Morgunblaðið - 27.06.2020, Síða 38

Morgunblaðið - 27.06.2020, Síða 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020 á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu 50 ára Tómas er frá Vík í Mýrdal, en býr í Hafnarfirði. Hann er dýralæknir að mennt frá Hannover í Þýska- landi og er gæðastjóri hjá Matfugli. Maki: Una Björk Unn- arsdóttir, f. 1972, kennari í Hraunvalla- skóla. Börn: Arnar Freyr, f. 2006, og Ragnhild- ur Una, f. 2010. Stjúpbörn eru Glódís Brá Alfreðsdóttir og Unnur Ösp Alfreðsdóttir. Foreldrar: Sigurlín Tómasdóttir, f. 1946, fv. skrifstofustjóri hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði, og Jón Ólafsson, f. 1948, við- skiptafræðingur á Selfossi. Stjúpfaðir er Egill Bjarnason, f. 1952, fv. yfirlögreglu- þjónn í Hafnarfirði. Tómas Jónsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú þarft þú að taka á honum stóra þínum og standa af þér stormviðri um stundarsakir. Kannski ertu orðinn leiður á rússíbana rómantíkurinnar og vilt fara úr vagninum. 20. apríl - 20. maí  Naut Til að samband gangi verða báðir að- ilar að leggja sitt af mörkum. Reyndu að fá sem mest út úr umskiptunum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú færð góðar hugmyndir um hvernig þú getur aflað meiri tekna en áður. Hvað sem því líður eru tengsl við æðri menntun og lög ekki ljós. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú er rétti tíminn til að kynnast fólki og komast í samband við rétta aðila. Sinntu vandamönnum þínum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér vinnst allt auðveldlega svo þú átt ekki að eiga í neinum erfiðleikum með að fá þitt fram. Vertu opinn fyrir tækifærum sem kunna að leiða til ábata. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hikaðu ekki við að segja hug þinn, þótt þú finnir að viðmælandi þinn er ekki sama sinnis. Reyndu að halda sálarrónni, hvað sem á dynur. En stundum þarf hann að fara sínar eigin leiðir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhver náinn þér gæti valdið þér von- brigðum í dag. Reyndu að bíða til morguns með að leysa úr þessum málum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér kann að hugkvæmast ný leið til tekjuöflunar. Sæktu þér hjálp, þar sem þú veist að hana er að finna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt auðvelt með að laða fram það besta í öðrum sem og að miðla málum þegar menn eru ekki á eitt sáttir. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Um þessar mundir gefur þú meira en þú hefur efni á. Gerðu þér glögga grein fyrir tilfinningum þínum áður en þú lætur til skarar skríða. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Stundum virðast hlutirnir frekar í lagi ef þeir eru í ólagi. Nú er komið að því að bretta upp ermarnar og drífa í þessu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú vinnur sjálfum þér aðeins tjón með því að neita að horfast í augu við stað- reyndir. Auk þess ertu til í að vera skapandi til að gleðja vini þína. E yjólfur Guðjónsson fæddist 27. júní 1960 í Vestmannaeyjum. Hann hefur átt heima í Vestmannaeyjum alla tíð að undanskildum fáeinum mán- uðum meðan Heimaeyjargosið stóð 1973. Fyrstu árin bjó fjölskyldan að Austurvegi 3 en árið 1968 flutti hún í nýbyggt hús að Austurhlíð 12 og bjó þar fram að eldgosi 23. janúar 1973. Þá var farið til Reykjavíkur og hafðist fjölskyldan við hjá ömmu og afa Eyj- ólfs að Laugateigi 10 fyrstu vikur eld- gossins, en flutti síðar að Leirubakka 24 og bjó þar til ágúst 1973 þegar flutt var aftur til Vestmannaeyja. Þegar flutt var til Eyja eftir gos var fyrst búið að Kirkjuvegi 101 og síðan Túngötu 24 þar til fjölskyldan hafði byggt nýtt hús að Hraunslóð 2. „Æskuslóðir mínar fóru undir hraun í eldgosinu 1973 og það er erfitt eða jafnvel ómögulegt að sætta sig við að komast aldrei á sínar æskuslóðir. Þangað leitar hugurinn oft, en æsku- slóðirnar eru bara til í minningunni.“ Sumarið 1973 var Eyjólfur í sveit hjá skyldfólki að Stóru-Sandvík í Flóa. Sumarið 1974 vann Eyjólfur að hreinsunarstörfum eftir eldgosið, en næstu tvö sumur vann Eyjólfur í Fiskiðjunni aðallega við saltfisk- verkun og aðgerð. Sumarið 1977 hófst sjómannsferill Eyjólfs en þá fékk hann pláss hjá föður sínum á Gullbergi VE 292. Gullberg var eigu Ufsabergs ehf., en það fyrirtæki áttu á þessum tíma Guðjón faðir Eyjólfs, Jón G. Ólafsson afi Eyjólfs og Ólafur Már Sigurmundsson vélstjóri. Eyjólfur var háseti á Gullbergi til hausts 1979 er hann hóf nám í Stýri- mannaskóla Vestmannaeyja þaðan sem hann útskrifaðist vorið 1981. Þá um vorið fór Eyji (en það hefur hann verið kallaður) aftur á Gullberg með föður sínum og varð fljótlega stýri- maður og fór sinn fyrsta túr sem skipstjóri 1984. Árið 1987 missti Eyj- ólfur föður sinn og tók hann þá við skipstjórn á Gullbergi. Það ár keypti fjölskylda Eyjólfs hlut Ólafs Más í út- gerðinni og í framhaldi keypti Eyjólf- ur hlut í fyrirtækinu. Árið 1999 var keypt nýtt Gullberg frá Noregi og var það í eigu fjölskyld- unnar til hausts 2005. „Árin í kring- um aldamótin eru mér mjög minn- isstæð, en þá var veidd norsk-íslensk síld í nót austur í hafi og seldi ég síld á miðunum til norskra vinnsluskipa og var það mjög skemmtilegur tími. Einnig voru mjög skemmtileg ár þeg- ar loðnuveiðar voru upp á sitt besta þó að skip og búnaður hafi verið mun lakari en þekkist í dag.“ Árið 2007 keypti Ufsaberg ehf. tog- skip frá Ástralíu og gerði út til 2010 en það ár var skipið selt til Vinnslu- stöðvar Vestmannaeyja og eignaðist Eyjólfur og móðir hans þá hlut í VSV. Eyjólfur hefur einnig verið skipstjóri á skipum Vinnslustöðvar Vestmanna- eyja, Kap VE 4 og nú síðustu fimm árin á Ísleifi VE 63. Eyjólfur er mikill stuðningsmaður ÍBV og var hann nokkur ár í Þjóðhá- tíðarnefnd fyrir félagið og hefur hann starfað við þjóðhátíð í áratugi. Eyjólf- ur er félagi í Akóges og hefur setið þar í stjórn og sem formaður. Þá var Eyjólfur stjórnarmaður í Útvegs- Eyjólfur Guðjónsson, útgerðarmaður og skipstjóri – 60 ára Fjölskyldan Við útskrift Elínar úr læknanámi í Slóvakíu 2019. F.v.: Ísabella Ýr dótturdóttir, Guðrún Eydís dóttir, Eyjólfur, Elín Sólborg dóttir, Sigríður Árný, Ásta María sonardóttir, Donna Ýr dóttir, Natalía Lóa dótturdóttir. Æskuslóðir bara til í minningunni Hjónin Sigríður og Eyjólfur við Heimaklett í Vestmannaeyjum. Í Brandinum Ein af af úteyjunum. Herdís Úlfarsdóttir, Sandra Þórðardóttir, Guðmundur Andrésson, Bergþóra Andrésdóttir og Brynhildur Þorgríms- dóttir opnuðu límonaði- bás fyrir utan Krambúð- ina í Laugalæk og söfnuðu 11.278 kr. til styrktar Rauða kross- inum. Hlutavelta 40 ára Ingi er Hafn- firðingur, ólst upp í Hvömmunum og býr þar. Hann er raf- iðnfræðingur að mennt frá Háskól- anum í Reykjavík og er verkstjóri raf- magnsdeildar hjá HS veitum. Maki: Kristín Birna Björnsdóttir, f. 1981, sálfræðingur í Barnahúsi. Börn: Dagbjört Sara, f. 2006, Eva Bryn- dís, f. 2010, og Jón Gunnar, f. 2014. Foreldrar: Jón Gestur Hermannsson, f. 1948, rafmagnstæknifræðingur og fyrr- verandi rafveitustjóri Rafveitu Hafnar- fjarðar, og Berta K. Gunnarsdóttir, f. 1952, deildarstjóri launadeildar Hafnar- fjarðarbæjar. Ingi Björn Jónsson Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.