónsstígur
H
ri
ng
br
au
t
Hr
ing
bra
ut
Fyrirhuguð
randbyggð
Stækkun
Læknagarðs
Rann-
sóknahús
Aðalbygging
Landspítalans
Fyrirhuguð sam-
göngumiðstöðBílastæða-
og tæknihús
Ný viðbót við
meðferðarkjarna
Meðferðarkjarni
Áformuð uppbygging
við nýja Landspítalann
Teikning ASK
arkitektar
Verkhluti Framkvæmdatími
Gatna- og lóðaframkvæmdir 2018 - 2026
Meðferðarkjarni (MFK) Lokið 2025
Jarðvinna vegna MFK Lokið fyrri hluta 2020
Upphaf uppsteypu MFK Fyrri hluta 2020
Útveggir og lokun MFK Síðari hluta 2022
Innri frágangur MFK Síðari hluta 2024
Meðferðarkjarninn er stærsta
byggingin í uppbyggingu
Hringbrautarverkefnisins
Verkhluti Framkvæmdatími
Rannsóknahús Lokið 2025
Bílastæða-, tækni- og skrifstofuhús Lokið 2022-2024
Bílakjallari Sóleyjartorg 2021 - 2025
Háskóli Íslands, stækkun Læknagarðs 2021 - 2025
Randbyggð Vísindagarða
Háskóla Íslands 2021 - 2025
Gunnar
Svavarsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við höfum farið yfir þessa góðu
skýrslu og erum að vinna í útfærslu
á tillögum sem koma fram í henni,“
segir Berglind Svavarsdóttir, for-
maður Lögmannafélags Íslands.
Skýrsla vinnuhóps Lögmanna-
félagsins varðandi lögmenn og
#metoo er komin út. Vinnuhóp-
urinn var skipaður í nóvember árið
2018 til að skoða og greina álitaefni
tengd #metoo og lögmannastétt-
inni. Vinnuhópurinn lagði könnun
fyrir félagsmenn síðasta haust en í
henni kom fram að um 30% svar-
enda sögðu að vinnustaður þeirra
hefði sérstaka stefnu til að koma í
veg fyrir einelti eða áreitni á vinnu-
staðnum en um 60% vildu eindregið
að vinnustaður þeirra hefði slíka
stefnu. Helmingur lýsti því yfir að
æskilegt væri að hægt væri að leita
til sérstaks tengiliðar ef viðkom-
andi yrði fyrir eða yrði vitni að ein-
elti eða áreitni.
Af svörum þátttakenda í könn-
uninni að dæma er ljóst að lög-
mannastéttin hefur ekki sloppið við
óviðeigandi hegðun og áreitni. Um
fjórðungur svarenda hafði í starfi
sínu heyrt óviðeigandi brandara
með kynferðislegum undirtón eða
óviðeigandi ummæli um útlit, vaxt-
arlag, klæðaburð eða einkalíf sitt.
Um 6% höfðu fengið sendar eða
verið sýndar myndir af kynferð-
islegum toga og um 29% svarenda
höfðu upplifað eða orðið vitni að
kynbundnu áreiti í starfi. Tæplega
15% töldu sig hafa upplifað óþarf-
lega mikla nálægð, faðmlög, kossa
eða aðra snertingu sem viðkomandi
kærði sig ekki um. Þá höfðu alls
22% svarenda orðið fyrir kynferð-
islegri áreitni í starfi sínu sem lög-
maður, bæði karlar og konur, og
26% orðið fyrir einelti.
Í umsögn vinnuhópsins segir að
niðurstöður könnunarinnar um
áreitni séu alvarlegt umhugsunar-
efni fyrir lögmannastéttina. „Hátt-
semi sem þessi getur í sumum til-
vikum verið refsiverð en er í öllum
tilvikum siðferðislega ámælisverð
og ekki til framdráttar stétt sem
annars hefur það að atvinnu sinni
að efla rétt og hrinda órétti,“ segir
í skýrslunni.
Vinnuhópurinn leggur til að
stjórn Lögmannafélagsins útbúi
leiðbeiningar til lögmanna til að
bregðast við atvikum af þessu tagi
sem kunna að koma upp. Hópurinn
skilaði drögum að þeim leiðbein-
ingum. Þá lagði hópurinn einnig til
að félagið gerði samning við sjálf-
stætt starfandi fagaðila sem lög-
menn gætu leitað til og héldi nám-
skeið fyrir félagsmenn.
Berglind staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að umræddar leið-
beiningar yrðu aðgengilegar á
heimasíðu félagsins og farið verði
eftir tilmælum um aðkomu sálfræð-
ings.
Háttsemin ekki
til framdráttar
Áreitni og einelti í stétt lögmanna
Morgunblaðið/Hari
Hæstiréttur Lögmenn kvarta und-
an óviðeigandi hegðun í starfi sínu.