Morgunblaðið - 30.06.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Klæðning á vegkafla á Vesturlands-
vegi á Kjalarnesi, þar sem tveir létu
lífið í slysi í fyrradag, uppfyllti ekki
skilyrði Vegagerðarinnar. Þetta
segir Bergþóra Þorkelsdóttir vega-
málastjóri. Ákveðið var á fundi
Vegagerðarinnar með verktökum í
gær að nýtt malbik yrði lagt yfir
veginn og sama verður gert á kafla
við Gullinbrú í Reykjavík, en hann
verður fræstur og endurlagður. Þá
verða aðrir kaflar sem gætu verið
of hálir skoðaðir og lagfærðir ef
þörf krefur. Bergþóra segir að
einnig verði verklagi breytt á þá
leið að hámarkshraði verði alltaf
lækkaður niður í 50 km/klst. fyrstu
dagana eftir að malbikað hefur ver-
ið, samhliða því sem varað er við
hálu malbiki.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Bergþóra að nýtt malbik sé alltaf
hálla en eldra, en það jafni sig
venjulega fljótt. Malbikið á Kjal-
arnesi hafi verið óvenjuhált en
ástæða þess liggi ekki fyrir enn.
Malbikið sem Vegagerðin kaupir er
að sögn Bergþóru í hæsta gæða-
flokki. Hún segir að í kjölfar kór-
ónuveirufaraldursins hafi malbikun-
arstöðin þurft að skipta um birgi og
það sé einn þeirra þátta sem eru til
skoðunar.
„Við tökum þetta grafalvarlega og
vinna okkar hér í dag [í gær] sneri
að því hvernig við gætum veitt
meira aðhald með framkvæmdum,“
segir Bergþóra.
Því hefur verið velt upp hvort sú
ákvörðun að skipta terpentínu út
fyrir jurtaolíu í þágu umhverfis hafi
áhrif á gæði vega. Bergþóra gefur
hins vegar lítið fyrir það. Terpent-
ínan sé aðeins notuð í klæðningu,
ekki malbiki, og þar að auki séu
mörg ár síðan sú breyting var gerð.
Sjúkrabíll hafnaði utan vegar
Tveir létu lífið er bifhjól og húsbíll
skullu saman á veginum um miðjan
dag á sunnudag og létust ökumaður
og farþegi bifhjólsins, en haft var
eftir Ásgeiri Þór Ásgeirssyni yfir-
lögregluþjóni á mbl.is að malbikið
væri „nánast eins og skautasvell“.
Þá hafnaði sjúkrabíll utan vegar
þegar sjúkraflutningamenn og
slökkvilið voru á leið á vettvang. Að
sögn Bergþóru var yfirborð vegar-
ins töluvert hálla en það átti að vera
samkvæmt útboði en það var ástæða
þess að eftirlitsaðili sá ástæðu til að
vara við hálku á veginum á sunnu-
dag. Mikill hiti á sunnudag og úr-
hellisrigning hafi síðan leitt til þess
að kaflinn var en hálli en ella og seg-
ir í tilkynningu Vegagerðarinnar að
aðstæður hafi verið mjög slæmar
þegar slysið varð.
Framkvæmdin á Vesturlandsvegi
er í höndum verktakans Loftorku,
en malbikið er keypt frá malbik-
unarstöðinni Höfða. Þá hefur verk-
fræðistofan Hnit haft eftirlit með
framkvæmdinni.
Morgunblaðið/Eggert
Vettvangsransókn Lögreglan rannsakaði aðstæður á Vesturlandsvegi í gær og lokaði þess vegna fyrir umferð um veginn í um eina til tvær klukkustundir.
Skoða hvað fór úrskeiðis
Vegkaflar á Kjalarnesi og Gullinbrú verða malbikaðir aftur Óvíst hvort nýr
birgir hafði áhrif Hámarkshraði verður lækkaður á nýmalbikuðum vegum
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Malbik Ástæða var talin til að malbika veginn að nýju eftir banaslysið. Há-
markshraði verður lækkaður niður í 50 km/klst. fyrstu daga eftir malbikun.
Nýr hópur mót-
orhjólamanna var
stofnaður í kjöl-
far slyssins sem
hefur það að
markmiði að
þrýsta á umbæt-
ur í vegakerfinu
og vekja athygli
mótorhjólamanna
á þeim hættum
sem leynast á
vegum úti.
Forsvarsmenn
hópsins, Vega og
mótorhjóla,
ásamt mótor-
hjólasamtök-
unum Sniglunum
og fleiri mótor-
hjólamönnum og
áhugamönnum
um mótorhjól,
standa fyrir
samstöðufundi í porti Vegagerð-
arinnar í dag klukkan eitt.
„Við viljum ekki finna sökudólg
heldur finna út hvað gerðist og hvað
við getum gert til þess að koma í veg
fyrir að þetta gerist aftur,“ segir
Stefán Sæbjörnsson, einn af tals-
mönnum Vega og mótorhjóla.
Hann kveðst ánægður með hvern-
ig Vegagerðin, stjórnvöld og þing-
menn hafa brugðist við í kjölfar
slyssins og vonar að viðbrögðin verði
til þess að öryggi á vegum verði bætt
til muna. Þá telur Stefán sömuleiðis
að það sé samfélagsleg ábyrgð mót-
orhjólamanna að fræða aðra öku-
menn og mótorhjólamenn um vegar-
kafla sem eru hættulegir, til dæmis
séu þeir allnokkrir á þjóðvegi eitt.
Hliðið að portinu verði opið
Bergþóra Þorkelsdóttir hefur bú-
ið svo um hnútana að hliðið að port-
inu við Vegagerðina verði opið vegna
mótmælanna svo mótorhjólamenn
geti fjölmennt þangað með hjól sín.
Spurð hvers vegna það sé segir
Bergþóra:
„Við erum alltaf opin fyrir öllum
sem vilja tala við Vegagerðina. Mót-
orhjólamenn eru bara eins og aðrir
Íslendingar og hafa not fyrir þetta
samgöngukerfi sem við þjónum og
þeir eru velkomnir til okkar. Ég átti
fund með forsvarsmönnum þeirra í
dag [í gær] og geri ráð fyrir að hitta
þá aftur á morgun [í dag]. Við erum
ekki óvinir, við erum samherjar.“
ragnhildur@mbl.is
„Viljum
ekki finna
sökudólg“
Samstöðufundur
í porti Vegagerðar
Stefán
Sæbjörnsson
Bergþóra
Þorkelsdóttir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Sveitarstjórnin vildi vera með í ráð-
um frá upphafi um það hvers lags
bygging risi þarna. Fyrstu drög frá
Loo samrýmast stefnu sveitar-
stjórnar og fólki líst almennt vel á
þessi áform,“ segir Haraldur Birgir
Haraldsson, skipulags- og bygging-
arfulltrúi Rangárþings ytra.
Áform malasíska athafnamannsins
Loo Eng Wah um uppbyggingu
ferðaþjónustu á Hellu eru nú farin að
taka á sig mynd. Morgunblaðið hefur
greint frá uppbyggingu sem hann
hefur staðið fyrir á Leyni 2 og 3 í
Landsveit. Áform hans þar hafa verið
umdeild og hefur Loo þurft að breyta
þeim vegna andstöðu hagsmunaaðila
á svæðinu. Í byrj-
un þessa árs fékk
hann úthlutaðar
tvær atvinnulóðir
á besta stað á
Hellu. Annars
vegar er um að
ræða lóð við
bakka Rangár og
hins vegar við
Miðvang, gegnt
skrifstofu sveitarfélagsins og miðstöð
þjónustu þar. Þeirri lóð hefur verið
lýst sem „andliti Hellu“.
Loo hefur ekki látið kórónuveiru-
faraldurinn stöðva sig. Hann hefur að
sögn Haraldar Birgis fjarlægt um-
deild hjólhýsi sem voru á Leyni. Beð-
ið er afgreiðslu Skipulagsstofnunar til
að hægt sé að auglýsa breytingu á að-
alskipulagi á því svæði. Loo hefur
þess í stað lagt drög að hótelbyggingu
á lóð við bakka Rangár á Hellu.
„Þetta verður að megninu til hótel
en hann er þó enn með hugmyndir
um að tengja húsið við einhverja
þjónustu, mögulega verslun. Fjöldi
herbergja liggur ekki endanlega fyrir
en húsið verður á þremur hæðum svo
þetta gætu verið allt að 40 herbergi.
Hann lagði þessar hugmyndir fram í
miðjum Covid-faraldri svo hann er
ekki af baki dottinn.“
Haraldur Birgir upplýsir jafnframt
að lóðin við Miðvang sé í biðstöðu
vegna þess að verið sé að yfirfara
skipulag miðbæjar Hellu. Ekki liggur
fyrir hversu stór lóðin verður á end-
anum. „Loo bíður spenntur eins og
við hin,“ segir Haraldur Birgir.
Loo byggir 40 herbergja hótel
Athafnamaður frá Malasíu lætur ekki kórónuveiruna
stöðva áform sín Þriggja hæða hótel við bakka Rangár
Loo Eng Wah