Morgunblaðið - 27.06.2020, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þó margir þekki Innan-sveitarkroniku og hún eigisérstakan stað í hugumfólks, þá er nauðsynlegt að
dusta af henni rykið öðru hvoru og
minna á þessa frábæru bók, líka fyrir
nýjar kynslóðir,“ segir Guðný Dóra
Gestsdóttir, safnstjóri Gljúfrasteins,
um sýningu sem þar var opnuð sl.
fimmtudag í tilefni af því að 50 ár eru
nú liðin frá því Halldór Laxness
sendi frá sér Innansveitarkroniku.
„Sýningin er í móttökunni hér á
Gljúfrasteini sem áður var bílskúr og
hefur nú tekið breytingum því sýn-
ingin er innsetning þar sem sjá má
muni og myndir. Þar á veggina hefur
Hlíf Una Bárudóttir málað myndir af
söguslóðum Innansveitarkroniku.
Hlíf Una las bókina sem henni fannst
mjög skemmtileg og með myndunum
dregur hún fram það sem vakti
áhuga hennar í sögunni. Þórunn El-
ísabet Sveinsdóttir er sýningarstjóri
og hönnuður sýningarinnar og hún er
búin að setja upp ýmsa muni sem
minna á þá gömlu tíma sem Innan-
sveitarkronika á að gerast á hér í
dalnum. Að sjálfsögðu eru hér orf og
ljár og ýmislegt fleira, en Þórunn
hugsar þetta sem kveikjur og hughrif
sem verða vonandi gestum hvetning
til að lesa söguna,“ segir Guðný Dóra
og tekur fram að Gljúfrasteinssafnið
hafi gefið Innansveitarkroniku út á
netinu á vefsíðunni innansveitar-
kronika.is. „Þar er hægt að nálgast
bókina á rafrænu formi en einnig er
þar hægt að hlusta á skáldið, Halldór
Laxness, lesa söguna í heild sinni. Á
þessari vefsíðu er líka ýmislegt um
sögupersónur og sögusviðið hér í
Mosfellsdalnum, sem og ljósmyndir.“
Íslendingar reki inn nefið
Guðný segist halda að Mosfell-
ingum þyki mörgum sérstaklega
vænt um þessa bók og að sumir eigi
sína uppáhaldskafla úr sögunni.
„Oft hafa verið upplestrar úr
bókinni hér í dalnum og Mosdæl-
ingar nota stundum orðfærið Til er
ég og til er Bogi. Mér finnst frábært
að hún heyrist enn þann dag í dag
hér í dalnum, þessi tilvitnun í
Innansveitarkroniku þar sem Ólafur
í Hrísbrú tekst á við prestinn séra Jó-
hann. Hann hefur með sér son sinn
Boga til fundar við prestinn en Ólaf-
ur var tilbúinn að fara í stríð til að
verja kirkjuna á Mosfelli fyrir niður-
rifi. Þegar Jóhann spyr: „Og hverjir
ætla sosum að fara að berjast með
sverðum núna Ólafur minn? Þá svar-
ar Ólafur: Til er ég og til er Bogi.“
Guðný Dóra segir að safnið á
Gljúfrasteini sé að fara í gang eftir
lokun á Covid-tímum og nú telji þau
vera óhætt að opna.
„Við erum að vona að þessi sýn-
ing veki áhuga Íslendinga sem reki
fyrir vikið inn nefið á Gljúfrasteini,
en sýningin verður fram á haust. Í
tengslum við sýninguna verða skipu-
lagðar gönguferðir um sögusvið bók-
arinnar, Mosfellsdalinn, en sú fyrsta
verður í dag, laugardag 27. júní, og
göngustjóri verður Bjarki Bjarnason
frá Mosfelli.“ Bjarki er alinn upp á
Mosfelli þar sem faðir hans var
prestur og hann segir að fyrir vikið
sé öll sú saga, sem sögð er í
Innansveitarkroniku, samgróin hon-
um.
„Sagan í kringum kirkjuna og
klukkuna var meitluð í huga minn áð-
ur en bók Halldórs kom út. Ég þekkti
sögu klukkunnar og man vel eftir
henni, því þegar jarðsett var á Mos-
felli var komið með klukkuna frá
Hrísbrú, þar sem hún var geymd, og
hún hengd upp í sáluhliðinu á Mos-
felli og hringt þar, því þá var þar eng-
in kirkja. Bóndinn á Hrísbrú gekk
svo með klukkuna til baka yfir túnið,
þetta er mér afar minnisstætt.
Stundum var jarðað í kirkjugarð-
inum á Mosfelli áður en kirkjan var
vígð árið 1965,“ segir Bjarki og bætir
við að dánargjöf Stefáns Þorláks-
sonar og kirkjubyggingin á Mosfelli
kveiki greinilega hugmyndina hjá
Halldóri að segja sögu klukkunnar
og kirkjunnar.
„Innansveitarkronika kom út
1970, fimm árum eftir að kirkjan var
reist. Halldór fór með föður mínum
út í nýbyggða kirkjuna og mældi
þessa frægu klukku, málin á henni
eru í bókinni. Öll þessi saga var hluti
af uppeldinu og bernsku minni á
Mosfelli. Ég hef spáð mikið í þessa
ágætu bók, hún er bæði merkileg og
skemmtileg og ákveðinn áfangi í rit-
höfundarferli Halldórs, hann er
þarna að skrifa heila bók í fyrsta
skipti um sínar heimaslóðir en sagan
gerist að mestu leyti í Mosfellsdal.“
Mikið af mannabeinum
Bjarki segist muna eftir einni
mikilvægri persónu sem kemur fyrir
í Innansveitarkroniku, fyrrnefndum
Stefáni Þorlákssyni.
„Stefán lést árið 1959 þegar ég
var sjö ára. Hann var einn af þeim
sem voru jarðsettir í þessum forna
kirkjugarði á Mosfelli, þegar engin
kirkja var þar. Ég man sérstaklega
eftir því að smíðuð var göngubrú yfir
ána fyrir jarðarförina svo hægt væri
að komast upp í kirkjugarðinn.
Klukkan frá Hrísbrú hefur örugg-
lega verið færð til þeirrar athafnar.
Stefán var einhleypur og gaf allar
sínar eignir til endurreisnar kirkju á
Mosfelli. Ég fylgdist með hverju
handtaki við það verk og faðir minn
hélt um alla þræði kirkjubyggingar-
innar. Þegar grafið var fyrir kirkj-
unni kom upp mikið af mannabeinum
úr ómerktum gröfum og það greypt-
ist í mitt barnsminni þegar verið var
að taka þau upp, þá var ég 10 ára.
Beinin voru sett í stóra kistu og hún
grafin undir kórnum í kirkjunni.
Þetta var mjög eftirminnilegt, því
kistan með beinunum var inni á
heimili okkar eina nótt og mamma
breiddi lak yfir kistuna.“
Bragðað á kraftaverkavatni
Bjarki segir gönguna, sem hann
leiðir í dag, vera sögugöngu á slóðum
Innansveitarkroniku.
„Gangan hefst við Gljúfrastein
þar sem við skoðum sýninguna sem
sett var upp í tengslum við útgáfuaf-
mælið. Síðan verður gengið í áttina
að Laxnesi og Guddulaug sem Hall-
dór segir frá í bókinni Í túninu heima,
og þar fá allir einn kaldan, í formi
vatns úr lauginni. Halldór gerði vatn
laugarinnar að kraftaverkavatni með
skáldlegu ívafi, hann sagði að faðir
sinn hefði læknast af lungnabólgu við
að drekka það. Frá Guddulaug höld-
um við að vinnustofu Þóru Sigurþórs-
dóttur leirlistarkonu á Hvirfli og það-
an að Mosfelli, sem tengist
Innansveitarkroniku. Við komum
líka við á Hrísbrú sem kemur mikið
við sögu í bókinni, þar hefur farið
fram merkur fornleifauppgröftur.
Við endum gönguna hjá Jóhönnu B.
Magnúsdóttur sem býr vestast í
dalnum og þar fær göngufólkið
hressingu í göngulok.“
Ljósmynd/Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar
Hrísbrúarbóndi Ólafur Magnússon bóndi á Hrísbrú (1831-1915).
Innansveitarkronika,
bók Halldórs Laxness sem
gerist að mestu í Mosfells-
dalnum, fagnar nú 50
ára afmæli. Af því tilefni
var opnuð sýning á
Gljúfrasteini og í dag
verður boðið upp á göngu
á söguslóðum. Orðfærið
Til er ég og til er Bogi,
heyrist enn í Mosfells-
dalnum.
Ljósmynd/ Walter H. Trevelyan.
Gamla kirkjan Ýmislegt var aðhafst við gömlu kirkjuna, hér fær ferðamaður klippingu utan við Mosfellskirkju árið 1883.
Bjarki
Bjarnason
Guðný Dóra
Gestsdóttir
Sýning Hlíf Una málar myndir af söguslóðum Innansveitarkroniku á veggi í
móttökunni á Gljúfrasteini. Fremstir standa Ólafur og Bogi á Hrísbrú.
Þessi bók á stað í hugum margra
Gönguferðin með Bjarka í dag
hefst við Gljúfrastein kl. 13:30 og
tekur um fjórar klukkustundir.
Þátttökugjald er 2.500 kr. og veit-
ingar innifaldar. Skráning á email:
steinunnf50@gmail.com og á
heimasíðunni gonguhrolfur.com.
Önnur gönguferð verður 4. júlí, en
þá verður göngustjóri Birgir D.
Sveinsson, hún verður auglýst
nánar þegar nær dregur á heima-
síðunni Gljufrasteinn.is.