Morgunblaðið - 30.06.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.06.2020, Qupperneq 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 2020 Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Þetta er allt annað líf hérna. Í Hollandi er fólk með grímur á hverjum degi og talar allan daginn um kórónuveiruna, ég var orðinn hundleiður á því. En hér er eins og hún sé ekki til,“ segir hol- lenski ferðamaðurinn Carlos Zeegers. Hann kom hingað til lands 19. júní til þess að ferðast og sinna sjálfboðastarfi í senn, hjá umhverfisverndarsamtökum. Örfáir ferðamenn leyndust í mann- fjöldanum á sólríkum degi í miðbæ Reykjavíkur í gær þegar blaðamaður arkaði ásamt ljósmyndara í von um að taka einhvern tali. „Þetta er búið að vera frábært frí, við gistum í Hafnarfirði og sigldum á dög- unum til Vestmannaeyja,“ segir hann. Sleppti faraldrinum Félagi Carlosar, Sebastian, hefur verið á Íslandi og sinnt sjálfboðastörf- um í þágu sömu samtaka frá því í febr- úar. Hann kemur frá Ítalíu og ákvað að vera hér enn, eftir að faraldurinn braust út. „Ég sleppti bara kórónuveirufaraldr- inum. Kærasta mín er enn á Ítalíu og samkomubannið hefur verið heima- mönnum mjög erfitt. Ísland hefur verið frábært, ég hef náð að fara Gullna hringinn og séð margt fallegt. Ég kom í byrjun febrúar og ákvað að vera lengur og vinna fyrir samtökin. Þá gat ég farið Gullna hringinn, svo að ég hef fengið tækifæri til að kynnast Ís- landi. Mig langar að fara suður og austur.“ Þau Yann og Anita, sem stödd voru við Hallgrímskirkju, kunna einkum vel við að ferðast á Íslandi þegar lítið er um ferðamenn. Samkomu- og fjarlægðar- takmarkanir eru mun meiri í heima- landi þeirra, Hollandi, um þessar mund- ir, og því tilbreyting að vera á Íslandi. „Þetta hefur verið indælt, ferða- mennirnir eru ekki enn komnir svo það er mjög friðsælt að ferðast. Fossarnir og jöklarnir eru alveg ótrúlega fallegir og þetta hefur verið frábært,“ segir Anita. „Skrýtið að verslanir séu lokaðar“ Agust Kaaw Merved frá Danmörku er ánægður með Íslandsdvölina enn sem komið er og hyggur á ferðalag austur. „Ég sá reyndar að sumar búðir eru lokaðar og ég er nokkuð hissa á því, þar sem dagleg smit eru orðin fá á Íslandi,“ segir hann. Agust er í fyrstu Íslandsför sinni og segir að ástandið eftir kórónuveiru- faraldurinn sé ekki ósvipað því sem er í Danmörku. „Miðað við mitt land er þetta meira og minna eins, eini munur- inn er sýnatakan á flugvellinum, sem okkur er skylt að fara í. Það er ekki nauðsynlegt í Danmörku,“ segir hann. Cindy og Thomas frá Suður- Frakklandi lögðu af stað í heimsreisu í september og hafa síðan þá komið við í Asíu, Nýja-Sjálandi og Ástralíu. Stefnan var síðan sett á Suður-Ameríku en þar sem landamæri þar lokuðust fyr- ir ferðamönnum varð að finna nýtt land og varð Ísland fyrir valinu. „Það var erfitt að halda áfram að ferðast en sem betur fer voru íslensk landamæri opin. Ætlunin er að fara hringinn í kringum landið og sjá Jökuls- árlón,“ segir Cindy. Þau eru nýkomin til landsins og segja komuna hafa verið sérstaka – þau hafi farið í rútu sem síðast var notuð fyrir tveimur mánuðum. Umhverfið á Íslandi er ólíkt því sem er nú í Frakklandi: „Í Frakklandi voru allir með andlits- grímur og það er passað upp á fjar- lægðina. Á flugvellinum fórum við í sýnatöku og síðan gátum við haldið för okkar áfram,“ sagði Thomas. Morgunblaðið/Eggert Sáttir Félagarnir Sebastian og Carlos segja gott að taka frí á Íslandi frá kórónuveirunni. Morgunblaðið/Eggert Ferðast Þau Yann og Anita frá Hollandi eru heilluð af jöklum og fossum landsins. Frí frá kórónuveirufaraldri á Íslandi  Erlendir ferðamenn fegnir að geta heimsótt Ísland  Friðsælla að ferðast um landið í fámenni Morgunblaðið/Eggert Ferðalangur Agust fer bráðum austur en rölti um Laugaveginn á sólríkum degi í gær. Morgunblaðið/Eggert Heimsreisa Cindy og Thomas frá Frakklandi voru fegin yfir opnun íslenskra landamæra. „Þetta er búið að vera frábært. Við vorum 18 talsins á 200 manna hóteli og við höfum aðallega séð Ís- lendinga á ferðalagi, svo þetta hefur líka verið mjög sérstakt,“ segir Michaela Grötecke frá Þýskalandi. Hún ferðaðist hringinn um landið nýverið og er sannfærð um að upplifun ferðahóps hennar hafi verið ólík því sem aðrir ferðamenn hafa kynnst á Ís- landi. Ég held að þetta sé yfirleitt öðruvísi, það var í það minnsta okkar tilfinning. Í Þýskalandi þurfum við öll að bera grímur en raunin er ekki sú sama hér,“ segir hún. Þegar á flugvöllinn var komið voru sýni tekin en enginn í hópnum reyndist smitaður. „Okkur var mjög létt,“ segir hún. Aðspurð segist hún ekki geta gert upp á milli staðanna sem hún heimsótti á Íslandi. „Allt heillaði okkur upp úr skónum,“ segir hún. Ljósmynd/Aðsend Jökulsárlón Michaela (lengst til vinstri) segist ekki geta gert upp á milli staðanna, en Jökulsárlón heillaði þó. Voru 18 á 200 manna hóteli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.