Morgunblaðið - 30.06.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.06.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 2020 Höskuldur Daði Magnússon Snorri Másson „Við lítum málið auðvitað alvarlegum augum og markmiðið með rannsókn- inni er að ákveða hvernig við ætlum að vinna þetta áfram og læra af þess- um harmleik,“ segir Davíð Snorra- son, forstöðumaður brunamála hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Stofnunin hefur hafið rannsókn vegna brunans á Bræðraborgarstíg í síðustu viku. Rannsóknin beinist að slökkvistarfinu og aðstæðum í hús- inu. Hún er skilgreind sem sjálfstæð rannsókn sem unnin er í samtarfi við lögreglu og slökkvilið. Hermann Jón- asson, forstjóri Húsnæðis- og mann- virkjastofnunar, hefur boðað slökkvi- liðsstjóra höfuðborgarsvæðisins og byggingarfulltrúann í Reykjavík til fundar í dag vegna málsins. Þar verða rædd þau verkefni sem hafa verið í gangi varðandi eftirlit með aðstæðum fólks sem býr í atvinnuhúsnæði og öðru ósamþykktu og óviðunandi hús- næði. „Við munum meðal annars kanna hvernig slökkviðið hefur unnið og brugðist við. Ef þar kemur í ljós að breyta þarf lögum og reglum þá munu menn ekki skorast undan að bregðast við því,“ segir Davíð. Sem kunnugt er hefur um árabil verið umræða um aðstæður á hús- næðismarkaði sem birtist meðal ann- ars í þeim fjölda sem býr í óboðlegu húsnæði. Samkvæmt nýlegu mati sem kom fram í svari Ásmundar Ein- ars Daðasonar, félags- og barnamála- ráðherra, við fyrirspurn á Alþingi búa um 4.000 manns nú í atvinnu- og iðn- aðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þörf á ítarlegri greiningu Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði kynnti til- lögur sínar í ársbyrjun 2019. Meðal þess sem þar kom fram var að hefja ætti átak til að safna upplýsingum um fjölda óskráðra íbúða og að skil- greindir væru hagrænir hvatar sem leiða myndu til þess að eigendur óskráðra íbúða sæju sér hag í því að íbúðin kæmi fram í opinberum skrán- ingum. Jafnframt að lögfestar yrðu lögheimilisskráningar á fasteigna- númer og hafið átaksverkefni þar sem eldri lögheimilisskráningar yrðu yfirfarnar og skráðar á íbúðir. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, að- stoðarforstjóri Húsnæðis- og mann- virkjastofnunar og annar formanna átakshópsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að tillagan um skrán- ingu væri komin inn í framvarp um breytingu á húsaleigulögum sem kynnt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Hún segir að söfnun upp- lýsinga um fjölda óskráðra íbúða hafi að mestu verið hjá Slökkviliði höfuð- borgarsvæðisins. „Næsta skref í því væri að HMS og slökkviliðið færu í ít- arlegri greiningu á þessum óleyfisí- búðum,“ segir Anna. Eftirlitið verði fært Fram kom í máli Halldórs Grön- vold, aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ, á mbl.is í gær að þúsundir verkamanna á Íslandi, einkum er- lendra, byggju við það að vinnuveit- andi þeirra útvegaði þeim húsnæði. Þar með væri starfsfólkið mjög háð fyrirtækinu, því missi það vinnuna missir það um leið húsnæðið. Úr því að atvinna og húsnæði er í svo mörg- um tilvikum tvinnað saman er verka- fólkið skiljanlega í erfiðri stöðu með að gera miklar athugasemdir við húsakost sinn. Hann er síðan eins og komið hefur á daginn oft óviðunandi til búsetu, með öðrum orðum „í mörg- um tilvikum stórhættulegt húsnæði, þar sem hvorki brunavarnir né annað sem lög gera ráð fyrir er í lagi,“ segir Halldór. Þegar húsnæði er ólöglegt er þó bót í máli fyrir vinnuveitendur sem hafa þennan háttinn á að engin sér- stök takmörk virðast vera fyrir því að hrúga kennitölum saman á löglegt lögheimili, á meðan raunveruleg bú- seta starfsfólksins er í því ólöglega. Að mati Halldórs er sá kennitölufjöldi sem var í 192 íbúðarfermetrunum á Bræðraborgarstíg 1, þ.e. 73, til marks um málamyndatilfæringar á kennitöl- um, því að ljóst hafi verið að svo margir hafi ekki haft þar búsetu. Sú stjórnsýslueining sem á að hafa eftirlit með húsnæði sem vinnuveit- endur útvega verkafólki sinnir ekki eftirlitinu, að sögn Halldórs. Það eru svonefndar heilbrigðisnefndir sveit- arfélaganna. „Okkar reynsla er sú að þessir aðilar hafi ekki verið að sinna þessum málum nokkurn skapaðan hlut,“ segir Halldór. Þess vegna segir hann afstöðu ASÍ á þá leið að hyggilegra væri að færa eftirlit með íbúðarhúsnæði á vegum vinnuveitenda til Vinnueftirlitsins. Nú þegar hafi það eftirlit með sjálfu atvinnuhúsnæðinu og því væri eðli- legt að það hefði eftirlit með því íbúð- arhúsnæði sem er á vegum atvinnu- rekandans. Aðgerðir vegna hættulegs húsnæðis  Bruninn á Bræðraborgarstíg til rannsóknar Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Kyrrðarstund Efnt var til kyrrðarstundar við Bræðraborgarstíg 1 í gær til að votta þeim sem létust í eldsvoðanum í síðustu viku virðingu. Í júlí mun ríkissáttasemjari fara í sumarfrí, en enn eru mörg sáttamál á borði embættisins. Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari sagði í samtali við Morgunblaðið að flest sáttamál væru í ágætis farvegi og ekki þyrfti að funda í júlí, en í brýn- um málum kann að vera þörf á fund- um og mun ríkissáttasemjari sinna því. Aðalsteinn segir að síðustu miss- eri hafi verið löng og ströng, ekki að- eins hjá ríkissáttasemjara, heldur einnig hjá verkalýðsfélögum og at- vinnurekendum, en meðal þeirra taka sér flestir frí í júlí. Þrettán mál í sáttameðferð „Það er mjög góð sátt um það að hlutir séu í ákveðnum farvegi og ekki mikil þörf á miklum fundar- höldum þangað til í ágúst í lang- flestum tilfellum, en þar sem eru brýn mál er þeim öllum sinnt.“ Þrettán mál eru í sáttameðferð hjá ríkissáttasemjara sem stendur. Meðal þeirra mála eru deilur Flug- freyjufélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Air Ice- land Connect, deilur Eflingar og Samtaka sjálfstæðra skóla og deila Fræðigarðs, stéttarfélags bóka- safns- og upplýsingafræðinga, lög- fræðinga og félagsvísindamanna, við Samband íslenskra sveitarfé- laga. Auk þess eru á borðum ríkis- sáttasemjara mál Landssambands lögreglumanna, Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Félags ís- lenskra leikara. Miðlunartillaga ríkissáttasemjara í máli Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga og fjármála- og efnahags- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs hefur verið samþykkt og mun niðurstaða gerðardóms um afmarkaðan hluta launaliðar kjarasamnings liggja fyr- ir 1. september. Skipun gerðardóms stendur nú yfir. petur@mbl.is Enn mörg mál á borði sáttasemjara Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sumarfrí Þrettán mál eru í sátta- meðferð hjá ríkissáttasemjara.  Brýnum málum sinnt í sumarlokun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.