Morgunblaðið - 27.06.2020, Side 48
Sæunn Þorsteinsdóttir, einn fremsti sellóleikari þjóð-
arinnar, spilar á stofutónleikum á Gljúfrasteini á morg-
un, sunnudag, kl 16. Þar mun hún leika meistaraverk
fyrir einleiksselló eftir J.S. Bach og Hafliða Hall-
grímsson. Þetta verða fyrstu stofutónleikar ársins á
Gljúfrasteini en þeir verða í framhaldinu haldnir hvern
sunnudag frá 2. júní til 25. ágúst. Sæunn er með kunn-
ustu einleikurum Íslands, hefur komið fram í mörgum
stærstu tónleikahúsum heims, með virtum hljóm-
sveitum, og hlotið verðlaun og viðurkenningar.
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari
á stofutónleikum á Gljúfrasteini
Liverpool hefur tryggt sér enska meistaratitilinn í fót-
bolta með fáheyrðum yfirburðum þegar enn eru sjö
umferðir eftir af úrvalsdeildinni. Nú er spurningin bara
sú hvort liðið bæti fleiri metum í sarpinn á lokasprett-
inum en þeim sem þegar eru í húsi, eða hvort leikmenn
liðsins séu orðnir saddir þegar stóra takmarkinu er náð
og slaki aðeins á síðustu vikur tímabilsins. »41
Slær Liverpool fleiri met eða eru
leikmennirnir orðnir saddir?
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Feðgarnir Magni R. Magnússon,
fyrrverandi kaupmaður í Frímerkja-
miðstöðinni og síðan í verslunni Hjá
Magna, og Guðmundur H. Magna-
son, framkvæmdastjóri hjá Heim-
kaup.is, eiga ýmislegt sameiginlegt.
Eitt er óstjórnlegur áhugi á borð-
spili, sem Magni seldi í bílförmum
eftir að það kom út fyrir rúmum fjór-
um áratugum og Heimkaup.is hóf
forsölu á í liðinni viku.
Haukur Halldórsson myndlistar-
maður hannaði spilið sem kom á
markað 1977 og naut strax mikilla
vinsælda. „Búðin mín á Laugaveg-
inum var svo lítil að hún var full þeg-
ar fjórir voru komnir inn og þá biðu
menn á tröppunum fyrir utan,“ rifjar
Magni upp. „Þá fór fólk að velta fyrir
sér af hverju þarna væri svona mikil
ös, en tilfellið er að Útvegsspilið var
mjög vinsælt, ég seldi óhemju mörg
spil og það var víða spilað allan sólar-
hringinn.“
Magni segist ekki hafa haft tíma til
að spila mikið sjálfur, en í glugga-
lausu herbergi á heimilinu hafi strák-
arnir, Guðmundur og vinir hans, spil-
að það heilu og hálfu sólarhringana.
Spilið væntanlegt í september
Spilaborg hefur ákveðið að endur-
útgefa spilið í samstarfi við höfund-
inn og er það væntanlegt á markað 1.
september. „Spilið hefur ekki verið
til sölu í verslunum í mörg ár en
gömul og notuð eintök í góðu standi
hafa selst fyrir háar upphæðir á net-
inu,“ segir Guðmundur. „Ég þekki
Útvegsspilið afskaplega vel og upp-
veðraðist allur þegar Stefán Sigur-
jónsson, framkvæmastjóri Spila-
borgar, hringdi og ég samdi við hann
um að selja það í forsölu.“ Hann seg-
ir skemmtilegt að upphaflega útgáf-
an verði aftur á boðstólum, ekki síst
vegna þess að allt í sambandi við
hana sé íslenskt. „Upplagið er tak-
markað og þó spilið verði hugsanlega
gefið aftur út síðar verður það ekki í
þessari útgáfu.“
Forsala á spilum hefur ekki verið
algeng hjá heimkaup.is, en Guð-
mundur segir að honum hafi þótt
gráupplagt að fara þessa leið. Sam-
starfsmennirnir hafi ekki allir verið
eins ákafir og hann. „Það var því sér-
staklega ánægjulegt að sjá hvernig
forsalan fór af stað, en 500 stykki
seldust fyrsta sólarhringinn og að-
eins verða gefin út 5.000 eintök. Ekki
kemur mér á óvart ef spilið verður
uppselt áður en það kemur út.“
Stundum er sagt að lífið fari í
hringi og Guðmundur upplifir það í
sambandi við spilið sem hann er ný-
byrjaður að selja. „Ég ólst að miklu
leyti upp í búðinni hjá pabba og
pakkaði inn ótöldum Útvegsspilum.
„Það var mikil pappírseyðsla fyrir
jólin, því þá pökkuðum við vörunum
inn í sérstakan jólapappír,“ skýtur
Magni inn í.
„Ég féll algerlega fyrir spilinu,“
heldur Guðmundur áfram. „Í minn-
ingunni voru allir þessir peningar
svo skemmtilegir, að kaupa báta og
taka áhættu.“ Hann gleymir sér í
upprifjuninni og er allt í einu kominn
á kaf í útgerðina, farinn að velta fyrir
sér fiskimiðum, aflabrögðum og
vinnslunni. „Þetta er stórskemmti-
legt spil og ég bíð spenntur eftir að fá
það aftur en pakkinn minn týndist í
einhverjum flutningunum nema ég
hafi lánað spilið og ekki fengið það
aftur.“
Alltaf jafn skemmtilegt
Morgunblaðið/Eggert
Útvegsspilið Feðgarnir Magni R. Magnússon og Guðmundur H. Magnason eiga margar góðar minningar um spilið.
Magni R. Magnússon seldi Útvegsspilið í bílförmum fyrir
áratugum og Guðmundur Magnason nú í sömu sporum
Picasso
rmúla 24 • S. 585 2800
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 179. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
ÍÞRÓTTIR MENNING