Morgunblaðið - 27.06.2020, Page 18

Morgunblaðið - 27.06.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020 VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Á þessum tímamótum er mér efst í huga hvað Samband ungra sjálf- stæðismanna hefur verið mikilvægt hreyfiafl í íslenskri stjórnmálasögu,“ segir Halla Sigrún Mathiesen, for- maður SUS, en sambandið var stofn- að 27. júní 1930, og fagnar því 90 ára afmæli sínu í dag. Halla Sigrún segir að félagar sam- bandsins sitji ekki auðum höndum þessa dagana og bætir við að ekki sé annað hægt en að bera mikla virð- ingu fyrir sögunni. „Við viljum nýta þetta tækifæri til þess að gera þess- ari miklu sögu sambandsins hátt undir höfði,“ segir Halla Sigrún, en SUS hyggst meðal annars gefa út sérstakt afmælisrit í tilefni þessara merku tímamóta, sem fylgir Morg- unblaðinu í dag. Þá var fyrirhuguð afmælisveisla, en kórónuveirufarald- urinn sló henni á frest. Bætt lífskjör helsta markmiðið Halla Sigrún segir að meginmark- mið samtakanna sé að standa vörð um einstaklingsfrelsið, sem aftur teygi anga sína í svo margar hliðar mannlífsins. „Einna helst frelsi ein- staklingsins til athafna, sem á við um mjög margt en er kannski hvað mest áberandi í atvinnulífinu. Svo snýst frelsið um að tryggja að mann- réttindi og réttarríkið séu virt, þann- ig að einstaklingurinn geti lifað lífi sínu án óþarfa yfirgangs nágranna sinna og ríkisvaldsins.“ Halla Sigrún segir að SUS hafi staðið fyrir mörgum herferðum í gegnum tíðina með þetta að leið- arljósi, og er „Báknið burt“ líklega þeirra frægust. „Á sama tíma, þegar flokkurinn hefur vikið frá grunngild- unum hefur SUS verið duglegt við að minna flokkinn á hvar hann eigi að standa.“ Halla Sigrún nefnir einnig að sambandið hafi verið öflugt í að vekja máls á nýjum hugmyndum. „Sambandið hefur oft verið ein af fyrstu hreyfingunum til þess að tala fyrir málum, sem okkur þykir síðan vera sjálfsögð í dag, eins og lögleið- ingu bjórsins og frjálsu útvarpi. Svo eru önnur mál, eins og SUS talaði einna fyrst fyrir að hér yrði komið á almennum verðbréfamarkaði og var einnig mikill talsmaður þess að Ís- land gengi í EFTA, en hvort tveggja hefur gert mjög mikið fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf.“ „Litlu“ frelsismálin skipta máli Hún segir að hlutverk SUS í þess- um efnum og öðrum hafi meðal ann- ars verið að að tryggja að Íslend- ingar yrðu ekki undir vegna afturhaldssemi, heldur væru í takt við samtímann og jafnvel nokkrum skrefum á undan. Spurð um þá gagnrýni sem sum stefnumál sambandsins fái segir Halla að „litlu“ frelsismálin séu ekki síður mikilvæg en hin, þótt oft sé reynt að gera lítið úr þeim. Hún nefnir sem dæmi frumvarp um breytta tilhögun áfengisverslunar hér á landi. „Það er svo oft spurt er þetta nú forgangsmál? Eigum við þá bara að ræða eitt mál hverju sinni, því að allt annað er ekki forgangs- mál? Hvernig verðum við svo sam- mála um það hvaða mál sé þetta for- gangsmál?“ Hún bendir á að líklega yrði erfitt að finna þá forgangsröðun sem allir gætu orðið sammála um. „Þessi „litlu frelsismál“ eiga oft undir högg að sækja. Sem dæmi hefur lögleið- ing bjórsins varla verið mikið for- gangsmál á sínum tíma, eða frjálst útvarp. En í dag eru líklega flestir fegnir því að þessi mál náðu fram að ganga. Og ef frelsismálin eru svona lítil og léttvæg, af hverju er ekki bara hægt að afgreiða þau hratt?“ Með stjórnmálin í blóðinu Halla á ekki langt að sækja stjórn- málaáhugann, en hún er dóttir Steinunnar K. Friðjónsdóttur og Árna M. Mathiesen, fyrrverandi ráðherra, og barnabarn tveggja fyrrverandi ráðherra, Friðjóns Þórðarsonar og Matthíasar Á. Mat- hiesen. Þá má nefna, að í fyrstu stjórn Sambands ungra sjálfstæð- ismanna árið 1930 sat Árni M. Mat- hiesen frá Hafnarfirði, langafi Höllu. En hefði Halla hug á ráðherra- dómi eða frekari stjórnmálaþátttöku þegar fram líða stundir? „Það er nú ekki markmið mitt í sjálfu sér að feta í fótspor þeirra, þó að óneit- anlega sé maður að dýfa litlu tánni í stjórnmálin með því að vera formað- ur SUS. Það sem er mér efst í huga og knýr mig áfram er sjálfstæð- isstefnan og hugsjónirnar sem SUS berst fyrir, og hvað þær geta gert fyrir einstaklinginn, heimilin og at- vinnulífið. Þegar upp er staðið hafa þessir hlutir mikil áhrif á líf manns sama hvort maður tekur þátt í stjórnmálum eða ekki,“ segir Halla. „Að alast upp í kringum pólitík sýndi mér kannski helst hvað þetta er mikilvægur vettvangur og hversu miklu máli þátttaka fólks skiptir,“ segir Halla og bætir við að það sé eitt af markmiðum sínum með for- mennskunni í SUS að sýna ungu fólki að það sé ekki eins fjarlægur möguleiki og margir halda að byrja að taka þátt í pólitík. „Það sem við viljum ýta undir er að þeir sem hafi áhuga á komi, því það er mjög aðgengilegt og í raun auðvelt að finna sér farveg í svona starfi, hvort sem það er hjá SUS eða öðrum stjórnmálahreyfingum. Það er ekki flókið að byrja að taka þátt og koma þannig skoðunum sínum á framfæri.“ Umræðuhefðin oft hvöss Talið berst að þeirri umræðuhefð sem ríkt hefur í íslenskum stjórn- málum undanfarin ár. Halla Sigrún tekur undir að umræðan, sér- staklega á samfélagsmiðlum, geti virkað fráhrindandi á þá sem vilji taka þátt. „Ég held að fólk hugsi sig betur um í dag áður en það fer í stjórnmál, hvort það vilji leggja þetta á sig þegar orðræðan getur orðið svona andstyggileg og ljót. Við getum öll gert betur í því að halda umræðunni á aðeins hærra plani og hjóla ekki stöðugt í manninn,“ segir Halla Sigrún. „Á sama tíma finnst mér að fólk verði að reyna að láta þetta ekki hafa áhrif á sig ef það brennur fyrir hugsjónunum, heldur taka slaginn. Annars er hættan sú að við missum hæfileikafólk úr stjórnmálunum. Þróunin má ekki vera þannig að bara þeir sem þola þyngstu höggin fari í stjórnmál, því þá eigum við á hættu að missa af fólki sem á erindi í forystu.“ Jafnrétti ekki bara til vinstri Þess má einnig geta að í fyrstu stjórn SUS sat Sigríður Auðuns, en síðan liðu rúm fjörutíu ár áður en næsta kona tók sæti sem stjórn- armaður í sambandinu. „Að miklu leyti endurspeglar þetta það sam- félag sem var,“ segir Halla Sigrún og nefnir að það hafi ekki verið fyrr en árið 1997 sem fyrsti kvenkyns for- maður SUS var kjörin, Ásdís Halla Bragadóttir. „Mér finnst það þó oft gleymast í umræðunni, hvað Sjálfstæðisflokk- urinn hefur verið framarlega þegar kemur að þátttöku kvenna í pólítik.“ Hún nefnir að Auður Auðuns, fyrsti kvenráðherrann og fyrsti kvenkyns borgarstjórinn hafi komið úr röðum sjálfstæðismanna, auk þess sem kon- ur á borð við Ragnhildi Helgadóttur, fyrrv. ráðherra, og Salome Þorkels- dóttur, fyrrv. forseta Alþingis, hafi einnig fengið mikinn frama á vegum flokksins. „Svo erum við nú með tvær ungar konur sem ráðherra, þannig að mér finnst það oft ósanngjörn gagnrýni á flokkinn að konur fái ekki framgang innan hans, þegar við vorum að miklu leyti brautryðjendur í þeim efnum. En ég get að sjálfsögðu tekið undir það að það hefði mátt gera bet- ur, og mætti í rauninni enn.“ Halla Sigrún segir umræðuna um að Sjálfstæðisflokkurinn sé á ein- hvern hátt fjandsamlegur konum megi líka rekja til þess að vinstri flokkarnir hafi viljað eigna sér jafn- rétti sem sitt mál. „Um leið vilja þeir grafa undan ágæti hægristefnu með því að búa til þá ímynd að hún falli ekki að jafnrétti kynjanna. Það gæti ekki verið fjarri sannleikanum að mínu mati,“ segir Halla Sigrún og bendir á að í þeim ríkjum þar sem frjálst markaðshagkerfi hafi orðið ofan á sé staða kvenna að öllu jöfnu betri og kvenréttindabaráttan komin lengra. „Og varðandi flokkinn í dag, þá er- um við með tvo kvenráðherra eins og ég nefndi, formaður SUS er kona, og sömuleiðis formaður Heimdallar. Við erum einnig með mjög virkt Lands- samband sjálfstæðiskvenna, og mín reynsla er sú að það eru margar gríðarlega öflugar konur, í flokknum og víðar, sem eru sammála mér í því að hægristefna vegi ekki að hags- munum þeirra sem kvenna. Eig- inlega bara þvert á móti.“ Sjálfstæðisstefnan er í sígildi Hún segir í því samhengi að grunngildi Sjálfstæðisflokksins og SUS eigi jafn vel við í dag og þau gerðu fyrir 90 árum. „Við höfum hins vegar náð það langt í lífskjarabarátt- unni, að við erum orðin pínu sam- dauna þeim framförum sem hafa náðst,“ segir Halla Sigrún. Afleið- ingin sé sú að hin klassísku baráttu- mál séu minna áberandi, en í staðinn er horft á nýjar áskoranir, þar sem loftslagsmálin vega þyngst, en auk þess séu jafnrétti kynjanna, málefni hinsegin fólks, kynþáttafordómar og fleiri slík mál einnig ofarlega á baugi. „Ég tel að stefnan sem SUS berst fyrir, einstaklingsfrelsi og minni af- skipti ríkisvaldsins, eigi alveg jafn- mikið erindi þegar tekist er á við þessi nýju vandamál. Sjálfstæð- isstefnan er sígild, og hún er ekki í andstöðu við þessi nýju úrlausn- arefni. Að mínu mati er hún partur af lausninni,“ segir Halla Sigrún. „Á sama tíma er stærsta verkefni sambandsins gagnvart Sjálfstæð- isflokknum að passa að við séum stöðugt að sækja fram, séum óhrædd við að taka upp og velta fyrir okkur nýjum hugmyndum, koma þeim á dagskrá og stuðla þannig að raunverulegum framförum. Svo megum við heldur ekki gleyma þeim árangri sem við höfum náð og hvers vegna.“ Grunngildin eiga alltaf við  Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar 90 ára afmæli sínu í dag  Sambandið hefur stuðlað að mörgum framfaramálum í íslenskri stjórnmálasögu  Stærsta verkefnið að sækja stöðugt fram Morgunblaðið/Eggert SUS 90 ára Halla Sigrún Mathiesen, formaður SUS, segir sambandið hafa verið mikilvægt hreyfiafl. IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2020 GMC Denali Ultimate Litur: White frost/ svartur að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Svartur/ Svartur að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. VERÐ 12.990.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ VERÐ 12.990.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.