Morgunblaðið - 27.06.2020, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
Jónsmessuhappdrætti
Sjálfsbjargar
Dregið var þann 24. júní 2020
1. 1. Ferðavinningur frá Icelandair að verðmæti kr. 1.500.000.-
4372
2.-6. Ferðavinningur frá Icelandair, hver að verðmæti kr. 450.000.-
1659 14941 19365 32803 48733
7.-14. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu, hver að verðmæti kr. 400.000.-
19122 21961 27636 28421 32898 36816
36954 42207
15.-39. Ferðavinningur frá Icelandair, hver að verðmæti kr. 300.000.-
1118 2324 4453 6194 7555 7632
11252 11625 12352 19213 19216 19769
21717 23589 24921 26684 26716 26972
29672 30337 33532 42984 43718 45360
46629
40.-59. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu, hver að verðmæti kr. 150.000.-
500 2210 3098 6895 7247 8640
12511 14127 19164 19340 19538 28811
34057 35496 35776 35785 36064 37052
39779 49410
66.-125. Vöruúttekt hjá 66 Norður , hver að verðmæti kr. 150.000.-
790 1243 4327 5515 5789 6373
6446 6514 9307 12343 13541 14165
14445 14925 15907 16073 17356 17875
18475 18710 19420 19497 19710 19813
19932 20911 20970 21222 22474 23105
23268 24182 24550 25155 26511 26995
29218 29232 31028 32154 32681 34204
35169 35929 38073 38936 39479 39481
40440 40713 41595 42228 43007 43704
44186 44994 45378 46265 46567 47220
47697 48084 48660 49534 49568 49791
Birt án ábyrgðar.
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á
skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra að Hátúni 12, 105
Reykjavík, 3ju hæð, opið milli kl. 10:00 – 12:30 og 13:00 - 15:00 virka daga -
sími: 5500-360.
Byrjað verður að greiða út vinninga þann 15. júlí 2020.
Vinningaskrá er einnig birt á vefsíðu samtakanna, www.sjalfsbjorg.is.
Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra
þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Vinningar og vinningsnúmer
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, ákvað
á fimmtudaginn að fresta öllum ráð-
gerðum opnunum þúsunda vinnu-
staða þar í ríkinu eftir harkalegt bak-
slag í kórónuveirusmiti í byrjun
vikunnar, en á mánudag greindust
6.000 ný smit í Texas sem er það
mesta sem greinst hefur þar einn og
sama daginn frá upphafi heimsfarald-
ursins.
„Þetta tímabundna hlé mun hjálpa
ríkinu okkar að einangra útbreiðsluna
þar til við getum fært okkur upp á
næsta stig opnunar vinnustaða með
öryggið í fyrirrúmi,“ sagði Abbott í
yfirlýsingu um málið, en fimmtudag-
urinn var þrettándi dagurinn í röð í
Texas með svo háum tölum yfir
sjúkrahúsinnlagnir vegna kórónu-
veiru, að ekki höfðu sést áður í far-
aldrinum.
Hækkandi tölur í fleiri ríkjum
Hefur nú öllum skurðaðgerðum,
sem ekki teljast lífsnauðsynlegar, í
Austin, Dallas, Houston og San Ant-
onio verið frestað í þeirri viðleitni að
fleiri sjúkrahúsrúm séu til reiðu þeim
sem nú er mest þyngt af völdum kór-
ónuveirunnar.
Texas glímir ekki eitt ríkja við
skyndilega fjölgun tilfella því nýjar og
háar tölur berast einnig frá Alabama,
Arizona, Kaliforníu, Flórída, Idaho,
Mississippi, Missouri, Nevada, Okla-
homa, Suður-Karólínu og Wyoming.
Á fimmtudag greindust 39.818 ný
smit í Bandaríkjunum og rúmlega
36.000 á miðvikudag, en svo háar töl-
ur höfðu fram að því ekki sést síðan
24. apríl þegar greind smit voru
36.426.
Leggjast á árarnar af þunga
Þær tölur sem nú berast eru ekki
síst frá þeim ríkjum Bandaríkjanna
sem sluppu tiltölulega vel í byrjun,
þegar faraldurinn skall af fullum
þunga á landinu og ríki á borð við
New York, New Jersey og Louisiana
urðu mjög illa úti, New York þó sýnu
verst þar sem hreint neyðarástand
ríkti á vordögum.
Að sögn fréttastofu Reuters skýra
fleiri skimanir hluta þeirrar fjölgunar,
sem hér er til umfjöllunar, en engu að
síður hefur hlutfall jákvæðra niður-
staðna hækkað umtalsvert og reyna
stjórnvöld nú af öllum mætti að róa
kvíðna þjóð.
„Við leggjumst nú á árarnar af full-
um þunga með einstökum ríkjum og
stjórnvöldum þeirra og mikilvægt er
að þjóðin hafi það hugfast að þær
sýslur sem nú eru í brennidepli [e.
hotspots] sýkinga eru þrjú prósent
sýslna landsins,“ sagði Alex Azar,
heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, í
viðtali við Fox News í vikunni.
Að yfirsýn sérfræðinga í farsótt-
amálum vestra er talið að meira en 20
milljónir Bandaríkjamanna gætu hafa
smitast af kórónuveirunni, sem er tí-
falt meira en opinberar tölur gefa til
kynna og er þá gert ráð fyrir miklum
fjölda fólks sem smitast án einkenna,
en getur engu að síður smitað aðra.
Fleiri mjög veikir í Kaliforníu
Kórónuveiran breiðist nú í suðvest-
urátt innan Bandaríkjanna og dreifist
þar um strjálbýlli svæði og er Utah í
hópi ríkja sem fara nú að dæmi Tex-
as-búa og slá frekari opnunum á frest.
Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu,
gaf fyrirheit um neyðarfjárveitingu
vegna ástandsins nú fyrir helgi, en
þar greindust 7.149 ný smit á mið-
vikudaginn auk þess sem hlutfall
mjög veikra Kaliforníubúa hefur
hækkað ískyggilega og er nú svo
komið, að kórónuveirusjúklingar
liggja í 34 prósentum allra gjörgæslu-
sjúkrarúma í Kaliforníuríki.
Harkalegt bakslag Texasbúa
Öllum ráðgerðum opnunum frestað í ríkinu 6.000 ný smit á mánudag það mesta hingað til
Háar smittölur berast frá fleiri ríkjum Smit gætu reynst tífalt fleiri en opinberar tölur gefa til kynna
AFP
Bakslag Heilbrigðisstarfsmaður í Houston í Texas skráir upplýsingar fólks
sem bíður í röð eftir að komast í veirupróf við United Memorial-sjúkrahúsið.
Áætlanir í uppnámi
» Yfir 127.000 eru látnir í
Bandaríkjunum, fleiri en
nokkurs staðar annars staðar.
» Meira en tíundi hluti fram-
kvæmdra veiruprófa í landinu
síðustu viku hefur reynst já-
kvæður.
» „Ljósið er gult,“ sagði ríkis-
stjóri Arizona við þegna sína
og hvatti til mikillar varkárni.
» Áætlanir fjölda ríkja um að
koma atvinnulífinu í gang á
nýjan leik eru í uppnámi eftir
þróunina síðustu daga.
Þrír eru látnir og að minnsta kosti sex
sárir eftir hnífstunguárás á hótelinu
Park Inn í Glasgow í Skotlandi síð-
degis í gær. Einn hinna særðu er lög-
reglumaður, en lögregla skaut og
drap árásarmanninn á vettvangi.
Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra
skosku heimastjórnarinnar, sagði at-
burðinn skelfilegan og Boris Johnson,
forsætisráðherra Bretlands, lýsti yfir
sorg sinni vegna árásarinnar.
Anddyrið drifið blóði
Lögreglan í Glasgow gaf það út
strax eftir árásina í gær að hún reikn-
aði með að árásarmaðurinn hefði ver-
ið einn að verki, en hótelið, þar sem
ódæðið átti sér stað, er notað sem
dvalarstaður hælisleitenda.
Vitni, sem gaf aðeins upp nafnið
John, segist í samtali við PA-frétta-
stofuna hafa verið að koma niður stig-
ann ofan af þriðju hæð þegar hann sá
að anddyri hótelsins var drifið blóði
auk þess sem hann sá þar mann liggja
á gólfinu. „Ég fór niður að inngang-
inum og kallaði til hans, sagði honum
að halda ró sinni og ég færi og næði í
hjálp,“ sagðist John frá. Einnig sagð-
ist hann hafa komið auga á annað
fórnarlamb sem „barðist fyrir lífi
sínu“.
Lá skólaus á götunni
Craig Milroy fylgdist með atburð-
um á vettvangi eftir að árásin var
gerð og kveðst hafa séð fernt flutt af
vettvangi með sjúkrabifreið. „Ég sá
mann af afrískum uppruna sem lá á
götunni skólaus. Annar var hjá hon-
um og hélt um síðu hans. Ég veit ekki
hvort hann var sár eftir byssuskot,
hnífstungu eða eitthvað annað,“ sagði
Milroy frá.
Þrír látnir og sex sárir eft-
ir árás á hóteli í Glasgow
Lögregla skaut árásarmanninn til ólífis á vettvangi árásar
AFP
Á vettvangi Lögregla og slökkvilið á vettvangi árásarinnar í gær.
Emmanuel Macron og Vladimír
Pútín, forsetar Frakklands og
Rússlands, fjarfunduðu í gær um
málefni sem upphaflega var á dag-
skrá þeirra í apríl en var þá frestað
eins og svo mörgu öðru, en þar er
ástandið í Úkraínu til umræðu.
„Við þurfum að ræða erfið mál
og þar er Úkraína efst á baugi,“
sagði í tilkynningu frá franska for-
setaembættinu þar sem greint var
frá fundi þjóðhöfðingjanna. Macron
var gestgjafi í desember á fundi
um Úkraínudeiluna þar sem Pútín
og Angela Merkel Þýskalands-
kanslari komu saman auk úkra-
ínska forsetans Volodymyr Ze-
lenskij.
Á desemberfundinum náðist
samkomulag á nokkrum sviðum,
svo sem um fangaskipti milli Rúss-
lands og Úkraínu, auk þess sem
sátt náðist um að halda áfram við-
ræðum í átt að því að finna var-
anlega lausn deilu sem kostað hef-
ur um 14.000 mannslíf síðustu sjö
árin.
Funduðu með ÖSE
Á fimmtudaginn fjarfundaði sam-
starfshópur Rússlands, Úkraínu og
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu, sem síðast kom saman í
Minsk í Hvíta-Rússlandi áður en
kórónuveirufaraldurinn braust út.
Úkraínski herinn sendi frá sér
myndskeið í vikunni, sem að sögn
hersins sýnir eyðileggingu búða að-
skilnaðarsinna í yfirgefinni námu í
Donbass í Austur-Úkraínu.
Fjarfundur hjá Macron og Pútín
Taka upp þráðinn
í viðræðunum um
Úkraínudeiluna
AFP
Umleitanir Vladimír Pútín og Emm-
anuel Macron á rökstólum í gær.