Morgunblaðið - 30.06.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.06.2020, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 2020 Borgartúni 7C, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is RÍKISKAUP MARKAÐSKÖNNUN FYRIR FRAMKVÆMDASÝSLUNA – 21240 Framkvæmdasýslan óskar eftir upplýsingum um mögulegar lóðir, staðsetningar, húsnæði og tækifærum á samstarfi á markaði Áform eru um að leita eftir eða útvega sérhæft húsnæði fyrir löggæslu og viðbragðsaðila á höfuðborgasvæðinu. Löggæslu og viðbragðsaðilar: Ríkislögreglustjóri, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (öll starfsemin á Hverfisgötu og hluti af Vínlandsleið), Tollgæslan, Landhelgisgæsla (ekki flugdeildin á RVK flugvelli), Neyðarlínan, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgasvæðisins (annað en slökkvistöðvar). Stefnt er að því að staðsetja löggæslu og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu á einum stað til að auka samstarf þeirra á milli með samnýtingu og hagræðingu í húsnæðismálum. Samkvæmt þarfagreiningu á sameiginlegu húsnæði er áætluð þörf um 26.000 m². Áætlað er að þurfi um 30.000 m² lóð undir mannvirki, bílastæði og útisvæði. Markmiðið er að kanna framboð á lóðum sem uppfyllt geta þarfir verkefnisins. Upplýsingarnar verða m.a. notaðar vegna frekari undirbúnings á uppbyggingu fyrir starfsemina á hentugri lóð. Áætlað er að fara í útboð síðar á árinu 2020. Kröfur til viðkomandi lóðar: 1) Lóðin verður að liggja miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. 2) Staðsetning gefi sem stystan viðbragðstíma frá Alþingisreit. 3) Útakstur af lóð sé aðgengilegur inn á stofnbrautir og nokkrar leiðir séu af lóðinni. 4) Nálægð við almenningssamgöngur (borgarlínu), göngu- og hjólaleiðir. Um þessa markaðskönnun gilda lög um opinber innkaup 120/2016 nánar tiltekið 45 gr. Auglýst er eftir þátttöku frá aðilum sem hafa áhuga á að koma á framfæri mögulegum lóðum/húsnæði/samstarfi. Upplýsingar sem óskað er eftir: a) Nafn fyrirtækisins/aðila og kennitala. b) Staðsetning og stærð lóðar, og ef við á byggingar. c) Lóðarblað, er sýni aðkomu að lóð og ef við á byggingu. d) Gildandi deiliskipulag lóðar svæðis, þ.e. lóðar og aðlægra lóða. e) Þarf að fara í breytingar á núverandi deiliskipulagi/aðalskipulagi til að uppfylla notkun lóðar? f) Mögulegur afhendingartími lóðar. g) Er nýtingarhæft húsnæði á viðkomandi lóð og hver er stærð þess? h) Vill aðili koma með tillögur að útfærslu á lóð, uppbyggingu og nýtingu? i) Vill aðili koma einhverjum ráðum eða athugasemdum á framfæri, sem kynnu að nýtast við undirbúning? Nánari upplýsingar eru aðgengilegar í rafræna kerfinu TendSign á vefslóðinni http://utbodsvefur.is/markadskonnun-fyrir-fsr/. Þess er óskað að svör berist Ríkiskaupum eigi síðar en 14.08.2020 í gegnum TendSign. Kynningarfundur verður haldin fimmtudaginn 2. júlí í fundarsal við Skúlagötu 4 (Sjávarútvegshúsið) kl. 14:00 og einnig í gegnum fjarfundarkerfi Microsoft TEAMS, sem jafnfram verður tekinn upp og gerður aðgengilegur sem viðhengi. Skráning þátttakenda er í gegnum netfangið fsr@fsr.is. Fyrirspurnarfrestur er til 07.08.2020. KÖNNUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.