Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 48
Sæunn Þorsteinsdóttir, einn fremsti sellóleikari þjóð- arinnar, spilar á stofutónleikum á Gljúfrasteini á morg- un, sunnudag, kl 16. Þar mun hún leika meistaraverk fyrir einleiksselló eftir J.S. Bach og Hafliða Hall- grímsson. Þetta verða fyrstu stofutónleikar ársins á Gljúfrasteini en þeir verða í framhaldinu haldnir hvern sunnudag frá 2. júní til 25. ágúst. Sæunn er með kunn- ustu einleikurum Íslands, hefur komið fram í mörgum stærstu tónleikahúsum heims, með virtum hljóm- sveitum, og hlotið verðlaun og viðurkenningar. Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari á stofutónleikum á Gljúfrasteini Liverpool hefur tryggt sér enska meistaratitilinn í fót- bolta með fáheyrðum yfirburðum þegar enn eru sjö umferðir eftir af úrvalsdeildinni. Nú er spurningin bara sú hvort liðið bæti fleiri metum í sarpinn á lokasprett- inum en þeim sem þegar eru í húsi, eða hvort leikmenn liðsins séu orðnir saddir þegar stóra takmarkinu er náð og slaki aðeins á síðustu vikur tímabilsins. »41 Slær Liverpool fleiri met eða eru leikmennirnir orðnir saddir? Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Feðgarnir Magni R. Magnússon, fyrrverandi kaupmaður í Frímerkja- miðstöðinni og síðan í verslunni Hjá Magna, og Guðmundur H. Magna- son, framkvæmdastjóri hjá Heim- kaup.is, eiga ýmislegt sameiginlegt. Eitt er óstjórnlegur áhugi á borð- spili, sem Magni seldi í bílförmum eftir að það kom út fyrir rúmum fjór- um áratugum og Heimkaup.is hóf forsölu á í liðinni viku. Haukur Halldórsson myndlistar- maður hannaði spilið sem kom á markað 1977 og naut strax mikilla vinsælda. „Búðin mín á Laugaveg- inum var svo lítil að hún var full þeg- ar fjórir voru komnir inn og þá biðu menn á tröppunum fyrir utan,“ rifjar Magni upp. „Þá fór fólk að velta fyrir sér af hverju þarna væri svona mikil ös, en tilfellið er að Útvegsspilið var mjög vinsælt, ég seldi óhemju mörg spil og það var víða spilað allan sólar- hringinn.“ Magni segist ekki hafa haft tíma til að spila mikið sjálfur, en í glugga- lausu herbergi á heimilinu hafi strák- arnir, Guðmundur og vinir hans, spil- að það heilu og hálfu sólarhringana. Spilið væntanlegt í september Spilaborg hefur ákveðið að endur- útgefa spilið í samstarfi við höfund- inn og er það væntanlegt á markað 1. september. „Spilið hefur ekki verið til sölu í verslunum í mörg ár en gömul og notuð eintök í góðu standi hafa selst fyrir háar upphæðir á net- inu,“ segir Guðmundur. „Ég þekki Útvegsspilið afskaplega vel og upp- veðraðist allur þegar Stefán Sigur- jónsson, framkvæmastjóri Spila- borgar, hringdi og ég samdi við hann um að selja það í forsölu.“ Hann seg- ir skemmtilegt að upphaflega útgáf- an verði aftur á boðstólum, ekki síst vegna þess að allt í sambandi við hana sé íslenskt. „Upplagið er tak- markað og þó spilið verði hugsanlega gefið aftur út síðar verður það ekki í þessari útgáfu.“ Forsala á spilum hefur ekki verið algeng hjá heimkaup.is, en Guð- mundur segir að honum hafi þótt gráupplagt að fara þessa leið. Sam- starfsmennirnir hafi ekki allir verið eins ákafir og hann. „Það var því sér- staklega ánægjulegt að sjá hvernig forsalan fór af stað, en 500 stykki seldust fyrsta sólarhringinn og að- eins verða gefin út 5.000 eintök. Ekki kemur mér á óvart ef spilið verður uppselt áður en það kemur út.“ Stundum er sagt að lífið fari í hringi og Guðmundur upplifir það í sambandi við spilið sem hann er ný- byrjaður að selja. „Ég ólst að miklu leyti upp í búðinni hjá pabba og pakkaði inn ótöldum Útvegsspilum. „Það var mikil pappírseyðsla fyrir jólin, því þá pökkuðum við vörunum inn í sérstakan jólapappír,“ skýtur Magni inn í. „Ég féll algerlega fyrir spilinu,“ heldur Guðmundur áfram. „Í minn- ingunni voru allir þessir peningar svo skemmtilegir, að kaupa báta og taka áhættu.“ Hann gleymir sér í upprifjuninni og er allt í einu kominn á kaf í útgerðina, farinn að velta fyrir sér fiskimiðum, aflabrögðum og vinnslunni. „Þetta er stórskemmti- legt spil og ég bíð spenntur eftir að fá það aftur en pakkinn minn týndist í einhverjum flutningunum nema ég hafi lánað spilið og ekki fengið það aftur.“ Alltaf jafn skemmtilegt Morgunblaðið/Eggert Útvegsspilið Feðgarnir Magni R. Magnússon og Guðmundur H. Magnason eiga margar góðar minningar um spilið.  Magni R. Magnússon seldi Útvegsspilið í bílförmum fyrir áratugum og Guðmundur Magnason nú í sömu sporum Picasso rmúla 24 • S. 585 2800 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 179. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.