Morgunblaðið - 30.06.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Aðrar Christopher Nolan myndir:
The Dark Knight,
The Dark Knight Rises
Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð
á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson,
sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. EXTENDED EDITION
Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI
30 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFAN
SÝND Í NOKKRA DAGA.Sýnd með íslensku tali
Tilkynnt hefur verið um aukaút-
hlutun starfslauna listamanna sem
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið kom á vegna heimsfaraldurs
Covid-19. Úthlutunin, alls 600 mán-
aðarlaun, byggir á þingsályktun um
sérstakt tímabundið fjárfestingar-
átak til að vinna gegn samdrætti í
hagkerfinu í kjölfar kórónuveiru.
Fjöldi umsækjenda var 1.390.
Listamannalaun fá 278 listamenn og
er árangurshlutfall umsækjenda
20%. Alls var sótt um 5.747 mánuði
og er árangurshlutfall sjóðsins því
rétt ríflega 10%, reiknað eftir mán-
uðum.
Starfslaun listamanna eru 407.413
kr. á mánuði og um verktaka-
greiðslur er að ræða.
Úthlutað er frá einum að sex mán-
uðum. Fimm fá úr launasjóði hönn-
uða, mest Hanna Dís Whitehead 5
mánuði og þær Magnea Einarsdóttir
og Anita Hirlekar 4 mánuði.
70 fá úr launasjóði myndlistar-
manna. Guðjón Ketilsson fær 6 mán-
uði. 5 mánuði fá Anna Rún Tryggva-
dóttir, Styrmir Örn Guðmundsson
og Freyja Eilíf. 4 mánuði fá Gunn-
hildur Hauksdóttir, Hannes Lárus-
son, Kolbeinn Hugi Höskuldsson,
Ósk Vilhjálmsdóttir og Sigríður
Björg Sigurðardóttir.
78 fá úr launasjóði rithöfunda. Atli
Sigþórsson fær 4 mánuði og margir
3 mánuði, þar á meðal Angela Marie
Rawlings, Anna Hafþórsdóttir, Ant-
on Helgi Jónsson, Arndís Þórarins-
dóttir, Ása Marin Hafsteinsdóttir,
Benný Sif Ísleifsdóttir, Bergur
Ebbi, Bernd Ogrodnik, Birnir Jón
Sigurðsson, Bjarni M. Bjarnason,
Björk Þorgrímsdóttir, Björn Hall-
dórsson, Bragi Sigurðarson, Bryn-
dís Björgvinsdóttir, Brynja Hjálms-
dóttir, Dagur Hjartarson, Davíð
Hörgdal Stefánsson, Elísabet Krist-
ín Jökulsdóttir, Emil Hjörvar Peter-
sen, Eva Björg Ægisdóttir, Eyrún
Ósk Jónsdóttir, Fríða B. Andersen,
Fríða Ísberg, Garðar Baldvinsson,
Guðmundur Brynjólfsson, Guð-
mundur J. Óskarsson, Guðni Líndal
Benediktsson, Halldór Armand Ás-
geirsson, Haukur Már Helgason,
Heiðar Sumarliðason, Hermann
Stefánsson, Ingibjörg Hjartardóttir,
Jónas Reynir Gunnarsson, Júlía
Margrét Einarsdóttir, Kari Ósk
Grétudóttir, Karl Ágúst Úlfsson,
Kikka Kristlaug María Sigurðar-
dóttir og fleiri.
36 fá úthlutað úr launasjóði sviðs-
listamanna. Ágústa Skúladóttir fær
5 mánuði og 4 mánuði fá Aðalheiður
Halldórsdóttir, Helena Jónsdóttir
og Margrét Sara Guðjónsdóttir.
Adolf Smári fær 2 mánuði úr sjóðn-
um og aðra 2 úr launasjóði rithöf-
unda.
34 fá úthlutað úr launasjóði tón-
listarflytjenda. Magnús Jóhann
Ragnarsson fær 6 mánuði. 5 mánuði
fá Tómas Jónsson og Herdís Anna
Jónasdóttir. 4 mánuði fær Eva Þyri
Hilmarsdóttir.
55 fá úthlutað úr launasjóði tón-
skálda. 3 mánuði fá Borgar Magna-
son, Klemens Nikulásson Hannigan,
Ragna Kjartansdóttir, Salka Vals-
dóttir og Vilborg Ása Dýradóttir.
Úthlutunina má kynna sér á vefn-
um rannis.is
278 listamenn fá
starfslaun núna
600 mánaðarlaun vegna faraldurs
Ágústa
Skúladóttir
Atli
Sigþórsson
Guðjón
Ketilsson
Herdís Anna
Jónasdóttir
Myndlistarkaupstefnum og mörgum viðamiklum al-
þjóðlegum myndlistarsýningum hefur verið aflýst í ár
vegna kórónuveirufaraldursins. Meðal þeirra viðburða
sem þó eru haldnir á því sviði er útisýningin Les Extat-
iques sem var opnuð í þriðja sinn um helgina í Boul-
ogne-Billancourt við París. Gestir skoðuðu í sólskininu
fjölda verka sem hefur verið komið fyrir við göngugöt-
una að La Defense og í La Seine Musicale-görðunum,
þar á meðal þetta verk eftir kanadísku listakonuna
Julie C. Fortier, „Dagurinn þegar blómin frusu“.
AFP
Útilistaverk í frönsku sólskini
Í ágústmánuði efnir Björk til
þrennra eftirmiðdagstónleika í
Hörpu. Í fréttatilkynningu frá lista-
konunni kemur fram að tilefnið er
að fagna því að þjóðin er komin út
úr fyrsta stigi kórónuveirufarald-
ursins og að vegsama þann fjölda
íslenskra tónlistarmanna sem Björk
hefur unnið með í gegnum tíðina.
Á tónleikunum, sem fara fram
dagana 9., 15. og 23. ágúst, ætlar
Björk að koma fram ásamt lista-
fólkinu en áherslur og sam-
verkafólk eru breytileg eftir hverj-
um tónleikum fyrir sig. Allir ættu
því að geta fundið tónleika við hæfi,
en auk þess að vera með áhorf-
endur í sal verður þeim streymt á
netinu.
Femínískar áherslur verða á tón-
leikaröðinni, en eins og Björk segir
sjálf í tilkynningunni verður henn-
ar framlag til femínisma að „monta
mig af því að langflestar útsending-
arnar eru eftir mig“. Of oft sé horft
framhjá slíku þegar litið sé almennt
til framlags kvenna til tónlistar.
Eftir tónleikana, sem allir hefjast
klukkan 17, verður boðið upp á
veitingar til styrktar Kvenna-
athvarfinu. Heimilisofbeldi jókst
mikið í kórónuveiru-faraldrinum
og þessu verður að berjast gegn og
sýna um leið raunverulegan stuðn-
ing í verki.
Björk fagnar og þakkar tónlistarfólki
Ljósmynd/Santiago Felipe
Syngur Í ágúst gefst Íslendingum tæki-
færi til þess að sjá Björk í Hörpu.
Grafíski hönn-
uðurinn banda-
ríski, Milton Gla-
ser, er látinn, 91
árs að aldri.
Hann setti mark
sitt á ýmiss kon-
ar hönnun á
löngum ferli og
er meðal annars
minnst sem höf-
undar I ❤ NY-merkisins frá 1977. Í
andlátsfrétt The New York Times
segir að hann hafi átt þátt í að
breyta sjónrænum menningar-
straumum í heimalandinu á 7. og 8.
áratugnum, með litríkum vegg-
spjöldum, hönnun tímarita eins og
New York Magazine, bókarkápum
og plötuumslögum, meðal annars á
plötum Bobs Dylans. Þekkt mynd
hans af Dylan sýnir sagnaskáldið
með litríkt og sýrukennt hár sem
bylgjast um.
Hönnuður I ❤ NY-
merkisins látinn
Milton Glaser