Morgunblaðið - 27.06.2020, Side 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
Stella Blómkvist hefur þrosk-ast og nýjasta spennusag-an, Morðin í Háskólabíó, erað mörgu leyti ágætlega
gerð, spennandi og vel uppbyggð,
fyndin á köflum og blátt áfram.
Kaldhæðnin virkar betur en áður
og stungurnar eru því beittari en
ella.
Sagan hverfist um óhuggulega at-
burði, kynferðisofbeldi gagnvart
börnum og fullorðnum, nauðganir
og morð eða sjálfsmorð, sem gerð-
ust 1991 og 1992. Inn í atburða-
rásina blandast stjórnmál líðandi
stundar og ýmislegt vafasamt sem
þeim tengist. Þöggunin hefur ráðið
ríkjum, lögreglan virðist ekki hafa
áhuga á að rifja gömlu málin upp og
fær það óþvegið hjá Stellu. „Djöfuls
prumphanar.“ Samt ekki yfirlög-
regluþjónarnir Vígbergur Ant-
onsson og Ragnar Jónatansson,
Raggi feiti, góði maðurinn sem er
alltaf til í sætindi, þó hann sé stöð-
ugt að reyna að grenna sig.
Trúmál, siðferði presta, klíku-
skapur, peningaþvætti, jarðakaup
útlendinga, öfgar í stjórnmálum og
yfirgangur og frekja áhrifamanna í
samfélaginu auk
hryðjuverka
koma við sögu.
Álitamálin eru
sett í samhengi
og þegar allt
kemur til alls er
ekki allt sem sýn-
ist. „Úff“ og
„segir mamma“
gera þó minna úr alvarleikanum en
efni standa til.
Þegar krafa er um að allt eigi að
vera gegnsætt og uppi á borðum
skýtur skökku við að höfundur eða
höfundar sögunnar skýli sér á bak
við dulnefni en óþarfi er að láta það
trufla sig.
Mikið er gert úr því að Stella sé
stjörnulögfræðingur, hvað svo sem
það þýðir, en því er ekki að leyna að
sögupersónan er um margt
skemmtileg, orðheppin, stuðar
mann og annan, er örugg með sjálfa
sig og kemst þangað sem hún vill.
Sannkölluð ofurkona. Í þessari bók
er hún einnig umhyggjusöm, ein-
stæð móðir og leitar ekki eins mikið
í áfengið og áður, þó hún trúi enn á
mátt þess.
Sagan rennur vel og hæfileg
lengdin gerir það að verkum að
auðvelt er að lesa hana í einum
rykk. Þægileg lesning.
Samkvæmt orðabókinni er bíó bíó
eða bíói í þágufalli og ekki skal deilt
við dómarann, en skrifara finnst
hljóma mun betur að segja að eitt-
hvað gerist í bíói en í bíó. Sjálfsagt
smekksatriði og óþarfa nöldur. En
samt!
Stella lætur
til sín taka
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Háskólabíó nýbyggt Kvikmyndahúsið á Melunum kemur við sögu í bók
Stellu Blómkvist. Rýnir segir kaldhæðni hulduhöfundarins virka að þessu
sinni „betur en áður og stungurnar eru því beittari en ella“.
Spennusaga
Morðin í Háskólabíó bbbmn
Eftir Stellu Blómkvist.
Mál og menning 2020. Kilja. 272 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Hjörleifur Valsson fiðluleikari og
Jónas Þórir píanóleikari hefja tón-
leikaröð annað kvöld, sunnudaginn
28. júní, kl. 20. Tvennir fyrstu tón-
leikarnir fara fram í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Aðrir tónleikar verða þar
fimmtudaginn 2. júlí kl. 20. Í fyrra
skiptið flytja þeir fiðlutónlist með pí-
anóundirleik en fimmtudaginn 2. júlí
verður fyrri hluti tónleikanna uppi
við orgelið og það látið njóta sín með
fiðlunni.
Tónleikaröðin heldur svo áfram
laugardaginn 4. júlí í Englendinga-
vík í Borgarnesi. Þar verða tvennir
stuttir tónleikar undir yfirskriftinni
„Stefnumót við listamann“, þeir fyrri
kl. 16 og þeir síðari kl. 21. Sunnudag-
inn 5. júlí spilar tvíeykið í Safnahús-
inu á Húsavík og mánudaginn 6. júlí í
Egilsstaðakirkju kl. 20. Ferðalaginu
lýkur svo laugardaginn 18. júlí með
tónleikum í Ísafjarðarkirkju kl. 17.
Svolítið bland í poka
Jónas og Hjörleifur hafa spilað
mikið saman undanfarin 25 ár. Hjör-
leifur býr í bænum Asker, rétt fyrir
utan Ósló, en hann kemur til lands-
ins af og til og þá þykir þeim félögun-
um gaman að rifja upp gömul kynni.
Hjörleifur er að miklu leyti mennt-
aður í Austur-Evrópu og Þýskalandi
og segist hann hafa „mjög evrópskar
rætur“. Jónas tekur undir. „Tónlist-
in okkar ber þess að mörgu leyti
merki. Við spilum dálítið af austur-
evrópskri fiðlutónlist sem er al-
gjörlega mögnuð.“
Efnisskrá tónleikaferðarinnar er
að sögn tvíeykisins mjög blönduð. „Á
ferðalaginu verður svolítið bland í
poka, við erum svona laugardags-
nammistrákar,“ segja þeir og hlæja.
Efnisskráin verður að miklu leyti
byggð í kringum fjóra liði. Fyrsta
þemað verður kvikmyndatónlist. Þar
kemur við sögu tónlist úr Chaplin-
myndinni Limelight og verk úr
Schindler’s List eftir John Williams.
Einnig verður tónlist úr smiðju kvik-
myndatónskáldanna Ennio Morri-
cone og Nino Rota á dagskrá.
Næsti flokkur verður tangóar. Þar
má nefna Jalousie eftir danska tón-
skáldið Jacob Gade, sem Jónas nefn-
ir að segja megi að sé þekktasti
tangó heims. Þeim þykir skemmti-
legt að taka fyrir þennan tangó frá
nágrannaþjóðinni. „Svo förum við til
Argentínu, spilum lag sem heitir Por
Una Cabezasa úr myndinni Scent of
a Woman. Við endum síðan tangó-
pakkann með Libertango eftir Astor
Piazzolla,“ segir Jónas.
Minnast Sigfúsar og föðurins
Næsti liður á efnisskránni verður
til heiðurs Sigfúsi Halldórssyni sem
hefði orðið hundrað ára 7. september
næstkomandi. „Við ætlum að minn-
ast hans með því að taka Fúsa-
syrpu. Það vill svo skemmtilega til að
ég er eiginlega alinn upp af honum
að ákveðnu leyti og þekkti hann
ákaflega vel. Hann var góður vinur
föður míns. Hann hafði sinn ákveðna
píanóstíl þannig að ég reyni eftir
bestu getu að fara í hans spor.“
Með fjórða hlutanum á dag-
skránni minnast þeir föður Jónasar,
fiðluleikarans Jónasar Þóris Dag-
bjartssonar. Jónas Þórir yngri spil-
aði mikið með föður sínum á árum
áður. „Það má segja að þessi ungi
maður hafi gengið mér í föðurstað að
þessu leyti,“ segir Jónas um sam-
starfið við fiðluleikarann Hjörleif og
hlær. Í þessum hluta segjast þeir
flytja tvö lög sem faðir hans hélt
mikið upp á.
Hafa saknað tónleikahalds
Þá er þó ekki allt upptalið af því
efni sem gestir tónleikaraðarinnar
geta átt von á. Þeir munu spila rúss-
neska og austurevrópska tónlist eftir
Tsjaíkovskíj, Smetana, Chopin og
Liszt. Tónlist djassleikarans Duke
Ellington verður einnig á dagskrá.
Milli þátta á þessari fjölbreyttu
efnisskrá munu Hjörleifur og Jónas
taka upp hljóðnemann og segja sög-
ur. Þeir höfðu sama háttinn á á tón-
leikum í Iðnó fyrir fjórum árum og
gafst það vel.
Spurður hvers vegna þeir Hjör-
leifur hafi ákveðið að leggja af stað í
þessa tónleikaferð segir Jónas: „Við
erum að bregðast við þörf okkar til
að koma fram og spila fyrir fólk. Í
þessu fári sem hefur gengið yfir
undanfarið höfum við saknað þess.
Það er í eðli tónlistarmannsins að
hann verður að spila fyrir fólk.
Ánægjan felst í því.“
Kvikmyndatónlist,
tangóar og rússneskt
Hjörleifur Valsson og Jónas Þórir hefja tónleikaröð
Fyrstu tónleikarnir í Fríkirkjunni annað kvöld
Tvíeyki Jónas Þórir og Hjörleifur á tónleikum í Iðnó fyrir fjórum árum.
Gestir í Hamburger Bahnhof-samtímalistasafninu í
Þýskalandi virða hér fyrir sér viðamikla og æði litskrúð-
uga innsetningu listakonunnar Katharinu Grosse. Hún
er í hópi kunnustu þýsku listamanna samtímans og vinn-
ur með litaflæði eins og þetta; auk þess að vinna inn í sal-
inn flæðir litasprengja hennar um útveggi safnsins.
AFP
Litasprengja Grosse í Hamborg