Morgunblaðið - 30.06.2020, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.06.2020, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. J Ú N Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  152. tölublað  108. árgangur  SAMKENND Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG FERÐAMENN FLÝJA FARALDUR SKIPTAST Á ÍSLANDS- METUM FEGNIR Í FRÍI 6 SAMKEPPNI Í SLEGGJU 26HETJUTENÓR 28 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lengri tíma mun taka að ná samn- ingum við helstu lánardrottna og við- skiptamenn Icelandair Group en vonir stóðu til. Þannig standa enn yf- ir viðræður við innlendar banka- stofnanir og erlendar um fjárhags- lega endurskipulagningu félagsins. Þá eru viðræður við flugvélaleigu- sala á viðkvæmu stigi en þeir hafa fjármagnað endurnýjun flugflota fé- lagsins sem nú stendur að hluta kyrrsettur í Frakklandi. Heimildir Morgunblaðsins herma að viðræður við Íslandsbanka og Landsbanka, ásamt forsvarsmönnum ríkissjóðs, gangi vel en þær miða bæði að því að bankarnir breyti lánum á hendur fé- laginu í hlutafé og að ríkissjóður veiti ríkisábyrgð á lánalínum sem hægt verði að grípa til ef þörf krefur. Einnig herma heimildir Morgun- blaðsins að viðræður við CIT Bank sem er stór lánardrottinn gangi vel. Þar eigi hins vegar, eins og í tilfelli hinna bankanna, eftir að hnýta lausa enda og ekki verði gengið frá þeim með viðunandi hætti fyrr en hluta- fjárútboð hefur farið fram og nýju fé til rekstrarins verið safnað. Stærstu hluthafar Icelandair eru íslenskir lífeyrissjóðir. Hafa þeir í allnokkrar vikur beðið upplýsinga um framtíðaráform félagsins en möguleg þátttaka þeirra í fyrirhug- uðu hlutafjárútboði mun velta á mati þeirra og ráðgjafa sem þeir hafa kallað að borðinu á þeim áformum. Vonir þeirra um að geta hafið sjálf- stæða greiningarvinnu á rekstrar- horfum félagsins urðu að engu í gær þegar Icelandair frestaði útboðinu fram í ágústmánuð. Ljóst er að end- urteknar frestanir á útboðinu munu reyna enn frekar á fjárhagslegt þan- þol félagsins. Segir í tilkynningu frá því að laust fé þess standi í 150 millj- ónum dollara, eða nærri 21 milljarði króna. Er það 50 milljónum dollara undir því markmiði sem félagið hef- ur haft um laust fé til ráðstöfunar. Enn þurfa stórir hluthafar að bíða nánari upplýsinga  Icelandair frestar hlutafjárútboði eina ferðina enn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flug Útboðinu var frestað í gær. MStaðan þrengist þegar … »12 Um 100 til 150 manns komu saman á kyrrðarstund við Bræðraborgarstíg í gærkvöldi til að votta þeim sem létust í bruna þar fyrir helgi virðingu sína og sömuleiðis til þess að sýna samúð og samhug með þeim sem eiga um sárt að binda eftir eldsvoðann. Margir hverjir komu með blóm og lögðu upp að húsinu sem brann. Starfsfólk Húsnæðis- og mannvirkja- stofnunar vinnur nú að því að læra af eldsvoðanum. Ef í ljós kemur að breyta þurfi lögum þá mun stofnunin vinna að slík- um breytingum, að sögn forstöðumanns brunamála. »10 Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Sýndu þeim sem eiga um sárt að binda samúð og samhug  Óumdeilt er að yfirlögn á vegar- kafla á Kjalar- nesi, þar sem banaslys varð á sunnudag, hafi ekki uppfyllt kröfur Vega- gerðarinnar. Þetta segir Berg- þóra Þorkels- dóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, spurð að því hvort verktakinn sem lagði yfir- lögnina á vegarkaflann væri ósam- mála því mati stofnunarinnar að hann hefði ekki staðist kröfur. Bergþóra fundaði með verktök- unum í gær og átti einnig fund með mótorhjólamönnum, en banaslysið varð þegar mótorhjól og húsbíll skullu saman. Á vegarkaflanum sem slysið varð á var nýtt malbik sem var afar hált og stóðst ekki kröfur Vegagerð- arinnar. Nú á að leggja nýja yfirlögn á kaflann en sami verktaki mun ann- ast það verk og lagði hálu yfirlögn- ina. »2 Óumdeilt að kröfur hafi verið óuppfylltar Bergþóra Þorkelsdóttir Íslensk stjórnvöld uppfylla ekki lág- marksskilyrði um aðgerðir gegn mansali, samkvæmt nýrri skýrslu um stöðu mansals í löndum í heim- inum. Skýrslan er byggð á úttekt banda- ríska utanríkisráðuneytisins, en samkvæmt henni fellur Ísland í ann- an flokk fjórða árið í röð, sem þýðir að stjórnvöld uppfylli ekki að fullu skilyrði um mansal, en hafi sýnt við- leitni til þess. Bæta þurfi sérfræðiþekkingu Stjórnvöld hafa tekið skref til að bæta aðgerðir gegn mansali, en Ís- land er gagnrýnt fyrir m.a. skort á sérfræðiþekkingu og að ekki sé nægilegt eftirlit með viðkvæmum samfélagshópum. Ísland þarf skv. úttektinni að bæta fyrirbyggjandi aðgerðir til að bera kennsl á möguleg fórnarlömb, ásamt því að bæta sérfræðiþekkingu í rannsókn mála og öflun sönnunar- gagna. petur@mbl.is »14 Ísland í 2. flokki í úttekt á mansali

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.